24 stundir - 15.12.2007, Blaðsíða 32
32 LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2007 24stundir
ÁSTANDHEIMSINS
frettir@24stundir.is a
Í stað vörslu á landamærum munum við leggja aukna
áherslu á færanlegar athuganir, þar sem gætt verður að
hvort einstaklingar séu eftirlýstir innan Evrópusambandsins.
Jacek Sonta, upplýsingafulltrúi pólsku landamæravörslunnar
Aðstaða landamæravarða á
landamærum Þýskalands og Pól-
lands heyrir brátt sögunni til. 21.
desember næstkomandi mun Pól-
land gerast aðili að Schengen-
samstarfinu.
Þann dag munu níu ríki bætast á
Schengen-svæðið. Auk Póllands
eru það Eistland, Lettland, Lithá-
en, Slóvakía, Slóvenía, Tékkland,
Ungverjaland og Malta.
Varðstöðvar meðfram þúsundum
kílómetra af landamærum innan
Evrópu verða óþarfar við þessa
breytingu. Til að bregðast við
þessu tilkynnti austurríski herinn
til dæmis á föstudag að hann
hygðist selja ríflega hundrað
varðkofa sem engin not yrðu fyrir
innan viku.
Ekki er búist við að breytingarnar
verði til þess að landamæravörð-
um verði sagt upp. Jacek Sonta,
upplýsingafulltrúi pólsku landa-
mæravörslunnar, segir þeim sem
þess óska bjóðast að flytjast til í
starfi. Enn þurfi landamæraverði
í austurhluta landsins, þar sem
verja þarf landamærin við Úkra-
ínu og Hvítrússland.
andresingi@24stundir.is
Menjar kalda
stríðsins
hverfa
NordicPhotos/GettyImages
Síðustu dagarnir Þýskur landamæralögreglumaður sinnir eftirliti við þýska bæinn Frankfurt á bökkum árinnar Oder.
Fjör í framboði Forsetaframbjóðendaefni bandaríska Demókrataflokksins stilla sér upp á mynd áður en þau ávarpa flokksmenn í Johnston í Iowa.
Heilsurækt Hundurinn Kaya fær að teygja úr sér á lúxushótelinu Chateau Poochie í
Flórída. Hótelið býður hundum og köttum upp á ýmiskonar dekurmeðferð.
Jólaparísarhjól Berlínarbúar skemmta
sér í parísarhjóli á jólamarkaði. Í baksýn
gnæfir sjónvarpsturninn yfir.