24 stundir - 15.12.2007, Blaðsíða 65
dökk á brún og brá, fríð og fíngerð.
Hún heitir Katarína og hefur átt
góð samskipti við þá félaga frá því
að þeir komu til Capri. Yfirleitt
liggur vel á henni og þá ærslast hún
og hlær en í þetta sinn er hún syfj-
uð og pirruð á óstundvísi gestanna
svo hrafntinnuaugun skjóta gneist-
um. En þegar hún sér hversu vel
liggur á þeim breytist viðmót
hennar og hún fer að brosa. Og fyrr
en varir grípur Davíð Katarínu og
dansar við hana tarantella á hót-
elganginum. Að svo búnu setur
hann hana á kné sér og mælir fram
ljóð til hennar. Ríkarður er búinn
að heyra margar perlur af vörum
skáldsins á heimleiðinni og er því
fljótur að ná í blað og blýant og
skrifa það niður. Í ljóðabókinni
sem Davíð sendi frá sér einu ári eft-
ir ferðalagið birti hann þetta kvæði,
„Katarína“, sem þriðja og síðasta
hluta kvæðisins um Capri. Þar er
það lítt breytt frá því sem var þegar
hann mælti það af munni fram á
eyjunni. Jón Jónsson frá Hvanná
gerði seinna lag við kvæðið og eftir
að það var gefið út á hljómplötu í
flutningi Hauks Morthens laust
eftir miðja öldina hefur það tíðum
hljómað á öldum ljósvakans og er
leit að þeim Íslendingi sem ekki
kannast við ljóð og lag. Kvæðið var
prentað þannig árið 1922:
Komið, allir Caprisveinar.
Komið. Sláið um mig hring,
meðan eg mitt kveðjukvæði
um Katarínu litlu syng.
Látið hlæja og gráta af gleði
gítara og mandólín.
Katarína, Katarína,
Katarína er stúlkan mín.
Í fiskikofa á klettaeynni
Katarína litla býr.
Sírenur á sundi bláu
syngja um okkar ævintýr.
Á vígða skál í skuggum trjánna
skenkti hún mér sitt Caprivín.
Katarína, Katarína,
Katarína er stúlkan mín.
Með kórónu úr Capriblómum
krýndi hún mig hinn fyrsta dag.
Af hæsta tindi hamingjunnar
horfðum við um sólarlag.
Þar dönsuðum við tarantella
og teyguðum lífsins guðavín.
Katarína, Katarína,
Katarína er stúlkan mín.
En nú verð eg að kveðja Capri
og Katarínu litlu í dag.
Horfa mun ég út til eyjar
einn um næsta sólarlag.
Grátið með mér, gullnu strengir,
gítarar og mandólín.
Ó, Katarína, Katarína,
Katarína, stúlkan mín.
Daginn eftir, 8. apríl, yfirgáfu
þeir Davíð, Ríkarður, Tryggvi og
Valdimar Capri. Líklegast fóru þeir
til Sorrento og þaðan áleiðis til Na-
pólí. Þeir gengu á eldfjallið Vesú-
víus, drukku þar á krá efst í byggð-
inni hið þekkta vín Lacrymæ
Christi (Tár Krists) og skoðuðu
Pompei og gistu svo að minnsta
kosti eina nótt í Napólí. Um borg-
ina kvað Davíð samnefnt kvæði þar
sem þetta er eitt erindanna:
Og þar eru sífeld strætastríð.
Þar stelur þjófurinn ár og síð,
og betlarinn höktir á hækjum.
Þar úir og grúir af letilýð,
lazzarónum og skækjum.
Frá Napólí halda þeir beint til
Rómar. Tryggvi og Valdimar leggja
svo af stað áleiðis heim til Íslands
daginn eftir en Davíð hyggst vera
þar ögn lengur og Ríkarður ætlar
að stunda nám í borginni.
Áheyrn hjá páfa
Einn af kunningjum Íslending-
anna á Ítalíu heitir Spange, norskur
listmálari. Snemma morguns 12.
apríl birtist hann á hóteli þeirra
Davíðs og Ríkarðs og býður þeim
aðgangskort í áheyrn hjá páfanum.
Þeir kaupa kortin og fara á fund
páfa með öðrum ferðamönnum
þar sem þeir kyssa á hönd Bene-
dikts fimmtánda en páfi blessar þá,
fjölskyldur þeirra og vini. Hann er
um sextugt, lágvaxinn og mjög
gildur. Þessi heimsókn í Vatíkanið
hefur mikil áhrif á þá félaga og þeir
eru sammála um að þeir muni
seint gleyma henni.
Bréf frá Ítalíu
Seinna þennan sama dag skrifar
Davíð Theódóru Thoroddsen langt
bréf. Þar segir hann meðal annars:
Hér er yndislegt að vera. Sól og
sumar á hverjum degi. Pálmalaufin
skjálfa í vorblænum og vínviðurinn
heitur eins og mey sem ætlar að
fara að stíga upp í brúðarsængina.
… Við ferðalangarnir grípum
kvartelin og teygum úr þeim vínið
eins og skyrblöndu því við erum
þyrstir og þreyttir af göngu yfir fjöll
og heiðar. … Hér er hægt að vera
einn þegar maður vill og í gleðihóp
þegar sú hliðin er uppi. Hér er forn
list í ríkum mæli, um gamla róm-
verska menningu er hér hægt að
lesa á sigurbogum og brotnum súl-
um. Hér eru allar kirkjur opnar
vorlangan daginn og þangað er
gott að flýja og hvíla sig og hlusta á
latneskar messur og bænasöngva
og teyga reykelsisilminn.
Ég er nýlega kominn frá Capri.
Það er guðdómleg eyja og þar vildi
ég búa á vetrum en heima á Íslandi
á sumrum. Ef ég væri ríkur mundi
ég gjöra það. Og þá byði ég þér
með mér eitthvert haustið. Þar er
allt sem þarf að fá til þess að koma
gleði á. … Í Capri dansaði ég tar-
antella og söng St. Luciana og sá
sólina hníga eldrauða í hinar heið-
bláu Miðjarðarhafsöldur. Sjaldan
hef ég séð slíka dýrð. Ég vildi að þú
hefðir getað séð hana líka. …
Guð blessi þig, Theodóra, og
aldrei gleymi ég hvernig þú hefur
reynst mér. Og ef mér auðnast það
að koma heim aftur, sem ég vona
fastlega, þá mun ekki líða á löngu
áður en ég drep að dyrum þínum.
Og ég vona að þú lofir mér að hvíla
mig um stund í stólnum við
gluggann. Mér þykir vænt um
græna litinn og yfir stólnum var
grænt teppi. Svo gefur þú mér ein-
hverja hressingu því sennilega verð
ég bæði svangur og þyrstur en
verði nokkuð í vasa mínum færð
þú að heyra. Ef til vill á ég þá leynd-
armál sem ég trúi þér fyrir. –
Eftir nokkra daga fer ég héðan
frá Róm og til Assisi, þaðan til Fi-
renze og svo til Veneziu – og svo
norður á við. Ég uni mér mjög vel
meðal óþekktra. Perlur tala með
geislagliti, blóm með ilmi og mál-
lausir með svip og bendingum. Hér
er yndislegt að vera. En nú er kom-
in nótt og í fyrra málið þarf ég að
vera á járnbrautarstöðinni kl. 6 til
þess að kveðja Maju litlu sem er að
fara heim til Kristianiu.
Ævintýrin taka aldrei enda. Ég
bið mjög vel að heilsa Láru og svo
er bréfið á enda.
Guð sé með þér og þeim.
Davíð Stefánsson
Heilsaðu svarhærðri meyju
Daginn eftir, 13. apríl, skrifar
Davíð bréf til Sigurðar Nordals þar
sem hann greinir honum líka frá
upplifun sinni af Capri. Þar segir
hann meðal annars: „Ef þú kemur
til Capri á undan mér, þá heilsaðu
frá mér svarthærðri smámeyju með
föla vanga. Ef þú segir henni að ég
hafi kysst hana og dansað með
hana í fanginu af gleði, þá kannast
hún við mig. Hvíslaðu að henni
Katarínu litlu að ég gleymi henni
aldrei og sigli með hana í huganum
inn í bláu sæhöllina undir berg-
inu.“
(Millifyrirsagnir eru blaðsins)
24stundir LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2007 65
Gott í skóinn
395,-
BARNSLIG APA mjúkdýr L25 cm
Opið til 22:00 fram að jólum │ www.IKEA.is
SÖT BARNSLIG mjúkdýr
ýmsar tegundir 50,-/stk.
KLAPPAR GIRAFF
mjúkdýr brúnt 495,-
KOJA tjald
120x120x95 cm 595,-
MÅLA tússpenni/stimpill
6 stk. ýmsir litir 95,-
KLAPPAR BOLL
mjúkur bolti
ýmsir litir 95,-/stk. MINNEN RÅTTA mjúkdýr
L23 cm 395,-
KLAPPAR TEATER brúðuleikhús 195,-
KLAPPAR VILD handbrúður
ýmsar tegundir 295,-/stk.
KORALL HAJ mjúkdýr
L62 H16 cm 495,-
KLAPPAR MASKERAD
gríma m/spöng
ýmsar tegundir 295,-/stk.
TITTA fingraleikbrúður
10 stk. ýmsir litir 495,-
KLAPPAR PANDA
mjúkdýr L32 cm 695,-