24 stundir - 15.12.2007, Blaðsíða 85
24stundir LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2007 85
Árið hjá Playstation 3 var brokk-
gengt í meira lagi. Fyrri hluti árs-
ins einkenndist af mikilli leikja-
þurrð og almennri gagnrýni um
að hin fokdýra tölva væri ekki
peninganna virði. En seinni hluta
árs hrökk Sony-vélin í gang og
með því að lækka verð á tölvunni
og með auknu flæði af góðum
leikjum hefur Playstation 3 kom-
ist á skrið sem mun líklega halda
áfram á næsta ári. vij
Fall er fararheill
hjá Playstation
Í heildina séð hefur árið 2007 ver-
ið mjög gott fyrir Xbox 360. Þökk
sé stöðugu flóði af góðum leikj-
um á borð við Bioshock, Halo og
Mass Effect hefur almenningur
náð að líta framhjá óeðlilega
hárri bilanatíðni tölvunnar og
selst tölvan sem aldrei fyrr. Næsta
ár mun verða gott fyrir hávaða-
boxið frá Microsoft og er líklegt
að leikir á borð við Grand Theft
Auto muni seljast vel á Xbox. vij
Xbox 360 held-
ur sinni stöðu
Nintendo Wii sannaði það á
árinu að leikjaspilun snýst ekki
bara um flotta grafík. Wii-tölvan
er án efa sigurvegari ársins þar
sem tölvurnar fljúga út úr búðum
um víða veröld og í Bandaríkj-
unum er Wii-tölva vandfundnari
en þríhöfða api. Hvað leiki fyrir
Wii varðar hefur verið fátt um
fína drætti. Stóru leikirnir hafa
verið fáir en góðir en hingað til
hafa Wii-eigendur ekki kvartað.
Það er hins vegar spurning hvort
þeir kvarti á næsta ári. vij
Litli, máttlausi
sigurvegarinn
Eins gott og leikjaárið 2007 var
er óhætt að fullyrða að árið 2008
verði enn betra.
Strax í ársbyrjun er von á ein-
um stærsta bílaleik ársins, Burno-
ut Paradise, en í þeim leik er sagt
skilið við hina hefðbundnu upp-
byggingu fyrri leikja og fá leik-
menn nú frelsi til að keyra um
gríðarstóra borg í leit að kapp-
akstri, stökkum og keppnum. Eft-
ir sterka byrjun munu stórleikir
flæða yfir leikjaaðdáendur með
jöfnu millibili. Aðdáendur Call of
Duty- og Guitar Hero-leikjanna
geta stólað á að fá nýja leiki í þeim
seríum á árinu því Activision til-
kynnti á árinu að þeir leikir
myndu koma á ári hverju.
Stórfelldur bílaþjófnaður
Grand Theft Auto IV átti að
koma út í lok þessa árs en því mið-
ur var leiknum frestað fram til
2008. Leikurinn mun án nokkurs
vafa verða einn mest seldi leikur
næsta árs enda eru fáir leikmenn
sem geta staðist þann heillandi, en
siðblinda heim sem fyrirfinnst í
Grand Theft Auto-leikjunum.
Annar leikur sem er væntanleg-
ur og mun án efa seljast í tonnatali
er bílaleikurinn Gran Turismo en
þar nær leikjaframleiðsla nýjum
hæðum hvað varðar raunverulega
tölvugrafík.
Lítill stór heimur
Einn af þeim leikjum sem munu
líklega koma hvað mest á óvart
næsta árið er Little Big Planet. Í
þeim leik geta leikmenn byggt upp
sín eigin borð og síðan deilt þeim
með heimsbyggðinni í gegnum
netið.
Aðrir leikir sem munu gera góða
hluti á næsta ári eru leikir á borð
við Devil May Cry 4, God of War:
Chains of Olympus og síðast en
ekki síst Metal Gear Solid 4: Guns
of the Patriots. viggo@24stundir.is
Leikjaárið 2008
Ár hinna stöðugu smella
Little Big Planet Mun að öllum líkindum gjörbylta hugmyndum fólks um
hvernig tölvuleikir eiga að vera.