24 stundir - 15.12.2007, Blaðsíða 62
62 LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2007 24stundir
a
Gjafabréf á námskeið sem hentar áhugamáli
viðkomanda væri kærkomin gjöf fyrir þá sem
eru fastir í sama farinu.
Írisi Ölmu Vilbergsdóttur
iris@24stundir.is
Það getur verið heilmikill höfuð-
verkur að velja göf fyrir þá sem eiga
sér ekki tómstundaráhugamál og
eiga alla þá kertastjaka og spari-
diska sem völ er á. Ef staðan virðist
vonlaus er um að gera að beita
hugmyndafluginu og gefa eitthvað
sem viðkomandi myndi aldrei
detta í hug að kaupa sér sjálfur.
Það er alltaf auðvelt og þægilegt
að velja góða ljósmynd sem tengist
viðkomandi, stækka hana og kaupa
flottan ramma. Slík gjöf er alltaf vel
þegin og reynist oft sú minnisstæð-
asta í bunkanum. Sama gildir um
föndur á borð við fallegt jólaskraut,
handmálaða bolla eða dúka og sér-
merkt handklæði. Gjafir eins og
þessar er ekki hægt að fjöldafram-
leiða og eykur það því tilfinninga-
legt gildi þeirra.
Þeir sem ekki hafa tíma eða list-
ræna kunnáttu til að búa jólagjaf-
irnar til sjálfir geta til dæmis keypt
förðunarsett áhugaleikarans sem
fæst á vefsíðunni www.leiklist.is. Í
settið er hægt að setja gervitennur,
skegg, andlitsmálningu og förðun-
arhandbækur. Allt sem þarf til að
setja á svið litla sýningu eða
skemmta sér á grímuballi.
Ostaverslanir og ýmsar sérvöru-
búðir bjóða upp á margar gerðir af
gjafakörfum sem henta fullkom-
lega í jólagjafaflóðið. Viðkomandi
getur þá notið hennar strax og
boðið vinum og ættingjum að deila
henni með sér. Þarna losnar þiggj-
andi einnig við að gjafirnar safnist
upp enda klárast gjöfin á nokkrum
dögum eða vikum en skilur eftir sig
skemmtilegar minningar fyrir þá
sem sátu saman við stofuborðið og
nutu ostaveislunnar eða ávaxtanna.
Gjafabréf og kossamót
Símentunarmiðstöðvar víðs veg-
ar um land halda athyglisverð
námskeið á veturna sem mörgum
þætti gaman að taka þátt í en koma
sér aldrei í að skrá sig. Gjafabréf á
námskeið sem hentar áhugamáli
viðkomandi væri kærkomin gjöf
fyrir þá sem eru fastir í sama
farinu. Gjöfin gæti þá breytt lífi
viðkomandi ef hún verður til þess
að gamall draumur verður látinn
rætast.
Vefsíðan bust-ed.co.uk býður
upp á marga skemmtilega valkosti
fyrir þá sem eiga allt. Meðal annars
er hægt að kaupa sápu með sér-
prentuðum skilaboðum, gips-sett
sem er sérstaklega hannað til að
taka mót af kvenmannsbrjóstum
og annað sem notað er til að búa til
ísskápssegla með kossum viðkom-
andi. Slíkt er auðvitað ómissandi á
hvert heimili.
Gjafakort eru alltaf góður val-
kostur en sem dæmi má nefna
gjafakort Kringlunnar og Smára-
lindar sem bjóða upp á nánast
endalausa valkosti fyrir þiggjanda.
Slík gjöf gæti brúað bilið upp í eitt-
hvað stærra sem vantar á heimilið
eins og nýtt sjónvarp eða sófasett.
Einnig eru gjafabréf í slökunar-
meðferð eða snyrtimeðferð ómet-
anleg þegar jólabrjálæðinu er að
ljúka og allir eru uppgefnir. Hug-
myndirnar eru nánast endalausar
og því er um að gera að leita.
Frumlegt Jólagjafir þurfa ekki að
vera hefðbundnar til að slá í gegn
Hvað á að gefa þeim sem á allt?
Gjafakörfur, föndur
og snyrtimeðferð
Jólin eru meðal annars
tími jólagjafa og á hverju
einasta ári þurfa flestir Ís-
lendingar að fá glænýjar
og ferskar hugmyndir að
jólagjöfum handa sínum
nánustu, sem sumir
hverjir eiga allt sem þeir
þurfa á að halda.
Jólin eru ekki alltaf gleðileg því á
meðan stór hluti landsmanna
kaupir gjafir búa aðrir Íslend-
ingar við mikinn skort.
Mæðrastyrksnefnd hefur í fjölda
ára gefið fátækum fjölskyldum
mat og föt en starfsemin er styrkt
með gjöfum frá fyrirtækjum og
einstaklingum.
Í hverjum mánuði fá hundruð
fjölskyldna gjafir en í desember
hlaupa þær á þúsundum.
Þeir sem vilja styrkja nefndina
geta nálgast upplýsingar á
www.maedur.is.
Gerið góðverk
um jólin
Fyrstu jól barnsins eru flestum
foreldrum sérstaklega mikilvæg.
Barnið man auðvitað ekkert eftir
þeim en ef það fæddist snemma á
árinu ætti það að geta tekið ein-
hvern þátt í gleðinni. Viss atriði
þarf að hafa í huga þegar smá-
barn er við jólaborðið. Til dæmis
þarf barnið að hafa eitthvað að
gera ef borðhaldið dregst og því
er gott að hafa leikfang eða
fingramat á borðinu.
Þegar kemur að því að taka upp
gjafirnar þarf litla krílið að fá
sinn pakka fyrst og getur dundað
sér við að rífa hann upp. Það get-
ur að sjálfsögðu tekið langa stund
og á meðan skiptast hinir á gjöf-
um. Að lokum er mikilvægt að
taka fullt af myndum.
Fyrstu jól
barnsins
200 g smjörlíki
250 g sykur
1 egg
300 g hveiti
75 g kókosmjöl
1 tsk. natrón
2 msk. síróp
Mónu súkkulaðidropar
Hræra sykur og smjörlíki létt og
ljóst. Bæta egginu út í og hræra
vel. Bæta þurrefnunum saman
við og hnoða aðeins upp í deig-
inu. Sírópið fer út í síðast.
Deigið er hnoðað saman með ör-
litlu af hveiti.
Gerðar eru litlar kúlur og einn
súkkulaðidropi settur ofan á.
Bakað við 200°C í 8-10 mín. og
borðað með ískaldri mjólk.
Uppskrift af www.eldhus.is.
Ómótstæðilegar
bóndakökur
Þeir sem vilja
komast í alvöru
jólagír verða að
taka gleðina með
í vinnuna. Það
léttir lund allra
starfsmanna ef
hversdagsleikinn
er brotinn upp
með leikjum á borð við leynivin,
þar sem starfsmenn draga eitt
nafn og gefa honum reglulega
gjafir nafnlaust. Viðkomandi veit
þá aldrei á hverju hann á von og
það gerir þetta meira spennandi.
Einnig er hægt að taka upp á því
að hafa jólaþema í klæðaburði.
Þá mæta allir í hátíðarlitum eða
með jólahúfu og jólabindi.
Fjör í vinnunni
um jólin
Jólahefðirnar eru jafn misjafnar
og þær eru margar.
Japanar líta á það sem móðgun
að senda rauð jólakort þar sem sá
litur er tengdur við jarðarfarir.
Í Caracas er aðalgötum lokað á
aðfangadag til að hægt sé að fara
á hjólaskautum í kirkju.
Norðmenn fela alla kústa á að-
fangadag til að koma í veg fyrir
að nornir ræni þeim. Ítalir nota
ekki jólatré heldur píramída úr
tré sem skreyttur er með ávöxt-
um. Jólatré í Úkraínu eru aftur á
móti skreytt með kóngulóm.
Engin rauð
jólakort
LÍFSSTÍLLÍ JÓLASKAPI
lifstill@24stundir.is
Va t n s s t í g 3 I 1 0 1 R e y k j a v í k I 5 5 2 0 9 9 0
w w w. m u n t h e p l u s s i m o n s e n . c o m