24 stundir - 15.12.2007, Blaðsíða 63
24stundir LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2007 63
Það eru að koma jól og nú þarf
að kaupa gjöf handa hinum helm-
ingnum. Þetta kann að vefjast fyrir
mörgum og þá kannski sérstaklega
þegar fólk er ekki búið að vera
lengi saman. Fyrsta lausnin við
þessu er afar einföld en hún er ein-
faldlega að hlusta vandlega á óskir
hennar/hans og biðja jafnvel um
óskalista. Sumir hafa áhyggjur af
að með þessu móti komi gjöfin
ekki jafn mikið á óvart en er það
nú ekki skárra en að gefa hinum
helmingnum eitthvað sem honum
finnst alveg skelfilegt, jafnvel þó
hann/hún sýni það ekki? Fáðu
nokkra hluti skrifaða niður á
miða, þannig getur þú í það
minnsta komið elskunni þinni á
óvart að einhverju leyti.
Að vanta og langa
Þegar kemur að því að velja
jólagjöf handa elskunni er afar
mikilvægt að muna að þó hann
eða hana vanti eitthvað er það ekki
það sama og að langa í þann hlut.
Einn óheppinn tók t.d. konuna
sína aðeins of bókstaflega og gaf
henni blandara, ryksugu og sláttu-
vél í jólagjöf, eitthvað sem hún
hafði sagt að vantaði á heimilið.
Falleg slaufa eða innpökkun á slík-
um gjöfum hjálpar alls ekki neitt
við að koma í veg fyrir stórslys og
má viðkomandi búast við að sofa á
sófanum það sem eftir lifir árs. Yf-
irleitt er því ráðlegt að setja ekki
verkfæri og heimilistæki á versl-
unarlistann nema viðkomandi sé
algjört tæknifrík.
Rómantískt og kynþokkafullt
Um jólin eru karlmenn oft
hvattir til að gefa elskunni eitthvað
kynþokkafullt og rómantískt eins
og nærföt eða falleg náttföt. Þetta
geta verið persónulegar gjafir en
vandaðu valið sérlega vel sértu í
nýju sambandi og passaðu að hafa
stærðir á hreinu.
Hvernig á að velja hentuga jólagjöf handa elskunni
Að vanta og langa er ekki það sama
Spennandi Hvað skyldi
vera í pakkanum frá elsk-
unni?
Það eru ekki almennilega komin
jól í Englandi fyrr en allir hafa
sest við borðið, sprengt litrík
knöll og sett á sig pappakór-
ónurnar sem þar er að finna.
Þetta fer kannski ekki sérlega vel
með jólahárgreiðsluna en fólk
lætur það ekkert á sig fá. Þessi
enska hefð er talin upprunnin á
þeim tíma þegar þrettándanum
var fagnað með hátíðahöldum og
kóngur eða drottning höfðu yfir-
umsjón með undirbúningi. Á
Viktoríutímanum var allt jóla-
skraut tekið niður og brennt á
þrettándanum, en ýmiss konar
hjátrú var tengd honum.
Hvaðan koma
jólakórónurnar?
Það er fyrir mestu að við séum öll
góð hvert við annað yfir jólin
enda eru þau jú hátíð ljóss og
friðar. Til að sýna vinum og
vandamönnum enn meiri vænt-
umþykju á þessum árstíma er
sniðugt að skilja eftir handa þeim
lítil skilaboð hér og þar. Í köku-
boxið má t.d. setja miða sem á
stendur Ertu að stelast í kökurnar
einu sinni enn? með broskalli á
eftir. Í sokkaskúffu má lauma
miða til að minna á endurnýjun
til að viðkomandi fari ekki í jóla-
köttinn. Handa vinnufélögum má
skilja eftir gula miða með
vinnustaðagríni hér og þar, t.d. á
skrifborðum og tölvum.
Skemmtileg og
sæt jólaskilaboð
Höfuðverkur er sár og leiður
kvilli og erfitt að vera þjakaður af
slíku þegar allt er á fullu við jóla-
undirbúning. Nýleg rannsókn
sýndi að nærri einn af hverjum
fjórum sagðist oftar fá höfuðverk
í kringum jólin en á öðrum tím-
um ársins. Sögðu 75% svarenda
að tímaþröng hefði valdið höf-
uðverknum. Samkvæmt þessu er
gott að vera tilbúinn með allt í
tíma en það getur reynst hægara
sagt en gert.
Jólaverkur
www.nesbyggd.is
SÖLUSÝNING
Eigum nokkrar íbúðir til afhendingar á næsta ári í Beykidal
Beykidalur 2 Uppselt
Beykidalur 4 Uppselt
Beykidalur 6 Afhending í ágúst 2008
Beykidalur 8 Afhending í nóv 2008
Beykidalur 10 Afhending í jan 2009
Opið hús í Engjadal 2 íbúð 205 milli 11 og 16
á laugardag og sunnudag.
ATH við getum boðið kaupendum okkar
viðbótarlán á hagstæðum vöxtum.