24 stundir - 15.12.2007, Blaðsíða 94
94 LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2007 24stundir
JÓLAGJÖFIN SEM KONUNA DREYMIR UM
GLÆSILEG SILKI NÁTTFÖT,
NÁTTKJÓLAR OG SLOPPAR
FRÁ
FR
Á
BÆ
R
G
Æ
Ð
I
Laugavegur 80 Sími 5611330
www.sigurboginn.is
„Það er grúppa í gangi á Face-
book sem heitir „Þegar ég var á
þínum aldri voru símanúmer
bara fimm stafir“. Ég get því mið-
ur ekki joinað hana, því þegar ég
var á þeim aldri var ekki enn búið
að finna upp símanúmer. […]En
stuttu síðar komu svo símanúm-
erin, og voru fjórir stafir.“
Guðmundur Rúnar Svansson
eyjan.is/goto/svansson
„Ég á víst þátt í einum af þessum
29 árekstrum. Klaufinn ég fékk
smá skammir í vinnunni, annars
var bara gert grín að mér. Gaur-
inn sem átti Skoda-drusluna var
alveg brjál, ætlaði að hjóla í mig,
sem betur fer var lögreglan fljót á
staðinn, annars væri ég örugglega
kássa núna!“
Lúkas Jarl Kolbjarnarson
blogg.visir.is/eljaki
„Bandarískir embættismenn léku
íslenska konu grátt á dögunum.
Ef ég væri bandaríski sendiherr-
ann hefði ég gefið þá skýringu að
Kaninn hafi óvart talið að konan
væri sígauni eða í vélhjólaklúbbi -
það virðist nefnilega ríkja almenn
sátt um það hér heima að þeir
hópar séu réttlausir.“
Stefán Pálsson
kaninka.net/stefan
BLOGGARINN
Eftir Atla Fannar Bjarkason
atli@24stundir.is
„Það er búið að loka á alla mögu-
leika á viðlíka númeri,“ segir Einar
Magnús Magnússon, upplýsinga-
fulltrúi Umferðarstofu.
Vestfirska héraðsfréttablaðið
Skessuhorn sagði frá því í gær að
bílnúmerið GAY 17 hefði fylgt nýj-
um bíl á Akranesi, en kaupandinn
brást skjótt við og skipti númerinu
samkynhneigða út fyrir einkanúm-
erið OFFI.
Bjargaði málunum
Númeraplötur með þremur
bókstöfum voru nýlega tekin í
notkun. Ófeigur Gestsson sagði í
samtali við Skessuhorn að hann
hefði ákveðið að kaupa einka-
númer til að bjarga málunum,
enda meira upp á kvenhöndina.
„Hér fyrr á árum var ég kallaður
Offi og ákvað að taka það númer
þar sem það var laust,“ sagði hann.
Einar Magnús hjá Umferð-
arstofu segir að númerið hafi
sloppið í gegnum síu á fyrstu dög-
um þriggja bókstafa kerfisins.
„Skýringin varðandi þennan bíl
sem er verið að láta mikið með
núna, er að hann var forskráður í
sumar,“ segir hann og bætir við að
mjög erfitt sé að fá nýtt „venjulegt“
númer í stað þess dónalega. „Ef
það er búið að tollafgreiða bílinn,
þá er mjög erfitt um vik að breyta
þessu. Þá þarf að tollafgreiða hann
aftur.“
Fjölskylda vildi ekki HIV
Við nánari eftirgrennslan kom í
ljós að nokkur númer í viðbót hafa
sloppið í gegnum síu Umferð-
arstofu. 24 stundir hafa heimildir
fyrir því að ungri fjölskyldu hafi
brugðið í brún þegar glæný og
glansandi Toyota heilsaði með
bókstöfunum HIV.
Kristinn Einarsson, sölustjóri
hjá Toyota, staðfestir það. „Þetta
sló mig algjörlega. Við leituðum
leiða til að komast undan þessu
enda gat fjölskyldan engan veginn
sætt sig við þetta,“ segir hann.
„Það var ekki til eins bíll, þannig
að við fengum Umferðarstofu til
að koma til móts við okkur og það
var dregið annað númer fyrir
hann. Með einhverju móti gátu
þeir fundið númer og eigandinn er
mjög sáttur í dag.“
Þá segir Kristinn að reynsluakst-
ursbíll hjá Toyota sé með stafina
HÝR. „Það á eftir að koma í ljós
hvort hann selst þegar ég er hættur
að nota hann í reynsluakstur.“
Bílnúmerið GAY 17 slapp í gegnum síu Umferðarstofu
Blátt bann lagt á
dónaleg bílnúmer
Hinum gagnkynhneigða
Ófeigi Gestssyni brá í
brún þegar nýi bíllinn
hans bar númerið GAY
17. Ófeigur skipti út núm-
erinu en fleiri óþægileg
bílnúmer sluppu í gegn.
Sáttur Ófeigur er ánægður með
einanúmerið sem kom í stað GAY 17.
➤ BAR, DOP, LSD, RÖK, ASS,FAG, GAY, GEY, LIM, LEG,
MÖK, SEX, TIT, AUM, HOR,
PMS, PIG, ROP, RIP, WAR, BÖL,
AUR, BAD, BER, BMW, BOY,
GUN, GUD, IRA, KGB, LÖT,
BDS, DJÖ, NÖS, HIV og KKK.
BÖNNUÐ BÍLNÚMER
HEYRST HEFUR …
Höfundar bókarinnar Konur eru aldrei hamingju-
samar, þeir Hjálmar Örn Jóhannsson og Helgi
Jean Claessen, eru komnir upp fyrir Þorgrím Þrá-
insson á metsölulista Eymundsson og Pennans í
flokki handbóka, fræðibóka og ævisagna. Félagarnir
ætla í tilefni af árangrinum að halda teiti í Ey-
mundsson, Austurstræti, í dag klukkan 18. Allir eru
velkomnir og Þorgrími var sérstaklega boðið. afb
Eiríkur Jónsson, ritstjóri Séð og heyrt, ætlar ekki að
eyða jólunum í rokinu og rigningunni á Íslandi. Ei-
ríkur hyggst eyða jólunum með sinni heittelskuðu á
eyju í Karíbahafinu þar sem sólin, sandurinn og
suðræn stemningin kemur í stað veðurofsans og
kaupbrjálaðra Íslendinga. Eiríkur hefur sagt skilið
við jólabarnið í sér, en hann segir við kunningja að
tilgangur ferðarinnar sé að „sleppa“ jólunum. afb
Stöð 2 forsýndi tvo þætti af Pressu fyrir fjölmiðla-
fólk í gær. Virtust menn ánægðir með það sem fyrir
augu bar og höfðu einhverjir á orði að Pressa, sem
er sex þátta glæpasería, eigi hæglega eftir að slá
Næturvaktinni við. Sögusviðið er ritstjórn dag-
blaðsins Pósturinn, en þeir Óskar Jónasson og Sig-
urjón Kjartansson eru heilarnir á bakvið þáttinn.
Pressa verður tekin til sýninga í desember. bba
„Það er búið að loka fríhöfninni
að tilmælum lögreglunnar,“ sagði
Borgar Jónsson, vaktstjóri í frí-
höfninni í Leifsstöð.
Lokað var á áfengissölu klukkan
hálffimm í gær, en samkvæmt
heimildum 24 stunda voru tölu-
verðar óspektir í flugstöðinni með-
al útlendinga sem voru að öllum
líkindum á leiðinni heim í jólafrí.
Flug lá niðri í gær svo að sumir
höfðu setið að sumbli frá klukkan
fimm um morguninn.
Einn og einn sofnaður
Borgar í fríhöfninni lét ástandið
ekki á sig fá og var pollrólegur.
„Það er mikið af Pólverjum hérna,
svona 300,“ sagði hann. „Það er
ekkert vesen, en þeir eru búnir að
drekka mikið. Þeir eru rólegir
hérna frammi og það er einn og
einn sofnaður - bara eins og við
værum ef við værum í útlöndum.“
Borgar segir að fríhöfninni hafi
einnig verið lokað um morguninn.
„Þeir borðuðu bara morgunmat-
inn sinn og kláruðu áfengisbirgð-
irnar á meðan.“
Eyjólfur Kristjánsson, hjá lög-
reglunni á Suðurnesjum, sagði að
aðgerðirnar hefðu verið fyrirbyggj-
andi.
„Menn eru búnir að bíða eftir
flugi frá því snemma í morgun og
farið að bera á ölvun á svæðinu,“
sagði hann. „Þá er ákveðið ástand
úti fyrir og það fara engar flug-
vélar. Það er ekki hægt að láta fólk
vera svo ofurölvi að það geti ekki
flogið“
atli@24stundir.is
Lokað var á áfengissölu í Leifsstöð í gær
Fríhöfn lokað vegna
fullra útlendinga
Fyllirí í flugstöð Jólafríið tafðist
hjá drykkfelldum útlendingum.
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Su doku
1 9 3 6 2 4 8 5 7
8 4 6 5 7 1 2 9 3
7 2 5 9 3 8 4 6 1
9 3 8 7 4 5 1 2 6
2 1 7 8 6 9 5 3 4
5 6 4 2 1 3 7 8 9
3 5 9 1 8 7 6 4 2
4 7 2 3 5 6 9 1 8
6 8 1 4 9 2 3 7 5
Himmi frændi er í dýragarði
í Bandaríkjunum.
24FÓLK
folk@24stundir.is a
Jú, bæði andlega og lík-
amlega og hárgreiðslan ónýt
Ertu orðinn alveg fjúkandi?
Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur, einnig þekktur
sem Siggi Stormur, hefur í mörg horn að líta í vonda veðr-
inu, þar sem fokið er í flest skjól.