Morgunblaðið - 16.01.2005, Síða 4
4 SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÖSSUR Skarphéðinsson, formaður
Samfylkingarinnar, gagnrýndi for-
sætisráðherra og skilmála í skip-
unarbréfi hans um endurskoðun
stjórnarskrárinnar á spjallfundi
Samfylkingarfélagsins í Reykjavík
í gærmorgun.
Össur var málshefjandi á fund-
inum og sagði ljóst að Samfylkingin
færi ekki í stjórnarskrárnefndina
til að gera einhver hrossakaup sem
beinist fyrst og fremst að því að af-
nema málskotsrétt forseta lýðveld-
isins. Fulltrúar stjórnarandstöð-
unnar hefðu því brugðist harkalega
við og sagði Össur að það hefði ver-
ið fullkomlega verjanlegt að stjórn-
arandstaðan drægi fulltrúa sína út
úr nefndinni. Niðurstaðan hefði
hins vegar orðið sú að málið væri of
mikilvægt til að láta klúður for-
sætisráðherrans eyðileggja endur-
skoðunina. Sagði Össur fulltrúa
Samfylkingarinnar ganga til þessa
verks af fullum heilindum. Í þeirra
augum væri ekkert tabú, og í því
fælist að þeir mundu ekki hafna
óskum annarra flokka um umræður
um tiltekna kafla stjórnarskrárinn-
ar, en fulltrúar Samfylkingarinnar
hefðu eigin dagskrá og áhersluat-
riði sem Samfylkingin mundi
leggja fram af þunga, og fylgja eft-
ir.
Össur ræddi einnig áherslur
Samfylkingarinnar um aukið lýð-
ræði og kom fram í máli hans að
eðlilegt væri að skoða í fullri alvöru
hugmyndir um að í kosningum fái
kjósendur ekki aðeins að velja
flokka heldur líka tækifæri til að
velja einstaklinga og raða þeim í
sæti. Þá kom fram í máli hans að
Samfylkingin ætlar að leggja fram
tillögu á Alþingi um tilraunasveit-
arfélag á sviði beins lýðræðis.
Össur Skarphéðinsson um endurskoðun stjórnarskrárinnar
Göngum til
þessa verks
af fullum
heilindum
Morgunblaðið/Golli
Össur Skarphéðinsson ræddi um endurskoðun stjórnarskrárinnar á spjall-
fundi Samfylkingarfélagsins í Reykjavík í gærmorgun.
VERÐI ekki fundin leið til að halda
áfram að greiða niður rafmagn til
garðyrkjubænda hækkar raforku-
verð til þeirra um tugi prósenta,
vegna nýrra raforkulaga, segir Helgi
Jóhannesson, formaður Sambands
garðyrkjubænda. Á þetta við um
þrjátíu garðyrkjufyrirtæki, sem flest
eru í Hveragerði eða í uppsveitum
Árnessýslu.
Helgi segir að garðyrkjubændur,
sem nota raflýsingu við ræktun sína,
hafi hingað til ekki þurft að greiða
svokallað aflgjald. Það hafi verið
greitt af Landsvirkjun, RARIK og
ríkissjóði, skv. sérstökum samningi.
Ný raforkulög, sem tóku gildi um
áramótin, heimila hins vegar ekki af-
slátt eða sérkjör til einstakra aðila.
Lögin eru þó ekki enn farin að hafa
áhrif á garðyrkjubændur þar sem
RARIK tók þá ákvörðun að fram-
lengja gömlu taxtana út janúar.
Að sögn Helga hafa garðyrkju-
bændur reynt að finna leiðir til að
koma í veg fyrir hækkanirnar.
„Lendi hækkanirnar á garðyrkju-
bændum er heilsársframleiðsla á
grænmeti og blómum komin í tap-
rekstur.“
Raforkuverð gæti hækk-
að um tugi prósenta
þekkja. Þegar frystir tekur vatnið á
sig ýmsar myndir en slík listaverk
eru þó sjaldnast langlíf í umhleyp-
ingunum sunnanlands.
STYTTURNAR eru engar kulda-
skræfur ef marka má þessa við
Nesti í Fossvogi á mótum Reykja-
víkur og Kópavogs sem margir
Morgunblaðið/Jim Smart
Frost og vatn
SAMKVÆMT íbúaskrá þjóðskrár 1.
desember sl. voru 85,5% lands-
manna skráðir í þjóðkirkjuna en
fyrir áratug var þetta hlutfall
91,8%. Á sama tíma hækkaði hlut-
fall íbúa í fríkirkjusöfnuðunum
þremur (Fríkirkjunni í Reykjavík,
Óháða söfnuðinum og Fríkirkjunni
í Hafnarfirði) úr 3,2% í 4,5%. Skráð-
um trúfélögum hefur fjölgað tals-
vert á undanförnum árum, en skráð
trúfélög utan þjóðkirkju og frí-
kirkjusafnaða eru nú 21 en voru 11
fyrir áratug. Þessum trúfélögum
tilheyra 4,6% íbúa, samanborið við
2,6% árið 1994. Kaþólska kirkjan er
þeirra fjölmennust en þar hefur
meðlimum fjölgað um meira en
helming frá árinu 1994, úr 2.484 í
5.775, sem þýðir að árið 2004 til-
heyrðu 2% þjóðarinnar kaþólsku
kirkjunni samanborið við 1% árið
1994.
Hvítasunnusöfnuðurinn er næst
stærsta trúfélagið, utan þjóðkirkju
og fríkirkjusafnaða. Þar eru með-
limir nú 1.800 samanborið við 1.105
árið 1994, sem er 0,6% þjóðarinnar
2004 samanborið við 0,4% árið
1994. Önnur trúfélög hafa innan við
1.000 meðlimi og í engu þeirra er
hlutfall meðlima yfir 0,3% af íbúa-
fjölda. Til óskráðra trúfélaga og
með ótilgreind trúarbrögð heyrðu
2,7% þjóðarinnar samanborið við
1% árið 1994. Utan trúfélaga voru
2,4% samanborið við 1,4% árið
1994.
Morgunblaðið/Ómar
Skráðum
trúfélögum
hefur fjölgað
JÓN Kristjánsson, heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra, sótti í vik-
unni evrópsku ráðherrastefnu Al-
þjóðaheilbrigðisstofnunarinnar
(WHO) um geðheilbrigðismál í
Finnlandi og flutti þar ávarp. Auk
heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra flutti Guðjón Magnússon, einn
af framkvæmdastjórum WHO í
Kaupmannahöfn, erindi á ráðherra-
ráðstefnunni en Guðjón átti ríkan
þátt í undirbúningi hennar.
Jón segir að greint hafi verið frá
því á ráðstefnunni að sjálfsmorðs-
tíðni sé hæst í Evrópu þrátt fyrir
alla þá velmegun sem þar ríki og það
sé mikið áhyggjuefni.
Fulltrúar notendasamtaka
með í fyrsta sinn
Um 400 manns sóttu ráðstefnuna,
sem lauk í gær, þar af um 50 ráð-
herrar heilbrigðismála í Evrópuríkj-
unum eða staðgenglar þeirra, helstu
sérfræðingar í geðheilbrigðismálum
auk fulltrúa svokallaðara notenda-
samtaka. Þess má geta að Elín Ebba
Ásmundsdóttur og Héðinn Unn-
steinsson kynntu hvort sitt verkefni
sem unnin hafa verið í þágu geð-
sjúkra hér á landi.
Þetta er fyrsta ráðherraráðstefn-
an sem svæðisskrifstofa WHO held-
ur um málefni geðsjúkra en fyrir
evrópsku ráðherrunum liggur að
móta stefnu í geðheilbrigðismálum
álfunnar til næstu fimm ára.
„Það sem kannski er það merki-
legasta við þessa ráðstefnu er að
þarna er lyft upp á borðið geðheil-
brigðismálum á ríkisstjórnaplani.
Svo tóku svokölluð notendafélög
þátt þarna líka en það er eiginlega
nýmæli,“ segir Jón Kristjánsson.
Hann segir að í íslensku sendi-
nefndinni hafi verið auk ráðuneyt-
ismanna fulltrúar frá Geðhjálp,
Hugarafli, geðræktarverkefnis Lýð-
heilsustöðvar og landlæknir. „Þetta
var vel mannað hjá okkur og þetta
fólk sat ráðstefnuna til enda.“
Heilbrigðisráðherra hyggst funda
sérstaklega með íslensku sendi-
nefndinni og fara yfir málin með
henni og þær niðurstöður sem feng-
ust á ráðstefnunni og hvernig megi
fylgja málum eftir í framhaldinu.
Spurður um hvað íslenska sendi-
nefndin hafi haft fram að færa nefn-
ir ráðherra að gerð hafi verið sér-
stök grein fyrir svokölluðu geð-
ræktarverkefni sem Héðinn
Unnsteinsson, sem nú vinni hjá
WHO, hafi verið upphafsmaður að.
Það verkefni hafi hlotið alþjóðlegar
viðurkenningar.
Eitthvað í lífsháttunum
sem reynir á menn
„Það sem var áberandi í þeim er-
indum sem ég hlustaði á fyrsta dag-
inn voru tengsl geðraskana og þess
umhverfis sem menn lifa í, tengsl
geðraskana og fátæktar, geðrask-
ana og fíkniefnaneyslu. Menn eru
farnir að horfa meira á þetta í þessu
samhengi. Til dæmis kom fram á
ráðstefnunni að hér í Evrópu er
hæsta sjálfsmorðstíðni í heimi þrátt
fyrir alla velmegunina sem hér er.
Það er greinilega eitthvað í okkar
lífsháttum sem reynir á menn og
þetta er þáttur sem menn hafa auð-
vitað miklar áhyggjur af. Mín sýn á
þetta er að það sé mjög nauðsynlegt
í alþjóðlegu samhengi að taka geð-
heilbrigðismálin upp á borðið og til
umræðu hjá ríkisstjórnum og ráð-
herrum en eins að styrkja tenglsin
við grasrótina sem þessi ráðstefna
byggðist á en það er nýlunda,“ segir
Jón Kristjánsson.
Heilbrigðisráðherra sótti evrópska ráðherraráðstefnu um geðheilbrigðismál
Sjálfsmorðstíðni hæst
í löndum í Evrópu
Morgunblaðið/RAX
Jón: „Það er greinilega eitthvað í okkar lífsháttum sem reynir á menn
og þetta er þáttur sem menn hafa auðvitað miklar áhyggjur af.“
SLÖKKVILIÐIÐ á Akureyri var
kallað út um hádegi í gær vegna
elds sem kviknað hafði í gömlu
tveggja hæða timburhúsi á Sval-
barðseyri, Jakobshúsi, sem byggt
var árið 1898. Enginn var í húsinu
þegar eldurinn kom upp þótt í því
sé stundum búið. Logaði opinn eld-
ur þegar slökkviliðið kom á vett-
vang. Höfðu slökkviliðsmenn mest-
ar áhyggjur af einangruninni í
húsinu en það er einangrað með mó
og var unnið að því að rífa klæðn-
inguna af húsinu til þess að komast
að henni þegar Morgunblaðið fór í
prentun.
Eldur laus
í Jakobshúsi