Morgunblaðið - 16.01.2005, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 2005 19
’Rokkið er ekki dautt.‘Matthías Már Magnússon , fyrrverandi
dagskrárstjóri útvarpsstöðvarinnar
X-ins, sem setti á fót nýja rokkstöð,
X-FM, eftir að þeirri fyrrnefndu var lok-
að fyrr í vikunni.
’Mér þykir miður ef ég hefmóðgað eða komið einhverjum
úr jafnvægi. Þetta var slæmt
val á búningi og ég biðst afsök-
unar.‘Harry Bretaprins fékk bágt fyrir þegar
slúðurblaðið The Sun upplýsti að hann
hefði klæðst nasistabúningi í bún-
ingapartí i hjá vini sínum.
’Ég sé ekki betur en að álveriðá Reyðarfirði sé þar með komið
á byrjunarreit.‘Hjörleifur Guttormsson , fyrrverandi al-
þingismaður, um dóm Héraðsdóms
Reykjavíkur þar sem fall ist var á kröfu
hans um að ógilda úrskurð umhverfis-
ráðherra frá því í apríl 2003 um að álver-
ið þyrfti ekki að fara í umhverfismat.
’Þetta eru sláandi niður-stöður.‘Jóhanna Rósa Arnardóttir , einn höfunda
nýrrar rannsóknar sem leiddi í l jós að um
62% íslenskra ungmenna á aldrinum 18–
20 ára hafa verið boðin f íkniefni .
’Nú eru komnir nýir herrarþarna við stjórnvölinn, og þeir
hafa ugglaust aðrar áherslur en
þeir sem réðu mig til starfans.‘Sigríður Árnadóttir tengir uppsögn sína
sem fréttastjóri Stöðvar 2 við stjórn-
endaskipti hjá Norðurljósum.
’Ég mun vinna að því að bindaenda á þjáningar palestínsku
þjóðarinnar því hún á skilið
virðingu okkar og hollustu.‘Mahmoud Abbas fagnaði sigri í forseta-
kosningum í Palestínu.
’Herra Abbas verður fylginnsér í samstarfi en hann er vitur
maður, reyndur og hófsamur …
Hann var kjörinn af miklum
meirihluta Palestínumanna og
við ættum að gefa honum tæki-
færi til að ná árangri.‘Shimon Peres, leiðtogi ísraelska Verka-
mannaflokksins, sem tók við embætti að-
stoðarforsætisráðherra í nýrri sam-
steypustjórn Ariels Sharons í vikunni.
’Þessi mikla hækkun sem hefur orðið á hlutabréfum hér
á landi minnir um margt á það
mynstur sem verðbólur
fylgja.‘Sir Howard Davies, rektor London
School of Economics and Polit ical
Science og fyrrverandi formaður breska
fjármálaeftirl itsins, á ráðstefnu íslenska
Fjármálaeftirl itsins á mánudag.
’Ef hætta er fyrir hendi – ogvið teljum að svo geti hugs-
anlega verið – munu börn verða
fyrir mestum áhrifum, og því
yngri sem börnin eru, því meiri
er hættan.‘Sir William Stewart , forstjóri bresku
heilsuverndarstofnunarinnar, um nýja
skýrslu á hennar vegum þar sem lagt er
ti l að börn noti GSM-síma einungis ef
brýna nauðsyn ber ti l og varað sterklega
við því að börn undir átta ára aldri noti
þá.
’Bæirnir hafa tæmst af ungufólki á haustin og svo hefur ver-
ið spurning um hve margt snýr
aftur.‘Björg Ágústsdóttir , bæjarstjóri í Grund-
arfirði , segir t i lkomu Fjölbrautaskóla
Snæfell inga, sem er í bænum, bæta bú-
setuskilyrði og auka l ífsgæði á norð-
anverðu Snæfellsnesi .
’Þetta er bara eins og talað útúr mínu hjarta.‘Kristján L. Möller, þingmaður Samfylk-
ingarinnar, um ummæli Davíðs Odds-
sonar utanríkisráðherra þess efnis að
hugsanlega mætti setja hagnað af sölu
Landssímans í byggingu nýs sjúkrahúss.
Kristján var meðal f lytjenda þingsálykt-
unarti l lögu þar að lútandi sl . vor.
Ummæli vikunnar
Reuters
Blaðasalar í London lesa umfjöllun slúðurblaðsins The Sun um óheppilegt
búningaval Harrys Bretaprins í afmælisveislu um síðustu helgi.
Rannsóknarnámssjóður
Umsóknarfrestur til 15. febrúar 2005
Rannís
Rannsóknamiðstöð Íslands
Laugavegi 13, 101 Reykjavík
www.rannis.is
Stjórn Rannsóknarnámssjóðs auglýsir almenna styrki úr sjóðnum 2005.
Umsóknarfrestur er til 15. febrúar.
Hlutverk Rannsóknarnámssjóðs er að styrkja rannsóknatengt framhaldsnám að loknu
grunnnámi við háskóla.
Veittir eru styrkir til framfærslu nemenda í rannsóknatengdu framhaldsnámi, sem stundað er
við háskóla eða á ábyrgð hans í samvinnu við rannsóknastofnanir eða fyrirtæki. Styrkurinn til
framfærslu miðast einungis við þann tíma sem nemendur vinna að meistara- eða
doktorsverkefni sínu. Rannsóknaverkefni skal nema að minnsta kosti 30 einingum af náminu
(60 ECTS einingum) og tengjast rannsóknasviði leiðbeinanda. Sé námið stundað við háskóla
erlendis skal rannsóknaverkefnið lúta að íslensku viðfangsefni og vísindamaður með
starfsaðstöðu á Íslandi taka virkan þátt í leiðbeiningu nemandans. Framlag leiðbeinanda hér á
landi þarf að vera verulegt og vel skilgreint.
Tilhögun námsins fer eftir reglum einstakra deilda og eftir almennum reglum háskóla.
Umsóknir þurfa að áritast af aðalleiðbeinanda og forstöðumanni deildar/stofnunar.
Stjórn Rannsóknarnámssjóðs leitar faglegrar umsagnar um vísindalegt gildi verkefna,
framkvæmda- og fjárhagsáætlun og vísindalega hæfni leiðbeinenda hjá óháðum aðilum með
aðstoð vísindanefnda viðkomandi háskóla eða samsvarandi aðila, áður er stjórnin úthlutar
styrkjum. Umsækjendur, leiðbeinendur jafnt sem nemendur, eru hvattir til að kynna sér
vandlega reglur sjóðsins og þær kröfur sem gerðar eru til umsækjenda.
Umsóknareyðublöð og leiðbeiningar fyrir umsækjendur fást á heimasíðu Rannís:
www.rannis.is eða á skrifstofu Rannís, Laugavegi 13, 101 Reykjavík. Allar nánari upplýsingar
veitir Eiríkur Smári Sigurðarson, sími 515 5818, netfang eirikur@rannis.is . Umsóknir skal
senda í þríriti til Rannís merktar „Rannsóknarnámssjóður“.
Auk almennra styrkja veitir Rannsóknarnámssjóður FS-styrki í samvinnu við fyrirtæki og
stofnanir. Sjá nánari upplýsingar um FS-styrki á heimasíðu Rannís.
Útsalan hefs t á morgun • Útsalan hefs t á morgun • Útsalan hefs t á morgun • Útsalan hefs t á morgun
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
14
8
0
2
Umhverfis- og heilbrigðisstofa
Auglýsing um starfsleyfistillögur
Með vísan til 9. gr. reglugerðar nr. 785/1999 um starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem getur haft í för
með sér mengun eða mengandi starfssemi, munu starfsleyfistillögur neðangreinds fyrirtækis liggja
frammi hjá upplýsingaþjónustunni í Ráðhúsi Reykjavíkur dagana 16. janúar 2005 til 16. febrúar 2005.
Rétt til að gera athugasemdir hafa eftirtaldir aðilar:
1. Sá sem sótt hefur um starfsleyfi svo og forsvarsmenn og starfsmenn tengdrar eða
nálægrar starfsemi.
2. Íbúar þess svæðis sem ætla má að geti orðið fyrir óþægindum vegna mengunar.
3. Opinberir aðilar, félög og aðrir þeir sem málið varðar.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendast til Umhverfisráðs Reykjavíkur, Skúlagötu 19,
101 Reykjavík, fyrir 16. febrúar 2005.
Umhverfis- og heilbrigðisstofa Reykjavíkur
Fyrirtæki/gildistími starfsleyfis í árum Almenn
skilyrði
Sértæk
skilyrði
Heimilisfang
Hringrás ehf. - 10 ár Klettagörðum 9X X