Morgunblaðið - 16.01.2005, Blaðsíða 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 350 KR. MEÐ VSK.
Heilsukoddar
Heilsunnar vegna
ENSÍMTÆKNI ehf. hefur gert samning við
breska fyrirtækið Beauty Links um sölu og
markaðssetningu á snyrtivörulínu fyrir konur
sem unnin er úr þorskensímum, svokölluðu pens-
ími. Má búast við því að kynning og sala hefjist á
vormánuðum en hugmyndin er sú að setja hana
fyrst á markað í verslunum á borð við Harvey
Nichols og Selfridges í London og í sambæri-
legum verslunum í Norður-Ameríku. Snyrtivöru-
línan verður kennd við dr. Braga, Jón Braga
Bjarnason, prófessor í líf-
efnafræði og forstjóra
Ensímtækni, sem hefur
unnið að rannsóknum á
þorskensímum í áraraðir.
Í viðtali við Helgu Krist-
ínu Einarsdóttur í Tímariti
Morgunblaðsins í dag segir
Jón Bragi m.a.: „Síðan
verð ég dreginn í gegnum
svaðið við að kynna vöruna
í verslunum og fyrir blaða-
mönnum. Markmiðið er það, að ég segi frá öllum
þeim rannsóknum sem liggja að baki pensími.“
Jón Bragi segir tilviljun hafa ráðið því að menn
áttuðu sig á því að pensím gæti nýst í snyrtivörur
og byggist sú hugmynd á óformlegum vitnisburði
fjölda kvenna, sem hafi notað það á andlitið. Mun
snyrtivörulínan verða sett á markað sem Dr.
Bragi’s Age Management Formulation.
Búið er að gera einkaréttarsamning við sam-
starfsaðilann um sölu á pensím-snyrtivörum um
heim allan, en bara pensím-snyrtivörum sem
framleiddar eru á Íslandi.
Leitað að samstarfsaðilum
„Við getum því enn selt þekktum framleiðend-
um vöruna, ef fleiri sýna henni áhuga. Beauty
Links er með sérfræðinga á sínum snærum sem
sjá um vinnuna fyrir okkur og hefur í hyggju að
gera mikið úr þessu verkefni. Þetta er mjög
merkilegt ferli fyrir okkur og spennandi, því ef
maður leitar til stóru fyrirtækjanna, eins og ég
hef gert, getur maður allt eins leitað til ríkis-
stjórna, það gerist ekkert. Maður þarf að hafa
samband við lagadeildina og þróunardeildina og
rannsóknadeildina og markaðsdeildina. Það tek-
ur sjö ár og á eftir þorir enginn að taka ákvörð-
un,“ segir Jón Bragi.
Ensímtækni ehf. hefur enn fremur gert samn-
ing við svissneskt fyrirtæki um leit að samstarfs-
aðilum.
Snyrtivörur
úr þorsk-
ensími seldar
til útlanda
Snyrtivörukóngur/Tímarit
Jón Bragi
Bjarnason
AUKNING varð í sölu á kindakjöti á síðasta
ári. Salan jókst um 13,5% milli áranna 2003 og
2004 eða um 860 tonn. Svo virðist sem aukið
framboð á unnum vörum úr lambakjöti og
markaðsstarf sé að skila sér. Eftirspurnin hef-
ur aukist til muna og hafa allir sem koma að
framleiðslu lambakjöts lagt sig fram um að
mæta þeirri eftirspurn með góðum árangri.
Töluverður kraftur hefur verið settur í að ná
til yngra fólks þar sem kannanir sýndu að það
var sá hópur sem minnst neytti af lambakjöti.
Svo virðist sem það hafi borið árangur þar sem
mikil breyting hefur orðið þar á og er lamba-
kjötið vinsælt á borðum ungs fólks enda varan
mun aðgengilegri en áður. Kindakjöt er mest
selda kjöttegundin á Íslandi en salan var tæp-
lega 7.230 tonn á síðasta ári sem jafngildir að
hver Íslendingur hafi borðað um 25 kg af kinda-
kjöti, skv. upplýsingum Landssamtaka sauð-
fjárbænda.
Sala jókst
um 13% á
kindakjöti
Morgunblaðið/Golli
LANDSSÖFNUNIN Neyðarhjálp úr norðri,
til hjálpar þeim sem lifðu af hamfarirnar í As-
íu, náði hámarki í gærkvöldi í sameiginlegri
útsendingu þriggja sjónvarpsstöðva.
Söfnunin var í fullum gangi um hádegis-
bilið í gær þegar rætt var við Elínu Þ. Þor-
steinsdóttur verkefnisstjóra. Þá þegar höfðu
um 3.500 manns hringt inn og gefið fé til söfn-
unarinnar. Elín segir óhætt að fullyrða að
landssöfnunin sé sú viðamesta sem fram hafi
farið hér á landi. „Það eru allir að taka hönd-
um saman. Það er almennur áhugi og mikill
samhugur sem ríkir um þetta verkefni,“ segir
hún.
Hjálparstarf í Bandache, nyrst á Súmötru,
sem varð mjög illa úti í flóðum er í fullum
gangi og er byrjað að dreifa tjöldum, mat-
vælum og nauðsynjum til nauðstaddra.
J. Birna Halldórsdóttir, sendifulltrúi
Rauða kross Íslands, segir nyrsta hluta Súm-
ötru hafa orðið verst úti og svo norðvestur-
hlutann. Meðfram ströndinni á þessu svæði
hafi heilu þorpin horfið og ekki standi steinn
yfir steini. Hún segir að talið sé að yfir hundr-
að þúsund manns hafi farist á norður-, norð-
austur- og norðvesturstrandlengjunni og
reiknað sé með að aðstoða þurfi um 300 þús-
und manns sem eru heimilislausir. Mikið
starf sé fram undan.
„Þegar ég kom hérna fyrst fyrir viku síðan
og fór í fyrstu ferðina út fyrir Bandashi var
það hræðilegt. Það var rosaleg upplifun að
sjá öll hús horfin og líkin í plasti meðfram
veginum. Þetta var hræðilegt, ég fór aðeins
út úr bílnum og ég var með nályktina í nös-
unum það sem eftir var dagsins. Þetta er
miklu minna núna en það finnast alltaf á
hverjum degi lík,“ segir Birna.
Morgunblaðið/Golli
Undirbúningur var í fullum gangi í gærmorgun fyrir sameiginlega beina útsendingu Sjónvarpsins, Stöðvar 2 og Skjás eins.
Viðamesta söfnun
Íslandssögunnar
„ÉG vona að fleiri Íslendingum
gefist kostur á að fara í þetta nám
sem ég veit að á eftir að nýtast
með ýmsum hætti í framtíðinni,“
segir Berglind Kristinsdóttir, lög-
reglufulltrúi í skatta- og efna-
hagsbrotadeild ríkislögreglu-
stjóra, sem útskrifaðist nýlega úr
lögregluháskóla bandarísku alrík-
islögreglunnar, FBI, fyrst ís-
lenskra kvenna.
Í Tímariti Morgunblaðsins í
dag er rætt við Berglindi um nám-
ið hjá FBI, reynslu hennar af lög-
reglustarfinu, stöðu kvenna innan
lögreglunnar o.fl. Konur eru að-
í rannsóknunum er ákaflega mik-
ið. Menn brenna fljótt upp. Ég
veit að Lögreglan í Reykjavík er
hreinlega í vandræðum með að
fylla stöður við rannsóknardeild-
irnar þar. Kannski helgast þetta
af því að undanfarin ár hefur við
löggæsluna verið lögð meiri
áhersla á eftirlit en rannsóknir. Í
þessu þarf að ríkja jafnvægi og
menn hafa áhyggjur af þróuninni.
Hærri laun eru nauðsynleg, en
einnig þarf að hyggja betur að
starfslegu umhverfi að öðru leyti,
hvatningu og endurmenntun.
Reyndar eru breytingar þegar
byrjaðar að þessu leyti til hins
betra.“
eins 10% af íslenskum lögreglu-
mönnum en voru 3% fyrir nokkr-
um árum og segir Berglind að illa
gangi að fá konur til að sækja um
lögreglustörf. Hún segir jafn-
framt að þegar hún fór úr al-
mennu lögreglunni yfir til rann-
sóknarlögreglunnar hafi það þótt
mikil upphefð. Sú tíð sé liðin. „Ég
held að starfið hafi sett niður, sem
er sárgrætilegt. Núna vill eigin-
lega enginn vera í rannsóknum.
Meginástæðan hlýtur að vera sú
að launin hafa lækkað hlutfalls-
lega. Menn hafa það einfaldlega
mun betra á vöktunum. Og álagið
Berglind Kristinsdóttir útskrifaðist úr lögregluháskóla FBI
Rannsóknarlögreglustarfið
á Íslandi hefur sett niður
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Berglind Kristinsdóttir: Lög-
reglumenn sækja lítt um rann-
sóknarstörf.
Hlutfall kvenna í lögreglunni 10%
en var 3% fyrir nokkrum árum
Rannsakar/Tímarit
LÖGREGLAN á Selfossi fann ætluð fíkniefni í
fórum farþega í tveimur bílum sem stöðvaðir
voru við almennt umferðareftirlit í bænum í
fyrrinótt. Voru viðkomandi færðir í fanga-
geymslur. Er talið að a.m.k. í öðru tilvikinu hafi
efnin sem fundust verið tóbaksblandað hass.
Með fíkniefni í
tveimur bílum
♦♦♦