Morgunblaðið - 16.01.2005, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 16.01.2005, Blaðsíða 48
48 SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ TROMMARINN Spencer Dryden er látinn. Dryden var trommuleikarinn Jefferson Airplane þegar sú fræga sýrurokksveit var upp á sitt besta síðla á 7. áratug síðustu aldar. Hann var 66 ára og banamein hans var krabbamein. Dryden gekk í sveitina 1966 og var liðsmaður hennar þeg- ar kom lögunum „Somebody To Love“ og „White Rabbit“ í efstu sæti vinsældarlista. Hann yfirgaf sveitina eftir að hafa leikið með henni á Woodstock-hátíðinni 1970. Faðir Drydens var hálfbróðir Charlie Chaplin. Hann greindist með krabbamein í fyrra, um svipað leyti og heimili hans brann til kaldra kola. Efnt var til góðgerðartónleika fyrir hann þar sem fram komu vinir og kunningjar úr rokk- bransanum. Dryden þótti búa yfir miklum krafti og afar sérstöku flæði sem trommari. Hann lék einnig með einu af af- sprengjum Grateful Dead sem hét New Riders of the Purple Sage. Dryden tók ekki þátt í endurkomu Jefferson Airplane árið 1989 en var viðstaddur er sveitin var tekin í Frægðarhöll rokksins árið 1996. Trommari Jefferson Airplane látinn Kápumynd Surrealistic Pillows frá 1967. Spencer Dryden er lengst til hægri á myndinni. ÞAÐ finnst varst skýrari vísbending um að hér sé á ferð verulega vafa- söm bíómynd en sú að hún skuli ekki hafa ratað í bíó. Bíddu við, gam- anmynd með Ben Stiller og Jack Black ekki í bíó? Þá þarf eitthvað mikið að vera að. Og það er líka mik- ið að, alveg heil- mikið. Það fyrsta er að þrátt fyrir að eiga að vera gamanmynd, uppfull af meint- um bröndurum og farsakenndum uppákomum þar sem þeir Stiller og sérstaklega Black láta öllum ill- um látum, þá er myndin bara ekki vita fyndin, ekki einu sinni brosleg. Og hún er ekki heldur nógu vond til að verða góð. Bara vond. Hvernig í ósköpunum þeir létu til leiðast, hinir annars fyndnu Stiller og Black, á maður ansi bágt með að skilja, en skýringin er þó örugglega fyrir hendi – leikstjórinn Levinson. Þar fer vanur maður og virtur sem á að baki margar frægar verðlauna- myndir (Diner, Rain Man) en svo virðist sem Stiller og Black hafi ein- faldlega treyst of mikið á hann og hafi bara ekki viljað trúa því, fyrr en orðið var um seinan, að slíkur reynslubolti gæti átt svo slæman dag. Hið undarlegasta er að hug- myndin er ekkert svo slæm; tveir æskufélagar, annar skynsamur og jarðbundinn, hinn kolgeggjaður sveimhugi. Sá geggjaði verður óvart ríkur og það fyllir þann skynsama af öfund. En úrvinnslan er ömurleg. Stiller og Black látnir leika ná- kvæmlega sömu rullur og þeir hafa gert trilljón sinnum áður og alltaf betur. Eftir stendur hinn aldni lærdóm- ur að öfund er af hinu illa. Öfund er af hinu illa KVIKMYNDIR Myndbönd Bandaríkin 2004. Leikstjórn Barry Levin- son. Aðalhlutverk Ben Stiller, Jack Black, Rachel Weisz, Christopher Walk- en. Öllum leyfð. Skífan VHS. Öfund (Envy)  Skarphéðinn Guðmundsson HARÐJAXLINN Clint Eastwood sagði á verðlaunahátíð í New York fyrir skemmstu að hann myndi drepa kvik- myndagerð- armanninn Michael Moore ef sá síðarnefndi myndi einhvern tíma koma óboðinn í heim- sókn til sín vopnaður myndatökuvél. Moore var meðal áheyrenda í salnum og herma fregnir að hann hafi hlegið að orðum Clints. „Við Michael Moore eigum reyndar margt sameiginlegt – við erum báðir ákaflega ánægðir með að búa í landi þar sem tjáning- arfrelsi er virt,“ sagði Clint. „En Michael, ef þú kemur ein- hvern tíma óboðinn í heimsókn til mín með myndatökuvél þá mun ég drepa þig. Og mér er alvara.“ Þetta er haft eftir dagblaðinu New York Daily News. Vísar Eastwood þar að öllum líkindum til atriðis í heimildarmynd Moores, Bowling For Columbine, þar sem Moore mætir í heimsókn til gömlu kvikmyndastjörnunnar og fyrrum formanns Landssamtaka riffla- skyttna, Charlton Hestons, og spurði hann ágengra spurninga er tengdust fjöldamorðum sem framin höfðu verið af tveimur ungmennum í skóla þeirra í smábænum Col- umbine. Eastwood hótaði að myrða Moore Clint gamli er ekk- ert lamb að leika við.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.