Morgunblaðið - 16.01.2005, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 2005 25
22. daga ævintýraferðir á ári Hanans:
til Kína með
KÍNAKLÚBBI UNNAR
13. maí – 3. júní 2005
23. september – 14. október 2005
Farið verður til Beijing, Xian, Guilin, Shanghai, Suzhou
og Tongli. Siglt verður eftir Li ánni og Keisaraskurð-
inum og gengið á Kínamúrinn. Allt það merkilegasta á
þessum stöðum skoðað.
Heildarverð kr. 350 þús. Allt innifalið
Þ.e. allar skoðunarferðir, gisting í tvíbýli á lúxushótelum, fullt
fæði, allir skattar/gjöld, staðarleiðsögumenn og fararstjórn Unnar
Guðjónsdóttur, sem er sérfræðingur í skipulagningu ferða til
Kína, en þetta verður 20. og 21. ferðin sem hún leiðir um Kína.
Kínaklúbbur Unnar, Njálsgötu 33, 101 R
sími/símbréf 551 2596 og 868 2726
Vefsíða: www.simnet.is/kinaklubbur
Netfang: kinaklubbur@simnet.is
Geymið auglýsinguna Veiðihornið - Hafnarstræti 5 - sími 551 6760 • www.veidihornid.is • Veiðihornið - Síðumúla 8 - sími 568 8410
Sendum samdægursMunið gjafabréfin
9 DÆMI
VETRARÚTSALA VEIÐIHORNSINS
Ron Thompson Outback. Vatnsheldur
jakki með útöndun. Fullt verð 12.800.
Nú á vetrarútsölu aðeins 8.995
Mad Dog skotveiðigalli, jakki og smekkbuxur.
Vatnsheldur með útöndun. Fullt verð 19.900.
Vetrarútsöluverð aðeins 15.990.
Allar útsöluvörur Veiðihornsins eru líka í veiðibúðinni
þinni á netinu - veidihornid.is
OPIÐ Í DAG 12 TIL 17 - NÝTT KORTATÍMABIL
Ron Thompson Dakota vöðlur.
Fullt verð 16.995. Nú á
vetrarútsölu aðeins 10.995.
Scierra Aquatex öndunarvöðlur
og jakki. Fullt verð 28.900. Nú
á vetrarútsölu aðeins 19.900.
Ron Thompson fluguveiðisett. Grafitstöng, diskabremsuhjól, uppsett Scierra XDA
skotlína með baklínu og taumatengi. Magnað vetrartilboðsverð aðeins 11.495 fyrir
allt þetta. Sjá nánar í veiðibúðinni á netinu. Veidihornid.is
Norinco QJ12 pumpa. 28" hlaup. Ólarfestingar og þrjár þrengingar fylgja.
Fullt verð 28.900. Nú á vetrarútsöluverði aðeins 23.920. Aðeins örfá stykki til á lager.
Stoeger pumpa. 26" hlaup. Ólarfestingar og 5 þrengingar fylgja. Byssan er með
stillanlegu sigti. Fullt verð 32.500. Nú á vetrarútsöluverði aðeins 26.800.
Aðeins örfá stykki til á lager.
Norinco JW15 riffill. 22 cal l.r. Boltalás, 5 skota magasín. Ólarfestingar.
Fullt verð kr. 17.995. Nú á vetrarútsöluverði aðeins 13.495.
Scierra Norðurá veiðijakki. Vatnsheldur
3ja laga jakki með útöndun.
Fullt verð 29.900.
Nú á vetrarútsölu aðeins 15.900
„Með nýrri kennsludeild verði jafn-
framt lögð áhersla á stærðfræði sem
er mikill styrkur fyrir þróun okkar
samfélags. Ég segi blákalt: Við eigum
ekki alltaf að hafa vit fyrir nemendum
og atvinnulífinu; þessu má gjarnan
vera öfugt farið. Við eigum að vera
vakandi yfir því hverju atvinnulífið
kallar eftir og það kallar eftir háskóla
með öflugum tækni- og verkfræði-
brautum. Samtök iðnaðarins gerðu
könnun fyrir einu ári þar sem kom í
ljós að fyrirtæki innan samtakanna
þurfa að bæta við 3.000 starfsmönn-
um á næstu þremur árum sem hafa
einhvers konar raunvísinda- og iðn-
aðarbakgrunn og þar af er þörf fyrir
um 800 manns með háskólapróf í
raungreina,- tækni- og verkfræði.
Þetta er mikill fjöldi þegar litið er til
þess að einn árgangur úr fram-
haldsskóla með raunvísindabakgrunn
dreifist á margar og mismunandi
námsbrautir. Í Tækniháskólanum er
starfrækt frumgreinadeild sem
undirbýr nemendur fyrir raun-
greinatengt háskólanám. Hin mikla
aðsókn að deildinni sýnir þá miklu
þörf sem er fyrir góða raunvísinda-
menntun.
Atvinnulífið kallar eftir raunvís-
indamenntuðu fólki en það eru ekki
nægjanlega margir sem velja sér slíkt
nám.
Nú er lag og sóknarfæri að gera
verulega bragarbót og mikilvægt að
allir leggist á eitt um að vel til takist
við uppbyggingu nýs skóla.
Ég veit að samtök atvinnurekenda
taka ekki þátt í rekstri háskóla af til-
efnislausu. Atvinnulífið kallar eftir
fleiri einstaklingum með tækni- og
verkfræðimenntun og af þeim sökum
vilja samtökin taka þátt í rekstri há-
skóla sem útskrifar fólk með þá
menntun. Á þessu stigi málsins má
því alls ekki heykjast á því að byggja
upp öflugan háskóla á sviði raun-
greina,“ segir Stefanía.
Hún segir að til þess að markmið-
iðum um öflugan háskóla náist skipti
staðsetning hans miklu máli. „Það er
tómt mál að tala um að byggja upp
öflugan háskóla og rannsóknarstarf-
semi í kringum skólann ef hann fær
ekki það rými sem nauðsynlegt er.
Nú er tækifærið að byggja upp há-
skólasamfélag, einskonar kampus þar
sem rannsóknarstofnanir, sprotafyr-
irtæki og aðrir fræðsluaðilar byggjast
upp í kringum háskólann. Háskóli
snýst um fólk, ekki veggi. Gangverkið
verður ekki síst til þegar fólk hittist
saman yfir kaffibolla og þá fæðast oft
bestu hugmyndirnar. Mikið návígi
milli háskólans, rannsóknarstofnan-
anna og fyrirtækjanna er nauðsyn-
legt.“
Í landi sjálfbærrar orku og mikillar
orkunotkunar vill Stefanía sjá enn
meiri vöxt í greinum af þessu tagi.
Hún segir að með vetnisvæðingu,
gríðarlegri raforkuframleiðslu,
sprotafyrirtækjum eins og Marorku,
sem vinnur að hámörkun orkunýting-
ar í skipum, séu ótalmörg tækifæri á
þessu sviði og að atvinnulífið sé sömu-
leiðis farið að leita eftir starfsmönn-
um með almennari menntun. Álver
leita t.d. ekki eingöngu eftir vélafólki
eða rafmagnsfólki heldur blandi af
véla- og rafmagnsfólki.
Ávallt sami vandinn — ekki nægjanleg
áhersla á raungreinar í grunnskóla
Stefanía segir að aukin eftirspurn
sé eftir starfsfólki meðmenntun á
sviði hátækni, t.d. örtækni og heil-
brigðistækni. Hún segir að til að anna
betur eftirspurn atvinnulífsins eftir
velmenntuðu fólki þurfi háskólakerfið
að setja sér markmið. „Við getum
ekki verið góð á öllum sviðum en við
getum staðið framarlega á færri svið-
um. Við erum svo fámenn að við ætt-
um að byggja upp nám sem getur gef-
ið af sér framtíðararðsemi. Ég set
þetta upp í svokallaðan þekkingar-
klasa og innan hans rúmast örtæknin,
sem Evrópusambandið leggur gífur-
lega áherslu á um þessar mundir,
heilbrigðistækni, orkutækni, hátækni
og sjávarútvegstækni. Ég held að við
höfum ekki mannauð til þess að verða
fremst á öllum sviðum. Og við komum
alltaf að sömu rótinni þegar málið er
krufið til mergjar; það koma ekki
nógu margir upp úr grunnskóla með
nægjanlega raungreinaþekkingu.“
Nú er nefnd á vegum menntamála-
ráðuneytisins að leggja fram skýrslu
um þriggja ára stúdentspróf. Þar er
m.a. gert ráð fyrir að hluti af náms-
efni fyrsta árs menntaskóla fari niður
í 10. bekk grunnskóla. Stefanía efast
að að grunnskólinn sé undir það bú-
inn að taka við hluta af námsefni 1.
árs menntaskóla, þar á meðal stærð-
fræði og öðrum raungreinum. „Það
vakna spurningar um hvort skipulag
grunnskólans eða grunnskólinn sjálf-
ur hafi yfir að búa þeirri þekkingu
sem felst í því að sinna stærðfræði-
kennslu og annarri raungreina-
kennslu sem fram að þessu hefur ver-
ið í framhaldsskólum. Í þessu sam-
hengi bendir hún á að við Kenn-
araháskóla Íslands er engin stærð-
fræðibraut. Innan grunnskólabrautar
eru níu kjörsvið og eitt þeirra er
stærðfræði. Nú stunda 951 nám á
grunnskólabraut og þar af eru 58 með
stærðfræði sem aðalkjörsvið, (25 ein-
ingar), og 13 sem aukakjörsvið (um 10
einingar). Samtals eru því 7,5% allra
nemenda á grunnskólabraut í KHÍ
með einhverja stærðfræði sem kjör-
svið. Í framhaldsdeild eru 449 nem-
endur og þar af einungis 14 með 20
eininga nám í uppeldis- og menntun-
arfræði með áherslu á stærðfræði-
menntun, eða 3,1%. Hinn nýi háskóli
hefur kynnt til sögunnar kennsludeild
þar sem gert er ráð fyrir að tilvonandi
kennarar í grunnskólum taki mun
meiri stærðfræði en áður hefur verið.
Með sameininglegu átaki er hægt að
stórefla stærðfræðina.“
gugu@mbl.is