Morgunblaðið - 16.01.2005, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 16.01.2005, Blaðsíða 50
50 SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ Í öllum þeim grúa af góðumplötum sem rak á fjörur mínará síðasta ári heyrðist oft hæstí þeim sem lægst létu; einna eftirminnilegastar eru plötur þar sem raulað var en ekki öskrað, hvíslað en ekki sungið, leikið á óraf- mögnuð hljóðfæri en ekki grenjandi rafgítara. Mikið af slíkri tónlist kom út á árinu, þjóðlagaraul, ný- rómantísk sveitatónlist og spuna- blús. Með bestu plötum voru þær einföldustu, ef svo má segja; þó tónlistin hafi verið snúin og text- arnir torræðir var hljóðfæraskipan einföld, kannski bara kassagítar í aðalhlutverki eins og á plötunum tveim sem Devendra Banhart sendi frá sér á árinu, eða harpa eins og á plötunni hennar Joanna Newsom, The Milk Eyed Mender, sem kom út fyrir tæpu ári. Joanna Newsom er úr tónlistar- fjölskyldu. Móðir hennar ætlaði sér að verða konsertpíanisti og stund- aði tónlistarnám í samræmi við það en sneri sér síðan að læknisfræði þó hún spili enn og ekki bara á píanó því hún spilar líka á konga- trommur og dulcimer. Faðir Joanna Newsom lætur sér nægja að spila á gítar, systir hennar leikur á hné- fiðlu og bróðir hennar lemur trommur. Það kemur því varla á óvart að Newsom byrjaði ung í tón- listarnámi og þar sem hún fékk að velja valdi hún að spila á hörpu. Eini hörpukennarinn sem til var í borginni vildi fullvissa sig um að stúlkan hefði raunverulegan áhuga á tónlist því hörpur eru dýrar, og því þurfti hún að byrja á píanó- námi. Þegar hún var tíu ára gömul byrjaði svo hörpunámið fyrir al- vöru. Newsom segist hafa verið svo heppin að ekki var henni bara kennt að spila á hefðbundinn hátt heldur lagði kennari hennar, eldri kona, mikla áherslu á lagasmíðar og spuna, kenndi henni að spila stef með vinstri hendi og spinna við það jafnharðan með þeirri hægri. Næstu árin fór Newsom reglu- lega með móður sinni í sumarbúðir þar sem áhersla var lögð á þjóð- lagatónlist og þar segist hún hafa lært ýmislegt gagnlegt, meðal ann- ars kynntist hún kora, hörpu frá Vestur-Afríku, sem braut upp fyrir henni hefðbundna taktskipan í tón- list, enda segist hún hafa fengið al- gera kora-dellu um tíma og gert miklar takttilraunir. Newsom valdi sér þann miðskóla sem henni þótti líklegastur til að efla þekkingu hennar á tónsmíðum og þó þar hafi gömul og ný fram- úrstefna verið í hávegum segir hún að þar hafi hún loks komist í tæri við marga fremstu listamenn Bandaríkjanna í þjóðlegri tónlist; nefnir sérstaklega söngkonuna Tex- as Gladden sem fræg varð fyrir frá- bæran söng þó söngröddin þætti ekki falleg. Fyrsta hljómsveitin Í skólanum kynntist Newsom ýmsum tónlistarmönnum, sem von- legt er, og þar á meðal var Noah Georgeson, lærisveinn Terry Riley. Þegar Georgeson stofnaði hljóm- sveit slóst Newsom í hópinn sem hljómborðsleikari. Hljómsveitin kallaðist fyrst The Please, síðar The Pleased, og hélt sína fyrstu tónleika í ársbyrjun 2002. Það sum- ar hélt The Pleased til Englands og var gríðarvel tekið þar. Í kjölfarið sendi hljómsveitin frá sér tvær smáskífur haustið 2002. Meðfram spilamennsku með The Pleased, og reyndar lengur, samdi Joanna Newsom eigin tónlist. Framan af segir hún að það hafi verið epískar langlokur, en smám saman urðu þær að hnitmiðuðum lögum og svo komu sönglínur eftir að Newsom áttaði sig á að þó rödd hennar væri ekki falleg eða þjálfuð þá þurfti ekki endilega að vera lærð til að geta sungið – það segist hún hafa lært af að hlusta á gamlar þjóðlagaupptökur – allt snúist um að syngja með hjartanu. Fyrstu plöturnar Haustið 2002 sendi Newsom frá sér fyrstu stuttskífuna, heimagerða, sem hún kallaði Walnut Whales. Sú plata rataði meðal annars til Will Oldhams sem vildi ólmur fá New- som til að hita upp fyrir sig eftir að hafa heyrt plötuna. Newsom segist ekki hafa ætlað sér að spila á tón- leikum að svo stöddu en þótti boðið svo gott að ekki væri hægt að neita því. Hún fékk því að hita upp fyrir Devendra Banhart vin sinn á nokkrum smærri tónleikum áður en kom að tónleikaferð með Oldham. Næsta stuttskífa, Yarn and Glue, kom svo út 2003, enn heimagerð. Oldham kom Newsom síðan í sam- band við Drag City-útgáfuna og í kjölfarið á því fór hún í hljóðver að taka upp almennilega breiðskífu. Einfaldleikinn var enn í fyrirrúmi þó öðrum vinnubrögðum væri beitt, því nú tók hún fyrst upp hörpuna og söng svo – segist ekki hafa geta það fram að því, enda hafi hún allt- af misst þráðinn ef hún var ekki að syngja laglínuna samhliða því sem hún spilaði. Á plötunni bregður einnig fyrir píanói, til að mynda í laginu frábæra Inflammatory Writ, og í tveimur lögum heyrist í gítar. Upptökustjóri á skífunni var fé- lagi Newsom úr The Pleased, Noah Georgeson, sem grípur í gítar í lög- unum tveim sem nefnd eru. Platan var tekin upp heima í stofu hjá Newsom og á henni eru nokkur lög af stuttskífunum sem hún gaf út ein síns liðs, enda komust fáir yfir ein- tök af þeim. Mikið hefir verið talað um þjóð- lagavakninguna vestan hafs, sumir talað um hreyfingu sem þeir kalla „free folk“, en að sögn Newsom er ekkert nýtt í gangi, hún og fleiri álíka listamenn séu að spila tónlist sem lifað hafi árum saman og í raun tekið litlum breytingum í ára- tugi; fjölmiðlar séu bara að taka við sér og grípi til ofskýringa. Tónlist á sunnudegi Árni Matthíasson Hjartans hörpustrengir Með helstu plötum sem út komu vestan hafs á síð- asta ári var fyrsta breiðskífa Joanna Newsom, en á henni er leikið á hörpu og sungið óheflaðri röddu. Miðasala opnar kl. 13.30 VIÐSKIPTAVINIR ÍSLANDSBANKA FÁ 20% AFSLÁTT AF MIÐAVERÐI I I I I Í I I ÍSLANDSBANKI ... „séríslenskt Fönn, fönn, fönn!“  SV MBL ... í l , , !  "...bráðvel heppnuð skemmtun, grín og fjör..."  ÓHT rás 2 .. l t , rí fj r... r  Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Yfir 25.000 gestir Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.15. B.i. 10 ára QUEEN LATIFAH JIMMY FALLON GISELE BÜNDCHEN I Á FULLRI FERÐ MEÐ GRÍNIÐ Í BOTNI Í FRÁBÆRRI GAMANSPENNUMYND EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS Sýnd kl. 2, 4 og 6. ÍSLENSKT TAL Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 14 ára. Í takt við tímann er tekjuhæðsta jólamyndin, yfir 20.000.000. í tekjur frá öðrum degi jóla til dagsins í dag.   Sýnd kl. 3.20, 5.40, 8 og 10.20. Tilnefnd til 5 Golden Globe verðlauna þ.á.m. besta mynd, leikstjóri og leikari í aðalhlutverki. Einstök mynd um höfund hinnar sígildu sögu um Pétur Pan. Stórkostleg upplifun! Sýnd kl. 6 og 10. QUEEN LATIFAH JIMMY FALLON GISELE BÜNDCHEN I Á FULLRI FERÐ MEÐ GRÍNIÐ Í BOTNI Í FRÁBÆRRI GAMANSPENNUMYND VIÐSKIPTAVINIR ÍSLANDSBANKA FÁ 20% AFSLÁTT AF MIÐAVERÐI I I I I Í I I ÍSLANDSBANKI ... „séríslenskt Fönn, fönn, fönn!“  SV MBL ... í l , , ! "...bráðvel heppnuð skemmtun, grín og fjör..."  ÓHT rás 2 ... l t , rí fj r... r Sýnd kl. 8 og 10.10. Tilnefnd til 5 Golden Globe verðlauna þ.á.m. besta mynd, leikstjóri og leikari í aðalhlutverki. Einstök mynd um höfund hinnar sígildu sögu um Pétur Pan. Stórkostleg upplifun! Sýnd kl. 4, 6 og 8. Sýnd kl. 4. ÍSLENSKT TAL, Tilnefnd til 7 Golden Globe verðlauna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.