Morgunblaðið - 16.01.2005, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 2005 9
FRÉTTIR
Tækniþróunarsjóður
Kynningarfundur í Húsi atvinnulífsins 19. janúar
Rannís
Rannsóknamiðstöð Íslands,
Laugavegi 13, 101 Reykjavík,
www.rannis.is
Tækniþróunarsjóður boðar til opins kynningarfundar
í Húsi atvinnulífsins miðvikudaginn 19. janúar
kl. 8:30–10:00.
Fundurinn er ætlaður væntanlegum umsækjendum,
en umsóknarfrestur í sjóðinn er til 15. febrúar.
Dagskrá
Hans Kr. Guðmundsson, forstöðumaður Rannís, er fundarstjóri.
Sveinn Þorgrímsson, formaður stjórnar Tækniþróunarsjóðs, gerir grein fyrir
hlutverki sjóðsins. Snæbjörn Krisjánsson og Oddur Már Gunnarsson, starfsmenn
Rannís, fjalla um umsóknar- og matsferli sjóðsins.
Boðið verður upp á morgunverð á fundinum.
Tækniþróunarsjóður heyrir undir iðnaðarráðherra og starfar samkvæmt lögum nr.
4/2003 um opinberan stuðning við tækniþróun og nýsköpun í þágu atvinnulífsins.
Sjóðurinn fjármagnar nýsköpunarverkefni í samræmi við meginstefnu Vísinda- og
tækniráðs. Umsækjendur geta verið fyrirtæki, einstaklingar, rannsóknastofnanir og
háskólar.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Stökktu á skíði til
Austurríkis
5. febrúar
Flug og hótel
frá aðeins kr. 49.990
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Verð kr. 29.990
Flugsæti með sköttumtil Salzburg,
5. febrúar.Netverð.
Heimsferðir bjóða þér að stökkva á skíði til eins vinsælasta skíðabæj-
ar Austurrísku alpanna, Zell am See. Beint flug til Salzburg og um
klst. akstur til Zell. Í boði eru góð þriggja og fjögurra stjörnu hótel í
hjarta Zell, rétt við skíðalyfturnar, veitingastaði, verslanir og kvöldlífið.
Frábær aðstaða, 56 lyftur og allar
tegundir af brekkum, einnig fyrir
snjóbretti og gönguskíði. Verð kr. 49.990
Flug, skattar og hótel án nafns,
Zell am See/Schuttdorf, í tvíbýli
með morgunverði.
5. febrúar. Vikuferð. Netverð.
Kringlunni - sími 568 1822.
ÚTSALA
Enn meiri verðlækkun
Ríta Bæjarlind
Lokað á morgun, mánudag, vegna breytinga
Opið í Rítu Eddufelli
Eddufelli 2 – Bæjarlind 6
s. 557 1730 – s. 554 7030
Opið mán.-fös. frá kl. 10-18 – lau. frá kl. 10-16
Útsala • Útsala • Útsala
Klappastíg 44 - sími 562 3614
Innleggsnótur og gjafakort í fullu gildi á útsölunni
Bláu húsunum Fákafeni, sími 864 1202, Ásdís.
SIGURSTJARNAN
Toppurinn í flotanum
Til sölu og sýnis Ford Mustang,
árgerð 2005, í dag, sunnudag
16. janúar, milli kl. 14 og 18.
Allt í versluninni með
40-60% afslætti
Í TILEFNI samanburðarskýrslu
norrænu stofnunarinnar NOM-
ESCO um lyfjakostnað og lyfjanotk-
un bendir Lyfjahópur félags ís-
lenskra stórkaupmanna (FÍS) á að
við norrænan samanburð á lyfja-
kostnaði beri að hafa í huga að virð-
isaukaskattur á lyfjum sé mjög mis-
munandi milli landa. Allt frá því að
vera enginn á lyfseðilsskyldum lyfj-
um í Svíþjóð, 8% í Finnlandi og um
25% á öllum hinum þremur Norður-
landanna. NOMESCO skýrslan sýn-
ir fram á að lyfjakostnaður á íbúa á
Íslandi er talsvert hærri en á hinum
Norðurlöndunum.
Í tilkynningu frá lyfjahópi FÍS
kemur fram að við samanburð á
raunkostnaði verði einnig að horfa til
mismunandi forsendna í einstökum
löndum. „Íslensku tölurnar eru allar
reiknaðar út frá hámarksverði sam-
kvæmt lyfjaverðskrá, en sú er ekki
alltaf raunin hvað önnur lönd varðar.
Í íslensku tölunum er ekki tekið tillit
til lægra innkaupsverðs sjúkrastofn-
ana vegna útboða eða afsláttar til
apóteka,“ segir í tilkynningunni. Þar
kemur auk þess fram að Lyfjahópur
FÍS hafi áætlað lyfjakostnað á íbúa á
Íslandi fyrir árið 2001. Hann segir að
til þess að hægt sé að skoða lyfja-
kostnað og bera saman milli landa
hafi FÍS dregið virðisaukaskattinn
frá lyfjaverðunum og þá hafi komið í
ljós að Ísland væri með 15% hærri
lyfjakostnað á íbúa miðað við vegið
meðaltal hinna Norðurlandanna en
ekki 53% eins og heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið hafi slegið
fram. Hjörleifur segir lyfjakostnað-
inn því hafa verið 341 evra á Íslend-
ing en vegið meðaltal hinna Norður-
landanna hafi verið 295 evrur miðað
við gengi evrunnar 1. desember
2001.
„Það verður að bera saman epli og
epli en ekki epli og appelsínur,“ segir
Hjörleifur.
Notkun nýrra lyfja eykst ekki
sérstaklega milli ára
FÍS bendir auk þess á að það eigi
ekki við rök að styðjast að ein meg-
inskýringin á meintri sérstöðu Ís-
lands sé rík tilhneiging lækna til að
skipta eldri lyfjum út fyrir nýrri lyf
sem jafnan séu dýrari. Máli sínu til
stuðnings vísar FÍS í kandidatsrit-
gerð Ríkharðs Róbertssonar lyfja-
fræðings frá 2004. Þar komi fram að
ný lyf (yngri en sjö ára) vegi að með-
altali 16,3% af lyfjakostnaði á hverj-
um tíma og aukin notkun eldri lyfja
vegi um 15,6%, og sveiflist þetta
hlutfall lítið milli ára. Niðurstaða
Ríkharðs sýni fram á að þótt lyfja-
notkun aukist almennt þá aukist
notkun nýrra lyfja ekki sérstaklega.
„Verður að bera
saman epli og epli“
Mismunandi virðisaukaskattur á lyf í einstökum löndum
REYKJAVÍKURBORG efnir í
samvinnu við Stofnun um stjórn-
sýslu og stjórnmál til morgunverð-
arfundar fimmtudaginn 20. janúar
undir heitinu Lýðræðisþróun í
sveitarfélögum – nýjar leiðir, hvað
geta Reykvíkingar lært af reynslu
Dana?
Peter Bogason, prófessor við
Háskólann í Hróarskeldu, flytur
inngangserindi um nýjar leiðir í
lýðræðisþróun og stefnu og
reynslu sveitarfélaga í Danmörku.
Fyrirlesturinn er á ensku.
Peter mun m.a. ræða um ýmsar
leiðir sem farnar hafa verið í Dan-
mörku til þess að auka þátttöku
borgaranna í mótun velferðarsam-
félagsins, m.a. starfsemi hverfa-
ráða, stjórna og notendaráða við
opinberar þjónustustofnanir, s.s.
skóla, leikskóla og öldrunarheim-
ila, og fjalla um hvað vel hefur tek-
ist – og hvað miður.
Fundarstjóri er Stefán Jón Haf-
stein borgarfulltrúi.
Fundurinn er á Grand hóteli,
hefst kl. 8.30 og lýkur kl. 10.
Aðgangseyrir er kr 1.000 og er
morgunverður innifalinn.
Lýðræðisþróun í sveitarfélögum