Morgunblaðið - 16.01.2005, Side 24
24 SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
R
ótin að þessum
vanda, að mati
rektors Tæknihá-
skóla Íslands, er
að ekki er lögð
nægjanleg áhersla
á stærðfræði- og
aðra raungreina-
kennslu í grunnskóla sem leiðir til
þess að nemendur velja síður raun-
greinanám þegar kemur í framhalds-
skóla. Stefanía stendur nú í eldlínunni
ásamt fleirum við það stóra verkefni
að sameina Tækniháskóla Íslands og
Háskólann í Reykjavík. Þar er í mörg
horn að líta en jafnframt telur Stef-
anía að nauðsynlegt sé að fram komi
heildarsýn á stöðu raungreinamennt-
unar í landinu því að henni sé sótt úr
mörgum áttum.
Fyrir liggur á Alþingi stjórnar-
frumvarp um sameiningu Tæknihá-
skólans og Háskólans í Reykjavík og
hafið er síðasta skólaár þessara stofn-
ana í þeirri mynd sem þær eru nú
starfræktar. Næsta haust tekur við
nýr sameinaður háskóli sem fyrst um
sinn verður í sama húsnæði og nú er,
þ.e. á Höfðabakka og í Kringlunni, en
uppi eru um hugmyndir um að nýr
sameinaður háskóli verði undir sama
þaki um mitt ár 2007. Það er verið að
horfa til þess að hinn nýi skóli byggist
jafnvel upp í sambýli við aðra í svo-
kölluðu háskólaþorpi eða „kampus“.
Höfum nánast staðið í stað
Stefanía segir að mikil umræða sé í
háskóla-, rannsókna- og fyrirtækja-
umhverfinu um hinn sameinaða há-
skóla og menn spyrji sig gjarnan
hvers konar háskóli verði til úr sam-
einingunni. Þar hefur hún sterkar
skoðanir og vill hlut stærðfræði-,
raungreina- og tæknimenntunar sem
mestan. „Menntunarstig þjóðarinnar
hefur hækkað mikið en við höfum
ekki bætt nægjanlega stöðu raun-
greina- og tæknimenntunar. Þar hef-
ur útskrifuðum nemendum ekki fjölg-
að að ráði. Fjölgunin hefur orðið mest
í hugvísindagreinum, m.a. viðskipta-
og lögfræðigreinum,“ segir Stefanía.
Hún segir að ástæðuna fyrir þessu
megi finna alla leið niður í grunn-
skólakerfið.
„Er líklegt að krakkar sem koma
upp úr grunnskólanum með slaka
kunnáttu í stærðfræði velji sér nátt-
úrufræði- eða stærðfræðibraut í
framhaldsskóla? Er líklegt að þau fari
í verkfræði- eða tæknifræðinám? Þeir
sem koma með sterkan grunn úr
stærðfræði í grunnskóla eru líklegri
til að halda áfram í raungreinanámi.
Það má lesa líkurnar á því að nemandi
fari í háskólanám tengt raungreinum
strax út úr einkunnum á samræmd-
um prófum í 7. bekk grunnskóla og
jafnvel úr samræmdu prófunum í 4.
bekk. Það er eitthvað bogið við kerfið
þegar svo lítið hlutfall nemenda fer í
raungreinanám í framhaldsskóla og í
háskóla.“
Stefanía bendir á að Íslendingar
verði áfram að byggja hús og brýr,
leggja rafmagn og virkja náttúruauð-
lindir og hugvit þjóðarinnar. En til-
hneigingin er sú að iðn- og starfs-
menntagreinar eiga einnig undir
högg að sækja. Í Danmörku, þar sem
sömu tilhneigingar gætir, er sú skoð-
un ríkjandi meðal sérfræðinga að
einn af megin áhrifaþáttum í vali
nemanda á námi sé móðirin.
„Þetta er ekki svo galið. Við fyrstu
athugun sæi ég sjálf varla fyrir mér
að dóttir mín færi í rafvirkjun. Í
mörgum tilfellum er móðirin líkleg til
þess að horfa á það starfsumhverfi
sem hún þekkir best og hafa þannig
áhrif á námsval barna sinna. Ég held
að einkum tvennt ráði því hve lítil
sókn er í raungreinanám og hefð-
bundnar iðn- og starfsmenntagrein-
ar; annars vegar skoðanamyndun og
kúltúr í umhverfinu og hins vegar
undirbúningur nemenda. Það hefur
lengi verið rætt um þetta og ástandið
skánar lítið sem ekkert. Aðsóknin í
ákveðnar iðngreinar er skelfileg. Ég
sé til að mynda fyrir mér mikinn
skort á iðnaðarmönnum eftir fáein ár
hér á landi.“
Fyrirtæki verða til vegna rannsókna,
nýsköpunar og þróunar
Stefanía var sjálf nemandi í Tækni-
skólanum 1987 og fór þá í fyrirtækja-
heimsókn upp á aðra hæð í húsi á
Hverfisgötu. Hún lýsir því hvernig
hún datt inn í skipulagslaust umhverfi
lítils sprotafyrirtækis sem nú er orðið
eitt hið sterkasta á íslenskum hluta-
bréfamarkaði og heitir Össur hf.
Þarna byrjaði fyrirtækið sem frum-
kvöðull en er nú orðið heimsveldi á
sínu sviði.
„Þetta þurfa Íslendingar að gera í
ríkari mæli. Það má nefna fleiri ís-
lensk fyrirtæki af þessu tagi, eins og
t.d. Marel, Flögu og Marorku. Fyr-
irtæki af þessu tagi verða ekki til ef
einstaklingar velja í ríkara mæli hug-
vísindamenntun í stað tæknimennt-
unar. Fyrirtækin verða til vegna
rannsókna, nýsköpunar og þróunar,
og þarna koma við sögu tæknimennt-
aðir einstaklingar. Það er oft sagt að
þeir sem hafa öflugan raunvísinda-
bakgrunn eigi auðvelt með að skipta
yfir í viðskiptabakgrunn og bæta við
sig menntun á því sviði, en erfiðara sé
fyrir hugvísindamenn að skipta yfir í
raunvísindin. Við þurfum að efla
tækni-, verkfræði- og stærðfræði-
menntun en einnig rannsóknir og ný-
sköpun. Við verðum að standa þannig
að málum að sprotarnir nái að vaxa
með því að efla rannsóknir. Úr þeim
verður til þróun og síðan nýsköpun og
loks fyrirtæki sem geta orðið heims-
veldi, eins og Össur og Marel. Það er
líklegra að þeir sem hafa réttan bak-
grunn, menntun og reynslu nái lengra
á þessu sviði.“
Verður að búa til kennarana
Stefanía segir ljóst að byggð verði
upp öflug tækni- og verkfræðideild
innan sameinaðs háskóla en jafn-
framt sé ljóst að ekki verði unnt að
byggja upp fjölmennt masternám á
skömmum tíma í þessum greinum.
Hængurinner sá að erfitt er að fá
kennara í sumar greinar.
„Okkur vantar doktorsmenntað
fólk í tækni- og verkfræðigreinum
hér á Íslandi til kennslu í háskólun-
um. Það eru það fáir með slíka mennt-
un í þessum greinum og fáir sem
koma með þennan grunn upp úr
skólakerfinu. Þess vegna er mikil-
vægt að búa til fleira fólk í landinu á
þessu sviði svo ekki þurfi að byggja of
mikið á gestakennurum erlendis frá.
Þarna er því um nokkurra ára ferli að
ræða.Verkfræðideild Háskóla Ís-
lands hefur bent á að erfitt geti orðið
að hafa verkfræðideild innan hins
nýja sameinaða háskóla því skortur
sé á kennurum. Einnig er bent á að
takmarkaður fjöldi nemenda sæki
nám í verkfræði. Þetta er að mörgu
leyti rétt ábending. 37% framhalds-
skólanema af um 4.000 nemendum
stunda einhverskonar raungreina-
tengt nám og þegar komið er upp í
háskóla er þetta hlutfall um 29%.
Þessi hópur dreifist síðan á margvís-
legar greinar, eins og t.d. læknis-
fræði, lyfjafræði, verkfræði, tækni-
fræði og viðskiptafræði. Ef vel ætti að
vera þyrftu mun fleiri nemendur að
koma betur undirbúnir í raunvísinda-
greinum upp úr grunnskólanum svo
raunhæft væri að þeir veldu raunvís-
indagreinar í framhaldsskóla. Þá
fyrst mætti binda vonir við það að
fleiri sæktu háskólanám á raunvís-
indasviði og fleiri lykju doktorsnámi í
raunvísindagreinum, sem síðan
myndu skila sér aftur inn til kennslu á
háskólastigi. Núna er staðan sú að sá
sem lýkur doktorsprófi t.d. í stærð-
fræði sést varla inni í háskólunum.
Ástæðan er ekki síst yfirboð frá hin-
um almenna markaði. Bankarnir eru
til að mynda mannfrek atvinnugrein á
Íslandi fyrir hámenntað fólk t.d í
stærðfræði. Háskólarnir eru ekki allir
jafn samkeppnishæfir og fá því ekki
þessa einstaklinga til starfa, sem þó
er háskólunum algjörlega nauðsyn-
legt.“
Eina leiðin sé því að búa til kennara
með öflugan bakgrunn. „Við í
Tækniháskólanum höfum ráðið inn
kennara með masterspróf sem fara
beint í doktorsnám samhliða kennslu
og þar með er hann kominn í rann-
sóknir og þróunarstarf og bætir við
sig menntun í leiðinni.
Ólíkir háskólar — ólíkt bakland
Stefanía segir að það sé ekki
áhlaupaverk að sameina tvo háskóla
með ólíkar hefðir. Verið sé að sameina
ólík viðmið og sjónarmið. „Verslunar-
ráð Íslands er bakland HR en ríkið
hefur rekið THÍ en við höfum litið svo
á að bakland Tækniháskólans sé
Samtök iðnaðarins og Samtök at-
vinnulífsins. Tenging Tækniháskól-
ans er m.ö.o. fyrst og fremst við at-
vinnulífið sem við höfum unnið mikið
með.“
Stefanía segir að hinn nýi samein-
aði háskóli geti orðið gríðarlega öfl-
ugur í tækni- og verkfræðigreinum
og sinnt með því þörfum atvinnulífs-
ins.
Atvinnulífið kallar eftir raungreinamenntuðu fólki á tæknisviði en menntakerfinu hefur ekki tekist að sinna þessum þætti nægjanlega. Samt eru allir
sem málið varðar meðvitaðir um nauðsyn eflingar raungreina-, tækni- og verkfræðikennslu og rannsókna því tengdu. Þetta er grundvallarvandamál hér
á landi, að mati Stefaníu Katrínar Karlsdóttur, rektors Tækniháskóla Íslands, sem segir í samtali við Guðjón Guðmundsson að afar mikilvægt sé að vægi
raungreina sé rétt innan nýs háskóla sem verður til úr sameiningu Tækniháskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík.
Skortur á fólki með
raungreinamenntun
Morgunblaðið/Golli
Stefanía Katrín Karlsdóttir, rektor Tækniháskóla Íslands, segir menntun í raungreinum ábótavant á Íslandi.
!
"#$%& ()*+,)
! -.)/
$" !
! " # #"
$
%
0 0 0
0
0
0
&
# #"
'(
% & ' (' 12
3
32
2
2