Morgunblaðið - 16.01.2005, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 2005 27
Gólfefnaval ehf Faxafeni 10 108 Reykjavík
Sími 517 8000 Fax 517 8008 golfefnaval@golfefnaval.is www.golfefnaval.is
Sturtuklefar
Gólfefnaval
TILBOÐ kr. 139.000 – áður 178.800 kr.
Fr
um
04
12
10
74
TILBO
Ð!
Tæknilegar upplýsingar
Teg.: OLS 8009
Dyr eru úr álramma með 5 mm öryggisgleri
Toppur, botn og bak úr Acry/ABS/Acry plasti
Botn er styrktur með trefjaplasti
Krani er með keramik–stimpli
Stafrænt stjórnborð
Sími með hátalara
FM útvarp með hátalara
Tengill fyrir geislaspilara
Hita og tímastillir
Ósón–sótthreinsun
Gufurafall
Höfuðsturta og handsturta með barka
Fótanudd
Nuddstútar (6 stk.)
Spegill, ljós og vifta
Tækin koma frá Kína og eru framleidd fyrir
evrópumarkað skv. evrópskum/þýskum
kröfum, ISO 9001 staðli og eru CE vottuð.
Þau eru seld í yfir 50 löndum í flestum
heimsálfum, við mjög góðar móttökur.
Blöndunartækin eru framleidd af sama aðila
og framleiðir sturtuklefana.
ISO 9001 er alþjóðlegur staðall yfir
gæðakerfi sem gerir strangar kröfur til
fyrirtækja um verklag og framleiðsluvörur,
þessa vottun þarf að endurnýja á 6 mánaða
fresti og er strangt eftirlit með því.
Uppsetningarþjónusta. Viðgerðarþjónusta.
Smiðjuvegi 14 • Kópavogi • www.veislusmidjan.is • Pantanir og uppl. í símum 587 3800 og 899 2959.
Þorramaturinn
eins og þú vilt hafa hann
Meira af þessu og minna af hinu
Hafðu samband eins oft og þú vilt!
Þorrablótið í sal Ferðafélagsins í Mörkinni
ÍSLENSK erfðagreining (ÍE) hef-
ur sótt um sótt um leyfi til banda-
ríska Matvæla- og lyfjaeftirlitsins
til að hefja klínískar rannsóknir á
frumlyfinu DG041 gegn æðakölk-
un.
Haft er eftir Kára Stefánssyni,
forstjóra ÍE, í frétt frá fyrirtæk-
inu í gær að því er hann viti best
sé frumlyfið DG041 fyrsta lyfið
sem er þróað út frá niðurstöðum
erfðarannsókna á algengum sjúk-
dómi. Þetta er líka fyrsta lyfið sem
ÍE hefur þróað alfarið upp á eigin
spýtur með því að nota þá aðstöðu
sem fyrirtækið hefur komið sér
upp til lyfjaþróunar.
Gert er ráð fyrir að fyrstu klín-
ísku lyfjaprófanirnar á lyfinu muni
hefjast á fyrri hluta þessa árs, ef
tilskilin leyfi fást hjá Matvæla- og
lyfjaeftirlitinu.
DG041 er lítil lyfjasameind af
nýjum lyfjaflokki sem beint er
gegn æðakölkun í fótum og er ætl-
að til inntöku í töfluformi.
Samkvæmt upplýsingum frá ÍE
hafa forklínískar rannsóknir sýnt
að frumlyfið DG041 hindrar starf-
semi EP3-viðtaka boðefnisins
prostaglandíns E2 og kemur í veg
fyrir samloðun blóðflagna af völd-
um þess.
„EP3-viðtakinn var skilgreindur
sem lyfjamark í æðakölkun út frá
niðurstöðum erfðarannsókna fyr-
irtækisins. Þær sýndu að breyti-
leiki í erfðavísi sem geymir upp-
lýsingar um byggingu EP3-
viðtakans tengist aukinni hættu á
æðakölkun í fótum,“ segir í frétt
frá ÍE.
Mjög spennandi
Haft er eftir Kára að mikil þörf
sé á nýjum meðferðarúrræðum
gegn æðakölkun og er DG041 sér-
tækt lyf sem beint er að líffræði-
legum orsökum sjúkdómsins.
„Mér finnst þetta vera mjög
spennandi verkefni sem sýnir
hversu fljótt við getum breytt
grunnuppgötvun í erfðafræði í nýtt
lyf,“ sagði hann.
Að sögn Kára hefur EP3-við-
takinn sem ÍE hefur verið að
vinna með sem lyfjamark einnig
eitthvað að segja í því hvernig
menn skynja sársauka. Hefur ÍE
þess vegna líka verið að kanna
möguleikann á því að lyfjaefni sem
hafa áhrif á starfsemi EP3-viðtak-
ans megi nota til að meðhöndla
viðvarandi sársauka, í staðinn fyrir
lyf sem hindra starfsemi svo-
nefnds COX-ensíms og önnur
skyld verkjalyf.
Æðakölkun í fótum, svonefndur
útæðasjúkdómur, hrjáir um 10%
fullorðinna í vestrænum löndum og
yfir 20% þeirra sem komnir eru
yfir sjötugt.
Sótt um leyfi til rannsókna
á frumlyfi gegn æðakölkun
Fyrsta lyfið sem
ÍE hefur þróað
upp á eigin spýtur
KROSSGÁTUBÓK ársins 2005 er
nýkomin út. Hún er 68 síður að
stærð og eru lausnir birtar aftast í
bókinni.
Þetta er 22. árgangur krossgátu-
bókarinnar. Útgefandi er ÓP útgáf-
an. Eins og undanfarin ár er for-
síðuteikningin eftir Brian Pilk-
ington og sýnir hún nóbelsskáldið
ráða krossgátu.
Krossgátubókin fæst á öllum
helstu blaðsölustöðum landsins. Í
frétt frá útgefanda segir að hún
njóti sífellt meiri vinsælda og í
fyrra hafi hún nánast verið uppseld.
Krossgátubók
ársins komin út
VEGNA samþykktar sveitarstjórn-
ar Eyjafjarðarsveitar um samein-
ingu sveitarfélaga í Eyjafirði frá 5.
janúar síðastliðnum vill Rannsókna-
stofnun Háskólans á Akureyri lýsa
yfir eftirfarandi:
„Í samþykkt sveitarstjórnar Eyja-
fjarðarsveitar um sameiningu sveit-
arfélaga í Eyjafirði frá 5. janúar s.l.
er að finna alvarlegar ásakanir á
hendur RHA vegna skýrslunnar
„Eyfirðingar í eina sæng?“, sem ekki
er hægt að láta hjá líða að svara.
Sveitarstjórnin telur óheppilegt að
skýrsluhöfundar kynni skýrsluna
ítrekað á opinberum vettvangi og
tjái um leið afstöðu sína til málefn-
isins.
Rannsóknastofnun HA vísar þess-
um ásökunum algerlega á bug, enda
hefur einungis farið fram einn kynn-
ingarfundur fyrir fréttamenn um
efni hennar. Var sá fundur ákveðinn
og boðaður í samráði við Stýrihóp
um sameiningu sveitarfélaga við
Eyjafjörð, en í honum situr m.a.
fulltrúi Eyjafjarðarsveitar. Sveitar-
stjórn hefði því átt að vera þetta full-
ljóst. Aukinheldur hafa skýrsluhöf-
undar hvergi, hvorki í skýrslunni né í
kynningu á henni, tekið afstöðu til
þess hvort sameina eigi sveitarfélög-
in eða ekki. Slík vinnubrögð tíðkast
ekki og hafa ekki tíðkast við Rann-
sóknastofnun HA. Þessar ásakanir
sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar
falla því algerlega um sjálfar sig.
Það er alvarlegt mál að liggja und-
ir ásökunum um hlutdrægni og trún-
aðarbrest og harmar Rannsókna-
stofnunin að kjörnir fulltrúar
sveitarfélags sendi frá sér svo alvar-
legar ásakanir að óathuguðu máli.“
Vísar ásökunum
um hlut-
drægni á bug
Í FRÉTT í Morgunblaðinu á
fimmtudag um æfingabraut fyrir
vélsleðaakstur var sagt að Lexi,
margfaldur Íslandsmeistari í snjó-
krossi, héti fullu nafni Alexender
Már Kárason. Hið rétta er að Lexi
heitir Alexander Kárason og er beð-
ist velvirðingar á þessu.
LEIÐRÉTT
♦♦♦