Morgunblaðið - 16.01.2005, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 2005 31
UMRÆÐAN
AÐ UNDANFÖRNU hefur um-
ræða um launagreiðslur verktaka
við Kárahnjúka orðið háværari með
hverjum deginum sem líður. Forusta
ASÍ ásakar Impregilo, ítölsku verk-
takana við Kára-
hnjúka, um að þeir
greiði svo skamm-
arlega lág laun að eng-
ir starfsmenn, hvorki
íslenskir né evrópskir,
fáist til starfa.
Impregilo bendir á
þá staðreynd að þeir
greiði þau laun sem um
hafi verið samið á al-
menna vinnumark-
aðnum, hvorki hærri
né lægri og fari þar af
leiðandi algjörlega eft-
ir íslenskum lögum.
Þar með er Impregilo komið með
rök fyrir innflutningi á allt að 300
verkamönnum frá Kína. Rök
Impregilo eru að það fái ekki það
vinnuafl sem það þarf við umsamda
verkáætlun sem þó er orðin langt á
eftir upphaflegri áætlun.
Hver hefur hreðjatak
á hverjum?
Ekki fæst upp gefið tap Landsvirkj-
unar náist ekki að framleiða raf-
magn á þeirri stundu sem upp-
haflega var ráðgert. Impregilo hefur
með öðrum orðum hreðjatak á
Landsvirkjun sökum þess að upp-
haflegar verkáætlanir, útboðsgögn
og rannsóknir Landsvirkjunar hafi
ekki staðist. Landsvirkjun bendir á
að tap þeirra komi til með að verða
til þess að skattar landsmanna
hækki til muna, þar sem það eru jú
Íslendingar sem eru ábyrgir fyrir
verkinu. Landsvirkjun hefur því
hreðjatak á ríkisstjórninni. Íslend-
ingar eru þar með komnir í klípu
sem ekki er séð fyrir endann á.
Verkalýðshreyfingin
fjöregg þjóðarinnar
Íslendingar tapa en verktakar og
Kínverjar græða á þeim kjarasamn-
ingum sem aðildarfélög ASÍ hafa
staðið fyrir, þ.e. samningum um lág-
markslaun.
ASÍ-menn segja að ekkert sé að
marka lágmarkslaunin, það hafi
aldrei átt að nota þau. Laun séu
nefnilega allt önnur í raun og veru,
þ.e. svokölluð markaðslaun. Um þau
gilda engir kjarasamningar. Skýtur
þetta ekki skökku við – verkalýðs-
samband sem gefur sig út fyrir að
vera nokkurs konar launalögregla
atvinnurekenda þegar launakröfur
annarra stétta eru á borðum.
Hvað var það sem ASÍ sagði þegar
kennarar stóðu í sinni kjarabaráttu?
Er það gleymt og grafið? Ég held
ekki. Í máli ASÍ og annarra sam-
herja þeirra var því haldið fram að
allir kjarasamningar yrðu lausir
fengju kennarar meira en aðild-
arfélög ASÍ sömdu um. Það fylgdi
ekki sögu ASÍ-manna að ekkert væri
að marka kjarasamninga sem þeir
hefðu gert, vegna þess að ofan á þá
kæmi eitthvað sem héti markaðs-
laun. Síðan hvenær hafa opinberir
starfsmenn haft eitthvað um mark-
aðslaun að ræða nema þá kannski
rétt á meðan að setið er
við samningaborðið?
Umræðan sem ASÍ
vakti í verkfalli kenn-
ara er ekki ný af nál-
inni. Henni hefur verið
beitt í hvert einasta
skipti sem opinberir
starfsmenn hafa sest
við samningaborðið.
Þrátt fyrir að öllum sé
ljóst að opinberir
starfsmenn svo sem
sjúkraliðar og kenn-
arar lifa eingöngu á
þeim launum sem sam-
ið er um. Við laun þeirra bætast ekki
einhver markaðslaun.
Hverjir ráða?
ASÍ hefur aldrei samþykkt eða birt
ályktanir á borð við þær sem BSRB,
BHM og fleiri samþykktu til stuðn-
ings kjarabaráttu kennara. Hins ber
að geta að einstök félög þar innan
hafa í óþökk miðstjórnar ASÍ lagt
öðrum utan samtakanna lið í kjara-
baráttu þeirra svo sem Verkalýðs-
félag Vestfirðinga, Dagsbrún, þegar
að það var og hét, auk ýmissa iðn-
aðarmannafélaga.
Þetta vekur spurninguna hverjir
ráði innan ASÍ þegar komið er að
borði miðstjórnar. Helst býður
manni í grun að þeir hagfræðingar
sem þar hafa stýrt í gegnum árin
með aðkomu sinni að framkvæmda-
stjórnarstöðunni séu kennimenn-
irnir.
Svo virðist sem þeir hafi ekki
þurft að sjá sér og sínum farborða á
launum alþýðunnar. Spurning er
hvort þeir hafi komið úr umhverfi
þar sem launamál eða bág afkoma
brennur á fólki. Engin munur er á
launþegum hvorki opinberum starfs-
mönnum né þeim sem starfa á al-
menna vinnumarkaðnum, allir til-
heyra fjölskyldum. Íslensk alþýða er
ekki svo frábrugðin, sama við hvað
hún starfar og ljótur leikur að reka
fleyg á milli starfshópa og stétta.
Þetta er gert á sama tíma og allir
þurfa á því að halda að unnið sé sam-
an að uppbyggingu íslenskrar verka-
lýðshreyfingar í þeim tilgangi að
launafólk öðlist það frelsi sem felst í
nægri atvinnu og sæmilegri afkomu.
Hverjar eru afleiðingarnar?
Landsmenn hræðast að þetta mál
leiði til algjörs hruns launþegahreyf-
ingarinnar á Íslandi. Verktakar, sem
nú horfa á þá fyrirgreiðslu sem
Impregilo lítur út fyrir njóta hjá fé-
lagsmálaráðherra, segja að með því
sé verið að marka stefnu sem þeir
hljóti að nýta sér varðandi innflutn-
ing á ódýru vinnuafli. Fleiri og fleiri
Íslendingar verða atvinnulausir með
þeim afleiðingum sem það hefur í för
með sér, atvinnuleysisbætur og í
framhaldi örorkulífeyrir.
Þegar hefur verið sýnt fram á það
með rannsóknum að langvarandi at-
vinnuleysi verður til þess að ör-
yrkjum fjölgar með hörmulegum af-
leiðingum fyrir einstaklinginn og
lífeyrissjóði landsmanna. Margir
sjóðanna eru alls ekki í stakk búnir
að verða fyrir áföllum og/eða aukn-
um útgjöldum á borð við það sem er
að gerast. Það er hart til þess að vita
að stefna ASÍ í kjarasamningum
verði til þess að slíkt hrun geti átt
sér stað. Það segir okkur aðeins að
mál sé að linni. Barátta verkalýðs-
hreyfingarinnar er barátta allra
stétta sem ber að virða og varðveita í
sameiningu. Launþegum ber skylda
til að snúa bökum saman, virða lýð-
réttindi hver annars samherja og
forðast að aðhafast nokkuð það sem
vegið gæti að frjálsum samningsrétti
launþegahreyfingarinnar eða veikt
baráttu hennar fyrir betra og rétt-
látara samfélagi.
Aðför að verka-
lýðshreyfingunni
Kristín Á. Guðmundsdóttir
fjallar um kjarasamninga
’ASÍ-menn segja aðekkert sé að marka lág-
markslaunin, það hafi
aldrei átt að nota þau.
Laun séu nefnilega allt
önnur í raun og veru,
þ.e. svokölluð markaðs-
laun. Um þau gilda eng-
ir kjarasamningar.‘
Höfundur er formaður Sjúkraliða-
félags Íslands.
Kristín Á.
Guðmundsdóttir
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
OPIÐ HÚS BUGÐULÆKUR 2 - 1. HÆÐ
HEIÐARBÆR - ELLIÐADAL-
UR Mjög vel staðsett 174,5 fm einlyft ein-
býlishús sem er með innb. 39,8 fm bílskúr.
Húsið skiptist í forstofu, snyrtingu, hol, tvær
saml. stofur, eldhús, þvh., 3 svefnh., (4 skv.
teikn.) og baðh. Fyrir framan bílskúrinn er
opið bílskýli. Húsið er mjög vel staðsett og
stendur á 808 fm vel ræktaðari lóð sem er
neðarlega í Elliðaárdalnum. Tilboð. 4659
SKIPHOLT - M. BÍLSKÚR Fal-
leg 120 fm 5 herbergja nýlega standsett
íbúð á tveimur hæðum ásamt 28 fm bílskúr.
Á 1. hæð er hol, eldhús, 2 saml. stofur, 1
herb. og baðherb. Í kjallara eru 2 góð herb.,
þvhús og lítil geymsla. Sérgeymsla undir
innistiga fylgir. Húsið virðist í góðu ástandi,
Nýtt þak er á húsinu. V. 20,5 m. 3768
NJÁLSGATA Vorum að fá í sölu 66
fm 4ra herb. efri hæð í 2-býlishúsi við Njáls-
götu. Íbúðin skiptist m.a. í 2 stofur og 2 her-
bergi. Svalir til suðurs. V. 13,2 m. 4698
BREIÐAVÍK - M. BÍLSKÚR
4ra herb. 102 fm glæsileg íbúð á 2. hæð
með sérinngangi af svölum ásamt 29,7 fm
bílskúr. Íbúðin skiptist í forstofu, innra hol, 3
herbergi, eldhús, baðherbergi, þvottahús og
rúmgóða stofu. V. 19,9 m. 4645
RAUÐHAMRAR - FALLEG
ÍBÚÐ Glæsileg 115 fm 4ra-5 herbergja
íbúð sem skiptist m.a. í hol, þvhús, stofu,
borðstofu, eldhús, þrjú herbergi og baðherb.
Frábært skipulag. Útsýni. V. 21,8 m. 4704
VALSHÓLAR - LAUS STRAX
Vorum að fá í sölu mjög fallega 41 fm 2ja
herb. íbúð á 1. hæð í litlu fjölbýlishúsi. Íbúðin
hefur verið standsett. Svalir til suðurs. Íbúðin
er laus nú þegar. V. 9,4 m. 4697
Falleg, björt og einstaklega vel skipulögð 3ja-4ra herbergja íbúð á hæð (1. hæð) í litlu
steinsteyptu fjölbýlishúsi með svölum. Eignin skiptist m.a. í hol, baðherbergi, tvö her-
bergi, stofu, borðstofu og eldhús. Frábær staðsetning í Laugardalnum nálægt m.a.
fallegum gönguleiðum, skóla, sundlauginni, heilsuræktinni Laugum og verslun & þjón-
ustu. Íbúðin verður til sýnis í dag, sunnudag. frá kl. 13.00-15.00. V. 16,7 m. 4679
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033 - Ægir Breiðfjörð löggiltur fasteignasali
Glæsileg efri sérhæð, um 195 fm, í fallegu
steinhúsi á hornlóð. Mikið útsýni og stórar
svalir. Húsið er byggt 1969 og er allt hið
vandaðasta og hefur fengið gott viðhald.
Íbúðin er um 185 fm og geymslur 10 fm,
mjög stórar og bjartar stofur, þvottahús í
íbúðinni, tvö svefnherbergi o.fl.
GLÆSILEG SÉRHÆÐ VIÐ LAUFÁSVEG
Opið mán.-fim. frá kl. 9–18, fös. frá kl. 9-17
SUÐURGATA 7, 101 REYKJAVÍK, • www.hibyli.is • hibyli@hibyli.is
HJARÐARHAGI 36 - OPIÐ HÚS
Vorum að fá í sölu óvenju
glæsilega 101 fm íbúð á 4. hæð
í suðurenda í fallegu fjölbýlis-
húsi ásamt 24 fm bílskúr.
Íbúðin var öll nýlega tekin í
gegn, endurnýjuð og endur-
hönnuð af innanhúsarkitekt á
mjög vandaðan hátt, þ. m. t.
allar innréttingar, gólfefni, lagnir
og tæki. Íbúðin, sem er opin og
björt, skiptist í hol með flísum, stóra stofu með parketi og suð-
ursvölum, glæsilegt eldhús, baðherbergi flísalagt í hólf og gólf
og tvö svefnherbergi, auk þess sem eitt parketlagt íbúðarher-
bergi fylgir í risi. Öll tæki, ljós og fl. fylgja. Frábært útsýni er úr
allri íbúðinni til suðurs og vesturs. Einstakt tækifæri. Eign í
sérflokki
Kristín sýnir íbúðina í dag, sunnudag frá kl. 14-16.
Ingibjörg Þórðardóttir lögg. fasteignasali
Skólavörðustíg 21, Reykjavík
sími 551 4050
Glæsileg
brúðarrúmföt
í úrvali