Morgunblaðið - 16.01.2005, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 16.01.2005, Qupperneq 36
36 SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Maríus Guð-mundur Guð- laugur Sigurjónsson, fyrrverandi verslun- arstjóri, fæddist á Bláfeldi í Staðarsveit á Snæfellsnesi 15. febrúar 1920. Hann lést á Heilbrigðis- stofnun Suðurnesja 4. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Sólveig Þórðardóttir og Sigurjón Guð- mundsson og eru þau látin. Systkini Mar- íusar voru samfeðra Jón og sammæðra voru Herdís Jónsdóttir og Þórður Jónsson og eru þau öll látin. Maríus kvæntist 10. júlí 1954 Ragnhildi Steinunni Jónsdóttur frá Öndverðarnesi á Snæfellsnesi. Foreldrar hennar voru Jón Þor- leifur Sigurðsson og Guðrún Jó- hannesdóttir og eru þau bæði lát- in. Börn þeirra Maríusar og Ragnhildar Steinunnar eru Drífa, f. 7. júlí 1952, maki Erlingur Jóns- son, f. 29. júlí 1954. Sigurjón, f. 17. apríl 1955, maki Alba Lucia Alv- eras, f. 1. desember 1953, Jóhann, f. 16. mars 1958, maki Þyri Magn- úsdóttir, f. 20. mars 1958, Ragn- hildur Steinunn, f. 29. nóvember 1960, d. 2. nóvember 1988, maki Jón Þór Harðarson, f. 2 maí 1959, Jón Þór, f. 14. júlí 1970, maki Alda Úlfars Hafsteinsdóttir, f. 1. febr- úar 1971. Maríus eignaðist einn son, Sigtrygg, f. 11. ágúst 1944, fyrir hjóna- band. Barnabörnin eru tólf og barna- barnabörnin fjórtán. Maríus ólst upp á Bláfeldi til 15 ára aldurs, þá fluttist hann til Reykjavíkur og vann margvísleg störf, þ.m.t. sjó- mennsku, bygging- arvinnu og leigubíla- akstur. Þau hjónin fluttust til Keflavík- ur í desember 1952. Hóf hann þá störf á Keflavíkurflugvelli hjá Esso ásamt bílstjórastörfum hjá Sérleyfisbifreiðum Keflavíkur. Síðan gerðist hann sjálfstæður verslunarrekandi til nokkurra ára og lengst af starfaði hann sem verslunarstjóri hjá Kaupfélagi Suðunesja. Síðast starfaði hann við Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem húsvörður og varð hann að hætta störfum vegna veikinda. Maríus stundaði margvísleg fé- lagsstörf og sat í mörgum stjórn- um og nefndum og má þar nefna Snæfellingafélag Suðurnesja, Hestamannafélagið Mána, Stang- veiðifélag Keflavíkur, Framsókn- arflokk Keflavíkur og Verslunar- mannafélag Suðurnesja. Maríus var jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju 11. janúar. Elsku afi. Þegar þú sagðir mér fyrst að þú værir orðinn þreyttur í hjartanu og líkamanum horfði ég sakleys- islega á þig og sagði ,,afi minn, þegar ég verð búin með skólann skal ég lækna þig“. Þú horfðir yf- irvegaður í bláu augun mín og kinkaðir kolli. Afi, þú varst alltaf svo yfirvegaður og rólegur og ég, þessi litla skotta sem þeyttist um á sífelldri hraðferð inn í lífið, fann fyrir ró og gleði þegar ég kom í heimsókn til þín. Þú lást í leðursóf- anum að lesa dagblaðið með brúna teppið. Það var alltaf svo gaman að koma og segja þér frá því sem ég var að gera og það gladdi mig að sjá hversu stoltur þú værir af því eina sem blessuð dóttir þín hafði skilið eftir sig. Hana fékk ég aldrei að kveðja, en nú veit ég að þú kemur góðri kveðju til skila með þéttu faðmlagi og eilífri ást. Elsku afi, þetta ljóð er fyrir þig Nú gengur þú inn um himnanna hlið, ferðbúinn varstu, hjarta og hugur vildu grið. Fögur og brosmild fagnar hún þér, fagrar minningar lifa í hjarta mér. Hún er móðir mín – dóttir þín, svo mikilfengleg að í himnunum hvín. Nóttin mig huggar, nöpur, samt hlý, er andar ykkar sameinast á ný. Þín Ragnhildur Steinunn. MARÍUS SIGURJÓNSSON ✝ Pétur Hallgríms-son fæddist á Sandi í Neshreppi á Snæfellsnesi 17. maí 1923. Hann lést á LSH í Fossvogi 7. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Hallgrímur Péturs- son, f. 8.3. 1895, d. 24.2. 1932, og kona hans Sólborg Sigurð- ardóttir, f. 14.10. 1901, d. 23.4. 1997. Systkini Péturs eru Sigurður, f. 31.10. 1921, Gunnar, f. 25.7. 1927, Una, f. 28.6. 1930, Hrönn, f. 2.9. 1935, og Steinunn, f. 11.7. 1935. Pétur kvæntist Guðnýju Jörg- ensdóttur, f. 9.10. 1926, d. 5.11. 1993. Börn þeirra eru Hallgrím- ur, f. 30.1. 1946, kvæntur Áslaugu Haraldsdóttur, Jörgen, f. 10.1. 1948, var kvæntur Guð- rúnu Benjamínsdótt- ur, f. 14.2. 1957, d. 10.6. 1999, Jóhanna, f. 29.7. 1949, gift Rafni Guðmunds- syni, Sólborg, f. 13.6. 1951, gift Sturlu Jóhannes- syni, Kristín, f. 17.9. 1953, gift Þóroddi Gunnarssyni, Soffía, f. 26.2. 1956, í sam- búð með Arne Jóns- syni, og Pétur Guðni, f. 31.7. 1962, kvæntur Önnu Soffíu Halldórsdóttur. Barnabörn Péturs eru 26 og barnabarnabörn 32. Útför Péturs fór fram frá Ár- bæjarkirkju fimmtudaginn 13. janúar. Elsku afi, nú ertu kominn í faðm ömmu, sem lést 5. nóvember 1993, aðeins 67 ára að aldri. Okkar hugg- un er sú, að það er fagnaðarfundur. Þar sem jólin eru nú nýafstaðin, er okkur efst í huga jólin á Réttó, hjá ykkur ömmu. Tilhlökkunin við að fara til ykkar á aðfangadags- kvöld var svo mikil. Við systur varla búnar að rífa utan af seinasta jólapakkanum undan jólatrénu þegar við vorum komnar útí bíl. Fannst okkur foreldrar okkar taka sér ansi langan tíma í að taka sig til og slökkva á kertaskreytingun- um sem voru og eru ófáar. Ekki furða að spennan var mikil, þú tilbúinn með nikkuna þína að halda jólaball fyrir barnahópinn þinn, á meðan amma bar kræsingar á borð. Það var ekki bara á jólunum sem var gaman að koma til ykkar, elsku afi. Það var alveg sama hvaða dag- ur var þegar okkur bar að garði, þú tókst alltaf jafnvel á móti okkur. Þú kenndir okkur að leggja kapal, leyfðir okkur að róta í skrúfusafn- inu þínu og spila á orgelið þitt. Já, elsku afi þér var margt til lista lagt og margs er að minnast. Kveðjum við þig með söknuði. Færðu ömmu koss frá okkur. Þín barnabörn Guðný, Jónína, Björk og Díana. Elsku afi, nú hefur þú kvatt mig sem aðra. Í sorginni hugga ég mig við það að þér líður vel enda sestur aftur við hlið ömmu. Minningar mínar um ykkur eru allar ynd- islegar. Að fá að fara til ykkar á Réttó var frábært, að hlaupa í faðm ykkar og fylgjast með hreyf- ingum ykkar, já það var bara svo gaman að fá að vera hjá ykkur afi minn. Ég man mest eftir mér hjá ykkur í Árbænum, þar var gott að vera. Þegar ég kom hlaupandi inn ganginn beiðst þú alltaf eftir mér við hurðina, þegar inn var komið voru alls kyns smákökubox opnuð. Við settumst til að snæða úr þeim ásamt undanrennu (sem var þá í hálfbleikum pakkningum), já ég lét mig hafa mjólkina þrátt fyrir að finnast mjólk afar vond. En þegar kökunum hafði verið rennt niður vildi ég ólm spila, þú kenndir mér að spila afa-pétur sem aðrir kalla svarta-pétur, þú kenndir mér líka að leggja afa-kapal, já þú kenndir mér margt afi minn. Við spiluðum líka saman á píanóið og þú spilaðir á munnhörpu. Þú tókst mig með í hvaða bæjarferð sem var og í eitt skipti þegar við og amma fórum á pósthúsið fyrir ein jólin að sleikja frímerki birtist ljósmyndari á staðnum og smellti af okkur mynd sem seinna birtist í blaðinu, þetta fannst mér frábært. Já afi, stundir okkar eru eft- irminnilegar og þá kannski sér- staklega sú síðasta, það var 30. desember þegar ég kom á spít- alann til þín og færði þér inniskó ásamt spítalamatnum, við spjölluð- um svolítið saman og skemmtum okkur vel. Mín síðustu orð til þín voru: „Við sjáumst á nýju ári afi.“ Síðan kysstir þú mig bless. Ég hafði ekki hugsað að ég fengi aldr- ei aftur tækifæri til að vera hjá þér. En nú veit ég að þú hugsar vel um ömmu og passar okkur hin. Þú mátt líka vita að leyndarmnál okk- ar verður ávallt geymt. Þín Jóhanna Rafnsdóttir. Mig langar til að minnast hans Péturs Hallgrímssonar afa míns, hann lést á Landspítalanum Foss- vogi 7. janúar sl. Við fjölskyldan, ég mamma og Magnús Pétur, vorum alltaf á jól- unum á Réttó hjá ömmu og afa. Mér fanst það alltaf gaman, sér- staklega þegar afi spilaði fyrir okk- ur á orgelið, harmónikuna eða munnhörpuna. Ég var mikið hjá ömmu og afa þegar ég var lítil og eyddi heilu og hálfu helgunum hjá þeim. Svo þar sem ég átti heima í Njarðvík þá fór ég oft með rútunni heim eftir helgina. Þá fóru þau með mig í sjoppuna til að kaupa nesti, svo rölti afi um umferðarmiðstöðina og fann stundum einhvern sem var að fara með sömu rútu og ég og spurði hvort ég mætti ekki sitja hjá þeim. Mér fannst nú afi alltaf hálf skrítinn að gera þetta, ég var nú alveg nógu stór til að ferðast ein. En svo þegar af stað var farið var ég voða fegin að geta talað við einhvern. Ég var mjög mikil afastelpa og vildi eiga hann helst útaf fyrir mig. Einu sinni kallaði stelpa afa minn afa. Þá sneri ég upp á mig og lét hana vita að þetta var sko ekki afi hennar heldur minn. Þá fór afi að hlæja og sagði að hann gæti líka verið afi hennar ef hún vildi! Nei, ég átti þennan afa og við vorum nógu mörg sem deildum honum fyrir að það þurfti ekki einhver að bætast í hópinn bara sisvona. Hann afi var ekta afi. Besti afi í heimi! Ég elska þig, afi, og á eftir að sakna þín mikið. Þín dótturdóttir, Margrét Rósa. PÉTUR HALLGRÍMSSON Elsku pabbi. Nú ertu laus úr fjötrum veikinda sem léku þig grátt síðustu árin. En þrátt fyrir erfið veikindi varstu alltaf kátur þegar við komum að heimsækja þig og stutt í glettnina og góða skapið. Það sem situr eftir eru allar góðu stundirnar sem við áttum saman í uppvexti eins og til dæmis REYNIR LÁRUSSON ✝ Reynir Lárussonfæddist í Reykja- vík 27. október 1933. Hann lést á Hrafn- istu í Reykjavík 22. desember síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Lárus Sig- mundsson Knudsen, f. 25. október 1891, d. 24. ágúst 1968 og Sigríður Jónsdóttir, f. 4. mars 1895, d. 25. maí 1987. Systkini Reynis eru Hrefna, f. 1926, Sigmundur, f. 1928, Sigurður, f. 1930, Jón, f. 1932, d. 7. nóvember 1997 og Anna María, f. 1936. Hinn 2. júní kvæntist hann Huldu Hjaltadóttir 1957. Þau slitu samvistum. Börn þeirra eru Hjalti, f. 1958, Jóna Birna, f. 1960 og Arnar, f. 1965. Reynir var jarðsunginn frá Fossvogskirkju 10. janúar. þegar þú komst heim úr vinnunni og kall- aðir Jú-hú. Þá hlupum við öll fram til að fagna þér því það var alltaf svo glatt á hjalla þegar þú komst heim. Annað sem sit- ur eftir í minningunni voru allar skemmti- legu ferðirnar til Hol- lands og Spánar. Það sem einna helst einkenndi þig var góð- semi þín við þá sem minna máttu sín og voru það ótal margir sem leituðu til þín og nutu góðs af. Ótal góðar minningar eru geymdar í hjörtum okkar og þær munum við alltaf eiga. Skoðaðu hug þinn vel, þegar þú ert glað- ur, og þú munt sjá, að aðeins það, sem valdið hefur hryggð þinni gerir þig glaðan. Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aft- ur huga þinn, og þú munt sjá að þú græt- ur vegna þess, sem var gleði þín. (Úr Spámanninum.) Þegar við kveðjum þig er okkur efst í huga hlýja og kærleikur. Nú ertu búinn að fá hvíldina og laus við allar þjáningar. Megi Guð varðveita þig, elsku pabbi. Við kveðjum þig með miklum söknuði í hjarta. Hjalti, Jóna Birna og Arnar. Inger Steinsson, útfararstjóri, s. 691 0919 Sími 551 7080 Bárugötu 4, 101 Reykjavík. Ólafur Örn útfararstjóri, s. 896 6544 Inger Rós útfararþj, s. 691 0919 Vönduð og persónuleg þjónusta ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Flatahrauni 5A, sími 565 5892 ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Símar 581 3300 - 896 8242 Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is Sverrir Olsen Sverrir Einarsson Kistur - Krossar Prestur - Kirkja Kistulagning Blóm - Fáni Val á sálmum Tónlistarfólk Sálmaskrá Tilk. í fjölmiðla Erfisdrykkja Gestabók Legstaður Flutningur kistu á Komum heim til aðstandenda ef óskað er Bryndís Valbjarnardóttir milli landa og landshluta Landsbyggðar- þjónusta Oddur Bragason Guðmundur Þór Gíslason Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.