Morgunblaðið - 16.01.2005, Qupperneq 44
44 SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Samstarfshópurinn Náum áttum blæs tilfræðslufundar á Hótel Lind við Rauð-arárstíg næstkomandi þriðjudag kl.8.15 undir yfirskriftinni „Aðlögun
barna og fjölskyldna af erlendum uppruna að
íslensku samfélagi“. Undanfarin ár hefur hóp-
urinn staðið fyrir morgunverðarfundum, u.þ.b.
einu sinni í mánuði yfir vetrartímann, um hin
ýmsu málefni sem tengjast börnum, unglingum
og fjölskyldum þeirra. Hópurinn leggur áherslu
á að taka fyrir brýn málefni sem veita fræðslu
og vekja upp umræðu í þjóðfélaginu. Náum átt-
um samanstendur af fulltrúum ýmissa aðila
sem hafa málefni fjölskyldur, börn og unglinga
á sínu verksviði.
Meðal fyrirlesara á fundinum er Edda Ólafs-
dóttir, félagsráðgjafi á þróunarsviði Félags-
þjónustunnar í Reykjavík, en hún flytur erindið
„Nýjar áskoranir“. Edda segir lítið sem ekkert
hafa verið fjallað um aðlögun erlendra fjöl-
skyldna að íslensku samfélagi. „Það hefur orðið
mikil aukning á fjölda innflytjenda, en þeir eru
um 4% íbúa hér á landi,“ segir Edda og bætir
við að æ fleiri fjölskyldur setjist hér að og því
sé mikilvægt að ræða um stöðu þeirra og
hvernig þeim gengur að aðlagast nýju lífi í nýju
landi. „Hér er um að ræða fjölskyldur sem
koma alls staðar að úr heiminum, frá mismun-
andi aðstæðum, með fjölbreyttan bakgrunn og
lífsreynslu. Mjög brýnt er að huga að því
hvernig við á Íslandi viljum standa að aðlögun
þessara nýju íbúa og hvernig við getum stutt
við bakið á þeim. Ekki er til nein opinber stefna
um hvernig þessum stuðningi er best háttað.“
Hvaða atriði skipta mestu máli?
„Í mínum huga er það mikilvægt að við
stöndum vel að því að kynna íslenskt samfélag
fyrir innflytjendum þar sem öllum mikilvægum
atriðum, eins og t.d. um skóla, heilsugæslu
o.þ.h. eru gerð skil. Hægt er að sjá fyrir sér
námskeið þar sem farið er yfir öll þessi helstu
atriði ásamt íslenskukennslu. Einnig þarf að
fræða um lífið á Íslandi, menningu, siði og venj-
ur. Á hinum Norðurlöndunum er mjög víða boð-
ið upp á slík námskeið fyrir innflytjendur þeim
að kostnaðarlausu.“
Hvað er fram undan í þessu starfi?
„Mikið hefur breyst undanfarin ár og mun
meira samstarf er nú á milli hinna ýmsu aðila
sem eru að vinna að málefnum innflytjenda og
margir spennandi hlutir að þróast. En ég sakna
þess að ráðamenn ræði meira um málefni inn-
flytjenda. Ég tel það mjög mikilvægt að stjórn-
völd ræði um og marki sér stefnu um hvernig
íslenskt samfélag vill standa að aðlögun fólks að
erlendum uppruna.
Einnig er mikilvægt að standa fyrir fleiri
rannsóknum á málefnum innflytjenda.“
Samfélagsmál | Fræðslufundur um aðlögun barna og fjölskyldna af erlendum uppruna
Edda Ólafsdóttir
fæddist í Reykjavík
1955. Hún lauk stúd-
entsprófi frá MH 1976
og prófi í félagsráðgjöf
frá Háskólanum í Ósló
1981. Hún stundaði
framhaldsnám í fjöl-
skyldumeðferð og hefur
nýlega lokið námi í
vinnu með minni-
hlutahópum. Hún hefur
starfað sem félagsráðgjafi, m.a. sem for-
stöðumaður Útideildarinnar og hjá Unglinga-
athvarfinu, Unglingadeildinni, á Starfsþjálf-
unarstaðnum Örva. Edda starfar sem
verkefnastjóri á þróunarsviði Félagsþjónust-
unnar í Reykjavík. Edda er gift Kjartani Árna-
syni og eiga þau þrjú börn og eitt barnabarn.
Huga þarf að aðlögun og stuðningi
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 brotsjór, 8 radd-
hæsi, 9 veglyndi, 10 mán-
aðar, 11 næstum því, 13
áflog, 15 framreiðslu-
manns, 18 ártala, 21 eldi-
viður, 22 batna, 23 drep-
um, 24 vandræðamann.
Lóðrétt | 2 meir, 3 harma,
4 eignir, 5 lúkum, 6 van-
sæmd, 7 varma, 12 gyðja,
14 reið, 15 ójafna, 16
dapra, 17 samfokin fönn,
18 fullkomlega, 19 vökni,
20 beisk.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 hrönn, 4 þegar, 7 fæddi, 8 rjúpu, 9 nem, 11 rúða,
13 Esja, 14 rýjan, 15 burt, 17 naum, 20 urt, 22 lýkur, 23
ískur, 24 rengi, 25 terta.
Lóðrétt | 1 hífir, 2 önduð, 3 náin, 4 þarm, 5 grúts, 6 rausa,
10 emjar, 12 art, 13 enn, 15 bolur, 16 ríkan, 18 askur, 19
marra, 20 urgi, 21 tíst.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Tunglið er í hrúti núna og ýtir undir
skaphita í umhverfinu. Hrúturinn finn-
ur sjálfur fyrir aukinni dirfsku og
hreinskilni og er til í að mæta hverju
sem að höndum ber.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Slakaðu á, þú kemur hugsanlega meiru
í verk fyrir vikið. Ekki setja markið of
hátt og dekraðu eilítið við sjálfan þig.
Helstu vinnuhestar sólkerfisins þurfa
líka að hvíla sig.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Sýndu vini þolinmæði í dag. Þú hefur
ekkert að sanna og alveg ástæðulaust
fyrir þig að fara í vörn. Ef einhver
reynir að efna til illinda er best að
labba bara í burtu.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Samskipti við foreldra eða yfirboðara
eru full ákefðar um þessar mundir. Er
einhver samkeppni í gangi? Ógnar
skynsemi þín yfirmanninum? Það gæti
verið.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Reyndu að fást við eitthvað annað en
venjulega í dag. Farðu á stað sem þú
hefur aldrei komið á áður og lestu eitt-
hvað nýtt. Hittu nýtt fólk. Þú þarft að
stækka sandkassann þinn.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú þarft hugsanlega að útskýra eitt-
hvað sem þú deilir með öðrum. Settu
skýr mörk og vertu viss um að aðrir
velkist ekki í vafa um hvað þú ert að
meina.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Tunglið er beint á móti þínu merki í
dag. Það þýðir að þú þarft að koma sér-
staklega til móts við aðra í sam-
skiptum. Það þýðir ekkert að vera
kröfuharður núna.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú kemur miklu í verk og finnur fyrir
krafti, einbeitingu og líkamlegri
hreysti. Ekkert hreinsunarátak er þér
ofviða í dag og allt á að ganga eins og
smurt að þínu mati.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Nýtt ástarsamband fær hjarta þitt til
þess að slá örar. Samskipti við smá-
fólkið eru líka ánægjuleg. Leyfðu lítilli
manneskju að hafa betur í viðureign
sinni við þig.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Ekki reyna að þröngva foreldri eða
fjölskyldumeðlim til þess að vera sam-
mála þér í dag. Steingeitin áttar sig
alls ekki á því hvað hún er frökk og
kraftmikil núna.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Samræður við systkini og nágranna
eru óvenju beinskeyttar og hrein-
skilnar um þessar mundir. Ekki bregð-
ast of harkalega við. Fólk finnur sig
knúið til að leggja spilin á borðið.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú freistast til þess að kaupa eitthvað
án umhugsunar í dag. Höndin leitar
ósjálfrátt í veskið og reiðir fram
greiðslukortið. Hvernig væri að hugsa
sig tvisvar um?
Stjörnuspá
Frances Drake
Steingeit
Afmælisbarn dagsins:
Þú vilt að viðfangsefni þín séu gefandi
og skemmtileg og ert einstaklega einlæg,
vinnusöm og þrautseig manneskja í
því sem þú tekur þér fyrir hendur. Þú
áttar þig ennfremur fyllilega á takmörk-
unum þínum.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Brúðkaup | Gefin voru saman 21.
ágúst 2004 í Fríkirkjunni í Hafnarfirði
af sr. Einari Eyjólfssyni þau Esther
Jökulsdóttir og Tómas Axel Ragn-
arsson.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
Ljósmynd/Ingvar Örn Sighvatsson
Kvikmyndir
Háskólabíó | Frönsk kvikmyndahátíð. Kl.
15, Langa Trúlofunin. Kl. 16, Marie-Jo og
ástirnar tvær. Kl. 17.30, Langa Trúlofunin.
Kl. 18, Peningabíllinn. Kl. 20, Langa Trúlof-
unin, Bróðirinn. Kl. 22, Grjóthaltu kjafti. Kl.
22.30, Langa Trúlofunin.
Leiklist
Borgarleikhúsið | Lína Langsokkur, Belg-
íska Kongó og Híbýli vindanna.
Söfn
Þjóðmenningarhúsið | Sýningaröðin Tón-
listararfur Íslendinga.
Þjóðminjasafn Íslands | Grunnsýning
Þjóðminjasafnsins, Þjóð verður til –menn-
ing og samfélag í 1200 ár. Opið kl. 11–17.
Námskeið
Gigtarfélag Íslands | Hópþjálfun Gigt-
arfélags Íslands er byrjuð aftur eftir jólafrí.
Í boði eru mismunandi hópar, s.s. róleg leik-
fimi, vefjagigtarhópar, bakleikfimi fyrir
karlmenn og jóga. Þjálfunin fer fram í húsi
GÍ að Ármúla 5. Nánari upplýsingar hjá GÍ.
Íslenska Kristskirkjan | Nýtt Alfa-
námskeið hefst nk. þriðjudagskvöld kl. 19
Uppl. og skrán. í s. 567 8800 frá kl. 13–17.
Mímir-símennt ehf. | Jóhanna Kristjóns-
dóttir heldur fimm kvölda námskeið um
menningarheim araba sem hefst 20. jan.
Myndlist
Anddyri Suðurlandsbrautar 4 | Rafn Sig-
urbjörnsson – Fjölskyldan.
Árbæjarsafn | Í hlutanna eðli – stefnumót
lista og minja.
Gallerí Banananas | Baldur Björnsson –
Hefur þú upplifað geðveiki?
Gallerí Dvergur | Sigga Björg Sigurð-
ardóttir – Lappir, línudans og fórnarlamb í
gulri peysu.
Gallerí I8 | Finnur Arnar sýnir ýmis mynd-
verk.
Gallerí Tukt | Kristjana Rós Guðjohnsen
sýnir abstrakt olíumálverk.
Gerðuberg | Rosemarie Trockel – Ljós-
myndir, skúlptúrar, teikningar og mynd-
bönd. Sýning Guðríðar B. Helgadóttur á
listsaumsmyndum lýkur í dag. Ókeypis að-
gangur.
Hafnarborg | Rafmagn í 100 ár. Svart á
hvítu, þrívíð verk, málverk, teikningar og
grafík eftir íslenska og erlenda listamenn í
Sverrissal og Apóteki. Sigrún Guðmunds-
dóttir er myndhöggvari janúarmánaðar.
Hallgrímskirkja | Jón Reykdal – 6 ný olíu-
málverk.
Hrafnista Hafnarfirði | Sigurbjörn Krist-
insson myndlistamaður sýnir málverk og
tússmyndir í Menningarsal.
Kaffi Sólon | Sigríður Valdimarsdóttir –
Snjókorn.
Kling og Bang gallerí | Heimir Björgúlfs-
son – Alca torda vs. rest.
Kunstraum Wohnraum | Alda Sigurð-
ardóttir – Landslagsverk.
Listasafn Íslands | Ný íslensk myndlist:
um veruleikann, manninn og ímyndina.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Birgir
Snæbjörn Birgisson – verk úr tveimur
myndröðum, Snertingar og Ljóshærðar
starfsstéttir. Elías B. Halldórsson – Olíuljós.
Verk úr einkasafni Þorvaldar Guðmunds-
sonar og Ingibjargar Guðmundsdóttur á
neðri hæð.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Maðurinn og efnið – yfirlitssýning á verkum
Ásmundar Sveinssonar.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Þórð-
ur Ben Sveinsson – Borg náttúrunnar.
Bjargey Ólafsdóttir – Láttu viðkvæmt útlit
mitt ekki blekkja þig. Erró – Víðáttur. Brian
Griffin – Áhrifavaldar.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Textíllist 2004. Kjarval í Kjarvalssal.
Nýlistasafnið | Hlynur Helgason – Gengið
niður Klapparstíg. Carnal Knowledge.
Slunkaríki | Ívar Brynjólfsson – Bardaga-
vellir.
Tjarnarsalur Ráðhúss Reykjavíkur | Sör-
en Solsker Starbird – Er sálin sýnileg?
Þjóðmenningarhúsið | Bragi Ásgeirsson er
myndlistarmaður mánaðarins.
Fundir
Akóges-salurinn | Sjálfstæðisflokkurinn
heldur stjórnmálafund kl. 17. Yfirskrift
fundarins er: Með hækkandi sól – lægri
skattar – aukin hagsæld. Framsögumenn:
Árni M. Mathiesen og Guðjón Hjörleifsson
og Guðmundur Hallvarðsson.
Félagsheimilið Blönduósi | Sjálfstæð-
isflokkurinn heldur stjórnmálafund á morg-
un kl. 20. Yfirskrift fundarins er: Með
hækkandi sól – lægri skattar – aukin hag-
sæld. Framsögumenn: Sturla Böðvarsson
og Birgir Ármannsson.
Kaffi Krókur | Sjálfstæðisflokkurinn heldur
stjórnmálafund kl. 15. Yfirskrift fundarins
er: Með hækkandi sól – lægri skattar – auk-
in hagsæld. Framsögumenn: Björn Bjarna-
son og Einar Oddur Kristjánsson.
Krabbameinsfélagið | Samhjálp kvenna
verður með opið hús þriðjud. 18. jan. kl. 20
í Skógarhlíð 8. Sigríður Eyjólfsd. og Hildur
B. Hilmarsd. segja frá ráðstefnu sem þær
sóttu í Ósló. Myndband um breytingar á
nánum samskiptum, hjálpartæki o.fl.
OA-samtökin | OA-samtökin verða 45 ára
19. janúar nk. Í tilefni af því verður opinn af-
mælisfundur kl. 20.15, í Gula húsinu, Tjarn-
argötu 20. Nánari uppl. www.oa.is.
Slysavarnadeild kvenna | Fundur í Höllu-
búð á þriðjudag kl. 20, vegna vorferðar til
Prag 9.–16. júní nk. Fulltrúi frá Heims-
ferðum mætir. Uppl. í s. 6953012.
Viðvíkurkaffi | Sjálfstæðisflokkurinn held-
ur stjórnmálafund á morgun kl. 17.30. Yf-
irskrift fundarins er: Með hækkandi sól –
lægri skattar – aukin hagsæld. Fram-
sögumenn: Sturla Böðvarsson og Birgir
Ármannsson.
Víkurskáli – Ströndin | Sjálfstæðisflokk-
urinn heldur stjórnmálafund kl. 16. Yfir-
skrift fundarins er: Með hækkandi sól –
lægri skattar – aukin hagsæld. Fram-
sögumenn: Geir H. Haarde og varafor-
maður og Drífa Hjartardóttir.
Þinghús-Bar | Sjálfstæðisflokkurinn held-
ur stjórnmálafund kl. 19.30. Yfirskrift fund-
arins er: Með hækkandi sól – lægri skattar
– aukin hagsæld. Framsögumenn: Björn
Bjarnason og Einar Oddur Kristjánsson.
Útivist
Ferðafélagið Útivist | Útivist blótar þorr-
ann á Leirubakka í Landsveit 28.–30. jan. Á
laugardeginum verður farið í gönguferð og
einnig verða jeppaferðir. Þátttakendur slá
saman í þorrahlaðborðið á laugardags-
kvöldið. Útivist verður með skíðaferð á
Reykjanesskaga í dag. Brottför kl. 10.30
frá BSÍ. Fararstjóri er Sylvía Kristjánsdóttir.
Verð 2.100/2.500 kr.
Ferðafél. Íslands | Göngugleði á sunnud.
Mæting við Mörkina kl. 10, með nesti.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði
dagsins er að finna á Staður og
stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is