Morgunblaðið - 16.01.2005, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JANÚAR 2005 45
MENNING
Fyrir tuttugu árum eða svohélt myndlistarmaðurinnÞórður Ben Sveinssonsýningar í Reykjavík,
sem eru mörgum enn minnis-
stæðar. Sýningarnar innihéldu
nefnilega hugmyndir að breyttu
borgarskipulagi, þar sem flugvall-
arsvæðinu í Vatnsmýrinni var
breytt í fagra garða og forvitnileg
hús. Mannlegri tilvist var gert
hærra undir höfði en vélum og far-
artækjum í skipulaginu, sem fyrst
og fremst tók tillit til aðstæðna og
veðurfars hérlendis, en vísaði til
menningar okkar og náttúru í útliti.
Þórður Ben sýndi þessar hug-
myndir sínar í þrígang, árin 1981,
1984 og 1986 og skrifaði auk þess
greinar í Lesbók Morgunblaðsins
um málið. Eftir það lagði hann það
til hliðar – en einugis í bili. Fyrir
þremur árum hafði þróunarstofnun
borgarinnar samband við Þórð, þar
sem tekin hafði verið sú ákvörðun
að flytja flugvöllinn í Vatnsmýrinni
og skipuleggja svæðið upp á nýtt.
Þórður lagðist yfir hugmyndir sín-
ar að nýju, og sýnir nú í Listasafni
Reykjavíkur nýjustu framþróunina
í þeim á sýningu, sem ber heitið
Borg náttúrunnar og var opnuð í
gær.
Borg náttúrunnar
Það sama er upp á teningnum nú
og í fyrri hugmyndum Þórðar, þar
er lögð áhersla á að borgin taki mið
af íslenskri náttúru og menningu.
Byggingar eru úr gleri og nátt-
úrusteini, götur eru yfirbyggðar og
íslenskur sandur er lagður í yl-
stræti sem tengja borgina. Ýmis
minni úr íslenskri náttúru, hrauni,
fjöllum og fossum sjást þar glögg-
lega, í fínlegum og margbreyti-
legum húsum. „Ég er þeirrar skoð-
unar að byggingarlist eigi að fara
aftur til baka á gömlu ræturnar
fyrir alþjóðlegu hagnýtisstefnuna,
sem kom fram um 1950,“ segir
Þórður þegar við göngum um sýn-
inguna.
Staðsetning borgarinnar er sem
fyrr í Vatnsmýrinni, römmuð inn af
Suðurgötu, Hringbraut, Öskjuhlíð
og ströndinni við Nauthólsvík.
Þórður telur að í borg af þessu tagi
ættu um 100.000 íbúar að geta búið,
enda er lögð á það áhersla í skipu-
lagi hennar að þar sé skammt að
fara í alla hluti og bílar nánast
óþarfir fyrir dagleg verkefni. Þórð-
ur ber saman kort af Amsterdam
og Reykjavík á sýningunni því til
staðfestingar að þetta sé hægt. „Í
miðborg Amsterdam búa 750.000
íbúar,“ útskýrir Þórður. „Að stærð
er hún fjórir sinnum þrír og hálfur
kílómetri, og borgin er hvergi
þröng. Ef Reykjavík fylgdi sömu
forskrift, þyrfti hún ekki að vera
nema 700 metrar að breidd. Þannig
að það væri hægt að skipuleggja
Reykjavík allt öðruvísi, en þá þyrfti
auðvitað að gera alveg radikal
breytingar og taka upp allt annan
hugsunarhátt.“
Borg Þórðar, Borg náttúrunnar,
skiptist upp í margvísleg hverfi eft-
ir því hvernig náttúran er á hverj-
um stað í Vatnsmýrinni. Þannig er
að finna hverfi tjarna og síkja,
hraunhverfi, hverfi gilja og gjúfra,
fjöruhverfi og þar fram eftir göt-
um, sem hvert og eitt tekur mið af
aðstæðum í ytra útliti. „Þá nota ég
til að mynda fjörusand og fjöru-
steina í forgarðana í fjöruhverfinu,“
útskýrir hann.
Nýr valkostur
Þórður segir hugmyndir sínar um
Borg náttúrunnar langt frá því að
vera fullmótaðar, hann sé „rétt að
byrja á þessu mikla verkefni“ eins
og hann orðar það sjálfur. En hver
eru markmið hans með þessum
pælingum – hvað hyggst hann fyr-
ir? Svar Þórðar er að hann sé fyrst
og fremst að bjóða annan valkost
en hefur tíðkast hingað til í skipu-
lagsmálum borgarinnar. „Reykja-
vík hefur orðið til undanfarin fimm-
tíu ár samkvæmt einu viðhorfi,
einni stefnu, einni hugsun. Það eru
engir valkostir,“ segir hann. „Þetta
opnar fyrir nýjan valkost. Við erum
að tala um aðra tegund af borg og
aðra möguleika í þróun borgar-
menningar á Íslandi, því það verð-
ur til önnur tegund af borgarlífi í
svona borg. Þetta er borg sem þétt-
ir, örvar og tengir, og er auðveld að
búa í.“
Eitt af því sem Þórður finnur að
við Reykjavík nútímans er mikil
notkun bíla. „Það er eitt af því sem
ég gagnrýni. Þú getur ekki hreyft
þig í þessari borg án þess að hafa
bíl. Skipulagið táknar að ef þú hef-
ur ekki bíl ertu ekki með í menn-
ingunni. En hver segir að þú þurfir
að eiga vini í Japan sem framleiða
bíla? Það er skortur á lýðræði sem
verður til með þessu,“ segir hann.
Ekki útópískt
Það að hægt sé að koma öllum
Reykvíkingum fyrir á Vatnsmýr-
arsvæðinu, þrátt fyrir vel útpælt
borgarskipulag Þórðar, hljómar dá-
lítið útópískt fyrir blaðamanni. En
Þórður er því ósammála. „Ég
myndi ekki segja það. Bygging-
arnar eru hugsaðar sem svörun við
íslensku veðurfari, þannig að þær
eru raunverulegar. Það er allt gert
til þess að hægt sé að byggja borg-
ina á hagkvæman hátt. Afar okkar
og ömmur byggðu til að mynda
borgir með öðrum hætti. Þannig að
slík borg er möguleg, en auðvitað
ekki með þeim aðferðum sem not-
aðar eru í dag, hvorki í bygging-
arlist né skipulagshugsun.“
Hann leggur á það áherslu að
nauðsynlegt sé að hafa eitthvað í
höndum þegar rætt sé um aðra val-
kosti í skipulagi borgarinnar, teikn-
ingar, skissur og rökstuðning, og
les upp valda setningu sem kemur
fyrir á sýningunni og lýsir pæl-
ingum hans kannski sérstaklega
vel: „Borgin er merkasta og áhrifa-
ríkasta framlag menningar til
sjálfrar sín.“
En telur Þórður að hugmyndir
hans muni ganga í gegn? „Ja, þetta
svæði myndi byggjast af mörgum
kynslóðum. Ég vona að alla þá sem
langar í aðra tegund af borgar-
lífsmenningu en tíðkast hér og víð-
ar – þar sem lögð er áhersla á að
dreifa byggðinni sem mest og bíll-
inn er í aðalhlutverki – að þeim
verði boðnir aðrir valkostir. Í raun
finnst mér þetta svæði tilheyra
komandi kynslóðum. Við verðum að
skoða hvað við gerum fyrir börnin
okkar og hvaða stöðu við setjum
þau í. Síðasti möguleiki á valkosti
fyrir komandi kynslóðir í þróun
borgarlífsmenningar stendur fyrir
dyrum, og ég tel það mjög stórt
mál.“
Sýning Þórðar verður opin til 27.
febrúar.
Nýr valkostur í borgarmenningu
Þórður Ben Sveinsson
opnaði sýningu á
borgarskipulags-
hugmyndum sínum í
Listasafni Reykjavík-
ur í fyrrakvöld. Inga
María Leifsdóttir
gekk með honum um
sýninguna og ræddi
ýmsa möguleika í
skipulagi borgarinnar.
Morgunblaðið/Jim Smart
Þórður Ben Sveinsson: „Borgin er merkasta og áhrifaríkasta framlag menningar til sjálfrar sín.“
ingamaria@mbl.is
SAMKOMULAG
hefur náðst um
það að Sinfón-
íuhljómsveit Ís-
lands leiki á tón-
leikum Plàcido
Domingo sem
fyrirhugaðir eru í
Egilshöll þann
13. mars næst-
komandi. Það er
athafnafólkið Þóra Guðmundsdóttir
og Þorsteinn Kragh sem stendur að
tónleikunum en þau hafa undanfarin
2 ár unnið að því að fá Domingo
hingað til lands.
Plàcido Domingo er óumdeil-
anlega einn af þeim stóru í heimi
sönglistarinnar. Á ferli sínum hefur
hann túlkað 119 hlutverk úr heimi
óperubókmenntanna, enginn annar
söngvari getur státað af svo miklum
fjölda. Hvort sem höfundurinn heitir
Mozart, Verdi, Berlioz, Puccini,
Wagner eða Ginastera þá er víst að
verk hans hafa hljómað í flutningi
Domingos.
„Nú styttist í að landinn fái að
njóta hæfileika hans. Óhætt er að
fullyrða að einstök upplifun bíði
þeirra sem tónleikana sjá og heyra
og eftirvæntingin er einnig mikil í
herbúðum Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands,“ segir Sváfnir Sigurðarson
kynningarstjóri SÍ.
Plàcido Domingo heldur einungis
um 10 tónleika á ári en auk hans
munu sópransöngkonan Ana Maria
Martinez og Óperukórinn syngja á
tónleikunum. Hljómsveitarstjóri
verður Eugene Kohn.
Sinfónían
leikur undir
hjá Domingo
TENGLAR
..............................................
www.domingo.is
Plàcido Domingo
ÞÝSKUNÁMSKEIÐ
GOETHE ZENTRUM
www.goethe.is
551 6061
30 rúmlesta
réttindanám
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
14
8
2
7
Námskei› 24. janúar - 5. mars
Kennsla mánud., mi›viku. og fimmtud. kl. 18.00-22.10
Námsfög eru: Siglingafræ›i og samlíkir, siglingareglur og
vélfræ›i, siglinga- og fiskileitartæki, sjóhæfni, ve›urfræ›i
og öryggismál.
Nánari upplýsingar og skráning
í síma 522 3300 eða á netfangið sa@mennta.is
Alfanámskeiðin
að hefjast
kynntu þér þau á
www.alfa.is