Morgunblaðið - 05.02.2005, Side 1
STOFNAÐ 1913 34. TBL. 93. ÁRG. LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Út í heim
bæklingurinn fylgir
blaðinu í dag
út í heim
Barnaleikrit
með boðskap
Selma, Birgitta og Jónsi öll á
sviðið í Ávaxtakörfunni | Menning 57
Börn | Keðjusagan Glúrnar gátur Lesbók | Gleymda bókarfréttin
Rousseau og Samfélagssáttmálinn Íþróttir | Beckham segist vilja
enda feril sinn hjá Real Madrid Alan Shearer sá besti frá upphafi
Börn, Lesbók og Íþróttir í dag
Hafnar málsókn gegn
tóbaksfyrirtækjum
Washington. AFP.
ÁFRÝJUNARRÉTTUR hafnaði í gær málsókn
Bandaríkjastjórnar á hendur tóbaksfyrirtækjum
sem hún sakar um að hafa lagt á ráðin um að
leyna hættunni sem stafar af reykingum. Stjórn-
in krafðist skaðabóta, að andvirði 280 milljarða
dala, 17.600 milljarða króna.
Áfrýjunarrétturinn komst að þeirri niðurstöðu
að stjórnin gæti ekki höfðað mál á hendur tób-
aksfyrirtækjunum á grundvelli laga um fjár-
glæfra, en þau voru sett til höfuðs glæpasam-
tökum.
Bandaríska dómsmálaráðuneytið getur áfrýj-
að úrskurðinum. Hugsanlegt er ennfremur að
stjórnin geti beitt öðrum lagalegum úrræðum til
að höfða mál gegn tóbaksfyrirtækjunum eða
reyni að ná samkomulagi við þau um skaðabætur.
Á meðal tóbaksfyrirtækjanna eru Philip Morr-
is, RJ Reynolds Tobacco, Loews Corp’s Lorillard
Tobacco og Brown and Williamson. Charles
Blixt, aðstoðarforstjóri RJ Reynolds, fagnaði úr-
skurðinum og sagði hann gerbreyta stöðu banda-
ríska dómsmálaráðuneytisins í málinu.
William Corr, formaður bandarískra samtaka
sem berjast gegn reykingum ungmenna, sagði að
stjórnin ætti að beita öðrum lagalegum úrræðum.
Hann bætti þó við að skaðabæturnar yrðu þá
ekki eins háar og þær hefðu orðið ef dómstóllinn
hefði samþykkt málshöfðun á grundvelli laganna
um fjárglæfra.
Óvissa um milljarða
dala skaðabótakröfu
ÞING Úkraínu samþykkti í gær
með miklum meirihluta atkvæða
þá ákvörðun forseta landsins að
skipa Júlíu Tímosjenko forsætis-
ráðherra. „Ég veit að þjóðin býst
við kraftaverki,“ sagði Tímosj-
enko eftir atkvæðagreiðsluna.
„Ég er viss um að kraftaverkið er
að hefjast.“
Víktor Jústsjenko, forseti
Úkraínu, kyssir hér hönd Tímosj-
enko, eftir að niðurstaða at-
kvæðagreiðslunnar var tilkynnt.
Forseti úkraínska þingsins,
Volodymyr Lytvyn (t.h.), fylgist
með þeim.
Tímosjenko var á meðal helstu
bandamanna Jústsjenkos í „app-
elsínugulu byltingunni“. Hún þyk-
ir gædd miklum persónutöfrum
en er mjög umdeild./20
Reuters
„Kraftaverkið er að hefjast“
EFTIR að hafa
lamast fyrir neð-
an brjóst eftir
vélhjólaslys árið
2002 hefur Arn-
ar Helgi Lár-
usson, 28 ára
Keflvíkingur,
náð nokkrum
bata eftir að hafa
farið í aðgerð
þar sem stofn-
frumur voru
græddar í
skaddaða hlut-
ann á mænu
hans af portúgölskum taugalækni.
Fyrir aðgerðina hafði Arnar enga tilfinn-
ingu í líkamanum fyrir neðan brjóst, en í
dag hefur hann tilfinningu í bakvöðvum
niður að mitti og gengur 4–8 klukkustundir
á viku á göngubraut í spelkum.
„Ég vonast til þess að geta staulast um,
bjargað mér eitthvað á löppunum. Það er
engin von til þess að ég verði eins og ég var
fyrir slysið, en ég ætla mér ekki að vera í
hjólastól það sem eftir er af lífinu, það er al-
veg klárt mál. Þetta kemur að sjálfsögðu til
með að verða mitt hjálpartæki allt mitt líf,
en þá bara hjálpartæki, ekki lappirnar mín-
ar eins og stóllinn er í dag,“ segir Arnar./4
Ætlar sér að
ganga á ný
Morgunblaðið/Golli
DÚMAN, neðri deild rússneska
þingsins, hefur bannað píanóleik-
aranum Olgu Skiba að spila í
mötuneyti þingsins vegna þess að
hún lék lag með glæpsamlegum
undirtón.
Skiba var ráðin til að gleðja
þingmenn með verkum Mozarts
og Chopins en varð við þrábeiðni
þeirra um að leika dægurlög.
Henni var síðan vikið frá störfum
fyrir að leika 80 ára gamalt lag,
„Múrka“. Það fjallar um glæpa-
mann sem myrti unnustu sína eft-
ir að hafa komist að því að hún
var njósnari leynilögreglu bolsév-
íka.
„Múrka“ er álitið dæmigert fyr-
ir fangasöngva frá þriðja áratug
aldarinnar sem leið. Söngvarnir
urðu mjög vinsælir eftir hrun
Sovétríkjanna, mörgum þing-
mönnum til mikillar armæðu þar
sem þeir hafa miklar áhyggjur af
útbreiðslu undirheimamenningar í
landinu.
Rússneska dagblaðið Komsom-
olskaja Pravda sagði að slík mál
kæmu upp á þinginu vegna þess
að „þingmenn hafa ekkert að gera
því að það er stjórn forsetans sem
ræður öllu um lögin“.
Refsað fyrir að leika fangalag
Dúman rekur
píanóleikara
KOFI Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna (SÞ), kvaðst í
gær ætla að refsa Benon Sevan, yf-
irmanni olíusölu-
áætlunar samtak-
anna í Írak,
vegna ávirðinga
sem hann er sak-
aður um í nýrri
rannsóknar-
skýrslu.
Norm Cole-
man, sem stjórn-
ar rannsókn öldungadeildar
Bandaríkjaþings á meintri spill-
ingu í tengslum við áætlunina,
kvaðst vilja að Sevan yrði sviptur
friðhelgi sem fyrrverandi embætt-
ismaður SÞ til að bandarískir sak-
sóknarar gætu tekið málið fyrir.
„Skýrslan sýnir að það er ærin
ástæða til að telja að hann hafi
gerst sekur um refsivert athæfi.“
Í skýrslunni segir m.a. að Sevan
hafi brotið reglur SÞ með því að
tryggja olíufyrirtækinu AMEP,
sem er í eigu vinar hans, mjög
ábatasama samninga um olíusölu
þegar hann var yfirmaður áætlun-
arinnar á árunum 1997 til 2003.
Framganga hans í starfinu hafi
verið „siðferðilega ósæmileg“ og
grafið „alvarlega undan heiðar-
leika Sameinuðu þjóðanna“. Enn-
fremur leikur grunur á að hann
hafi þegið mútur.
Annan
boðar
refsingu
Benon Sevan
Sameinuðu þjóðunum. AP.
TINNA Þorsteinsdóttir
píanóleikari frumflytur
í kvöld fimm íslensk
tónverk á Myrkum mús-
íkdögum. Tónleikarnir
verða í Salnum í Kópa-
vogi og hefjast kl. 20.
Harla sjaldgæft er að
þetta gerist á píanó-
tónleikum hér á landi
og að líkindum einsdæmi. Í það minnsta
þekkir Tinna engin dæmi um slíkt og
Kjartan Ólafsson, formaður Tónskálda-
félags Íslands, ekki heldur. „Þetta er auð-
vitað nett brjálæði,“ segir Tinna og hlær.
Tinna fékk þessa hugmynd fyrir fimm
árum og árið 2002 fékk hún styrk úr Tón-
skáldasjóði Ríkisútvarpsins til að hrinda
henni í framkvæmd. Verkin fimm eru eft-
ir Mist Þorkelsdóttur, Kolbein Einarsson,
Áskel Másson, Þorstein Hauksson og
Steingrím Rohloff.
Fernir tónleikar verða haldnir á Myrk-
um músíkdögum í dag og þrennir á morg-
un en það er lokadagur hátíðarinnar./28
Frumflytur
fimm verk
♦♦♦