Morgunblaðið - 05.02.2005, Blaðsíða 57
BARNALEIKRITIÐ Ávaxtakarf-
an, eftir Kristlaugu Maríu Sig-
urðardóttur, sló óforvarandis í
gegn þegar það var frumsýnt í
Íslensku óperunni
árið 1998. Leik-
ritið var gefið út
síðar á mynd-
bandi og á
geislaplötu og
hefur lifað
góðu lífi hjá
æsku landsins
síðan. Leikritið
verður sett upp á ný í Aust-
urbæ á morgun og er frum-
sýning klukkan 14. Leikstjóri er
Gunnar Ingi Gunnsteinsson en
hann leikstýrði fyrstu uppfærsl-
unni og framkvæmdastýrði
henni. Leikritið segir af samlífi
ávaxta sem er umturnað er
gulrót bætist í ávaxtakörf-
una. Immi ananas gerir til-
raun til að kúga hina
ávextina en gulrótin, sem
kallast Gedda, hrindir af
stað uppreisn ásamt Mæju
jarðarberi. Leikritið ber þannig
með sér hopp og hí um leið og
það tekur á einelti og fordómum.
Með helstu hlutverk í nýju upp-
færslunni fara Selma Björns-
dóttir (Eva appelsína), Jón Jósep
Snæbjörnsson (Immi ananas),
Lára Sveinsdóttir (Mæja jarð-
arber) og Birgitta Haukdal
(Gedda gulrót). Tónlistarstjóri er
sem fyrr Þorvaldur Bjarni Þor-
valdsson.
Gunnar segir að farsæld leik-
ritsins byggist líklega á því
óvenjulega og skemmtilega um-
hverfi sem því er búið og hvernig
sé tekið á þeim boðskap sem býr
í leikritinu; þ.e. gildi þess að fólk
skuli virða hvað annað.
„Umræðan um einelti er orðin
miklu meiri í dag en þegar leik-
ritið var fyrst frumsýnt. Mun-
urinn á uppfærslunum tveimur
liggur m.a. í því hvernig við tök-
um á þessum alvarlega sam-
félagsvanda. Á sínum tíma héld-
um við að við værum ofsalega
gróf og grimm en það hefur sýnt
sig að ef eitthvað er þá tókum
við frekar vægt á þessu. Þannig
að við höfum skerpt dálítið á
þessu. Sumar reynslusögurnar á
vefsíðu Regnbogabarnanna eru
svo ógeðslegar að maður trúir
þeim vart. Svo erum við búin að
uppfæra tónlistina og það verða
kynnt tvö ný lög.“
Leikhópurinn er skipaður jafnt
atvinnuleikurum sem tónlist-
armönnum.
„Hópurinn smellur vel saman.
Það er gaman að geta teflt fram
tveimur af helstu átrúnaðar-
goðum unga fólksins í dag, þ.e.
Jónsa og Birgittu. Þau tvö eru
komin með sæmilega leikreynslu
og svo er gott að hafa söng-
leikjadrottninguna Selmu innan-
borðs.“
Leikrit | Ávaxtakarfan aftur á fjalirnar
Barnaleikrit
með boðskap
Morgunblaðið/RAX
Miða er hægt að nálgast í
Austurbæ og á www.midi.is
www.avaxtakarfan.is
arnart@mbl.is
Immi ananas er fláráður og reynir að sölsa undir sig völdin í Ávaxtakörfunni.
Selma Björnsdóttir
sem Eva appelsína.
Það gengur mikið á í Ávaxtakörfunni. Tinna Hrafns-
dóttir og Valur Freyr Einarsson í hlutverkum sínum.
Epísk stórmynd sem fólk
verður að sjá
Frá leikstjóranum Oliver Stone.
Kvikmyndir.is
Ian Nathan/EMPIRE
FRÁ HÖFUNDUM SOUTH PARK
ÁLFABAKKI
kl. 2, 4, 6.20, 8.30 og 10.30.
AKUREYRI
kl. 10. B.i. 14 ára.
Algjör snilld.
Ein af fyndustu myndum
ársins.
l j r ill .
i f f t
r i .
Kvikmyndir.is
DV
V.G. DV.
YFIR 36.000 ÁHORFENDURI .
H.L. Mbl.
DV
Rás 2
Kvikmyndir.com
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 1.30, 3.45 og 6. Ísl.tal. / kl. 6 og 8.15. Enskt tal.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8.30. B.i. 14 ára.
Kvikmyndir.is
Tilnefningar til
óskarsverðlauna
il f i til 4
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 1.30, 3.45, 6, 8.15 og 10.30.
AKUREYRI
Sýnd kl. 6.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10.
KRINGLAN
Sýnd kl. 12, 2.15, 4.30 og 6.45.
KRINGLAN
Sýnd kl. 12 og 2.15. Ísl.tal.
B.I. 14
Nýjasta snilldarverkið frá
Óskarverðlaunahafanum Clint Eastwood.
Eftirminnilegt og ógleymanlegt meistaraverk.
Besta mynd hans til þessa.
Hlaut tvenn Golden Globe verðlaun
KRINGLAN
Sýnd kl. 4.30, 6, 8 og 10. B.i. 14 ára
AKUREYRI
Sýnd kl. 8 og 10.
Tilnefningar til
óskarsverðlauna4 il f i r til l
Ein vinsælasta grínmynd allra tíma
Þrjár vikur á toppnum í USA
Frá framleiðanda Training Day
Þeir
þur
fa a
ð st
and
a sa
man
til a
ð ha
lda
lífi!
Fráb
ær s
pen
nutr
yllir!
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2005 57