Morgunblaðið - 05.02.2005, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
Selfoss | „Mikil gróska hefur verið í
byggingaframkvæmdum í Sveitarfé-
laginu Árborg á árinu 2004 og í raun
hefur verið um algjöra sprengingu að
ræða,“ segir í ársskýrslu Bárðar Guð-
mundssonar, skipulags- og bygginga-
fulltrúa Árborgar, fyrir árið 2004. Á
árinu 2004 voru veitt 174 byggingar-
leyfi í sveitarfélaginu. Erindi sem tek-
in voru fyrir í skipulags- og bygginga-
nefnd voru 481 sem er 22% aukning
frá árinu 2003 sem var metár að þessu
leyti. Framkvæmdir voru hafnar við
97 mannvirki sem er 57% aukning frá
fyrra ári en framkvæmdir teljast
hafnar þegar sökkull hefur verið
steyptur.
Framkvæmdir hófust við 253 íbúð-
ir á árinu, 40 íbúðir voru í einbýlis-
húsum, 79 í par- eða raðhúsum og 134
íbúðir í fjölbýlishúsum. Um er að
ræða 112% aukningu frá árinu 2003.
Aukning í einbýlishúsum er 100%, í
rað- og parhúsum er aukningin 18%
og í fjölbýlishúsum 318%. Ekkert lát
er á eftirspurn eftir lóðum í sveitarfé-
laginu og er hún mest á Selfossi en við
úthlutun lóða hjá sveitarfélaginu hef-
ur staðan verið þannig að margir hafa
verið um hverja lóð og lóðum úthlutað
með útdrætti. Mikill lóðaskortur er á
Selfossi.
Sveitarfélagið mun bjóða upp á lóð-
ir til úthlutunar í suðurhluta bæjar-
ins, Suðurbyggð B, sem er vestan
Tröllahóla. Lóðirnar á þessu svæði
verða auglýstar í þessum mánuði og
gert er ráð fyrir að þær verði bygg-
ingarhæfar í júní, júlí og ágúst, í
þremur áföngum. Þá er Ræktunar-
samband Flóa og Skeiða að hefja und-
irbúning gatnagerðar í Hagalandi
vestan Eyravegar, suður af Foss-
landshverfi og undirbúa sölu á lóðum.
Lóðir í Hagalandi verða eignarlóðir
og seldar líkt og í Fosslandinu en í
Suðurbyggðinni er þeim úthlutað án
sérstakrar greiðslu. „Við vonumst til
að lóðirnar í Hagalandinu verði til-
búnar fyrir framkvæmdir eftir ár.
Það er mikil eftirspurn eftir þeim og
við gætum verið búnir að selja hundr-
að lóðir,“ sagði Ólafur Snorrason,
framkvæmdastjóri Ræktunarsam-
bands Flóa og Skeiða.
„Ég óttast að lóðaframboðið sem
við erum með anni ekki eftirspurninni
miðað við álagið sem var hér 2003 og
ég tel mjög mikilvægt að Hagalandið
komi inn hér á Selfossi á sama hátt og
Fosslandið gerði á sínum tíma,“ sagði
Bárður Guðmundsson, bygginga- og
skipulagsfulltrúi Árborgar.
Algjör sprenging í byggingu íbúðarhúsnæðis í Árborg
Byrjað á 253 íbúðum
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Gatnagerð Frá undirbúningsframkvæmdum í Hagalandi á Selfossi þar sem nýtt hverfi byggist.
Þorlákshöfn | „Ég hef aldrei verið
mikill skrifstofumaður. Hef alla tíð
verið við verkamannastörf og
reikna með að það verði ég það
sem ég á eftir,“ segir Þórður
Ólafsson, verkalýðsforingi í Þor-
lákshöfn. Hann vinnur við upp-
skipun með sínum mönnum og læt-
ur aðra að mestu um skrifstofu-
störfin hjá Verkalýðsfélaginu
Boðanum þar sem hann er formað-
ur.
„Ég myndi halda að það væri
ekki verra. Það eru ekki svo marg-
ir eftir sem það gera,“ segir Þórð-
ur þegar hann er spurður að því
hvort það mælist ekki vel fyrir hjá
félagsmönnum að formaðurinn
gangi í störfin með þeim. Þá segist
hann telja að staða sín gagnvart
vinnuveitendum versni ekkert þótt
hann sé starfsmaður þeirra. Þetta
séu allt ágætir menn og margir
vinir hans. „Ég rífst við þá þegar
það þarf og svo leysum við málin á
málefnalegan hátt. En ég leysi
engin mál með tölvupóstsend-
ingum,“ segir Þórður.
Þórður er starfsmaður Ísfélags-
ins hf. í Þorlákshöfn sem rekur
löndunarþjónustu, ísverksmiðju og
frystigeymslurnar Kuldabolann.
Segir hann að töluvert hafi verið
að gera, við uppskipun úr tveimur
togurum frá Siglufirði sem lagt
hafa upp á staðnum að undan-
förnu. Indriði Kristinsson hafn-
arstjóri segir að togararnir séu að-
allega á karfaveiðum. Lítið annað
sé að hafa þar sem netavertíðin sé
varla byrjuð. „En það er allt sem
flýtur á sjó í dag,“ segir Indriði.
Aldrei verið mikill
skrifstofumaður
Morgunblaðið/Ómar
Á vaktinni Þórður Ólafsson er við uppskipun úr Fróða í Þorlákshöfn. Hann
er einn af fáum verkalýðsforingjum sem enn vinna verkamannastörf.
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
SUÐURNES
Reykjanesbær | „Við vonumst eftir
skýrum svörum um áframhaldið og
að ráðist verði fljótt í útboð veg-
arins,“ segir Steinþór Jónsson, hót-
elstjóri í Keflavík og talsmaður
áhugahóps um tvöföldun Reykja-
nesbrautar. Samgönguráðherra og
þingmenn hafa framsögu á almenn-
um borgarafundi sem hópurinn
heldur í félagsheimilinu Stapa í
Njarðvík næstkomandi mánudags-
kvöld til að þrýsta á að ljúka tvö-
földun Reykjanesbrautarinnar.
Um þúsund manns mætti á borg-
arafund um tvöföldun Reykjanes-
brautar sem áhugahópurinn efndi
til fyrir fjórum árum. Steinþór seg-
ir að sá fundur hafi verið afar mik-
ilvægur og ráðherra og þingmenn
gefið ákveðin loforð um verkið.
Hann segir mjög jákvætt að nú
skuli vera búið að leggja veginn
hálfa leiðina frá bæjarmörkum
Hafnarfjarðar til Reykjanesbæjar
og sé fólk mjög ánægt með þann
áfanga. Fólk tali um að umferðin sé
yfirvegaðri eftir að sá kafli kom og
engin alvarleg slys hafi orðið þar
þá sjö mánuði sem liðnir eru frá því
tvöfaldi kaflinn var tekinn í notkun.
„En það gera sér allir grein fyrir að
tvöföldum Reykjanesbrautarinnar
er eitt verkefni og því þarf að ljúka
sem fyrst. Við munum hlusta eftir
svörum samgönguráðherra og
þingmanna á fundinum og sjá hvers
er að vænta, hvort loforðin sem
gefin voru séu ekki í fullu gildi,“
segir Steinþór og vísar til ummæla
þingmanna fyrir fjórum árum um
að unnt ætti að vera að ljúka tvö-
földun Reykjanesbrautarinnar á
árunum 2004 til 2006.
Góður jarðvegur
til ákvarðana
Steinþór segir að áhugahópurinn
hafi haft gott samstarf við Sturlu
Böðvarsson samgönguráðherra og
fleiri aðila. Telur Steinþór að góður
jarðvegur sé nú til ákvarðana um
framkvæmdina. Búið sé að undir-
búa verkið vel og taki ekki nema
tvær til þrjár vikur að auglýsa út-
boð. Tilboð í vegaframkvæmdir séu
óvenju góð um þessar mundir og
mikilvægt að nýta það.
Fundurinn verður í Stapa á
mánudagskvöld og hefst klukkan
20. Steinþór Jónsson setur fund og
síðan hafa framsögu Sturla Böðv-
arsson samgönguráðherra, Guð-
mundur Hallvarðsson formaður
samgöngunefndar Alþingis og
fulltrúar stjórnmálaflokka sem
sæti eiga á Alþingi og svara spurn-
ingum fundarmanna. Árni Sigfús-
son, bæjarstjóri Reykjanesbæjar,
mun taka saman niðurstöður fund-
arins og er áætlað að honum ljúki
um klukkan 22. Á boðstólum verða
bollur í tilefni dagsins og leigubíla-
stöðvar bæjarins bjóðast til að
flytja gesti til og frá fundi, endur-
gjaldslaust. Fundurinn er öllum
opinn.
Efnt til borgarafundar í Stapanum
um tvöföldun Reykjanesbrautar
Vonumst eftir
skýrum svörum
Keflavíkurflugvöllur | „Það er alveg
kominn tími á mig. Ég er orðinn
elsti starfandi slökkviliðsstjórinn
hjá varnarmálaráðuneyti Banda-
ríkjanna,“ segir Haraldur Stef-
ánsson sem í þessum mánuði lætur
formlega af störfum sem slökkvi-
liðsstjóri á Keflavíkurflugvelli.
Hann hefur starfað samfellt hjá lið-
inu í fimmtíu ár. Af þessu tilefni var
efnt til mikillar veislu á Keflavík-
urflugvelli þar sem yfirmenn varn-
arliðsins og samstarfsmenn Har-
aldar kvöddu hann með virktum og
þökkuðu honum langa og dygga
þjónustu.
Haraldur hóf störf sem sjúkrabíl-
stjóri hjá slökkviliðinu árið 1955, þá
átján ára gamall. Hann varð
slökkviliðsmaður árið eftir, síðar að-
stoðarslökkviliðsstjóri og varaslökk-
viliðsstjóri og tók við starfi slökkvi-
liðsstjóra árið 1986. Hann hefði
getað hætt fyrir nokkrum árum, ef
stefnan hefði verið að komast
snemma á eftirlaun en yfirmenn
varnarliðsins vildu halda lengur í
hann. „Ég hef haft ánægju af starf-
inu og svo eru Bandaríkjamenn sér-
staklega góðir húsbændur. Því er
heldur ekki að neita að eftirlaunin
aukast eftir því sem maður vinnur
lengur,“ segir hann. Haraldur hefur
átt við veikindi að stríða undanfarna
mánuði og hefur Sigurður Arason
varaslökkviliðsstjóri stjórnað
slökkviliðinu á meðan og tekur nú
formlega við embættinu. „Veikindin
flýttu fyrir því að ég hætti en núna
er ég eiginlega alveg búinn að ná
mér,“ segir Haraldur. Hann segir
að slökkviliðið sé í góðum höndum,
þetta séu mest drengir sem hann
hafi alið upp og segist örugglega
eiga eftir að heimsækja þá oft.
Strákarnir standa sig vel
Hann segist sakna starfsins, eink-
um góðra félaga. En hann segist
einnig sakna valdsins og ábyrgð-
arinnar sem fylgi því að vera yf-
irmaður og láta gott af sér leiða.
Hann hefur staðið fyrir umbótum í
öryggismálum, jafnt í brunavörnum
sem rekstri flugvallarins, á þeim
tíma sem hann hefur starfað sem
yfirmaður í slökkviliðinu og hefur
liðið fengið fjölda viðurkenninga hjá
Bandaríkjaher fyrir framúrskarandi
árangur á ýmsum sviðum. „Strák-
arnir hafa staðið sig vel og ég hef
þess vegna fengið ýmsar orður fyrir
störfin þarna. En það er allur hóp-
urinn sem stendur á bak við það,“
segir Haraldur. Síðasta viðurkenn-
ingin var veitt í kveðjuhófinu þegar
yfirmaður varnarliðsins sæmdi Har-
ald æðstu viðurkenningu sem borg-
aralegum starfsmanni Bandaríkja-
flota getur hlotnast fyrir störf sín.
Haraldur kveður slökkviliðið á
tímum niðurskurðar hjá varnarlið-
inu sem einnig hefur bitnað á
slökkviliðinu. Hann segir það vissu-
lega óskemmtilegt að þurfa að
skera niður þjónustu vegna vand-
ræða með peninga. Hann treystir
því þó að menn tapi ekki sjónum af
ábyrgð sinni og láti ekki niður-
skurðinn stefna öryggi borgaranna í
hættu.
Haraldur Stefánsson hættir eftir 50 ára störf í slökkviliðinu
„Kominn tími á mig“
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Hættur Haraldur Stefánsson slökkviliðsstjóri og Erla Ingimarsdóttir, eig-
inkona hans, kveðja gamla vinnustaðinn á Keflavíkurflugvelli.