Morgunblaðið - 05.02.2005, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 05.02.2005, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2005 25 MINNSTAÐUR Gufuketill til sölu Collins Walker ES 40 Kw 270 Amp 390 árg. 1998. Gufuketillinn, rafmagns- skápur og fæðivatnsgeymir er allt á einni undirstöðu. Notaður í 3 ár. Stærð 1,40x1,40. Hæð 2 m. Upplýsingar í síma 462 2580. Höfði ehf. Dalir | Ungmenna- og tómstundabúðirnar á Laugum í Sælingsdal í Dalasýslu fara vel af stað, að sögn Bjarna Gunnarssonar forstöðu- manns. Markmið þeirra er að hvetja börn til að vera virk í félags- og tómstundastarfi. Ungmennafélag Íslands stendur fyrir búð- unum í samvinnu við Dalabyggð og fleiri aðila. Fyrsti hópurinn kom um miðjan janúar og eru þrjátíu til sjötíu börn úr níunda bekk grunn- skóla í búðunum, yfirleitt í tæpa viku í senn. Skólahaldi var hætt á Laugum fyrir fáein- um árum. Húsnæðið er nýtt til hótelrekstrar á sumrin en hefur staðið autt síðustu vetur nema íþróttaaðstaðan sem nýtt er til kennslu grunnskólabarna héraðsins. Félagsstörf og einkafjármál Undirbúningur að stofnun ungmenna- og tómstundabúða á vegum Ungmennafélags Ís- lands hefur staðið yfir í rúmt ár. Búðirnar eru reknar í anda hugmyndafræði UMFÍ. Mark- mið þeirra er að efla sjálfstraust þátttakenda, samvinnu og tillitssemi. Hvetja til sjálfstæðra vinnubragða. Kynnast heimavistarlífi. Fræð- ast um söguslóðir og kynnast landinu og nán- ast umhverfi. Þannig er kynning á Laxdælu og sögu Eiríks rauða og í þeim tilgangi hafa hóparnir heimsótt Eiríksstaði í Haukadal. Börnin eru frædd um mikilvægi forvarna og unnið er markvisst gegn einelti. Þá eru þau frædd um mikilvægi hollra lifnaðarhátta og jaðaríþróttir kynntar. Táningarnir læra að vera þátttakendur í fé- lagsstörfum í anda UMFÍ. Rík áhersla verður lögð á að námið nýtist þegar heim er komið þannig að þátttakendur geti stofnað og starf- rækt nemendafélög eða aðra félagstengda starfsemi og Bjarni Gunnarsson segir að þessi fræðsla geti einnig nýst þeim í starfi ung- menna- og íþróttafélaga. Það er nýjung að þátttakendur fá fræðslu um grundvallaratriði í stjórnun einkafjármála. Kynnt verður mikilvægi þess að fara með pen- inga, huga að skipulagningu fjármála og eyða ekki um efni fram heldur reyna að leggja fyr- ir. Fyrsti hópurinn var frá grunnskólum á Vesturlandi og segir Bjarni að starfið hafi gengið afar vel til þessa. Skólarnir á Vest- urlandi eru duglegir að nýta sér þjónustuna og í nágrannahéruðum. Einnig hafa skólar af höfuðborgarsvæðinu boðað komu sína. Á næstunni kemur síðan hópur úr skólunum í Hornafirði og var það raunar fyrsti hópurinn sem bókaði vist í ungmennabúðunum. Skemmtilegt verkefni Bjarni Gunnarsson er Grenvíkingur sem hefur starfað sem íþrótta- og æskulýðsfulltrúi á Dalvík undanfarin fjórtán ár. Hann fékk árs leyfi frá starfi til að vinna að þessu verkefni og segir að það sé skemmtilegt. Þá hafi Dala- menn tekið sér afar vel. Ungmennabúðirnar á Laugum eru mik- ilvægt innlegg í atvinnulíf svæðisins. Bjarni segir að þar séu nú sjö til átta starfsmenn og með aukinni starfsemi býst hann við að störf verði fyrir tíu til tólf. Ungmenna- og tómstundabúðir í anda UMFÍ teknar til starfa á Laugum í Sælingsdal Læra að stjórna nemendafélögum Saman Táningar úr grunnskólunum á Vesturlandi voru fyrstu vikuna í ungmenna- og tóm- stundabúðunum á Laugum í Sælingsdal og virtust njóta lífsins fram í fingurgóma. LANDIÐ AKUREYRI LÍLEGT var efst í Kaupvangs- stræti í gær, Gilinu svonefnda. Þar var unnið hörðum höndum við að breyta gömlu kartöflu- geymslunni í arkitektastofu. Þar sem bæjarbúar geymdu áður kartöflur sínar að vetrarlagi hyggst Logi Már Einarsson, arki- tekt hjá Kollgátu, senn setjast niður með teikningar sínar og há- leitar hugmyndir. Smiðir sem nú starfa við breytingarnar eru í góðum félagsskap því í næsta ná- grenni eru börn að leik, krakk- arnir í Brekkuskóla að skemmta sér konunglega í frímínútum. Renndu sér á rassinum í snjónum sem fest hefur á ný norðan heiða. Morgunblaðið/Kristján Líflegt í Gilinu Klippihljóðverk | Baldvin Ring- sted opnar sýningu í Kunstraum Wohnraum í Ásabyggð 2 á Akureyri á morgun, sunnudaginn 6. febrúar. Baldvin Ringsted útskrifaðist frá Myndlistaskólanum á Akureyri 2004 en var auk þess gestanemi við Lahti polytechnic school of art í Finnlandi. Þetta er þriðja einkasýning Bald- vins en hann hefur einnig tekið þátt í nokkrum samsýningum. Á sýningunni í Kunstraum Wohn- raum gefst gestum kostur á að spegla sig í nýju klippihljóðverki þar sem hann notast m.a. við textabrot úr ævintýrum og fegurðarsam- keppnum. Sýningin stendur til 21. apríl. „ÞETTA er mikill og stór dagur,“ sagði Halldór Blöndal, forseti Al- þingis, á stofnfundi Norðurvegar ehf. í gær, en hann hefur lengi talað fyrir lagningu hálendisvegar milli Reykjavíkur og Akureyrar. Til- gangur félagsins er að vinna að því að lagður verði vegur úr Skaga- firði um Stóra- sand, Arnar- vatnsheiði og Kaldadal sem stytti umrædda leið um 81 kíló- metra. Hlutafé er 11 milljónir króna og hefur stjórn heimild til að hækka það í 15 milljónir. Stofn- endur félagsins eru KEA sem legg- ur fram 5 milljónir, Akureyrarbær, 3 milljónir; Hagar, 2 milljónir; Kjarnafæði, hálfa milljón; Gúmmí- vinnslan, 200 þúsund, og Brauðgerð Kr. Jónssonar, Norðlenska mat- borðið og Trésmiðjan Börkur með 100 þúsund krónur en að auki hefur Norðurmjólk ákveðið að taka þátt í stofnun félagsins þannig að hluthaf- ar eru þegar orðnir 9 talsins. Í stjórn félagsins voru kjörnir þeir Andri Teitsson formaður og Eiður Gunnlaugsson og Jóhannes Jónsson meðstjórnendur. Skiptir sköpum fyrir vöxt Akureyrar Fram kom í ávarpi Halldórs að nú þegar félagið hefði verið stofnað yrði hafist handa við að vinna að því að vegurinn yrði lagður og nefndi hann að bændur frammi í Skaga- firði og í Borgarfirði væru jákvæðir í garð hugmyndarinnar. Halldór sagði styttingu vegarins milli Ak- ureyrar og Reykjavíkur geta skipt sköpum varðandi vöxt og viðgang Akureyrar. Birgir Guðmundsson, umdæmis- stjóri Vegagerðarinnar á Akureyri, nefndi í erindi sínu á stofnfundinum að ef miðað væri við að 700 bílum yrði ekið eftir veginum daglega gæti stytting leiðarinnar sparað vel á annan milljarð króna á ári. Fór hann yfir helstu hugmyndir manna um hálendisveg, en fjórar slíkar hafa verið til athugunar og nemur kostnaður við vegagerð frá 4,4 til 6,8 milljörðum króna eftir því hver yrði fyrir valinu. Birgir kynnti einn- ig þær hugmyndir sem verið hafa í umræðunni varðandi styttingu hringvegarins á þjóðvegi 1 milli Ak- ureyrar og Reykjavíkur, m.a. um Svínavatn, sunnan Blönduóss og að fara sunnan Varmahlíðar í Skaga- firði en um yrði að ræða um 19 kíló- metra styttingu. Kostnaður er áætl- aður 1,4 milljarðar króna en sparnaður við þessa styttingu gæti numið á annan milljarð króna á ári. Hápunktur leiðarinnar er á Stórasandi, 798 metrar, en um 15 kílómetrar af hálendisveginum yrðu í yfir 700 metra hæð. Til saman- burðar má nefna að um Öxnadals- heiði er farið í 540 metra hæð og rúmlega 400 á Holtavörðuheiði. Svipaður vindhraði en meira frost Tvær veðurstöðvar voru settar upp á liðnu haust, á Arnarvatns- heiði og Eyvindarstaðaheiði. Fram kom í máli Birgis að mælingar sýndu að vindhraði þar var 12 og 13 metrar á sekúndu 3. janúar síðast- liðinn, en það var sami vindhraði og mældist á Öxnadals- og Holtavörðu- heiði. Hitastigið reyndist hins vegar nokkuð hærra á væntanlegum há- lendisvegi og munaði þar 3 gráðum. Frostið var þar 7 gráður en mældist 4 gráður á Öxnadals- og Holta- vörðuheiði. „Það er erfitt að segja til um hvaða áhrif þetta getur haft, eflaust er snjórinn meira á hreyf- ingu í þessum kulda, þannig að gera má ráð fyrir meiri skafrenningi,“ sagði Birgir, en benti jafnframt á að ofsaveður væru fátíð og gera mætti ráðstafanir í kjölfar þeirra, s.s. að loka veginum fyrir umferð. Vilja stytta leiðina milli Akureyrar og Reykjavíkur Skiptir sköpum fyrir viðgang Akureyrar Morgunblaðið/Kristján Stofnfundur Halldór Blöndal, Jóhannes Jónsson og Eiður Gunnlaugsson ræða málin á stofnfundi einkahlutafélagsins Norðurvegar sem haldinn var í gær á Akureyri. Birgir Guðmundsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.