Morgunblaðið - 05.02.2005, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 05.02.2005, Blaðsíða 24
Akureyri | Suðurnes | Austurland | Árborgarsvæðið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Bolvíkingar héldu sitt þorrablót fyrsta laugardag í þorra eins og þeir hafa gert í tæpa sex áratugi. Þorrablót í Bolungarvík ku vera alveg einstök hér á landi. Þau byggjast á mjög föstum og ófrávíkjanlegum hefðum, svo sem að enginn fær þar inngöngu nema vera í hjónabandi eða fastri sambúð. Allar konur klæðast íslenska þjóðbúningnum og þó ekki sé það skilyrði enn sem komið er, þá klæðast langflestir karlmenn íslenska karlabúningn- um. Þessi klæðnaður þorrablótsgesta setur svip á samkomuna. Snæddur er hefðbundinn þorramatur úr trogum sem gestir koma með með sér og eru gjarnan nokkur hjón saman um trog og eru þá kallaðir trogfélagar. Mörg dæmi eru um að sama fólkið hafi verið trog- félagar í áratugi. Það eru eiginkonurnar í bænum sem bjóða til blótsins og nefnd á þeirra vegum sér um alla framkvæmd þess og ekki er fjarri lagi að litið sé á formennsku í þeirri nefnd sem eina mestu virðingarstöðu bæjarins. Nefndarkon- ur semja og sviðsetja annál síðasta árs þar sem menn og málefni bæjarins eru skoðuð í spéspegli. Um tvö hundruð gestir sóttu þorrablótið að þessu sinni og er það mál manna að aldrei hafi verið skemmtilegra blót haldið en tekið skal fram að menn hafa haft þetta að segja eftir hvert þorrablót hér í Bol- ungarvík.    Nú eru bolludagur, sprengidagur og ösku- dagur handan helgarinnar en þá daga er ævagömul hefð fyrir því hér í Bolungarvík að börnin í bænum fari „á maska“ eins og það er kallað. Krakkarnir setja sig í gervi með því að klæðast furðufötum og setja á sig grímur. Síðan er farið um bæinn í misstórum hópum og bankað upp á hjá fólki og hafðir uppi leik- rænir tilburðir með eða án söngs. Oftar en ekki er gaukað að þeim ýmiss konar sætind- um að launum. Það fer svo eftir ýmsu hvort og hve mikið af sætindum maskarnir ná að afla á einni kvöldstund. Það er æði misjafnt hversu margir endast til að fara á maska öll þrjú kvöldin, en hér áður og fyrr var sú regla að alls ekki mætti hrekkja maskana fyrstu tvö kvöldin en að kvöldi öskudags mátti stríða þeim sem þá voguðu sér á maska. Þetta er nú aflagt og krakkarnir eru frið- helgir öll þrjú kvöldin, kjósi þeir að fara út á maska. Eftir því sem næst verður komist er þessi siður ekki víða þekktur þó víða um land syngi börn í fyrirtækjum og fái sælgæti. Úr bæjarlífinu BOLUNGARVÍK EFTIR GUNNAR HALLSSON FRÉTTARITARA Félag skógarbænda áFljótsdalshéraðihefur ákveðið að blása til mikillar skóg- arhátíðar 25. júní næstkom- andi. Þennan dag ætla skógarbændur að kynna þá fjölbreyttu starfsemi sem þeir standa fyrir á Héraði, kynntar verða alls kyns hefðbundnar og óhefð- bundar skógarafurðir, boð- ið verður upp á skemmtun af ýmsu tagi og keppt í hin- um ýmsu greinum sem tengjast starfinu. Dagurinn hefur vinnuheitið Skóg- ardagurinn mikli og um leið og kynnt verður það sem skógarbændur eru að gera í dag, verður höfðað til ára- langrar sögu skógræktar á Héraði. Markmiðið er að hér verði um árvissan skóg- ardag að ræða og metnaður skógarbændanna er mikill og stefnt að stórhátíð með fjölda gesta og miklu fjöri. Frá þessu segir á vef Fljótsdalshéraðs, egilsstað- ir.is. Skógardagur Minnismerki um þýska sjómenn sem drukknaðhöfðu við Íslandsstrendur var fyrir örfáumárum komið fyrir ofan Víkurfjöru, en nokkrir áhugasamir Þjóðverjar stóðu fyrir því í samvinnu við heimamenn. Nú er svo komið að merkið er í hættu vegna landbrots í fjörunni. „Við létum undan þrýstingi Þjóðverjanna, þeir vildu endilega setja merkið þarna upp, en fyrirfram var vitað að hætta gæti skapast vegna landbrotsins,“ sagði Sveinn Pálsson, sveitarstjóri í Mýrdalshreppi. Hann sagði auðvelt að færa minnis- merkið ofar í landið og yrði það eflaust gert og því þá komið fyrir á varanlegum stað. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Minnismerki í hættu Einar Kolbeinssonlas um ævintýrihvolpsins Basils fursta og kattarins og orti: Gæludýrin gleðja og styrkja, en gerast stundum nokkuð brött, og þegar fara þau að yrkja, þá fer allt í hund og kött. Nú líður að þorrablóti Kvæðamannafélagsins Ið- unnar, sem haldið verður á Grand hóteli í kvöld. Að vanda verður ýmislegt til gamans gert og kveð- skapurinn þó að sjálf- sögðu í fyrirrúmi. Í fyrra fékk Jói í Stapa yrkis- efnið „lífeyrir“ í vísnaleik og orti: Laganna loddarar svara, lífeyrisþeginn skal spara. Ellinnar ár, sem útslitinn klár, má úti á klakanum hjara. Honum var einnig gert að segja „sitt álit“, eins og það var orðið, og orti: Menn eru að berjast böls í móð, bítast naga og kvarta. Álít samt að íslensk þjóð eigi framtíð bjarta. Af gæludýrum og þorrablóti pebl@mbl.is Akureyri | Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra sagði á fundi um um- hverfismál sem haldinn var á Akureyri í gær að hún myndi kappkosta að hafa sér- staklega gott samstarf við heimamenn varðandi stofnun fyrirhugaðs Vatnajökuls- þjóðgarðs og að þeir gætu tekið þátt í stjórn þjóðgarðsins. Umhverfisráðherra sagði að heimamenn víða, t.d. fólk sem hún hefði rætt við í Mývatnssveit, settu spurn- ingarmerki við stofnun Vatnajökulsþjóð- garðs. Skýringar þeirra væru á þá lund að reynsla þeirra af þjóðgarðinum í Jökuls- árgljúfrum væri ekki nægilega góð. „Ég vil að það sé alveg ljóst að metnaður minn stendur til þess að eiga góð samskipti og samvinnu við heimamenn,“ sagði Sigríð- ur Anna. Hún sagði þjóðgarðinn afar víð- áttumikinn og innan hans yrðu margar af helstu náttúruperlum landsins. „Það verð- ur ekki einungis dýrmætt fyrir okkur Ís- lendinga að eiga þennan þjóðgarð, hann mun einnig draga að fjölda erlendra ferða- manna,“ sagði ráðherra. Þannig myndi til- vist hans skapa atvinnu í byggðarlögunum, en áætlað væri að aukinn fjöldi ferða- manna myndi skapa um fjóra milljarða í auknar gjaldeyristekjur. Þá yrðu settar upp þjónustumiðstöðvar á nokkrum stöð- um innan garðsins þar sem atvinna myndi skapast. „Það er mjög ánægjulegt að þetta starf er allt saman farið af stað.“ Vill eiga gott sam- starf við heimamenn Umhverfisráðherra um Vatnajökulsþjóðgarð Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfis- ráðherra á fundi á Akureyri. Morgunblaðið/Kristján Akureyri | Nemendur á list- námsbraut Verkmenntaskólans á Akureyri héldu þemadaga nú í vikunni og var þemað að þessu sinni endurunnið efni, gamalt varð nýtt. Nemendur fundu til margs konar gamla hluti, föt og úrgang af ýmsu tagi og sköpuðu eitthvað nýtt. Alls voru sex stöðvar í gangi; ofið var úr pappír, grafík, skúlptúr, pappírsgerð, mynd- vinnsluhönnun- og auglýsingar og þá voru ný föt saumuð upp úr þeim gömlu. Afraksturinn var svo sýndur í gær í húsa- kynnum skólans og vakti þar margt athygli gesta. Morgunblaðið/Kristján Gamalt varð nýtt í VMA Listamenn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.