Morgunblaðið - 05.02.2005, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÞJÁLFARAR íslensku landslið-
anna í handknattleik og knatt-
spyrnu hafa ólíka sögu að segja af
munntóbaksnotkun íþróttamanna.
Munntóbaksneyslu íþróttamanna
hefur borið á góma nú í tannvernd-
arviku.
Mjög vaxandi neysla
Viggó Sigurðsson, landsliðsþjálf-
ari í handknattleik, taldi að munn-
tóbaksnotkun væri mjög útbreidd
meðal íþróttamanna og færi vax-
andi. Hann sagðist verða mikið var
við notkun munntóbaks meðal
handknattleiksmanna. „Þetta var
upphaflega tískubylgja sem kom frá
sænska handboltalandsliðinu inn í
handboltann. Þar voru fyrirmynd-
irnar. Þetta er orðið verulega út-
breitt á Norðurlöndum og í Þýska-
landi.“
Viggó telur að munntóbaksnotk-
un sé ekki algengari meðal hand-
knattleiksmanna en annarra
íþróttamanna. Notkunin á munn-
tóbaki sé orðin almenn, eins og á
öðru tóbaki. Bann við sölu þess
hefði ekkert dregið úr notkuninni.
„Ég held að það hafi aldrei verið
stærri markaður en eftir að þetta
var bannað. Þeir [neytendur] segja
manni að þeir geti náð í þetta hvar
sem er.“ Aðspurður kvaðst Viggó
ekki hafa sjálfur neytt munntóbaks
og því ekki þekkja af eigin raun
hvernig er að hætta neyslu. „Ég
hef talað við menn sem hafa hætt
og þeir segja að það sé mjög erfitt
að venja sig af þessu.“
Lítið var við munntóbak
Ásgeir Sigurvinsson, landsliðs-
þjálfari í knattspyrnu, telur að
dregið hafi úr notkun munntóbaks
meðal íþróttamanna. „Það er bann-
að að flytja þetta inn og ég verð lít-
ið var við þetta,“ sagði Ásgeir.
„Þetta var tískufyrirbæri á tímabili
en ég held að það sé að klárast
þetta dæmi.“
Ásgeir kvaðst hafa prófað að
neyta munntóbaks fyrir mörgum
árum. „Ég notaði þetta þegar ég
var erlendis, það eru 10 til 15 ár
síðan. Ég man ekki hvort það var
mjög erfitt að hætta þessu.“
Sala munntóbaks er bönnuð hér
á landi, en það virðist ekki standa í
vegi fyrir notkun þess. Viðmælandi,
sem notar munntóbak en vildi ekki
láta nafns síns getið, sagði ekki erf-
itt að útvega munntóbak. Það væri
til nóg af því hérlendis.
Munntóbaksnotkun mismikið
útbreidd meðal íþróttamanna
SKIPUÐ hefur verið nefnd sem
á að styrkja enn frekar stöðu ís-
lensku fjölskyldunnar, að því er
fram kemur í tilkynningu frá
forsætisráðuneytinu. Ekki eru
tímamörk á störfum nefndar-
innar, sem mun hefja störf á
næstu dögum.
Í tilkynningu frá forsætis-
ráðuneytinu segir, að skipanin
komi í framhaldi af áramóta-
ávarpi Halldórs Ásgrímssonar
forsætisráðherra, þar sem hann
vék að stöðu fjölskyldunnar og
sagðist hafa ákveðið að setja af
stað vinnu við að meta stöðu ís-
lensku fjölskyldunnar. Á ríkis-
stjórnarfundi 11. janúar sl. var
ákveðið að skipa nefnd í þessu
augnamiði.
Nefndina skipa: Árni Sigfús-
son og Björk Vilhelmsdóttir, til-
nefnd af Sambandi íslenskra
sveitarfélaga, Björn B. Jónsson,
tilnefndur af Ungmennafélagi
Íslands, Elín Thorarensen, til-
nefnd af Heimili og skóla,
Fanný Gunnarsdóttir, tilnefnd
af félagsmálaráðherra, Guðný
Eydal, tilnefnd af menntamála-
ráðherra, Ingibjörg Pálmadótt-
ir, tilnefnd af heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra, séra
Ólafur Jóhannsson, tilnefndur
af dóms- og kirkjumálaráð-
herra, Ragnheiður E. Árnadótt-
ir, tilnefnd af fjármálaráðherra,
Stefán Snær Konráðsson, til-
nefndur af Íþrótta- og ólympíu-
sambandi Íslands, og séra Þor-
valdur Karl Helgason, til-
nefndur af biskupi Íslands.
Formaður nefndarinnar,
skipaður af forsætisráðherra,
er Björn Ingi Hrafnsson, að-
stoðarmaður forsætisráðherra,
og starfsmenn nefndarinnar
eru einn fulltrúi forsætisráðu-
neytisins og Björg Kjartans-
dóttir, deildarsérfræðingur í fé-
lagsmálaráðuneytinu.
Skipuð
nefnd um
stöðu ís-
lensku fjöl-
skyldunnar
MIKILVÆGT er að koma í veg
fyrir að einkagögn fyrrverandi
stjórnmálamanna, lifandi og lát-
inna, glatist, að mati Arnar Hrafn-
kelssonar, forstöðumanns hand-
ritadeildar Landsbókasafns
Íslands. Nú er hafið átak á vegum
safnsins sem miðast að því að
kanna hvar slík einkagögn kunna
að liggja.
„Við erum að bjarga heimildum
ef svo má segja,“ sagði Örn í sam-
tali við Morgunblaðið. Þetta á ekki
síst við um einkagögn látinna
stjórnmálamanna. „Þegar komin er
önnur eða þriðja kynslóð frá
stjórnmálamanni sem t.d. var uppi
á fyrri helmingi síðustu aldar er
óvíst hvar gögnin lenda. Maður
hefur heyrt af því að slíkum einka-
gögnum hafi verið hent. Aðalatrið-
ið nú er að láta vita að við erum að
safna þessu. Við skráum gögnin og
göngum frá þeim til geymslu þann-
ig að þau verði aðgengileg kom-
andi kynslóðum.“
Ætlunin er að hafa samband við
fyrrverandi stjórnmálamenn, sem
enn eru á lífi, og afkomendur lát-
inna stjórnmálamanna og kanna
hvort hjá þeim séu einkagögn sem
þeir eru fúsir til að varðveita í
safninu, að sögn Arnar. Opinber
gögn, það er skjöl sem verða til í
opinberri þjónustu eins og þegar
stjórnmálamaður í opinberu emb-
ætti skrifar bréf í nafni embættis
síns, á að geyma á Þjóðskjalasafni.
Átak Landsbókasafnsins miðast að
því að safna saman einkaskjölum,
svo sem dagbókum og einkabréf-
um.
Örn segir að ýmsir fyrrverandi
stjórnmálamenn og afkomendur
látinna stjórnmálamanna sýni
þessu áhuga þegar eftir gögnum er
leitað. Þeir sem enn eru á lífi eru
sumir að nota sín einkagögn. Aðrir
afhenda gögnin með skilyrðum.
Hægt er að takmarka notkun
einkagagna og hafa verið farnar
nokkrar leiðir í því. Sumir loka að-
gangi almennt að gögnunum með-
an þeir eru ofan moldar, en ljá þó
máls á að veita undanþágur frá því
banni, t.d. í þágu rannsókna. Slíkar
undanþágubeiðnir eru þá vegnar
og metnar hver um sig.
Handritadeild Landsbókasafns safnar
einkagögnum stjórnmálamanna
Aðalatriðið að
forða gögnum
frá glötun
VAKA, félag lýðræðissinnaðra
stúdenta við Háskóla Íslands, hélt í
gær upp á 70 ára afmæli félagsins. Í
tilefni afmælisins var mikið um að
vera í byggingum HÍ að sögn Ing-
unnar Guðbrandsdóttur, formanns
Vöku. Vökuliðar buðu síðan stúd-
entum upp á afmælisköku í hádeg-
inu og rifjuðu upp sögu félagsins
fyrir stúdentum. Dagurinn endaði
með dansleik þar sem Vökuliðar
skemmtu sér saman.
Vaka var stofnuð 4. febrúar árið
1935 til höfuðs uppgangi róttækra
þjóðernissinna og róttækra sósíal-
ista í Háskóla Íslands. Hún hefur
jafnan verið stærsta stúdentafylk-
ingin í stúdentaráði og hefur lengst
af leitt hagsmunabaráttuna. Fyrst
og fremst hefur Vaka þó ávallt
staðið vörð um þá hugmyndafræði
að stúdentaráð HÍ eigi að hafa það
hlutverk að gæta hagsmuna stúd-
enta, segir í tilkynningu frá Vöku.
Árni Helgason, kosningastjóri Vöku, Heiðdís Halla Bjarnadóttir, varaformaður Vöku, og Ingunn Guðbrands-
dóttir, formaður Vöku, gæddu sér á tertu í tilefni afmælisdagsins sem haldinn var hátíðlegur í gær.
70 ára afmæli Vöku fagnað
UM 500 manns frá 17 löndum sitja um þessar mundir ferðakaupstefnu á veg-
um Icelandair en tilgangur hennar er að tengja saman kaupendur og selj-
endur ferðaþjónustu í Bandaríkjunum og Evrópu. Talsmenn Icelandair segja
kaupstefnuna mikilvægan lið í því að viðhalda og auka ferðamannastraum til
Íslands. Í frétt frá Icelandair kemur fram að þátttakendur nú séu fleiri en
nokkru sinni, bæði þeir sem hafi sótt hana oft áður og nýir fulltrúar, t.d. frá
Ísrael, Hong Kong, Taívan, Kína og Japan. Eru þátttakendur fulltrúar ferða-
skrifstofa, hótela, bílaleiga og skemmtigarða svo nokkuð sé nefnt. Einnig
taka þátt í kaupstefnunni fulltrúar frá ferðamálaráðum á Norðurlöndunum
og frá þeim svæðum og borgum í Norður-Ameríku sem Icelandair flýgur til.
Ferðakaupstefnunni lýkur á morgun en auk kynningarfunda er m.a. boðið
upp á stuttar ferðir og þemakvöld.
Í dag, laugardag, verður síðan ferðakynning fyrir almenning í Kringlunni í
Reykjavík milli kl. 11 og 15. Ferðamálaráð og ýmsir ferðaþjónustuaðilar frá
Bandaríkjunum, Danmörku og Skotlandi munu kynna svæði sín og ferða-
möguleika þar og gestum býðst að taka þátt í getraunum.
Morgunblaðið/ÞÖK
Um 500 manns á ferðakaupstefnu