Morgunblaðið - 05.02.2005, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 05.02.2005, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2005 51 DAGBÓK HLJÓMSVEIT Tón- listarskólans í Reykja- vík heldur tónleika í Neskirkju kl. 17 í dag. Á efnisskrá tón- leikanna eru verkin Marosszeki Tancok eftir Zoltan Kodály, Zigeunerweisen op. 20 fyrir fiðlu og hljóm- sveit eftir Pablo de Sarasate, Meditation úr „Thais“ fyrir fiðlu og hljómsveit eftir Jules Massenet og Sin- fónía nr. 3, „Eroica“, eftir Ludwig van Beethoven. Í Zigeunerweisen og Meditation úr „Thais“ er Geirþrúður Ása Guð- jónsdóttir einleikari á fiðlu, en hún er nemandi Auðar Hafsteinsdóttur, kennara við Tónlistarskólann í Reykjavík. Konsertmeistari á tón- leikunum er Sólrún Gunnarsdóttir og að- stoðarkonsertmeistari Júlía Traustadóttir. Stjórnandi er Gunn- steinn Ólafsson. Andi sígaunatónlist- arinnar svífur yfir vötnum á tónleikum dagsins, en verkin eiga það sameiginlegt að sækja áhrif sín til þessarar þjóðlaga- tónlistar, þar sem kall- ast á seiðandi lög og leiftrandi dansar, en sígaunatónlistin var á sínum tíma kennd við Ungverjaland, að sögn fyrir vissan misskilning. Þetta eru seinni tónleikar Hljóm- sveitar Tónlistarskólans í Reykja- vík á þessu skólaári. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Sígildir sígaunatónar í Neskirkju Geirþrúður Ása Guðjónsdóttir Félagsstarf Félag breiðfirskra kvenna | Aðal- fundur verður haldin mánudaginn 7. febrúar kl. 20, í Breiðfirðingabúð. Félag eldri borgara, Reykjavík | Leik- félagið Snúður og Snælda hefur fengið inni í Iðnó með æfingar og sýningar, og mun frumsýna 13. febrúar kl. 14. Félag kennara á eftirlaunum | Fræðslu- og skemmtifundur kl. 13.30 í Húnabúð, Skeifunni 11. Stuttur eft- irfundur um NPT-mótið í Kiruna. Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Íþróttafélagið Glóð Kópavogi efnir til hringdansa í Íþróttahúsinu Smáranum í dag kl. 12.15 á hádegi. Allir velkomnir! Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Gönguhópur fer frá Kirkjuhvolskjall- aranum kl. 10.30. Félagsstarf Gerðubergs Alla virka daga kl. 9–16.30 er fjölbreytt dagskrá, m.a. vinnustofur og spilasalur opinn, sungið og dansað. Miðvikud. 9. febr. kl. 14 íþróttahátíð á öskudaginn á vegum F.Á.Í.A. í Íþróttamiðstöðinni við Aust- urberg. M.a. sýnir danshópur undir stjórn Helgu Þórarinsdóttur. Hraunsel | Miðar seldir í leikhúsið á mánudag kl. 11.30–13. Opið hús á fimmtudaginn kl. 14. Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er öll- um opið. Gönguhópur Háaleitishverfis fer frá Hæðargarði 31 alla laugardags- morgna, hvernig viðrar. Boðið upp á teygjuæfingar og vatn að göngu lok- inni. Tilvalin samverustund fyrir alla fjölskylduna. Upplýsingar í síma 568 3132. Íþróttafélagið Glóð | Kópavogi Hringdansar í dag kl. 12.15 í Íþrótta- húsinu Smáranum, Kópavogi. Norðurbrún 1, | Þorrablót verður hald- ið föstudaginn 11. ferbrúar kl. 18.30, minni kvenna Helgi Seljan, minni karla Erla Kristjánsdóttir, einsöngur Sigrún Vala Þorgrímsdóttir, Þorvaldur Hall- dórsson leikur fyrir dansi. Að- göngumiði gildir sem happdrætt- ismiði. Uppl. í síma 568 6960 Allir velkomnir, takið með ykkur gesti. Vesturgata 7 | Framtalsaðstoð frá Skattstjóranum í Reykjavík verður veitt mánudaginn 14. mars. Skráning í síma 535 2740. Uppselt er á þorra- blótið 11. febrúar. Vinsamlegast sækið frátekna miða fyrir þriðjudaginn 8. febrúar. Nánari upplýsingar í síma 535 2740. Kirkjustarf Grafarvogskirkja | Aðalfundur Safn- aðarfélags Grafarvogskirkju verður mánudaginn 7. febrúar kl. 20. Venju- leg aðalfundarstörf, skýrsla stjórnar, endurskoðaðir reikningar, kosning stjórnar og önnur mál. Fundarefni: Kristniboðar segja frá starfi í Eþíópíu. Bollukaffi. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Bæna- stund kl. 20. Bænastundir virka morgna kl. 07–08. Ath., breyttir tímar á morgunbænastundum. KFUM og KFUK | Árshátíð KFUM og KFUK verður laugardaginn 5. febrúar. Miðar seldir á skrifstofu KFUM og KFUK, sími 588 8899. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos KÓR Áskirkju heldur nú um helgina tvenna tónleika í tilefni út- gáfu hljómplötunnar „Það er óska- land íslenskt,“ sem kom út rétt fyr- ir síðustu jól, á hundrað ára afmæli heimastjórnar. Á plötunni, sem er gefin út á geisladisksformi, má heyra íslensk þjóð- og ættjarðarlög í flutningi kórsins, en platan hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda auk tilnefningar til Íslensku tónlist- arverðlaunanna fyrir árið 2004. Plötunni fylgir textabæklingur upp á 64 síður þar sem finna má ævi- ágrip bæði tónskálda og ljóðskálda auk þýðinga á textum á ensku, þýsku og frönsku. Kári Þormar, organisti og kór- stjóri í Áskirkju, segir efnisskrá tónleikanna að mestu leyti sam- anstanda af lögum sem finna má á plötunni. „Einhverju er þó sleppt og öðru bætt við. Við fengum at- hugasemdir við það að þjóðsöng- urinn væri ekki á plötunni, svo við reynum að bæta úr því,“ segir Kári. „Þessa músík einkennir kraftur og þessi aldamóta- og sjálfstæðishug- sjón í bland. Þetta er blanda af ætt- jarðarlögum, þjóðlögum og íslensk- um alþýðulögum frá því um miðja síðustu öld. Alþýðuljóðin hafa lifað með þjóðinni og eru hluti af hennar þjóðarsál, lög sem allir kunna, ann- að hvort lag eða texta og kveikir svolítið í Íslendingnum í manni.“ Fyrri tónleikarnir verða í Ás- kirkju, í dag kl. 17, en þeir seinni í Hásölum, Hafnarfirði á morgun kl. 17. Lög sem hafa lifað með þjóðinni MYNDLISTARMENNIRNIR Bjarni Sigurbjörnsson og Haraldur Karls- son opna í dag kl. 15 sýninguna „Skíramyrkur“ í sölum Hafn- arborgar. Sýningin, sem stendur til 28. febrúar, er innsetning þar sem málverk og hreyfimyndir spila saman og mynda sjónræna heild. Viðfangsefni innsetningarinnar er hið sýnilega yfirborð veruleikans og skynjun áhorfandans sjálfs. Í hinum ýmsu hlutum hennar, mál- verkum og lifandi myndum er leit- ast við að greina tilurð forma og litaflæðis á fleti, í tíma og í þrívíðu rúmi. Í samruna myndhlutanna eru það síðan skynfæri áhorfandans og ferð hans um rýmið sem vekur hugsanir og ímyndunarafl. Í málverkum sínum á plexigler hefur Bjarni Sigurbjörnsson feng- ist við samspil efnis og forma þar sem hið ljósbæra plexigler verður að tilraunaglasi þar sem við getum fylgst með því hvernig form og litir kvikna í átökum þunnfljótandi efn- is: Olíu og vatns. Hreyfimyndir Haraldar Karls- sonar eru ígrundaðar tilraunir um sjónrænt afsprengi, annarsvegar fjölklipptar upptökur af plöntum, skordýrum og spendýrum en hins- vegar sjálfsprottnar afstraksjónir sem svipar til nálgunar Bjarna í málverkunum. Verkunum er jafnt skipt í einnar mínútu tímabil og alls eru myndskeiðin tuttugu og fjögur. Verkin eru tímatengdar rannsóknir á skynrænum mörkum hins sýni- lega og ósýnilega. Sýningin Skíramyrkur opnuð í Hafnarborg Morgunblaðið/ÞÖK Bjarni Sigurbjörnsson listamaður og verk hans. 1. d4 Rf6 2. Bg5 c5 3. d5 Re4 4. Bf4 Db6 5. Bc1 e6 6. f3 Rf6 7. c4 exd5 8. cxd5 c4 9. e3 Bc5 10. Kf2 O-O 11. Bxc4 He8 12. Dd3 d6 13. Rc3 Da5 14. Rge2 Rbd7 15. Bb3 Re5 16. Dc2 Reg4+ 17. fxg4 Rxg4+ 18. Ke1 Rxe3 19. Bxe3 Hxe3 20. h3 Bd7 21. Kd1 Hae8 22. Hf1 b5 23. Rc1 Dd8 24. Rd3 Dh4 25. Kc1 b4 26. Rd1 He2 27. Dc4 H8e4 28. Da6 Dg5+ 29. Kb1 Dxg2 30. Rxc5 dxc5 31. Dxa7 Dxf1 32. Dxd7 He1 33. Da4 Staðan kom upp í B-flokki Corus skákhátíðarinnar sem er nýlokið í sjáv- arbænum Wijk aan Zee í Hollandi. Friso Nijboer (2549) hafði svart gegn heimsmeistara kvenna, Antoanetu Stefanovu (2491). 33... Dd3+! 34. Kc1 Hxd1+! 35. Bxd1 Hc4+ 36. Bc2 Df1+ 37. Kd2 Hd4+ 38. Ke3 Df4+ og hvítur gafst upp enda verður hann mát eftir 39. Ke2 Hd2+ 40. Ke1 Df2#. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Svartur á leik.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.