Morgunblaðið - 05.02.2005, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 05.02.2005, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Síminn úr sögunni? Á endanum verða allir komnir með netsíma, nema þeir sem vilja borga meira fyrir minna á morgun LÖGREGLUNNI í Hafnarfirði var í gær veittur heiðursskjöldur trygg- ingafélagsins Sjóvár fyrir að hafa með markvissum vinnubrögðum und- anfarin tvö ár unnið að því að fækka afbrotum eftir mælanlegum mark- miðum. Sjóvá veitti síðast heiðursskjöld ár- ið 2000 en þá hlaut Björgunarsveitin Garðar og fleiri skjöldinn fyrir fræki- lega björgun fólks af þaki rútu sem lenti í Lindará. Hér eftir mun skjöld- urinn verða veittur árlega, sam- kvæmt upplýsingum frá Sjóvá. Egill Bjarnason yfirlögregluþjónn tók við skildinum úr hendi Árna Gunnarssonar, framkvæmdastjóra tjónasviðs Sjóvár, sem og fjórum stafrænum myndavélum sem lög- reglan fékk að gjöf. Lögreglan í Hafnarfirði fær heiðursskjöld Sjóvár Þingmönnum er fátt óvið-komandi ef marka máumræður á Alþingi. Um-ræðuefnin eru m.ö.o. fjöl- breytt. Í vikunni ræddu þeir, svo dæmi séu tekin, um þriðju kynslóð farsíma, um fjárhagslegan að- skilnað útgerðar og fiskvinnslu, um húðflúrsmeðferð eftir brjósta- krabbamein, um ársreikninga og um bókhald. Vikan byrjaði hins vegar m.a. á umræðum um gjaldfrjálsan leik- skóla. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, mælti fyrir tillögu um að félagsmálaráðherra skipaði nefnd, sem fengi það verkefni, að undirbúa gjaldfrjálsa leikskóladvöl. Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokks, var einn þeirra sem kvaddi sér hljóðs, en hann á það til að koma með öðruvísi sjón- arhorn. Pétur sagðist í grundvall- aratriðum vera á móti tillögu Steingríms. Í fyrsta lagi, sagði hann, vegna þess að það sem væri ókeypis yrði aldrei metið. Síðan sagði hann: „Við erum með fæðing- arorlof sem tekur á tímabili, fyrstu níu mánuðum af æviskeiði barns. Hvað svo? Hvað gerist þegar hann er níu mánaða, litli borgarinn? Þá nefnilega fer hann að heiman í flestum tilfellum. Hann fer að heiman, oft til dagmömmu eða í leikskóla, og hvað á níu mánaða barn að gera að heiman? Þetta held ég að menn hafi ekki hugsað alveg til enda, herra forseti. Ég tel að flest börn hafi ekkert að gera að heiman fyrr en þau eru orðin þriggja ára.“ Pétur sagði m.a. að kostnaður sveitarfélaga við gæslu barna væri gífurlegur og að atvinnulífið þyrfti að taka miklu meira tillit til þess að fólk ætti börn. „Einhver verður að sjá um börnin fyrstu þrjú árin. Þetta á atvinnulífið að gera með því að gera störfin sveigjanleg, miklu sveigjanlegri en þau eru í dag þannig að annað foreldranna geti unnið fyrir hádegi og hitt eftir hádegi sem er mjög skemmtilegt, að vera hálfan daginn með barn og hálfan daginn í vinnu, og geti jafn- vel unnið eitthvað heima við með tölvum og öðru slíku. Þetta er allt hægt ef vilji er fyrir hendi.“ x x x Síðar í vikunni ræddu þing-menn um skýrslu fjár-málaráðherra, Geirs H. Haarde, um umfang skattsvika. Skýrslan var lögð fram á Alþingi fyrir jól, og kom því lítið nýtt inn í þá umræðu nú. Steingrímur J. Sig- fússon hreyfði þó athyglisverðu máli er hann ræddi um fjölgun einkahlutafélaga. Hann gagnrýndi í fyrstu reglur um einkahlutafélög og sagði að það væri stórfelld hætta á því að menn reyndu að færa launatekjur sínar og hagnað sinn í gegnum slík félög. Síðan sagði hann: „Dæmi um það er bát- ur í verstöð hér í landinu sem hef- ur enga áhöfn […]. Það er bátur fyrir vestan okkur sem hefur enga áhöfn. Um borð eru hins vegar fimm einkahlutafélög, enginn mað- ur, bara fimm kennitölur, fimm einkahlutafélög. Þannig er ástandið sums staðar að verða.“ Því má bæta við að talsverð um- ræða varð í þjóðfélaginu sl. haust um fjölgun einkahlutafélaga, eins og margir eflaust muna. Kom þá m.a. fram að jaðarskattur ein- staklings, sem gat tekið út hluta af launum sínum í formi arðs hjá einkahlutafélagi, væri 26,2%, en skattbyrði venjulegs launamanns væri 38,6%. (Hefur hún lækkað um eitt prósentustig síðan þá.) x x x En að lokum. Óhætt er aðsegja að Guðni Ágústsson,landbúnaðarráðherra og varaformaður Framsóknarflokks- ins, hafi orðið valdamikill í vikunni. Að nafninu til að minnsta kosti. Halldór Ásgrímsson forsætisráð- herra fór nefnilega í frí til útlanda. Við það varð Guðni staðgengill for- sætisráðherra. Davíð Oddsson utanríkisráðherra og Halldór hafa síðustu árin leyst hvor annan af, en þar sem Davíð er einnig í leyfi erlendis kom það í hlut varaformanns Framsóknar- flokksins að starfa sem forsætis- ráðherra í fjarveru Halldórs. Vara- formaður Sjálfstæðisflokksins, Geir H. Haarde, varð jafnframt stað- gengill utanríkisráðherra, þegar Halldór fór utan. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, fór einnig af landi brott í lok vikunnar. Þar með varð Guðni, í ljósi þess að hann gegndi störfum forsætisráðherra, einn af handhöfum forsetavaldsins. Guðni verður þó ekki lengi með „þessi völd“ því Halldór er væntanlegur heim um helgina.      Leikskólabörn og bátur með fimm einkahlutafélög EFTIR ÖRNU SCHRAM ÞINGFRÉTTAMANN arna@mbl.is „ÉG geri ráð fyrir því að minni- hluti þessara ferðalaga séu beinar auglýsingaferðir um tiltekin lyf enda hafa allir vel hugsandi læknar miklar efasemdir um að slík ferða- lög séu við hæfi,“ segir Sigurbjörn Sveinsson, formaður Læknafélags Íslands, þegar hann er spurður út í utanlandsferðir lækna á kostnað lyfjafyrirtækja. Í skriflegu svari heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, Jóns Kristjánssonar, við fyrirspurn Ástu R. Jóhannesdóttur, þing- manns Samfylkingarinnar, kemur fram að lyfjafyrirtæki hafi boðið ís- lenskum læknum í að minnsta kosti 469 ferðir á síðasta ári. Sigurbjörn bendir á að utan- landsferðir lækna á kostnað lyfja- fyrirtækja séu margs konar. Í þeim séu læknar m.a. að fara á fyrir- lestra eða taka þátt í rannsóknum. Hann bendir í þessu sambandi m.a. á samning Læknafélags Ís- lands og Samtaka verslunarinnar, um samstarf lækna og fyrirtækja sem framleiða og flytja inn lyf. Í samningnum segir m.a. að læknar geti þegið styrki frá lyfjafyrirtækj- um til að sækja fræðslufundi er- lendis sem þjóni eðlilegum mark- miðum viðhalds- og endurmennt- unar lækna um lyf og notkun lyfja. „Eðlilegt er að útlagður kostnaður læknis sé greiddur vegna ferða og gistingar. Sá kostnaður skal al- mennt vera hóflegur,“ segir í samningnum. Síðan segir: „Ekki er við hæfi að bjóða eða þiggja ferðir sem hafa að höfuðmarkmiði að koma fram- leiðslu lyfjafyrirtækjanna á fram- færi.“ Ættu að rjúfa tengslin Sveinbjörn gerði samskipti lækna og lyfjafyrirtækja að um- talsefni í leiðara Læknablaðsins í apríl á síðasta ári. Þar sagði hann að læknar ættu að rjúfa tengsl risnu og fræðslu sem hann taldi auðmýkjandi og andlega heilsu- spillandi. Hann sagði að læknar myndu þó eiga erfitt með að sætta sig við samdrátt í fræðslustarfi og símenntun nema eitthvað kæmi í staðinn. „Afla þarf skilnings þeirra meðal annars með framtaki við endurmenntun þeirra á annan hátt. Lyfjareikningur landsmanna er vel á annan tug milljarða. Yrði til dæmis 0,1% þeirrar upphæðar var- ið til sameiginlegrar endurmennt- unar lækna gætu áhugamenn um heppilegri samskipti lækna og lyfjafyrirtækja átt von um betri tíð með blóm í haga.“ Fæstar ferðirnar beinar auglýs- ingaferðir EKKI er heimilt samkvæmt lögum um vörugjald af ökutækjum, elds- neyti og fleiru að undanþiggja bensín sem notað er á báta vörugjaldi, sam- kvæmt svari fjármálaráðuneytisins við fyrirspurn Morgunblaðsins. Til- efni spurningarinnar er bréf til blaðs- ins sl. miðvikudag þar sem Pétur Sig- urðsson, bátaeigandi á Reyðarfirði, telur það óréttlátt að þurfa að greiða sama verð á bátabensín og bíleigend- ur. Telur hann það rétt sinn að þurfa ekki að greiða vegaskatt af bátabens- íni þar sem bátnum sé ekki ekið á veg- um landsins. Morgunblaðið fékk þau svör í fjár- málaráðuneytinu að samkvæmt III. kafla laga nr. 29/1993, um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., skuli greiða vörugjald af eldsneyti, bæði greiða almennt vörugjald, sbr. 14. gr. laganna, og sérstakt vörugjald, sbr. 15. gr. laganna. Af 2. mgr. 15. gr. sömu laga megi sjá að tekjur vegna sérstaks vörugjalds af bensíni skuli renna til vegagerðar samkvæmt vegaáætlun, að frádregnum 0,5% sem renna í ríkissjóð til að standa straum af kostnaði við álagningu og inn- heimtu gjaldsins. Þá segir í svarinu að ekki sé að finna heimild í lögum til að undanþiggja bensín sem notað er á báta vörugjaldi. Að óbreyttu séu eng- in áform í ráðuneytinu um breytingar á umræddum lögum hvað þetta varði. Ekki heim- ilt að und- anþiggja bátabensín
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.