Morgunblaðið - 05.02.2005, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 05.02.2005, Blaðsíða 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Heilsukoddar Heilsunnar vegna Opi› í dag laugardag frá kl. 11-16 VETURINN ræður ríkjum í Skagafirði um þessar mundir eins og sjá má. Hrossin, sem þar ganga úti, fá ekki aðeins næringu úr heyinu heldur einn- ig skjól af því. Í gær var þar kuldalegt um að litast en íslensk hross eru harðgerð og ýmsu vön og láta ekki vetrarveðrin mikið á sig fá. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Hey í harðindum Ákvað að stofna Grimsey Records í Grímsey ANDREA Troolin, sem starfrækir hljómplötu- útgáfuna Grimsey Records í Minnesota í Bandaríkjunum, tók ákvörðunina um að stofna fyrirtækið er hún var stödd við vitann í Grímsey árið 1994. Þetta sumar var hún í jarðfræðileiðangri hér á landi ásamt samnemendum sínum. Einn daginn, þegar nemendurnir fengu frí frá fræði- legri vinnu, brá hún sér til Grímseyjar ásamt nokkrum vinum sínum. Þar ákvað hún að hætta í jarðfræði og helga frekar líf sitt hljómplötuútgáfu. Rætt er við Andreu um þessa ákvörðun og útgáfufyr- irtækið Grimsey Records í Lesbók Morg- unblaðsins í dag. NÝR kjarasamningur Rafiðnaðarsambandsins og Símans vegna félagsmanna Félags íslenskra símamanna var undirritaður fyrir hádegi í gær. Alls starfa um 800 rafiðnaðarmenn eftir samningnum. Guðmundur Gunnarsson, formaður RSÍ, segir að lágmarkslaun hækki verulega, um 20– 30%, og sé með því verið að færa lágmarks- launin nær því sem gengur og gerist á mark- aðinum. „Það er gert vegna þeirrar stöðu sem hefur verið að skapast á íslenskum vinnumark- aði. Í aðgerðaleysi stjórnvalda hafa fyrirtæki verið að flytja hér inn vinnuafl og nýta sér al- gerlega þessa lágmarkstaxta. Við vorum lengi vel í fararbroddi í baráttunni fyrir þessu svo- kallaða markaðslaunakerfi, sem aðgerðarleysi félagsmálaráðuneytisins er í raun og veru að leggja í rúst. Þá er ekki nema ein leið, og það er sama leið og hefur verið farin annars staðar í Evrópu, og það er að lyfta upp gólfum þar til þau eru komin í grennd við þar sem raunlaun eru.“ Að öðru leyti segir Guðmundur að samning- urinn sé svipaður og þeir samningar sem gerð- ir hafa verið undanfarið, launakostnaðaraukinn á næstu fjórum árum verði 18–19%, og þar fyr- ir utan komi til kostnaður vegna lífeyrissjóðs- breytinga. Greidd verða atkvæði um samning- inn í næstu viku. Eins og fram hefur komið var samningur RSÍ við Símann vegna 250 rafeindavirkja og símsmiða felldur fyrir skömmu. Samkvæmt upplýsingum RSÍ er búið að fara yfir helstu ágreiningsatriði og gera má ráð fyrir að við- ræðum ljúki eftir helgi. Rafiðnaðarsamband Íslands hefur náð samningum við Símann Hækkun lágmarkslauna 20–30% á samningstíma Lyfta lágmarkstöxtum í átt til markaðslauna FIMM verktakafyrirtæki skiluðu tilboðum til Orkuveitu Reykjavíkur í stöðvarhús og ýmis önnur mann- virki Hellisheiðarvirkjunar. Kostn- aðaráætlun hljóðaði upp á rúma 2,2 milljarða króna og þegar tilboð voru opnuð nýlega kom í ljós að eingöngu 34 milljónir skildu að tvö lægstu fyr- irtækin. ÞG verktakar buðu 1.964 milljón- ir króna en Keflavíkurverktakar buðu 1.998 milljónir. Að sögn Eiríks Bragasonar, staðarverkfræðings Hellisheiðarvirkjunar, er verið að yfirfara tilboðin og ákvörðunar að vænta á næstunni við hvaða verk- taka verður samið. Á framkvæmd- um að vera lokið í maí árið 2006. Aðrir verktakar sem skiluðu til- boðum voru Ístak með 2.266 millj- ónir, Íslenskir aðalverktakar með 2.370 milljónir og Eykt með 2.438 milljónir. Auk stöðvarhúss felst framkvæmdin m.a. í að reisa áhaldahús, tvær skiljustöðvar, tvö lokahús, vatnsgeymi og þrær fyrir kæliturna. Heildargrunnflötur bygginga er um 13 þúsund fermetr- ar. Fimm tilboð bárust í Hellisheiðarvirkjun Orkuveitu Reykjavíkur Lítill munur lægstu tilboða Tölvumynd af stöðvarhúsi Hellisheiðarvirkjunar við Kolviðarhól. Kostnaður er áætlaður 2,2 milljarðar króna. BÓNUS var oft- ast með lægsta verðið og Fjarð- arkaup í Hafnar- firði voru næstoft- ast með lægsta verð á þurrvörum í verðkönnun sem Verðlagseftirlit ASÍ framkvæmdi síðastliðinn þriðjudag í matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu. Aðeins þrjár vörutegundir af þeim 59 sem kannaðar voru fengust ekki í Fjarð- arkaupum. Hins vegar fékkst einungis 31 vara af 59 í Bónusi. Flestar vörur fengust í Sparverslun Flestar vörur fengust í Sparverslun í Bæjarlind, 57 af 59 vörum voru til í versl- uninni. Henný Hinz, verkefnisstjóri hjá ASÍ, segir að verslunin 10–11 hafi langoft- ast verið með hæsta verðið, 34 vöruteg- undir voru dýrastar þar. Mesti munur á einstökum vörum í könn- uninni var tæp 140% en sá munur var á frosnum Hatting-pítubrauðum og 137% verðmunur á Lavazza Qualita Rossa-kaffi. Mikill munur var einnig á fjölmörgum al- gengum dagvörum s.s. brauði, morgun- korni og kaffi. Henný segir að það geti því tvímæla- laust borgað sig að kanna hvar vöruúrval er gott, ekki síður en hvar vöruverð er lægst.  Gott vöruúrval/33 Bónus var oftast með lægsta verð Djúpríki Bubba og Jacksons gefið út í Bretlandi Fyrirbæri á alþjóðavísu SIMON Rosenheim, útgefandi hjá breska bókaforlaginu Meadowside, segist sjá mikla möguleika á að ævintýrabók Bubba Morthens og Roberts Jacksons, Djúpríkið, nái vinsældum um allan heim. „Ef bókin verður vinsæl í Bretlandi eru allir vegir færir, því heimsmarkaðurinn eltir Breta mjög gjarnan í þessum efnum. Ég tel að miklar líkur séu á að bókin verði fyrirbæri á alþjóðavísu. Auðvitað get ég þó ekki spáð fyrir um sölutölur, en ég væri ekki hér ef ég tryði ekki á þessa sögu.“ Bubbi og Robert hafa aukið við söguna frá íslensku útgáfunni, en bókin kemur út í september eða október ytra. Meadowside er nú að hefja umfangsmikla markaðs- herferð til að kynna bókina í Bretlandi./54 ♦♦♦ ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.