Morgunblaðið - 05.02.2005, Síða 8
Sjálfstæ›isflokkurinn
sími 515 1700 www.xd.is
Með hækkandi sól
Lægri skattar - aukin hagsæld
Opinn stjórnmálafundur í Sjálfstæðishúsinu, Hlíðasmára 19,
Kópavogi, í dag 5. febrúar kl. 10.30.
Frummælendur:
Geir H. Haarde fjármálaráðherra og þingmennirnir
Bjarni Benediktsson og Arnbjörg Sveinsdóttir.
Fundarstjóri:
Sigurður Borgar Guðmundsson, formaður Kjördæmisráðs
Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi.
Allir velkomnir.
8 LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Krimmaútsala aldarinnar?
Skíðasvæðið í Hlíðar-fjalli ofan Akureyr-ar hefur verið lokað
síðustu daga, bæði vegna
snjóleysis og veðurs en
snjóalög eru þar með allra
minnsta móti miðað við
árstíma eftir hlýindi að
undanförnu. Umræða um
snjóframleiðslu hefur því
skotið upp kollinum enn
einu sinni og þeir aðilar
sem rætt var við eru sam-
mála um að nauðsynlegt sé
að hefja snjóframleiðslu í
Hlíðarfjalli og það sem
fyrst. Guðmundur Karl
Jónsson, forstöðumaður í
Hlíðarfjalli, sagði að stofn-
kostnaður við snjóframleiðslu væri
80–100 milljónir króna og rekstr-
arkostnaður 2–3 milljónir króna á
ári. „Ástandið er skelfilegt og við
getum varla kallað okkur skíðabæ
ef þetta heldur svona áfram. Það
eru aðeins tveir möguleikar í stöð-
unni, annaðhvort að fá meira frost,
þannig að úrkoman verði í formi
snjókomu en ekki rigningar, eða þá
að búa til snjóinn sjálf. En veturinn
er ekki búinn og maður missir ekki
vonina fyrr en eftir fyrstu vikuna í
apríl,“ sagði Guðmundur Karl.
300 milljóna uppbygging
Vetraríþróttamiðstöð Íslands,
VMÍ, var stofnuð á Akureyri fyrir
tæpum 10 árum, 18. mars 1995, og
er sameign Akureyrarbæjar og
ríkisins. Akureyrarbær rekur öll
mannvirki í fjallinu en starfsemi og
uppbygging er samstarfsverkefni
menntamálaráðuneytisins, Akur-
eyrarbæjar, Íþróttasambands Ís-
lands og Íþróttabandalags Akur-
eyrar. Meginhlutverk hennar er að
efla vetraríþróttir og útivist, stuðla
að heilbrigðu lífi og heilsurækt
landsmanna allra, jafnt almenn-
ings, skólafólks og fatlaðra, sem
keppnis- og afreksfólks í íþróttum.
Lögð er áhersla á góða aðstöðu til
æfinga og keppni, auk þess sem
miðstöðin hefur sérstöku hlutverki
að gegna í sambandi við fé-
lagsstarfsemi, fræðslu og nám-
skeiða- og ráðstefnuhald. Gríðar-
leg uppbygging hefur átt sér stað í
Hlíðarfjalli undanfarin ár og nem-
ur kostnaðurinn við þær fram-
kvæmdir frá 1998 um 300 milljón-
um króna. Má þar nefna nýja
stólalyftu, nýtt hús í Strýtu, bíla-
stæði, uppbyggingu vegarins upp
að Skíðastöðum, nýjan snjótroðara
og búnað, vinnu í brekkum og end-
urbætur á lýsingu. Þá eru fyrir-
hugaðar enn frekari framkvæmdir.
Þórarinn B. Jónsson, bæjar-
fulltrúi á Akureyri og formaður
stjórnar VMÍ, sagði ekkert annað
til ráða en að hefja snjóframleiðslu
í Hlíðarfjalli og hann ætlar að
leggja það til á næsta fundi með
bæjarstjóra og formanni bæjar-
ráðs. Þórarinn, Guðmundur Karl,
Björn Snæbjörnsson, formaður
ÍTA, og Kristinn Svanbergsson,
deildarstjóri íþrótta- og tóm-
stundadeildar, fóru til Austurríkis í
síðasta mánuði og kynntu sér snjó-
framleiðslu þar. Þórarinn sagði að
þar gengju snjóframleiðsluvélar
alla daga þegar frost er, frá byrjun
nóvember og út vertíðina, hvort
sem snjóaði eða ekki. Hann sagði
stöðugleikann skipta öllu máli
gagnvart ferðaþjónustunni. „Við
erum með fleiri hundruð milljónir
króna undir uppi í fjalli og ef við
þurfum að bæta við 80–100 millj-
ónum til að hefja þar snjófram-
leiðslu, verður það bara að hafa
sinn gang. Ég trúði því varla að við
þyrftum að vera með snjófram-
leiðslu nánast á Norðurpólnum en
þetta er þriðja árið í röð sem þetta
klikkar hjá okkur.“
Guðmundur Karl sagði ástandið
sjaldan hafa verið jafnt slæmt og
nú en þar hefur þó verið opið í 24
daga í vetur, þar af í tvo daga milli
jóla- og nýárs. „Þetta var mjög gott
fram að hlákunni og nú er nær all-
ur snjór farinn. Þetta lofaði mjög
góðu, líkt og í fyrravetur, sala á
árskortum gekk vel og aðsóknin
var góð.“ Guðmundur Karl sagði
að þessar janúarhlákur kæmu allt-
af en áður fyrr hefði verið mun
meiri snjór í fjallinu og því minna
gert til þótt kæmi hláka í 5–10
daga. „Þegar er einhver snjór fyrir
þarf svo lítinn snjó til viðbótar til að
gera ömurlegar aðstæður góðar.“
Fara annað til æfinga
Hluti af keppnisfólki Skíðafélags
Akureyrar hefur stundað æfingar í
Böggvisstaðafjalli á Dalvík að und-
anförnu. Þá eru uppi hugmyndir
um að fara með krakka í æfinga-
ferð til Siglufjarðar nú um helgina
ef aðstæður leyfa, að sögn Tómas-
ar Inga Jónssonar, formanns
Skíðafélags Akureyrar. „Við reyn-
um að spila úr þeim spilum sem við
höfum, því við þurfum að halda úti
starfinu í félaginu.“ Tómas Ingi
sagði að snjóframleiðsla væri fram-
tíðin og myndi auka stöðugleikann,
ekki síst gagnvart ferðafólki en
einnig þyrfti að halda áfram með
snjógirðingar í fjallinu. Hann sagði
að allur snjór sem verið væri að
keppa á erlendis væri meira og
minna framleiddur snjór. Björn
Snæbjörnsson, formaður ÍTA,
sagði ekkert skíðasvæði í Austur-
ríki svo lítið að ekki fari þar fram
framleiðsla á snjó. „Miðað við það
sem við höfum heyrt og séð hjá
þeim sem hafa framleitt snjó lengi,
get ég ekki séð annað en að við
þurfum að gera það líka.“
Fréttaskýring | Ástandið í Hlíðarfjalli
sjaldan verið eins slæmt og nú
Framleiða
þarf snjóinn
Áætlaður stofnkostnaður vegna
snjóframleiðslu 80–100 milljónir króna
Lokað er í Hlíðarfjalli vegna snjóleysis.
Selja árskort fyrir 8—9
milljónir króna á ári
Síðastliðin þrjú ár hafa verið
seld árskort í Hlíðarfjalli fyrir
8–9 milljónir króna á ári að með-
altali, eða samtals fyrir 24–25
milljónir króna. Sala á lyftu-
miðum hefur verið frá rúmlega
5.000 á vetri og upp í 30.000
miða. Skíðasvæðið var opið í 100
daga í fyrravetur, 51 dag árið áð-
ur en meðaltalið síðustu ár eru
85 dagar. Árið 2003 þurfti að
fella niður Andrésar Andar-
leikana, stærsta skíðamót lands-
ins ár hvert, vegna snjóleysis.
krkr@mbl.is
smáauglýsingar mbl.is