Morgunblaðið - 05.02.2005, Síða 12
12 LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÍBÚAR við Holtsgötu í Reykjavík og nærliggj-
andi götur áttu fund með fulltrúum skipulags-
yfirvalda vegna skipulagsáforma á svonefndum
Holtsgötureit á fimmtudag. Í máli íbúa kom
fram andstaða við tillögurnar og þá auknu þétt-
ingu byggðar og enn frekari skort á bílastæð-
um sem þær fela í sér að mati íbúa á fundinum.
Á fundinum reifaði Haraldur Ólafsson, einn
íbúa á svæðinu, niðurstöður af öðrum fundi
sem íbúar áttu sín á milli fyrir Degi B. Egg-
ertssyni, formanni skipulagsráðs, Helgu Braga-
dóttur skipulagsfulltrúa, og öðrum fulltrúum
skipulagsyfirvalda.
Á horni Holtsgötu og Bræðraborgarstígs
gera tillögur að deiliskipulagi ráð fyrir sam-
felldri byggð, sem Haraldur segir ekki falla að
þeim byggingum sem fyrir eru í nágrenninu.
Einkenni hverfisins séu lítil hús með litlum
görðum á milli, ekki svokölluð randbyggð þar
sem sambyggð hús ná að götunni og garðar eru
á miðjum reitnum. Enn fremur sagði Haraldur
að íbúar finni mikið fyrir skorti á bílastæðum
eins og staðan er í dag, og ljóst sé að ástandið
eigi ekki eftir að batna þegar við bætist þétt
byggð á horni Holtsgötu og Bræðraborg-
arstígs. Benti Haraldur á að byggð í Vesturbæ
sé þegar fremur þétt, og spurning hvar eigi að
draga mörkin þegar talað er um þéttingu
byggðar.
Fundað verður um málið hjá
skipulagsráði á næstu vikum
Dagur B. Eggertsson, formaður skipulags-
ráðs, sat fundinn með íbúunum. Í samtali við
Morgunblaðið eftir fundinn sagði hann að
skipulagsráð muni fara yfir þær athugasemdir
sem borist hafa á fundi ráðsins í næstu viku
eða vikunni þar á eftir, þar á meðal þeim at-
hugasemdum sem fram komu á fundinum með
íbúum.
„Það hafa þegar verið gerðar ákveðnar
breytingar á tillögunum út frá fyrstu at-
hugasemdum, þó að ekki hafi öllum fundist þar
komið nægilega til móts við sín sjónarmið.
Þarna [á íbúafundinum] voru einstaka raddir
um að þarna ætti að standa eftir óbyggt skarð,
en ég á ekki von á því að það verði fallist á
þær ýtrustu óskir,“ segir Dagur.
Tillagan gerir ráð fyrir því að undir húsum
sem byggð verði þurfi að byggja bílakjallara
fyrir a.m.k. einn bíl á hverja íbúð í húsunum,
og segir Dagur að það sé gert til að mæta þeim
bílastæðavanda sem verið hefur á svæðinu.
Spurður hvort það séu nægilega mörg bílastæði
segir hann að það hafi reynst vera meðaltal
bíla á íbúð á þessu svæði, þó það sé vissulega
rétt að sumir kjósi að eiga fleiri en einn bíl.
Eftir standi að hverfið hafi byggst upp þegar
bílaeign var minni en hún er í dag, og við því
sé erfitt að bregðast í svo grónu hverfi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Innan við 20 íbúar mættu á fundinn um skipulag á Holtsgötureit, sem haldinn var í leikskólanum Listakoti við Holtsgötu.
Ósáttir við skipulag Holtsgötureits
DAVID Oswin, breskur ferðaskrif-
stofueigandi, andaðist að heimili sínu
í Cumbria í Englandi, miðvikudag-
inn 2. febrúar sl.
David var mörgum Íslendingum
að góðu kunnur, þar sem hann hafði
starfað við ferðaþjónustu mestan
sinn starfsaldur og rak eigin ferða-
skrifstofu í rúmlega 20 ár.
Fyrstu ferð sína til Íslands fór
hann árið 1974 og heillaðist strax
mjög af íslenskri náttúru. Hann ferð-
aðist um hálendi Íslands með hópa
sína og var þá jafnframt fararstjóri
þeirra. David var áhugamaður um
ljósmyndun og hélt marga fyrir-
lestra um Ísland í heimalandi sínu.
Einnig hélt hann ljósmyndasýning-
ar, með myndum úr íslenskri nátt-
úru. Hann var heiðursfélagi Íslenska
alpaklúbbsins og félagi í Royal Geo-
graphical Society, í Bretlandi.
David lætur eftir sig eiginkonu og
tvær dætur af fyrra hjónabandi. Út-
för hans fer fram 10. febrúar nk.
Andlát
DAVID
OSWIN
PÁLL Hreinsson lagaprófessor ver
doktorsritgerð sína við lagadeild
Háskóla Íslands í dag. Ritgerð
Páls, sem er 978 blaðsíður að lengd,
ber heitið „Hæfisreglur stjórn-
sýslulaga“.
Fór yfir 1.932 dóma og álit
Fór Páll yfir alls 1.932 dóma og
álit umboðsmanna þjóðþinga á Ís-
landi, í Danmörku og Noregi, sem
lögð voru til grundvallar við rann-
sókn ritgerðarinnar. Rannsakaði
hann m.a. alla dóma Hæstaréttar
Danmerkur og Hæstaréttar Nor-
egs sem gengið hafa og varða beit-
ingu hæfisreglna þarlendra stjórn-
sýslulaga.
Meginmarkmið ritgerðarinnar
var að draga saman álit umboðs-
manna þjóðþinga á Íslandi, í Noregi
og Danmörku svo og dóma Hæsta-
réttar þessara landa þar sem reynt
hefur á hæfi starfsmanna stjórn-
sýslunnar og dómara og greina með
lögfræðilegri aðferðarfræði gildis-
sviðs hæfisreglna stjórnsýslulaga,
hvaða sjónarmið eru aðallega notuð
við skýringu og fyllingu þeirra svo
og að veita yfirsýn yfir framkvæmd
reglnanna.
Páll var spurður hvaða ástæður
voru fyrir því að hann valdi hæf-
isreglur stjórnsýslulaga sem rann-
sóknarefni í doktorsritgerðinni.
„Þegar ég var ritstjóri
Úlfljóts, tímarits laga-
nema, var eitt hefti
ritsins helgað umfjöll-
un um hæfisreglur.
Frá þeim tíma hef ég
haft mikinn áhuga á
þessum reglum. Mér
hlotnaðist síðan sá
heiður að vera skipað-
ur í þá nefnd sem
samdi frumvarp til
stjórnsýslulaga, en II.
kafli þeirra laga
fjallar um hæfisregl-
ur,“ segir hann.
Strangari hæfis-
reglur hér
– Hafa að þínu mati verið inn-
leiddar fullnægjandi hæfisreglur í
íslensku stjórnsýslunni og hjá dóm-
stólunum sem tryggja borgurunum
réttaröryggi og traust í skiptum
þeirra við stjórnvöld?
„Íslensku stjórnsýslulögin hafa
að geyma strangari hæfisreglur ef
eitthvað er en hæfisreglur danskra
og norskra stjórnsýslulaga. Vand-
inn við beitingu hæfisreglnanna
felst í því að skýra hina mats-
kenndu hæfisreglu sem fram kem-
ur í 6. tölulið 1. málsgreinar 3.
greinar laganna en þar segir að
starfsmaður sé vanhæfur til með-
ferðar máls ef að öðru
leyti séu fyrir hendi
þær aðstæður sem eru
fallnar til þess að
draga óhlutdrægni
hans í efa með réttu.
Þar sem reglan er
matskennd er skýring
hennar erfið. Stór hluti
ritgerðarinnar fjallar
um þau sjónarmið sem
notuð hafa verið við
skýringu hennar og
fyllingu. Þá eru van-
hæfisástæður flokkað-
ar upp og þeim fylgt
eftir í sögulegri þró-
un,“ segir Páll.
Spurður hvort hæfis-
reglur geti nokkurn tíma girt með
öllu fyrir að ómálefnaleg sjónarmið
verði látin ráða ferðinni bendir Páll
á að hæfisreglur hafi það í för með
sér að starfsmanni, sem er svo
tengdur máli eða aðilum þess að
haft geti áhrif á viljaafstöðu hans,
beri að víkja sæti.
„Þótt starfsmenn séu hvorki
tengdir máli eða aðilum þess á þann
veg sem hæfisreglurnar taka til
þeirra geta þeir engu að síður haft
fordóma og leyst á ómálefnalegan
hátt úr málum af þeim sökum. Hæf-
isreglurnar fækka því þeim tilvik-
um þar sem litið er til ómálefna-
legra sjónarmiða við úrlausn máls
en koma ekki í veg fyrir það,“ segir
Páll ennfremur.
Unnt að tryggja sérfræðiþekk-
ingu án stjórnsýsludómstóls
– Fjölmörg álitamál hafa komið
upp sem snúast um hæfi og vanhæfi
í stjórnsýslunni á undanförnum
misserum. Ertu þeirrar skoðunar
að þörf sé á sérstökum stjórnsýslu-
dómstóli hér á landi?
„Það er ekki hægt að fullyrða að
tilvist stjórnsýsludómstóls myndi
fækka þeim málum þar sem deilt er
um skýringu hæfisreglna. Á hinn
bóginn er almennt talið að sér-
fræðiþekking dómara tryggi bæði
réttari og skilvirkari úrlausn mála
fyrir dómstólum í málum er snerta
stjórnsýsluna. Þá sérfræðiþekkingu
tel ég hægt að tryggja án þess að
komið sé á fót sérstökum stjórn-
sýsludómstól,“ segir Páll.
Doktorsvörnin fer fram í dag í
Hátíðasal í aðalbyggingu HÍ og
hefst klukkan 14.
Andmælendur eru Eiríkur Tóm-
asson, deildarforseti lagadeildar
HÍ, og Tryggvi Gunnarsson, um-
boðsmaður Alþingis. Jónatan Þór-
mundsson, lagaprófessor við laga-
deild HÍ, stjórnar athöfninni.
Páll Hreinsson ver doktorsritgerð um hæfisreglur stjórnsýslulaga við HÍ
Strangari hæfisreglur hér
en í Danmörku og Noregi
Páll Hreinsson
lagaprófessor.
omfr@mbl.is
HÆSTIRÉTTUR staðfesti á
fimmtudag dóm yfir manni sem
ákærður var fyrir að standa ekki
skil á virðisaukaskatti sem inn-
heimtur var í nafni einkahluta-
félags og staðgreiðslu opinberra
gjalda sem haldið var eftir af laun-
um starfsmanna. Var maðurinn
dæmdur til að sæta fangelsi í fjóra
mánuði og greiða 5,1 milljón króna
í sekt.
Efnahagsbrotadeild ríkislög-
reglustjóra ákærði manninn sem
hélt því fram að hann bæri ekki
ábyrgð á skattsvikunum þar sem
hann hefði ekki verið fram-
kvæmdastjóri félagsins. Hæstirétt-
ur taldi á hinn bóginn sannað, m.a.
með vísan til gagna sem maðurinn
undirritaði í nafni félagsins og
framburði vitna að hann hefði verið
framkvæmdastjóri ásamt með-
ákærðu í héraði.
Ingibjörg Benediktsdóttir, Jón
Steinar Gunnlaugsson og Ólafur
Börkur Þorvaldsson kváðu upp
dóminn. Sigríður Jósefsdóttir sótti
málið af hálfu ríkissaksóknara,
Hilmar Ingimundarson hrl. var til
varnar.
Sagðist ekki
vera fram-
kvæmdastjóri
TOLLGÆSLAN í Reykjavík lagði
hald á 12,8 kg af hassi á árinu
2004 og 10,4 kg af amfetamíni, eða
sem nemur ríflega þriðjungi þess
hass sem tekið var á landsvísu og
tveimur þriðju af amfetamíni. Toll-
gæslan tók einnig tæpt kg af kók-
aíni eða tæpan fimmtung alls þess
kókaíns sem yfirvöld tóku úr um-
ferð í fyrra.
Þá tók tollgæslan 1 þúsund
e-töflur og 2 þúsund stk. af LSD.
Af löglegum en smygluðum
vímuefnum tók tollgæslan 810 lítra
af bjór og 123 lítra af léttvíni. 167
lítrar af sterku áfengi lentu í
höndum tollvarða og 65 þúsund
sígarettur.
Tók 12,8 kg af
hassi í fyrra
♦♦♦