Morgunblaðið - 05.02.2005, Side 17

Morgunblaðið - 05.02.2005, Side 17
MIKIL skerðing hefur orðið á afla- hlutdeild til skipa á Eyjafjarðar- svæðinu frá því að aflamark var tekið upp og til þessa dags og hefur hún haft mikil áhrif á atvinnulífið. Skerðingin í bolfiskinum er á bilinu 7 til 19%, en rækjuafli er nú aðeins einn tíundi hluti þess sem hann var árið 1996. Samdrátturinn í rækj- unni einn og sér hefur kostað um 300 störf bæði á sjó og í landi- vinnslu. Þetta kom fram á fundi stjórn- enda Samherja með sveitarstjórn- armönnum við Eyjafjörð nýlega. Frá þessu er greint á heimasíðu Samherja og segir þar meðal ann- ars svo: „Til marks um þá miklu skerð- ingu sem orðið hefur má nefna að árið 1991 voru úthlutaðar aflaheim- ildir til skipa á Eyjafjarðarsvæðinu rúm 24.500 tonn í þorski. Miðað við fiskveiðiárið 2004–2005 hafa þessar heimildir skerst um rúm 19%, eða um 4.700 tonn. Á þessum árum var ýsan 6.500 tonn og hún hefur skerst um tæp 16% á sama tímabili. Í ufsa var úthlutunin 5.000 tonn og hefur skerst um 7%. Skerðingin hefur til dæmis verið vegna tilfærslu stjórn- valda á aflaheimildum yfir á smá- fiskibáta og í línuívilnun, einnig bóta til sérvalinna vegna minnkunar á rækjuafla. Sambærileg skerðing á aflaheimildum í steinbít frá árinu 1996 til þessa dags er rúm 26%.“ Nefnt var dæmi um breytingar á aflahlutdeild hjá tilteknu skipi á Eyjafjarðarsvæðinu, sem hefur ver- ið á aflamarki frá árinu 1984. Það skip hefur nú einungis 57,8% af þeirri aflahlutdeild í þorski sem það hafði fyrir tveimur áratugum. Sam- dráttur í rækjuafla skipa, sem leggja upp á Eyjafjarðarsvæðinu, er enn meira sláandi. Aflinn nam rúmlega 20.000 tonnum árið 1996 en fiskveiðiárið 2003–2004 var hann einungis um 2.000 tonn, eða ein- ungis 1⁄10 af því sem hann var. Það þýðir að nánast allt hráefni til rækjuvinnslu á svæðinu er nú keypt að. 300 störf hafa glatazt vegna samdráttar í rækjuveiðum Málin rædd Talið frá vinstri: Valdimar Bragason, bæjarstjóri í Dalvíkur- byggð, Guðný Sverrisdóttir, sveitarstjóri Grýtubakkahrepps, Kristján Vil- helmsson, framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja, Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, Stefanía Traustadóttir, bæjarstjóri í Ólafsfirði, Bjarni Kristinsson, sveitarstjóri í Eyjafjarðarsveit, og Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2005 17 ÚR VERINU ÍS LE NS KA A UG LÝ SI NG AS TO FA N/ SI A. IS L BI 2 71 14 0 1/ 20 05 ÍS LE NS KA A UG LÝ SI NG AS TO FA N/ SI A. IS L BI 2 71 14 0 1/ 20 05 Aðalfundur Landsbanka Íslands hf. Dagskrá: 1. Skýrsla bankaráðs um starfsemi bankans sl. starfsár. 2. Ársreikningur fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðenda lagður fram til staðfestingar. 3. Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar eða taps á síðastliðnu reikningsári. 4. Tillögur til breytinga á samþykktum. 5. Tillaga um að heimila bankanum að kaupa eða taka að veði allt að 10% af eigin bréfum. 6. Kosning bankaráðs. 7. Kosning endurskoðenda. 8. Ákvörðun um þóknun til bankaráðsmanna fyrir næsta kjörtímabil. 9. Önnur mál. Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins fela í sér hækkun á heimild bankaráðs til hækkunar hlutafjár. Er hluthöfum bent á að kynna sér tillögurnar fyrir fundinn. Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins ásamt skýrslu endurskoðenda munu liggja frammi, hluthöfum til sýnis. Einnig verður hægt að nálgast þessi gögn á www.landsbanki.is Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent við innganginn við upphaf fundarins. Bankaráð Landsbanka Íslands hf. Aðalfundur Landsbanka Íslands hf. verður haldinn á Nordica hótel, í dag, laugardaginn 5. febrúar kl. 14.00. 410 4000 | landsbanki.is ÁHÖFN frystitogarans Sléttbaks hefur verið sagt upp störfum, alls 38 manns. Er það gert þar sem tekið hefur verið tilboði frá Kanada í skip- ið. Ekki er fyllilega ljóst hvenær skipið verður afhent, en það er ný- farið í veiðiferð sem stendur í allt að tæpan mánuð. Sléttbakur var keypt- ur til landsins árið 2002. Skipið var upphaflega smíðað 1998 í Danmörku fyrir rússneska aðila, en alls voru skipin fimm. Skyndilega voru afla- heimildirnar teknar af skipunum, en þá höfðu tvö þeirra hafið veiðarnar, og var Sléttbakur annað þeirra. Ekki er ljóst hvað gert verður í framhaldinu, hvort keypt verður annað skip í stað Sléttbaks, en við söluna verða aflaheimildir skipsins, ígildi tæplega 2.400 tonna, fluttar yf- ir á önnur skip í eigu Brims. Sléttbakur EA 4 seldur Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson RÚMLEGA 200 þúsund tonn af loðnu voru komin á land í hádeginu í gær og hefur veiðin því verið afar góð það sem af er árinu. Reyndar hefur veiðin gengið rólega það sem af er febrúarmánuði en að sögn Gunnþórs Ingasonar, hjá Síldar- vinnslunni í Neskaupstað, telja menn að það sé millibilsástand. „Janúar var mjög góður. Það voru komin 190 þúsund tonn eftir mánuðinn en á sama tíma í fyrra voru þau 60 þúsund og árið þar áð- ur 150 þúsund. Hún er líka stærri og betri en hún var í fyrra og hent- ar betur til frystingar.“ Af þessum 200 þúsund tonnum hafa 182 þúsund tonn komið frá ís- lenskum skipum en afgangurinn frá erlendum, samkvæmt upplýs- ingum frá Samtökum fiskvinnslu- stöðva. Bíða eftir að loðnan fari í torfur Sveinn Ísaksson, skipstjóri á Víkingi AK frá Akranesi, sem var á veiðum úti fyrir Hornafirði í gær, segir að veiðin hafi gengið rólega síðustu daga, komin séu 400 tonn í túrnum sem hófst fyrir tveimur dögum. „Þetta er tregt núna. Loðnan er voðalega dreifð, svo það er erfitt að ná henni. Hún er komin suður fyrir land núna og er ekki komin í þéttar torfur enn. Það er erfitt að segja hvenær það gerist, það gæti gerst í kvöld eða eftir nokkra daga,“ segir hann og bætir við að það gerist mjög snögglega, taki bara nokkrar mínútur. Um tíu skip voru á veiðum á þessum slóðum, að sögn Sveins, og segist hann búast við að mörg hinna hafi farið í land til að sækja minni nætur, aðeins sé hægt að nota litlar nætur uppi á grunninu. Segir hann að byrjað sé að frysta loðnu sem fari til Japans en hærra verð fáist fyrir hana en Rússa- loðnuna svokölluðu sem frysta má fyrr. „Japanirnir borga betur enda vilja þeir betri fisk. Það þarf að vera komið vel af hrognum í hann.“ Mestum afla hefur verið landað hjá Síldarvinnslunni í Neskaup- stað, 35.500 tonnum. 32.000 tonn hafa borizt til Síldarvinnslunnar á Seyðisfirði og 31.600 til Eskju á Eskifirði, en aðrar verksmiðjur hafa tekið á móti mun minna af loðnu. Eiga 10.000 tonn eftir Afli Norðmanna frá upphafi ver- tíðar í sumar er um 68.000 tonn og eiga þeir því ríflega 10.000 tonn eftir af kvóta sínum. Þeir voru í gær á veiðum 45 mílur austur úr Skrúð, frekar fá skip, ásamt nokkr- um Íslenzkum. Norsku skipin mega ekki fara sunnar en að Papey við veiðarnar og því er óvíst að þeir nái að klára kvótann, þar sem aðal loðnuganga er komin suður og vestur fyrir Hornafjörð. Janúar gjöfull í loðnuveiðunum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.