Morgunblaðið - 05.02.2005, Side 21

Morgunblaðið - 05.02.2005, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2005 21 ERLENT ALBERTO Gonzales sór á fimmtudagskvöld emb- ættiseið dómsmálaráðherra Bandaríkjanna. Skömmu áður hafði öldungadeild Bandaríkja- þings staðfest skipun hans. Atkvæðu féllu þannig að 60 öldungadeildarþing- menn lögðu blessun sína yfir þá ákvörðun George W. Bush Bandaríkjaforseta að skipa Gonzales, en 36 þingmenn lýstu sig andvíga henni. Þetta er næstmesti fjöldi atkvæða gegn útnefningu verð- andi ráðherra sem greiddur hefur verið í þinginu. Repúblikanar, sem hafa meirihluta í báðum deildum Bandaríkjaþings, tóku ekki tillit til full- yrðinga demókrata þess efnis að Gonzales hefði átt þátt í að móta stefnu sem síðar leiddi til mis- þyrmingar á erlendum föngum í fangelsum Bandaríkjamanna í Guantanamo á Kúbu og í Írak. Gonzales hefur verið gagnrýndur harðlega fyrir svonefnd „pyntinga-minnisblöð“ en þar var fjallað um lögfræðilegar álitsgerðir hans þess efnis að ekki bæri að meðhöndla erlenda menn sem teknir hefðu verið höndum í Afganistan og víðar sem stríðsfanga. Alþjóðleg lög í þá veru tækju ekki til þessara manna. Er því haldið fram að álitsgerðir þessar hafi getið af sér pyntingar á föngum í Abu Ghraib-fangelsinu í Írak og á Kúbu. Atkvæði um skipan hans í embætti voru að mestu leyti í samræmi við flokkslínur. Af þeim sem greiddu atkvæði gegn honum voru 35 demó- kratar og hið sama gerði einn óháður þingmaður. Demókratinn Ted Kennedy sagði að ferill Gonzales væri um margt glæstur. Hins vegar snerist atkvæðagreiðslan ekki um hug manna til hans heldur hvort hann hefði sýnt þá framgöngu sem verðskuldaði að honum yrði treyst fyrir emb- ætti dómsmálaráðherra Bandaríkjanna. Gonzales, sem er 49 ára, er fyrrverandi dómari við alríkisdómstólinn í Texas-ríki og hefur verið helsti lögfræðiráðgjafi Bush undanfarin fjögur ár. Gonzales er fyrsti maðurinn af rómönskum ætt- um sem gegnir þessu embætti vestra. Gonzales sver embættiseið Washington. AFP. Reuters Alberto Gonzales sver embættiseið dóms- málaráðherra. Hart var deilt um tilnefningu hans en atkvæði féllu eftir flokkslínum. FLAK afganskrar farþegaflugvélar sem hvarf af ratsjám á fimmtudag fannst í gær austur af höfuðborg- inni, Kabúl. 104 týndu lífi í slysinu. Þotan sem var af gerðinni Boeing 737 tilheyrði afganska Kam Air- flugfélaginu. Hún var í innanlands- flugi, á leið frá borginni Herat í vesturhluta landsins til Kabúl. Flugvélin hvarf af ratsjám síðdegis á fimmtudag að staðartíma (kl. 10.45 að íslenskum tíma) en flug- stjórinn hafði þá beðið um leyfi til að breyta flugleiðinni vegna illviðr- is. Hugðist hann lenda í borginni Peshawar í Pakistan sem er við afgönsku landamærin. Flak flugvél- arinnar fannst síðan í gær skammt austur af Kabúl. Um borð voru 104 og er þá talin með átta manna áhöfn. Talið er að flestir þeirra sem fórust hafi verið innfæddir. Fregnir hermdu að níu Tyrkir og þrír Bandaríkjamenn hefðu verið um borð. Sex af átta manna áhöfn voru Rússar. 104 létu lífið í flugslysi Kabúl. AFP. * #   % !     !  !+ ,       !#  )  ( "-   '!    .  #      ! A5&' *       ,;A0 J;G%/%01&%  ÍTALSKRI blaðakonu var rænt í gærmorgun í miðbæ Bagdad, höfuð- borgar Íraks. Konan, sem heitir Giuliana Sgrena, var í al-Jadriya- hverfi, nærri helsta háskóla Bagdad, er mann- ræningjar óku í veg fyrir bíl henn- ar og höfðu hana með sér, en skildu eftir bílstjóra hennar og íraskan blaðamann. Giuliana Sgrena, sem er 54 ára, starfar við dagblaðið Il Manifesto. Að sögn Gabriele Polo, eins af stjórnendum blaðsins, hafði Sgrena hringt 15 mínútum áður til að láta vita að ekkert amaði að sér. „Fimm mínútum síðar hringdi túlkur henn- ar og sagði okkur að henni hefði ver- ið rænt nærri mosku í Bagdad,“ sagði Polo. Ítölskum blaðamanni, Enzo Bald- oni, var rænt 20. ágúst í fyrra. Ísl- amski herinn í Írak var þar að verki. Baldoni var tekinn af lífi. Aftakan var tekin upp á myndband og sýnd um Netið. Í septembermánuði var tveimur ítölskum konum sem sinntu hjálparstörfum í Írak rænt. Þeim var sleppt þremur vikum síðar. Ítalskri blaðakonu rænt í Bagdad Róm. AFP. Giuliana Sgrena DONALD Rumsfeld, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, hefur gert op- inskátt að hann hafi tvisvar sinnum boðist til þess að segja af sér þegar umræða um mis- þyrmingar banda- rískra hermanna á íröskum föngum í Abu Ghraib fang- elsinu í Írak stóð sem hæst í fyrra. Í viðtali við CNN sjónvarps- stöðina á fimmtu- dagskvöld sagðist Rumsfeld hafa ver- ið reiðubúinn að taka á sig ábyrgð í málinu. George W. Bush Bandaríkjaforseti hefði hins vegar í bæði skiptin beðið hann um að sitja áfram í embætti. Fréttaritari BBC í Bandaríkjunum segir að nú virðist staða Rumsfelds tryggari en fyrr, en árið í fyrra hafi reynst honum erfitt. Rumsfeld tilgreindi ekki í viðtalinu við CNN hvenær hann hefði boðist til þess að segja af sér embætti. „Ég lagði tvisvar sinnum fram afsögn á þessu tímabili og sagði forsetanum að … mér þætti að hann ætti að taka ákvörðun um hvort ég ætti að halda áfram eða ekki. Og hann tók þá ákvörðun og sagði að hann vildi að ég yrði áfram við störf.“ Rumsfeld sagði samvisku sína hreina. „Maður sem er í Washington getur augljóslega ekki stjórnað eða brugðist við því sem er að gerast á næturvaktinni í Abu Ghraib, hinum megin á hnettinum. Ég iðrast því einskis.“ Rumsfeld bauð afsögn Donald Rumsfeld UM 15.000 tonn af brenni- steinssýru fóru snemma í gær- morgun úr geymi í Helsingja- borg í Svíþjóð. Hluti sýrunnar varð að gasi. Heilsu almennings er ekki ógnað. Að sögn Svenska Dagbladet varð lekinn með þeim hætti að gat kom á 20.000 tonna tank sem innihélt brenni- steinssýru á svæði Kemira-fyr- irtækisins í suðurhluta borgar- innar. Yfirvöld í borginni brugðust skjótt við. Hluti sýrunnar rann út í höfnina. Sýran breytist í gas þegar hún blandast vatni og óttuðust því margir að eit- urský myndi leggjast yfir borg- ina. Almenningur var hvattur til að halda sig heima við og loka gluggum og öðrum loftinn- tökum. Um klukkan átta að staðartíma í gærmorgun var því síðan lýst yfir að hættan væri liðin hjá. Sex menn voru fluttir í sjúkrahús en þeir voru í gær ekki sagðir í lífshættu. Mengunar- slys í Hels- ingjaborg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.