Morgunblaðið - 05.02.2005, Qupperneq 34
Skemmuvegi 48 • Kópavogi • S: 557 6677
www.steinsmidjan.is
Granít borðplötur og flísar
Opnunartími:
11-18:30 mán-fös
10-18 lau / 13-17 sun.
Skútuvogi 2, sími 522 9000 • www.expert.is
Samsung SGH-X450
fallegur 3 banda
sími með
hágæða skjá
34 LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FERÐALÖG
Mikilvægi höfuðborgar-svæðisins sem mið-punkts samgangna álandinu þarf ekki að
draga í efa. Einkabíllinn yfirgnæfir
alla aðra ferðamáta. Sumarbústaða-
ferðir njóta vinsælda og vinnuferðir
út fyrir búsetusvæði fara vaxandi.
Þetta er meðal þess sem lesa má út
úr könnun á ferðavenjum Íslend-
inga sumarið 2004 sem IMG Gallup
gerði í samvinnu við Bjarna Reyn-
arsson, ráðgjafa hjá Land-ráðum sf.
fyrir samgönguyfirvöld.
Rannsóknin hefur mikið gildi fyr-
ir stefnumótun í skipulags-, sam-
göngu- og ferðamálum, að sögn
Bjarna. „Niðurstöðurnar hafa gildi
sem grunnforsendur um skipulag
byggðar á suðvesturhluta landsins
og undirstrika nauðsyn þess að
meta líklega þróun byggðar á jað-
arsvæðum höfuðborgarsvæðisins.
Ekki er nægilegt að áætla landþörf
og landnotkun eingöngu innan
marka höfuðborgarsvæðisins heldur
verður að líta á suðvesturhluta
landsins sem eitt samverkandi
borgarsvæði.
Tíðar ferðir í nágrenni höfuð-
borgarsvæðisins er í samræmi við
þróun þess og vestrænna borga al-
mennt. Fram til 1950 lágu flestar
ferðir landsmanna til Reykjavíkur.
Frá 1950–1990 stefndi borg-
arbyggðin út á við og eftir 1990 fór
að bera á vexti í jaðarbyggðum
borgarsvæðisins.“
85% á eigin bíl
Að sögn Bjarna eru niðurstöðurnar
í góðu samræmi við fyrri kannanir á
þessu sviði.
„Ljóst er að fólk
ferðast mikið út
fyrir búsetusvæði
sitt á sumrin. Að
meðaltali fóru
svarendur í fjór-
tán slíkar ferðir í
júní til ágúst
2004 eða tæplega
vikulega. Íbúar
jaðarbyggða voru tvöfalt oftar á
ferðinni en bæði íbúar höfuðborg-
arsvæðis og landsbyggðarkjarna.
Ungt fólk er mun meira á ferðinni
en það eldra og karlar ferðast oftar
en konur.
Eins og í fyrri könnunum ber
einkabíllinn ægishjálm yfir aðra
ferðamáta því um 86% nefndu hann.
RANNSÓKN | Ferðavenjur Íslendinga í fyrrasumar
Nágrannar höfuðborgar-
svæðisins mest á ferðinni
!"
#
$
!%" '''(
#
) *
* +
, (
#
-
+
*$
#
$
. # #
/
,"012 3 "/ 4
!
'
Morgunblaðið/Júlíus
Sumarferðavenjur Ís-
lendinga hafa nú verið
kortlagðar fyrir sam-
gönguyfirvöld. Ráðgjaf-
inn dr. Bjarni Reyn-
arsson sagði Jóhönnu
Ingvarsdóttur að á
óvart kæmi hversu
sterkan þátt ættarsam-
félagið ætti í ferðum Ís-
lendinga.
Bjarni Reynarsson
Rúmlega helmingur íbúa
höfuðborgarsvæðisins
gæti hugsað sér búsetu úti
á landi og togar höfuð-
staður Norðurlands í þá
langflesta.
Íhópnum sem fór til Austur-ríkis voru 116 manns. Hall-dóra Blöndal segir að flogiðhafi verið beint á Salzburg
með Úrvali-Útsýn. Þar biðu síðan
rútur ferðalanganna sem flutti
hópinn til skíðabæjarins Zell am
Ziller í dalnum Zillertal.
Hvar hélduð þið til og hvernig
reyndist aðbúnaðurinn?
„Í bænum Zell am Ziller eru
mest megnis fjölskyldurekin lítil
hótel og skipti því hópurinn sér
niður á þrjú hótel. Ég og sam-
býlismaður minn, Grétar Mar
Steinarsson, gistum á Gasthof
Untermetzger, sem vel er staðsett
í miðbænum. Hótelið er ágætt
þriggja stjörnu með rúmgóðum
herbergjum og góðum mat, en
hálft fæði var innifalið í gisting-
unni. Maturinn var með þjóðlegum
austurrískum blæ og einkenndist
af staðgóðum kjötréttum með t.d.
brauðkúlum sem meðlæti.“
Hvernig var skíðafærið?
„Við vorum mjög heppin með
veður og fengum gott veður og sól
alla daga nema einn.
Skíðafærið var frábært, en
snjórinn var farinn að þynnast
undir lokin þó það hafi svo sem
ekki háð okkur. Svæðið er mjög
skemmtilegt með miklum fjöl-
breytileika af brekkum þar sem
allir gátu fundið sér eitthvað við
hæfi.“
Hvernig höguðuð þið dag-
skránni og hvað gerðuð þið
annað skemmtilegt en að
skíða?
„Farið var upp í fjall kl. 8.30
alla morgna þar sem var skíðað
með hléum til kl. 15.00 á daginn. Á
kvöldin var síðan sest að þriggja
HVAÐAN ERTU AÐ KOMA?
Af skíðum í
Austurríki
Halldóra Blöndal, skíðaþjálfari og verslunarstjóri
í Everest, er nýkomin úr tíu daga ferð úr skíðalönd-
unum í Austurríki ásamt fjölmennum hópi 9—14 ára
barna og foreldra þeirra úr skíðadeild Víkings.
Hluti af skíðahópnum úr skíðadeild Víkings í austurrísku Ölpunum.