Morgunblaðið - 05.02.2005, Síða 38

Morgunblaðið - 05.02.2005, Síða 38
38 LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Feðgakvöld í Grafarvogskirkju MIÐVIKUDAGINN 9. febrúar kl. 20:00 (öskudag) verður haldinn sérstakur „strákafundur“ í Graf- arvogskirkju. Öllum ferming- arstrákum í Grafarvogi er boðið að koma með pabba sínum, fóst- urpabba, afa, bræðrum eða frænd- um á þennan fund. Fundarefni kvöldsins verður „Fótboltinn.“ Hemmi Gunn og Guðni Bergsson koma og ræða um atvinnumennskuna. Við sjáum fal- leg mörk í vídeóinu og hlustum á hressa og skemmtilega menn tala um fótboltann. Stutt helgistund verður í upphafi fundar. Í lokin er öllum boðið upp á veit- ingar. Sjáumst hressir! Aðalfundur Safnaðarfélags Grafarvogskirkju AÐALFUNDUR Safnaðarfélags Grafarvogskirkju verður haldinn í safnaðarsal kirkjunnar mánudag- inn 7. febrúar kl. 20:00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf: Skýrsla stjórnar. Reikningar. Kosning stjórnar. Önnur mál. Fundarefni: Kristniboðar segja frá starfi sínu í Eþíópíu. Kaffiveitingar og fyr- irspurnir. „Bollukaffi“. Allir vel- komnir. Stjórnin. Fjármálaráðherra hefur lestur úr Passíusálmunum 9. FEBRÚAR nk., á öskudag, kl. 18:00 hefjast stuttar helgistundir í Grafarvogskirkju sem verða alla virka daga föstunnar, í 31 skipti alls. Síðasta stundin mun verða 23. mars nk. Hver helgistund stendur yfir í fimmtán mínútur. Þessar helgi- stundir bera yfirskriftina „Á leið- inni heim.“ Fólk getur komið við í Grafarvogskirkju að loknum vinnudegi og hlustað á lestur úr einum passíusálmi í hvert sinn. Að þessu sinni munu ráðherrrar og al- þingismenn lesa úr Passíusálm- unum. Fjármálaráðherra, Geir H. Haarde, mun verða fyrstur til að lesa. Þrenna í Hallgrímskirkju SUNNUDAGINN 6. febrúar verður fjölbreytt dagskrá í Hallgríms- kirkju, en hún hefst á fræðslu- morgni kl. 10.00, þar sem dr. theol Kristinn Ólason fjallar um Gamla Nóa og flóðið. Messa og barnastarf hefst kl. 11.00, en börnin eru með í messunni fram að prédikun. Þá fá þau stund fyrir sig með fræðslu, söng og leik. Barnastarfið er undir stjórn Magneu Sverrisdóttur djákna, en í messunni þjóna prest- ar Hallgrímskirkju, sr. Sigurður Pálsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Jóni D. Hróbjarts- syni. Organisti verður Hörður Ás- kelsson og forsöngvari Guðrún Finnbjarnardóttir. Samskot dags- ins renna til Hallgrímskirkju. Kvöldmessa verður kl. 20.00 í umsjá sr. Jóns Dalbú Hróbjarts- sonar. Hópur úr Mótettukór Hall- grímskirkju syngur undir stjórn Harðar Áskelssonar, kantors. Kvöldmessurnar eru með ein- földu formi en gefa fólki gott rými fyrir íhugun, bænir og þátttöku í heilagri kvöldmáltíð. Öllum er gef- inn kostur á að tendra bænaljós. Gamli Nói og flóðið Á MORGUN; sunnudaginn 6. febr- úar, kl. 10.00, hefjast að nýju fræðslumorgnar í Hallgrímskirkju. Þá mun dr. theol. Kristinn Ólason ræða um efnið: Gamli Nói, hvernig á að skilja sögu þína? Flóð og nátt- úruhamfarir eru okkur ofarlega í huga. Hver er boðskapur sögunnar um Nóa? Sunnudaginn 13. febrúar verður fræðslumorgunninn helgaður kynningu á starfi djákna innan kirkjunnar, en um þessar mundir eru tíu ár síðan fyrstu djáknarnir sem útskrifast hafa frá guð- fræðideild Háskóla Íslands voru vígðir til þjónustu. Þá mun sr. Þórhallur Heimisson ræða hinn 20. febrúar um efnið: Hvað veldur forvitninni um Da Vinci-lykilinn. Síðar í febrúar og í byrjun mars mun dr. theol. Clarence Glad ræða á tveimur fræðslumorgnum um efnið: Átökin um textann, þar sem hann ræðir um hvaða rit rötuðu í Nýja testa- mentið, hverjum var hafnað og hvers vegna. Á síðasta fræðslumorgninum að þessu sinni, hinn 13. mars mun Þórir Guðbergsson félagsráðgjafi ræða um efnið: Hjálp, ég er að eld- ast. Fræðslumorgnarnir eru öllum opnir. Sameiginleg guðs- þjónusta Ástjarnar- sóknar og Fríkirkj- unnar í Hafnarfirði Á MORGUN sunnudaginn 6. febr- úar verður haldin sameiginleg guðsþjónusta safnaða Ástjarn- arsóknar og Fríkirkjunnar í Hafn- arfirði og verður hún í Fríkirkj- unni kl.13. Sóknarprestur Ástjarnarsóknar Carlos Ferrer mun predika en frí- kirkjuprestarnir, Sigríður Kristín Helgadóttir og Einar Eyjólfsson munu þjóna fyrir altari. Þá munu tónlistarstjórar safnaðanna, þau Örn Arnarson í Fríkirkjunni og Aðalheiður Þorsteinsdóttir í Ástjarnarsókn leiða tónlist og söng ásamt kórum safnaðanna. Náið samstarf hefur verið á milli þess- ara safnaða allt frá stofnun Ástjarnarsóknar en sóknin er yngsta sókn Hafnarfjarðar og Frí- kirkjan elsta kirkjan í bænum og fer því vel á nánu samstarfi. Safnaðarfólk beggja þessara safnaða er hvatt til þess að taka þátt í þessari guðsþjónustu en boð- ið verður upp á kaffi í safn- aðarheimili Fríkirkjunnar að henni lokinni. Leikhús í Neskirkju SUNNUDAGINN 6. febrúar koma góðir gestir í heimsókn í sunnu- dagaskólann í Neskirkju. Stopp- leikhópinn mun sýna okkur leik- ritið Palli var einn í heiminum. Þegar Palli litli vaknar einn dag- inn er hann aleinn. Hann fer að leita að mömmu og pabba og leik- félögunum en allir eru horfnir. Skyndilega getur hann gert allt það sem honum sýnist og enginn getur bannað honum það. Gamanið tekur þó fljótlega að kárna því enginn er til að leika og tala við í öllum heiminum. Leikari er Eggert Kaaber. Leiksýningin er ókeypis og eru allir velkomnir. Börnin byrja í messunni, sem hefst kl. 11 en fara svo í safn- aðarsal. Prestur er dr. Sigurður Árni Þórðarson og til aðstoðar sr. Ragnar Gunnarsson. Kór Nes- kirkju, undir stjórn Steingríms Þórhallssonar, leiðir söng. Kaffi- húsið opið eftir messu. Í Neskirkju er enginn einn heiminum og allir velkomnir. Trúfræðsla Laugarneskirkju ÖLL þriðjudagskvöld kl. 19:45 kemur trúfræðsluhópur Laug- arneskirkju saman í gamla safn- aðarheimilinu í kirkjunni. Þar íhugum við og lesum saman guð- spjallstexta næsta sunnudags, áður en boðið er til kvöldsöngs í kirkj- unni kl. 20:30. Trúfræðslan og kvöldsöngurinn í Laugarneskirkju er skapandi og gefandi umhverfi þar sem gott er að endurskoða líf sitt og fá nýjar hugmyndir að uppskrift hamingj- unnar. Verið velkomin í Laug- arneskirkju. Námskeið í kristnu lífsviðhorfi MIÐVIKUDAGINN 9. febrúar hefst í Hallgrímskirkju, suðursal, námskeiðið Lifandi steinar sem er nokkurskonar tilsögn í kristnu lífs- viðhorfi. Námskeiðið er samstarfs- verkefni Hallgrímssafnaðar og Leikmannaskóla kirkjunnar. Það fjallar um messuna, upp- byggingu hennar og leyndardóma og eykur skilning á gildi trú- arinnar í hinu daglega lífi. Leitast verður svara við spurn- ingum eins og hvaða sviðum trúar- lífsins svala hinir ýmsu þættir messunnar og hvernig geta sunnu- dagurinn og guðsþjónustan gætt hvunndaginn lífi? Leiðbeinendur á námskeiðinu eru sr. Bára Friðriksdóttir héraðs- prestur og Jónanna Björnsdóttir skrifstofustjóri. Námskeiðið hefst kl. 20 og er kennt í fimm skipti, tvo tíma í senn en einnig er kennt laugardaginn 26. febrúar kl. 10-15 Skráning fer fram hjá Leik- mannaskólanum í síma 535 1500 eða á vef skólans, www.kirkjan.is/ leikmannaskoli Páll Rósinkrans og Gospelkórinn í Árbæjarkirkju SUNNUDAGSKVÖLDIÐ 6. febr- úar kl. 20:00 kemur Páll Rósin- krans, nýkrýndur „Söngvari árs- ins“ á íslensku tónlistarverð- laununum, í Árbæjarkirkju og syngur ásamt Gospelkór kirkj- unnar. Lögð verður sérstök áhersla á léttleika og gleði gosp- elsins í lagavali. Krisztina Kalló Szklenár stýrir kórnum og Egill Antonsson leikur undir á flygil. Sr. Sigrún Óskarsdóttir þjónar fyrir altari og Erna Björk Harðardóttir flytur hugvekju Eftir messu verður hægt að kaupa rjúkandi vöfflur og súkku- laðiköku til styrkjar unglingahóps kirkjunnar. Ekki vanrækja andlegu hliðina láttu sjá þig í Léttmessu. Árbæjarkirkja. Grafarvogskirkja KIRKJUSTARF BRÉF TIL BLAÐSINS Morgunblaðið, Kringlunni 1, 103 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is STEINGRÍMUR Þormóðsson hæstaréttarlögmaður ritar frábæra grein um tryggingamál í Morg- unblaðið 31. janúar: Lömbin þagna. Greinin fjallar um skaðabótalögin sem upphaflega voru samþykkt á Alþingi fyrir rúmum áratug og ollu miklum deilum á sínum tíma. Steingrímur miðlar af reynslu sinni og annarra lögmanna af framkvæmd laga um skaðabætur nr. 50/1993 en þau voru nánast þýðing á dönskum lögum um þessi mikilsverðu mál. Því miður tókst illa til við lagasetningu íslenskrar útgáfu laganna. Sú stefna var tekin að veita tryggingafélögunum meiri rétt á kostnað fórnarlamba um- ferðar- og vinnuslysa sem urðu að leita réttar síns. Komið var á fót sérstakri örorkunefnd sem Stein- grímur kveður hafa verið skipaða miklum naumhyggjumönnum sem úrskurðuðu örorku og tjón yfirleitt mjög lágt. Síðar hafi trygginga- félög, vegna aukins kostnaðar sem féll á þau, komið á fót sérstöku kerfi þar sem mat tveggja lækna var lagt til grundvallar mati á ör- orku. Rekur greinarhöfundur at- hafnir tryggingafélaganna sem hæstaréttarlögmaðurinn kveður minna vægast sagt mjög á sam- ráðsaðgerðir olíufélaganna. Steingrímur segir frá hvernig hin dönsku lög virka en með þeim eru sérstakar töflur hvernig meta skuli örorku. Þá segir hann frá mismuninum á dönsku og íslensku leiðunum: „Dönsku miskatöflurnar eru skýrar og auðskildar og svara flestum áverkum umferðar- og vinnuslysa, þegar aftur á móti hin- ar íslensku svara tiltölulega fáum, sem gerir það að verkum, að vald þeirra sem styðjast við íslensku miskatöflurnar er algert og við- komandi fórnarlambi er fyr- irmunað að skilja matið. Auk þess, að dönsku miskatöflurnar séu greinargóðar, hafa verið gefnar út sérstakar leiðbeiningar með töfl- unum, til að auðvelda almenningi skilning á þeim. Þá eru dönsku miskatöflurnar endurskoðaðar með jöfnu millibili til hagsbóta fyrir danska tjónþola, nánast einu sinni á ári. Þegar skaðabótalögin voru sam- þykkt á Alþingi Íslendinga hafa greinilega orðið mjög alvarleg mis- tök við lagasetningu. Þessi lög hafa verið tryggingafélögunum mikil auðsuppspretta á kostnað þeirra sem minna mega sín í sam- félaginu. Grein Steingríms á að vera skyldulesning ekki aðeins stjórnmálamanna, trygging- armanna og lögfræðinga heldur ekki síður allra þeirra sem vinna að hagsmunamálum þjóðarinnar. Hafi Steingrímur miklar þakkir fyrir grein sína. Á undanförnum árum hafa ís- lenskir stjórnmálamenn gert mjög afdrifarík mistök á ýmsum sviðum. Hæst ber stuðningsyfirlýsingu vegna Íraksstríðsins og mjög um- deildar framkvæmdir á Austur- landi sem hafa dregið dilk á eftir sér: ekki er aðeins verið að eyði- leggja íslenska náttúrufegurð held- ur einnig að grafa undan íslensku velferðarkerfi með því að innleiða þrælahald að nýju á Íslandi. Mjög flóknar samningagerðir við erlenda aðila gengu ótrúlega fljótt fyrir sig og virtist vera mun einfaldara að semja við þessi erlendu stórfyr- irtæki en t.d. grunnskólakennara á liðnu hausti! Þeir samningar eru öllum opnir meðan samningar við útlendu aðilana eru meðhöndlaðir sem mannsmorð! Og nú er endurskoðun stjórn- arskrárinnar á dagskrá á Alþingi. Í ljós hefur komið, að nú á aðeins að endurskoða þá hluta hennar sem kæmu ríkisstjórninni hugs- anlega að gagni í einhverju valda- karpi um undirskrift forseta lýð- veldisins! Raunverulega þarf að taka alla stjórnarskrána til endur- skoðunar og byggja hana al- gjörlega upp á nýjum grunni. Við þurfum að nýta okkur reynslu ann- arra þjóða, t.d. Þjóðverja og Suð- ur-Afríkumanna við setningu nýrr- ar stjórnarskrár. Þar er byggt á mannréttindum og lýðræði sem upphafspunkti stjórnarskrár en ekki hvaða aðilar fari með valdið í samfélaginu! Meira um þau mál síðar. GUÐJÓN JENSSON, Arnartanga 43, Mosfellsbæ. Lömbin þagna – frábær grein Frá Guðjóni Jenssyni MIG LANGAR að biðja Morg- unblaðið að koma á framfæri fyrir mig þökkum til vina, vandamanna og allra annarra Íslendinga vegna hugulsemi í sambandi við leit að mér og fjölskyldu minni. Ég hef búið í Svíþjóð í 30 ár og hélt að flestir, nema hinir allra nánustu, væru búnir að gleyma mér fyrir löngu. Ég vil líka þakka utanríkisráðu- neytinu og sendiherra Íslands í Stokkhólmi fyrir allt sem hefur verið gert til að reyna að hafa uppi á okkur. Ég og mín fjölskylda vor- um í smábæjum á norðurströnd Bali og köfuðum, og vissum ekkert hvað hafði gerst fyrr en 2. janúar þegar við hittum Englending og Ástrala sem sögðu okkur frá að margir Svíar hefðu dáið í Taílandi. Þá fyrst las ég tölvupóst minn og fékk að vita að verið væri að leita að okkur. Mér finnst leiðinlegt að hafa valdið allri þessari óró en ég er líka mjög ánægð með að vera Íslend- ingur, því það virðist sem hvert ís- lenskt líf sé meira virði en líf ann- ars staðar í heiminum. Ástarþakkir til allra. STEINA ARADÓTTIR frá Neskaupstað. Þakkir til Íslendinga Frá Steinu Aradóttur Rakarastofan Klapparstíg S: 551 3010 Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.www.flis.is ● netfang: flis@flis.is lím og fúguefni

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.