Morgunblaðið - 05.02.2005, Síða 42

Morgunblaðið - 05.02.2005, Síða 42
42 LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Hjalti Guð-mundsson fædd- ist í Bæ í Árnes- hreppi 17. janúar 1938. Hann lést á Landspítala – há- skólasjúkrahúsi 26. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Guðmundur Pétur Valgeirsson, bóndi í Bæ, f. 11. maí 1905, d. 14. september 2001, og kona hans, Jensína Guðrún Óla- dóttir, ljósmóðir og húsfreyja í Bæ, f. 18. febrúar 1902, d. 6. nóvember 1993. Systkini Hjalta eru: Óli, f. 21. maí 1930, d. 15. júní 1930; Elín, f. 6. janúar 1931, d. 17. júní 1931; Guðbjörg, f. 25. febrúar 1933, d. 28. mars 1933; Pálmi, f. 7. júní 1934, kvæntur Lilju Þor- leifsdóttur, f. 8. janúar 1939, hann á tvær dætur; Jón, f. 19. júní 1936, kvæntur Hjördísi Vigfús- dóttur, f. 5. nóvember 1938, þau eiga fjögur börn; Fríða (kjör- barn), f. 3. mars 1945, d. 6 mars 1961. Fóstursystir Hjalta er Elín Elísabet Sæmundsdóttir, f. 16. júní 1930, gift Sigurjóni Nielsen, f. 6. júlí 1928, þau eiga átta börn. Hjalti kvæntist 26. júní 1971, Jóhönnu Guðbjörgu, f. 16. mars 1948, dóttur Þor- steins Guðmunds- sonar, bónda á Finn- bogastöðum, f. 21. mars 1905, d. 13. janúar 1983, og konu hans Pálínu Jennýjar Þórólfs- dóttur, húsfreyju, f. 17. febrúar 1921. Hjalti og Guðbjörg eiga fjögur börn. Þau eru: 1) Jensína Guðrún, f. 12. sept- ember 1972, gift Guðna Þór Hauks- syni, f. 1. nóvember 1969. Þau eiga Unni Sólveigu, f. 18. maí 1996, og Vilborgu Guð- björgu, f. 14. ágúst 2001. 2) Pál- ína, f. 12. október 1975, í sambúð með Gunnari Helga Dalkvist, þau búa í Bæ. 3) Birna, f. 27. apríl 1979. 4) Þorsteinn, f. 14. maí 1984. Fyrir átti Hjalti Steinunni, f. 19. janúar 1962, móðir hennar er Þóra Guðmundsdóttir frá Naustvík. Steinunn á Alexöndru Manyu, f. 19. júlí 1989, og eru þær búsettar í Bandaríkjunum. Hjalti var alla tíð bóndi í Bæ og gegndi fjölmörgum störfum fyrir sveitarfélagið. Hjalti verður jarðsunginn frá Árneskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Þú lést þér annt um litla sauðahjörð. Þú lagðir rækt við býli þitt og jörð og blessaðir sem barn þinn græna reit, þinn blómavöll, hvert strá, sem augað leit. Og þótt þú hvíldist sjálfur undir súð, var seint og snemma vel að öðrum hlúð, og aldrei skyggði ský né hríðarél á skyldur þínar, tryggð og bróðurþel. Þú hafðir öllum hreinni reikningsskil. Í heimi þínum gekk þér allt í vil. Þú hirtir lítt um höfðingsnafn og auð, því hógværð þinni nægði daglegt brauð. (Davíð Stef.) Elsku pabbi, þetta ljóð segir meira um þig en nokkur orð. Þó er margt sem alltaf verður ósagt. Ekkert verður eins og áður. Við eigum aldrei eftir að heyra þig flauta lagið sem þú flautaðir alltaf eins og ósjálfrátt þeg- ar þú varst að vinna. Við eigum aldr- ei eftir að sjá þig í vinnugallanum í fjárhúsunum eða fara með þér í tor- færuferðir á dráttarvélinni. Við eig- um aldrei eftir að sjá þig sofandi fyr- ir framan sjónvarpið að „hlusta“ á fréttirnar. Hver á núna að létta okk- ur lundina þegar eitthvað er okkur andstreymt. Og hvernig eigum við að finna nógu góð orð til að lýsa þér fyrir öllu því fólki sem aldrei fékk að kynnast þér? Hugurinn leitar óneitanlega fram í tímann og hvernig það verður að vera í sveitinni án þín. Þar munum við eflaust hugsa mest til þín því það- an eru flestar minningar okkar um þig. Við vildum óska að þú hefðir fengið aftur að sjá sólina byrja að gægjast á Kálfatindinn eins og þér fannst svo fallegt. Elsku pabbi, líf okkar verður aldr- ei samt og oft á hugurinn eftir að leita til þín. Verst verður þó líklega fyrir sveitina að þú kemur ekki í löbbur næsta haust svo nú þurfum við að fara að smala liði því þú varst margra manna maki. Elsku pabbi, þó að við kveðjum þig með miklum söknuði þökkum við af öllu hjarta fyrir að hafa fengið að kynnast þér. Fengið að eiga pabba sem kenndi okkur svo margt, ekki bara á dráttarvélar eða að taka á móti lömbum heldur líka hversu mikils virði það er að lifa og að með rétta viðhorfinu má gera allt skemmtilegra. Svo viðkvæmt er lífið sem vordagsins blóm er verður að hlíta þeim lögum að beygja sig undir þann allsherjar dóm sem ævina telur í dögum. Við áttum hér saman svo indæla stund sem aldrei mér hverfur úr minni. Og nú ertu genginn á guðanna fund, það geislar af minningu þinni. (Friðrik Steingr.) Við erum þakklát fyrir þann tíma sem við áttum með þér, hann verður aldrei frá okkur tekinn. Þín Steinunn, Jensína, Pálína, Birna og Þorsteinn. Elsku afi. Okkur þótti mjög vænt um þig. Þótt þú sért dáinn finnum við að þú ert hjá okkur. Við söknum þín óskaplega mikið. Takk fyrir allt, elsku afi. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji guðs englar saman í hring, sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson.) Þínar afastelpur Unnur Sólveig og Vilborg Guðbjörg. Í Árneshreppi á Ströndum er landslag víða stórbrotið og hrikafag- urt. Íbúarnir norður þar eru útverðir mannabyggðar við Húnaflóann vest- anverðan. Á uppgangsárum byggð- arlagsins um og fyrir miðja tuttug- ustu öldina bjó þarna samfélag meira en fjögur hundruð manna og höfðu margir þeirra vinnu við síld- arbræðslurnar á Djúpuvík og Eyri í Ingólfsfirði. Þar voru hafskipa- bryggjur, en auk þess komu strand- ferðaskipin á tvær aðrar lögskipaðar hafnir, þ.e.a.s. Norðurfjörð og Gjög- ur. Munu ekki mörg sveitarfélög geta státað af fjórum höfnum, hvorki þá né síðar. En síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar, verksmiðju- rekstur verið aflagður og byggðin skroppið saman þannig að íbúarnir teljast nú aðeins um hálft hundrað manna sem berjast harðri baráttu fyrir tilveru sinni. Fólkið er í varn- arstöðu og helsta úrræðið er fólgið í samhjálp og samvinnu sem hreppsbúar hafa beitt á lofsverðan hátt í ríkum mæli. Í svona afskekkt- um og fámennum samfélögum hefur hver einstaklingur mikið gildi og byggðarlagið nálgast það að vera eins og sjálfstætt ríki í ríkinu þar sem íbúarnir una glaðir við sitt með- an vel gengur. – Það er hverri sveit mikils virði að hafa góðum og fjölhæfum mönnum á að skipa. Einn slíkur var Hjalti Guð- mundsson bóndi í Bæ. Hann var bú- fræðingur frá Hólum. Að námi loknu hvarf hann aftur til átthaganna og hóf félagsbúskap með föður sínum Guðmundi P. Valgeirssyni í Bæ í Trékyllisvík. Árið 1975 eða þar um bil hófst ævintýraleg uppbygging allra fjárhúsa ásamt hlöðum í sveit- inni. Flest nýju fjárhúsin rúmuðu tvö til þrjú hundruð fjár nema í Bæ, þar byggðu þeir feðgar fjárhús fyrir 400 fjár. Jafnhliða var alls staðar unnið að aukinni túnaræktun. Með þessum framkvæmdum varð hrein bylting í búskaparháttum, þannig að hin erf- iðu bústörf urðu sem leikur einn mið- að við það sem áður hafði verið. Hjalti kvæntist Guðbjörgu Þor- steinsdóttur frá Finnbogastöðum sem var og er mikill dugnaðarforkur og samhent manni sínum. Eignuðust þau hjón þrjár dætur sem eru upp- komnar og allar vel menntaðar og einn son um tvítugt sem lokið hefur stúdentsnámi. Ein systranna, Pál- ína, er hneigð fyrir búskap og býr í Bæ með efnilegum bómdasyni, Gunnari H. Dalkvist, ættuðum úr Reykhólasveit. Þegar Hjalti heim- sótti okkur hjónin í haust er hann var hér syðra til að leita sér lækn- inga lét hann þau orð falla að hann þyrfti ekki að hafa áhyggjur af bú- skapnum, því að hann væri í góðum höndum unga fólksins. Hann sá fyrir hugskotssjónum sínum að merkið sem þeir feðgar höfðu reist mundi standa áfram þótt þeirra nyti ekki lengur við. „Merkið stendur þótt maðurinn falli.“ Í þeirri vissu var mikil lífshamingja fólgin. Hjalta voru fljótlega falin ýmis fé- lagsstörf sem hann leysti af hendi með trúmennsku og dugnaði. Þannig sat hann í hreppsnefnd og var for- maður bæði búnaðarfélagsins og skólanefndarinnar. Það voru jafnan mikil og góð samskipti milli okkar í Heimavistarskólanum á Finnboga- stöðum og fólksins í Bæ. Einkum var oft leitað til Jensínu Óladóttur ljós- móður og hún kvödd á vettvang til stærri eða smærri aðgerða. En ef senda þurfti í kaupstað eftir matvöru eða þegar ljósavélin bilaði eða var treg í gang í frosthörkum vetrarins þá var oftast leitað eftir aðstoð skóla- nefndarformannsins, sem leysti vandamálin jafnan fljótt og vel. Allar eru minningarnar góðar frá okkar samskiptum. Hjalti fóðraði lengi fá- einar kindur fyrir fjölskyldu mína. Mér er enn í minni gleðin á andlitum barnanna þegar Hjalti kom niðureft- ir til okkar á vorin með hverja tví- lembuna á fætur annarri og renndi þeim inn á skrúðgrænt skólatúnið. Það voru dýrðardagar. Hjalti Guðmundsson var glaðvær og geðprúður maður. Eins og fleiri Árneshreppsbúar var hann gæddur mikilli kímnigáfu og gerði óspart grín að sjálfum sér. Hann tók veikindum sínum með mikilli karlmennsku og bar sig hetjulega til hinstu stundar, þótt hann vissi að maðurinn með ljá- inn væri á næstu grösum. Hann þráði heitt að komast norður á Strandir til að halda síðustu jól með fjölskyldu sinni. Hann náði því að vísu ekki vegna veikindanna. En á milli hátíð- anna bráði af honum þannig að hann klæddist og fékk fararleyfi norður. Dvaldi hann í Bæ framyfir áramótin. Taldi hann ferðinni m.a. til gildis að hann komst í fjárhúsin og sá kind- urnar úða í sig heyinu. Þrátt fyrir veikindin virtist hann njóta norður- ferðarinnar framar öllum vonum og var þakklátur fyrir að hún heppnaðist vel. En þrekið var á þrotum. Skömmu síðar elnaði honum sóttin og 26. jan- úar var veikindastríðinu lokið. Við hjónin sendum ekkjunni, Guðbjörgu Þorsteinsdóttur, börnum þeirra og öðrum aðstandendum innilegar sam- úðarkveðjur. Torfi Guðbrandsson og Aðalbjörg Albertsdóttir. HJALTI GUÐMUNDSSON ✝ Hákon Jónssonfæddist í Víðum í Reykjadal í Suður- Þingeyjarsýslu 6. ágúst 1918. Hann varð bráðkvaddur á Húsavík 25 janúar síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru þau Jón Sigurgeirsson, f. 25. okt. 1875, d. 20. okt. 1967, og kona hans Guðrún Erlendsdótt- ur, f. 23. feb. 1878, d. 1. mars 1955. Hálf- systir Hákonar sam- mæðra var Sigríður Stefánsdóttir, f. 6. ágúst 1900, d. 23. des. 1974. Eiginkona Hákonar var Sigrún Kristbjörg Hólmgeirsdóttir, f. 13. maí 1914, d. 6. apríl 1973. Foreldrar Bergs Viktorssonar er Lea, f. 6. maí 1993. Hólmgeir Helgi Hákonarson, f. 23. feb. 1951, sambýliskona hans er Anna Kristín Ólafsdóttir. Hákon var í farskóla, m.a. á Stórulaugum og Einarsstöðum í Reykjadal. Hann nam orgelleik hjá Guðfinnu á Hömrum í Reykjadal og hjá Páli Ísólfssyni í Reykjavík vet- urna 1935 og 1936. Hákon ólst upp á Brettingsstöð- um í Laxárdal og var þar bóndi til ársins 1945. Síðan bóndi í Tungu- gerði á Tjörnesi til ársins 1958. Hann flutti þá með fjölskylduna til Húsavíkur og settust þau að í Þórs- hamri. Hákon vann þar ýmsa dag- launavinnu, s.s. við hafnargerð og fleira. Lengst af vann hann þó hjá Fiskiðjusamlagi Húsavíkur. Seinna vann hann lítillega í Reykjavík. Síð- ustu starfsárin vann hann hjá Stokkfiski, seinna Laugafiski, í Reykjadal. Útför Hákonar verður gerð frá Húsavíkurkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 11. Sigrúnar voru Hólm- geir Björnsson, f. 24.8. 1880, d. 20.3. 1966, og Guðfinna Sigurjóns- dóttir, f. 14.1. 1885, d. 25.3. 1937. Börn Há- konar og Sigrúnar eru Jón Hákonarson, f. 26. júlí 1944, fyrrverandi sambýliskona hans er Jónína Guðrún Árna- dóttir. Dætur þeirra eru: Kristín Sif, f. 24. ágúst 1968, sonur hennar og Jóns Jó- hannessonar er Bjartur Örn, f. 17. 9. 1992. Sambýlismaður Kristínar Sifjar er Þorgeir Smári Einarsson og dóttir þeirra er Bryn- dís Birta, f. 28.8. 2001; Sigrún, f. 6.apríl 1971, dóttir hennar og Helga Sjá dagar koma ár og aldir líða og enginn stöðvar tímans þunga nið … Ég heyri fyrir mér fallega tenór- rödd Hákonar frænda míns sem nú hefur lokið lífsgöngu sinni og er horf- inn frá okkur. Mér finnst sem hann hafi verið til um „ár og aldir“ enda var hann orðinn fullorðinn þegar ég fædd- ist fyrir 47 árum og þegar maður kveð- ur hann þá kemur svo ótalmargt upp í hugann, svo margar góðar stundir sem vert er að þakka og minnast, að ekki er hægt að skrifa það allt. Þú, kæri frændi, áttir m.a.s. þinn þátt í tilvist minni, því hjá þér í Tungugerði munu foreldrar mínir hafa kynnst og stigið sín fyrstu skref í tilhugalífi sínu, á þeim sama bæ átti ég einnig fyrstu bernskusporin eftir að þið Rúna fluttuð í Þórshamar á Húsavík og foreldrar mínir í Tungu- gerði og hófu þar sinn búskap. Ég man því aldrei eftir þér í sveit- inni, sem þér var alltaf svo kær nema sem gesti en þú heimsóttir sveitirnar þínar ætíð er því var við komið og naust þín best þar. Vel man ég hve hlýjum orðum þú fórst um þitt bernskuheimili á Brettingsstöðum í Laxárdal. Sárt mun það hafa verið að kveðja Laxárdalinn, hlýju hans og gróður og flytja í svo ólíka sveit sem Tjörnesið er. Það átti þó oftar fyrir þér að liggja að slíta upp rætur þínar og umturna lífinu, flutningurinn til Húsa- víkur hefur líka verið stór ákvörðun, fara úr sveitinni og búskapnum og flytja á mölina til að stunda daglauna- vinnu. Það voru miklar breytingar fyr- ir náttúrubarnið Hákon Jónsson. Síð- an koma enn meiri sviptingar í lífinu, þú missir konuna þína elskulegu langt fyrir aldur fram og búsetunni í Þórs- hamri er lokið að sinni. Þú ert á ýms- um stöðum eftir það m.a. varstu í nokkur ár að miklu leyti hjá okkur í Steindal og svo á Narfastöðum hjá Njáli og Öbbu og ykkar leiðir lágu saman uns þau létust bæði. Fyrir mér var Hákon glaðsinna tón- elskt náttúrubarn, með öra og ríka lund sem svo oft sýndi sig í þvílíkri fá- dæma fljótfærni að af því eru sagðar margar skemmtisögur milli okkar frændsystkinanna. Það er þó ætíð á léttum nótum og sannarlega ekki gert til að minnka hans persónu eða særa neinn. Heldur vegna þess að Hákon gat verið svo skínandi skemmtilegur og óskaplega sérstakur að ekki var hægt annað en njóta nærveru hans og hafa gaman af hans mörgu og á stund- um einkennilegu uppátækjum í lífinu. Mér er í fersku minni síðasta ætt- armótið okkar Fossselsfólksins. Hve þú naust þess að spila og syngja með okkur, staðráðinn í því að missa ekki af neinu, sast líka fram á rauða morg- un hjá okkur í forstofunni á Breiðu- mýri, hrókur alls fagnaðar með Tuborginn í plastflöskunni, sem þú sagðir að væri „svo létt“ og færi „svo vel í hendi á gömlum manni“. Engin ástæða til að burðast með gler þegar slíkar framfarir verða á umbúðum. Þú sagðist ætla að njóta þessa alls til fulls því þú yrðir ekki með okkur á næsta ættarmóti. Margar bjartar bernskuminningar eru frá heimsóknunum í Þórshamar þar var alltaf gaman að koma. Þar fékk maður líka ýmislegt gott að borða sem ekki var á borðum í sveit- inni, fyrstu smjörkökusneiðina fékk ég þar og einnig bæði vínarpylsur og kjötfars. Eru þessir réttir einhvern veginn alltaf hálf „Þórshamarslegir“ í minningunni. Tónlistin var Hákoni í blóð borin og tók hann virkan þátt í tónlistarlífi á Húsavík og Þingeyjarsýslu, sér og öðrum til mikillar ánægju. Ég man hve ég gat verið hugfangin þegar frændi settist við stofuorgelið og spil- aði og söng af hjartans lyst, ég óskaði oft að það tæki engan enda ég mætti bara sitja til eilífðarnóns hlusta á hans fallega tónlistarflutning. En nú er orgelið þagnað, þú horf- inn yfir móðuna miklu og er ég þess fullviss að þar bíður þín fagnandi frændgarður og svo konan þín elsku- leg og nú tekur þú þar lagið með fal- legu röddinni þinni sem svo oft áður gladdi mig. Elsku frændi minn, þakka þér fyr- ir allt, af þér hef ég lært að það er hægt að aðlaga sig breyttum aðstæð- um og finna gleði í lífinu þó stundum syrti að um stundarsakir. Farðu vel, vinur minn. Ingibjörg Sigtryggsdóttir frá Steindal. Kær frændi minn er látinn. Ótal minningar koma upp í hugann þegar kemur að kveðjustund sem þessari. Mínar fyrstu minningar um frænda minn eru flestar tengdar Þórshamri, heimili Hákonar og Rúnu, ég er svona þriggja til fjögurra ára með mömmu og pabba í heim- sókn. Í Þórshamar var alltaf skemmti- legt að koma fyrir litla stelpu sem átti þar góðan frænda og frænku ég var svo heppin að kona Hákonar Sigrún (Rúna) var ömmusystir mín og fékk ég að heita í höfuðið á henni, maður nýtur góðs af ýmsu. Ég sit við eldhúsborðið í Þórshamri, það er kaffitími, það heyrist umgang- ur niðri í kjallara og upp kemur Hákon með bakaríspoka, í honum leynist hunangskaka sem ég fæ af með mjólk- inni minni og þvílíkt bragð, ég hugsa að þetta hafi verið í fyrsta sinn sem ég bragðaði á svona köku en ekki í það síðasta og enn þann dag í dag hugsa ég til kaffitímans í Þórshamri fyrir u.þ.b. 40 árum þegar ég kaupi mér hunangs- köku í bakaríi. Inni í stofu í Þórshamri stendur orgelið sem frændi getur spilað á, galdrað fram alls konar lög sem mað- ur hefur aldrei heyrt áður og ekki nóg með það, hann situr á galdrastóli, stóli sem hægt er að snúa bara set- unni á og þá hækkar hann og snúi HÁKON JÓNSSON

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.