Morgunblaðið - 05.02.2005, Qupperneq 48
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
VILTU EKKI FREKAR FÁ FRÍMIÐA
FYRIR OSTBORGARA?
JÚ, TAKK
ÞESSI FRÍMIÐI ER
ÚTRUNNINN
RITGERÐ Í ENSKU,
EF ÉG ÆTTI HEST
EF ÉG ÆTTI HEST ÞÁ MUNDI
ÉG FARA SVO LANGT FRÁ
ÞESSUM SKÓLA AÐ ÉG
ÞYRFTI ALDREI AÐ SKILA
ÞESSARI RITGERÐ
GÓÐ LEIÐ TIL ÞESS AÐ
FÁ SLÆMA EINKUNN
VIÐ KOMUM AFTUR EFTIR
NOKKRA
KLUKKUTÍMA
VERIÐ STILLTIR OG HORFIÐ
Á SJÓNVARPIÐ Á MEÐAN
VIÐ ERUM Í BURTU
HEYRÐIRÐU ÞETTA? VIÐ
MEGUM HORFA Á SJÓNVARP!
HÚRRRAA!!
VIÐ VILJUM FÁ SENT
VIDE0TÆKI OG NOKKRAR
SPÓLUR
ATHUGAÐU
HVORT ÞEIR
EIGA MANN-
ÆTUMYND
Svínið mitt
SNIFF!
© DARGAUD
SKO ...
SNIFF
GROIN!
NÚNA ÆTLA ÉG AÐ KUBBA
NAFNIÐ MITT ...
SNIFF!
OG SVO ÞITT ...
ADDA!!
ÞÚ MÁTT EKKI GERA ÞETTA!
ÞÚ DEILIR EKKI SAMLOKUNNI
MEÐ SVÍNINU
JÁ, ÞÚ GÆTIR
SMITAST
AF VÍRUS ...
... SVONA BERAST
SMITSJÚKDÓMAR ...
ÉG HELD AÐ HÚN HAFI
SKILIÐ ÞETTA!
ERTU VISS?? DREKKTU RÚNAR, DREKKTU
HÓSTASAFTIÐ ÞITT. ÉG HELD ÉG
HAFI SMITAÐ ÞIG
SNIFF!
Dagbók
Í dag er laugardagur 5. febrúar, 36. dagur ársins 2005
Víkverji hefur ver-ið dálítið þenkj-
andi yfir unglingum
að undanförnu, öllu
heldur því sem oft er
kallað unglingaveiki.
Þannig er mál með
vexti að vinkona
Víkverja var af-
skaplega tvístígandi
fyrir skemmstu
varðandi unglinginn
á heimilinu. Sá
kvartaði yfir sífelld-
um höfuðverk, auk
þess sem bakið var
gjörsamlega að
ganga frá unglingn-
um. Af þessu má skilja að unglings-
tetrið var illa til reika og með þján-
ingarsvip liðlangan daginn vegna
bakverkja og höfuðkvala.
Nú ber að greina frá því að ung-
lingurinn situr fyrir framan tölvuna
sína 6-8 klukkustundir á dag, „lafir á
Netinu“ eins og móðir hans kallar
það, og rétt stendur upp til að fá sér
næringu og til að láta aðra íbúa
hússins vita um vanlíðan sína og
þjáningar. Móðir unglingsins sá
fljótlega að við þetta ástand varð
ekki búið öllu lengur. Nú skyldi ung-
lingurinn til læknis og engar refjar.
Eftir örlítið pot og þukl og örstutta
yfirheyrslu kvað læknirinn síðan
upp úrskurð sinn. Ung-
lingurinn skyldi draga
úr þaulsetu sinni við
tölvuna og fara frekar í
sund eða fá sér göngu
túr. Með þetta lækn-
isráð í farteskinu hélt
unglingurinn heim á leið
og viti menn, innan
nokkurra daga hafði
stórlega dregið úr
verkjum og lund ung-
lingsins öll orðin stór-
lega léttari, öðrum íbú-
um hússins til óbland-
innar ánægju.
x x x
Tíðin undanfarnar vikur og mánuðiveldur því að bílafloti höfuðborg-
arsvæðisins er heldur óásjálegur,
eiginlega alveg haugskítugur. Vík-
verji nennir jafnan ekki að þrífa bíl-
inn sinn sjálfur heldur lætur gera
það á þar til gerðum þvottastöðvum.
Og hann leggur leið sína alltaf í Sól-
túnið, í Bón- og þvottastöðina. Ekki
aðeins fær hann þar vandaðan bíl-
þvott, heldur fer þvottastöðin einnig
mun betur með lakkið á bílnum en
stóru kústarnir á sjálfvirku þvotta-
stöðunum. Þetta hafa mun fleiri en
Víkverji uppötvað en Víkverji telur
það vel þess virði að leggja á sig að
sitja í biðröðinni í dágóða stund.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Salurinn | Ögmundur Þór Jóhannsson gítarleikari debúterar í Salnum í dag
kl. 16. Á efnisskrá tónleika Ögmundar eru sex krefjandi og áhugaverð verk
og m.a. sónata fyrir fiðlu eftir J.S. Bach sem Ögmundur umritaði fyrir Gítar
og aðlagast að hans sögn afar vel tónsviði gítarsins. „Verkin gera öll ólíkar og
miklar kröfur. Ég vona að ég hafi m.a. nægan kraft fyrir sónötuna eftir Al-
bertó Ginastera, nógu góðan smekk fyrir sónötu Bach og hina japönsku ró
sem fylgir verkinu Hika eftir Leo Brouwer,“ segir Ögmundur, sem vann
Agustin Barrios gítarkeppnina í Suður-Frakklandi árið 2003 og komst m.a.
einnig til úrslita í tveimur gítarkeppnum á Spáni.
Morgunblaðið/ÞÖK
Gítarleikari debúterar
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Og hann sagði við þá: Gætið yðar, og varist alla ágirnd. Guði og orði
náðar hans, sem máttugt er að uppbyggja yður og gefa yður arfleifð með
öllum þeim, sem helgaðir eru. (Lúk. 12, 15.)