Morgunblaðið - 05.02.2005, Page 56

Morgunblaðið - 05.02.2005, Page 56
56 LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ Fyrirtækið heitir Reykjavík Music Productions segirÞorvaldur aðaðalviðfangsefni þess sé „framleiðsla“tónlistar. „Þarna sameinast lagasmiðir og upp- tökustjórar um verkefnin, sem felast oftast í því að semja lög, útsetja þau og taka þau upp. Við höfum sett upp myndarlegt hljóðver, þar sem aðstaða er fyrir 3–4 „pród- úsera“ að vinna í einu, með fullkomnum upptökukerfum og öllu tilheyrandi,“ segir Þorvaldur Bjarni. Á ensku er fyr- irtæki af þessu tagi kallað „music production house“. Þessari starfsemi fylgir óhjákvæmilega, að sögn Þor- valdar, umsýsla með höfundarrétt á lögunum. „Við erum því með svokallaðan „publishing“ hluta, sem heldur utan um lagasafn lagahöfunda og vinnur að því að koma lögum þeirra á framfæri, hvort sem það er hér á landi eða erlend- is. Þessu hefur ekki verið sinnt af miklum krafti hér, en þó er þetta einn stærsti hluti tónlistarbransans í heiminum.“ Hann bætir við að RMP sé fyrsta forlagið sem gert hafi samning við STEF (Samband tónskálda og eigenda flutn- ingsréttar) um svona umsýslu. Þorvaldur er ekki eini lagasmiðurinn og „pródúsentinn“ sem fyrirtækið hefur á sínum snærum. Þar má nefna með- eiganda Þorvaldar að fyrirtækinu, Vigni Snæ Vigfússon úr hljómsveitinni Írafári, auk manna á borð við Roland Hart- well, Hrannar Ingimarsson og fleiri. „Við erum líka mjög opnir fyrir samvinnu við fleiri, enda gengur fyrirtækið að miklu leyti út á samvinnu,“ segir Þorvaldur. Aðstandendur fyrirtækisins hafa komið víða við og hafa fjölbreytta reynslu í poppbransanum. „Ég hugsa þó að við munum einbeita okkur að nútímalegri dægurlagatónlist,“ segir Þorvaldur, en á meðal helstu verkefna fyrirtækisins að undanförnu má nefna hljómplötur með Margréti Eiri, hljómsveitinni Í svörtum fötum og söngleiknum Hárinu. Spurður um væntanleg verkefni segir Þorvaldur ým- islegt vera í farvatninu. „Nú er von á nýrri plötu með Íra- fári, sem er náttúrulega innanhússverkefni hjá okkur. Svo ætlum við að gera nýja barnaplötu í röðinni Stóra stundin okkar. Þar ætlum við að fá tiltölulega óþekkta lagahöfunda til liðs við okkur, sem er mjög spennandi hugmynd,“ segir Þorvaldur, en bætir við að aðalverkefnið sé núna að und- irbúa lagasafn fyrirtækisins, sem í muni vera 30–40 bestu lög þeirra höfunda sem það hafi á sínum snærum. Tónvinnsluskóli Út frá þessari starfsemi óx svo Tónvinnsluskóli Þorvald- ar Bjarna. „Við vorum komin með þessa góðu aðstöðu og mannauð, þannig að ekkert var því til fyrirstöðu að stofna svona skóla. Mig hefur lengi dreymt um að geta farið í gegnum allt ferlið með nemendum; frá hugmynd að lagi þangað til það er tilbúið í spilun. Við tengjum saman aka- demískt nám, í hljómfræði og þess háttar, og praktískt. Nemendur semja sitt eigið lag og svo förum við í gegnum ferlið; byrjum til dæmis á tölvuvinnslu, færum okkur svo meira yfir í hljóðverið. Á endanum er komið útfært lag og þá er hægt að byrja á því að kynna það og reyna að fá það spilað einhvers staðar. Loks eru nemendur vonandi komn- ir með þokkalega „vöru“ í hendurnar og það sem meira er; eru orðnir færir um að bjarga sér sjálfir í bransanum,“ segir hann. Þorvaldur segir að þessa kennslu hafi tilfinnanlega vant- að hérna hingað til. „Ég finn það bara á ásókninni. Þetta verður líka hálfgerð hæfileikaleit í leiðinni; leit að laga- smiðum og hljóðvinnslumönnum framtíðarinnar.“ Tónlist | Þorvaldur Bjarni og Reykjavík Music Productions Leit að hæfileikafólki framtíðarinnar Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson er einn reyndasti tónlistarmaður landsins. Hann starfrækir nú fyr- irtæki á sviði tónlistarframleiðslu þar sem reynsla hans nýtist vel. Morgunblaðið/Þorkell Þorvaldur Bjarni hefur nóg að gera við tónvinnslu og tónvinnslukennslu í fyrirtæki sínu. ivarpall@mbl.is reykjavikmp.com FRÁ FRAMLEIÐENDUM „PIRATES OF THE CARIBBEAN“ ÁLFABAKKI Sýnd kl. 1.30, 4, 5.30, 8 og 10.30. Sýnd kl. 10.30.  S.V. Mbl.  Kvikmyndir.com Kvikmyndir.is Ian Nathan/EMPIRE Sýnd kl. 5.30 og 10.05. Sýnd kl. 2.45, 6 og 9.10. tilnefningar til óskarsverðlauna þ.á.m. Besta mynd, besti leikstjóri, besti leikari-Leonardo Dicaprio, bestu aukaleikarar- Cate Blanchett og Alan Alda. 11 VINSÆLUSTU MYNDIRNAR Á FRÖNSKU KVIKMYNDAHÁTIÐINNI V.G. DV. Langa trúlofunin - Un Long dimanche. Sýnd kl. 3, 5.30 og 8. Grjóthaltu kjafti - Tais toi. Sýnd kl. 8.30. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 10.30. SÝND Í LÚXUS VIP KL. 5.30, 8 OG 10.30. KRINGLAN Sýnd kl. 9 og 11. KRINGLAN Sýnd kl. 12 og 2.15. Nýjasta snilldarverkið frá Óskarverðlaunahafanum Clint Eastwood. Eftirminnilegt og ógleymanlegt meistaraverk. Besta mynd hans til þessa. Hlaut tvenn Golden Globe verðlaun KRINGLAN Sýnd kl. 4.30, 6, 8 og 10. B.i. 14 ára. Nýjasta snilldarverkið frá Óskarverðlaunahafanum Clint Eastwood. Eftirminnilegt og ógleymanlegt meistaraverk. Besta mynd hans til þessa. Nýjasta snilldarverkið frá Óskarverðlaunahafanum Clint Eastwood. Eftirminnilegt og ógleymanlegt meistaraverk. Besta mynd hans til þessa. Hlaut tvenn Golden Globe verðlaun Sýnd kl. 3.30, 6, 8.30 og 11. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14 ára.  Ó.H.T. Rás 2. .T. ás 2  H.L. Mbl. Ein vinsælasta grínmynd allra tíma Þrjár vikur á toppnum í USA Ein vinsælasta grínmynd allra tíma Þrjár vikur á toppnum í USA LEONARDO DiCAPRIO H.L. Mbl. Kvikmyndir.is Sýnd kl. 3.Sýnd kl. 3.  H.L. Mbl.OCEAN´S TWELVE Ó.H.T Rás 2 Tvær tilnefningar til óskarsverðlauna Kiefer Sutherland hefur rekiðdóttur sína úr tökuliði þátt- anna 24. Dóttir hans, hin 16 ára gamla Sarah Sutherland, vann sem aðstoðarmaður tökustjóra en hefur nú verið sparkað af pabba vegna þess að honum fannst hún blaðra alltof mikið og trufla hann og aðra í tökum. Hann seg- ist leggja mikið upp úr því að al- gjör þögn ríki þegar tökur séu í gangi, en dóttir hans – af öllum – hafi sífellt verið gasprandi og kallandi fram óæskilegar skipanir. Kiefer sá sig því knúinn til að reka dóttur sína, en er búinn að finna henni annað starf. Fólk folk@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.