Morgunblaðið - 17.02.2005, Síða 2
2 FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FORELDRAR STYRKTIR
Ríkisstjórnin hefur samþykkt að
leggja til við Alþingi að foreldrar
langveikra eða fatlaðra barna eigi
rétt á greiðslum í allt að þrjá mánuði
þegar börnin veikjast alvarlega eða
greinast með alvarlega fötlun.
Saman gegn hótunum
Sýrlendingar og Íranar sögðust í
gær ætla að standa saman gegn ut-
anaðkomandi hótunum en Banda-
ríkjamenn hafa beitt bæði löndin
viðskiptalegum refsingum. Útför líb-
anska stjórnmálaleiðtogans Rafiks
Hariris var gerð í gær en Sýrlend-
ingar eru grunaðir um aðild að
morðinu á honum.
Forstjórar ráðnir
Ragnhildur Geirsdóttir hefur ver-
ið ráðin forstjóri Flugleiða hf. og Jón
Karl Ólafsson forstjóri Icelandair.
Munu þau starfa með Sigurði Helga-
syni þangað til hann lætur af störf-
um 1. júní nk.
Kyoto-sáttmáli tekur gildi
Kyoto-sáttmálinn um samdrátt í
losun koldíoxíðs út í andrúmsloftið
tók gildi í gær en 141 ríki hefur nú
staðfest hann, þ.á m. Ísland. Banda-
ríkin standa ekki að sáttmálanum.
Samþykktu bætur
Þing Ísraels samþykkti í gær að
greiða landtökumönnum gyðinga
bætur fyrir að yfirgefa Gaza. Er nú
talið víst að áætlun um brotthvarf
Ísraela frá Gaza í sumar verði að
veruleika ef ríkisstjórn Ariels Shar-
ons fær fjárlög samþykkt í mars.
Ríkir lífeyrissjóðir
Heildareignir lífeyrissjóðanna
stefna í eitt þúsund milljarða í næsta
mánuði. Sjóðirnir eiga nú 974 millj-
arða, þar af 216 milljarða í erlendum
eignum. Eignir lífeyrissjóðanna juk-
ust um 150 milljarða í fyrra.
Y f i r l i t
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is
Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Skarp-
héðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson
Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 33
Erlent 16/18 Viðhorf 34
Höfuðborgin 21 Umræðan 34/37
Akureyri 22 Minningar 38/48
Landið 22 Brids 51
Austurland 24/25 Dagbók 52/54
Suðurnes 24/25 Fólk 56/61
Daglegt líf 26/27 Bíó 58/61
Neytendur 28/29 Ljósvakamiðlar 62
Listir 30 Veður 53
* * *
!
"
#
$
%&' (
)***
BRÁÐNUN íss og jökla á norður-
hveli var til umfjöllunar í frétt
breska ríkissjónvarpsins BBC í
fyrradag. Þar var m.a. vitnað í setn-
ingarræðu Ólafs Ragnars Grímsson-
ar, forseta Íslands, sem hann hélt 5.
febrúar sl. á ráðstefnu í Delhí á Ind-
landi um sjálfbæra þróun. Forsetinn
nefndi hörmulegar afleiðingar flóð-
bylgjunnar annan dag jóla en sagði
einnig að viðvörunarbjöllur hringdu
á norðurslóðum. Þar væru víðtæk og
uggvekjandi merki um yfirvofandi
hættu vegna verðurfarsbreytinga.
Síðan sagði Ólafur Ragnar: „Það er,
engu að síður, margt fólk í áberandi
stöðum sem dregur í efa sívaxandi
vísbendingar um veðurfarsbreyting-
ar, fólk sem tekur áhyggjulausa af-
stöðu til framtíðar okkar, sem trúir
því að engin ástæða sé til að óttast,
sem jafnvel flokkar vaxandi vísinda-
gögn sem úthugsaðan hræðsluáróð-
ur dulbúinn sem visku og vísdóm.
Ég geri þeim tilboð. Sameinist
mér í ferð til norðursins, til heim-
skautasvæðanna. Við skulum
ferðast saman um rússnesku túndr-
una, yfir Síberíu
til Alaska og
norðursvæða
Kanada, yfir til
Grænlands og Ís-
lands og heim-
skautahéraða
Skandinavíu-
landa.“
Í viðtali BBC
við Ólaf Ragnar
var nefndur sá
möguleiki að leiðtogar heimsins
færu til norðurhjarans svo þeir
gætu séð með eigin augum áhrif
hlýnunar andrúmsloftsins, þ.e.
bráðnun jökla og íss. Fréttina er að
finna á vefsetri stöðvarinnar.
Ekki formlegt boð
Örnólfur Thorsson, skrifstofu-
stjóri hjá forsetaembættinu, sagði
ummæli Ólafs Ragnars Grímssonar
um að þjóðarleiðtogar væru vel-
komnir til Íslands til að skoða afleið-
ingar loftslagsbreytinga hvorki hafa
verið formlegt heimboð né áskorun.
Örnólfur sagði ummælin hafa fall-
ið í viðtali forsetans við BBC-sjón-
varpsstöðina eftir að hann flutti
setningarræðu á alþjóðlegu þingi í
Delhí á Indlandi en eitt af meginvið-
fangsefnum þingsins hefði verið af-
leiðingar af hlýnun loftslags.
„Í framhaldi af þessu tók BBC
viðtal við forsetann þar sem hann
fjallaði m.a. um nauðsyn þess að al-
þjóðasamfélagið gerði sér skýra
grein fyrir því hvaða breytingar
væru að eiga sér stað á norðurslóð-
um og að það væri fróðlegt að sjá
þessi ummerki bæði á jöklum á Ís-
landi, í Alaska og annars staðar á
norðurslóðum. Síðan var forsetinn
spurður að því hvort hann myndi
bjóða þjóðarleiðtogum að koma til
Íslands og sjá þessar breytingar og
hann sagði í framhaldi af því að þeim
væri það velkomið enda væri fróð-
legt fyrir alla leiðtoga heims að
kynna sér hvað væri að gerast í
hlýnun loftslags á norðurslóðum en
því hefðu verið gerð góð skil í ný-
legri skýrslu Norðurskautsráðsins.“
BBC ræddi við forseta Íslands um hlýnun jarðar
Þjóðarleiðtogar þurfa að
kynna sér áhrif hlýnunar
Ólafur Ragnar
Grímsson
Meira á www.mbl.is/ítarefni
FORLÁTA íslenskt drykkjarhorn
frá lokum 15. aldar hefur verið keypt
til Íslands af einkaaðila í Noregi og
er það væntanlegt til landsins síðar í
mánuðinum.
Það er Þjóðminjasafnið sem kaup-
ir hornið með stuðningi mennta-
málaráðherra og Ölgerðarinnar Eg-
ils Skallagrímssonar ehf.
Hornið gengur undir nafninu
Maríuhornið og er með elstu
drykkjarhornum sem varðveist hafa.
„Hornið hefur mikið listrænt og
sögulegt gildi, er skorið stílfærðu
jurtaskrauti sem skipt er niður í
belti og á því er útskorin áletrun,
AUE MARIA (Ave Maria). Mikill
fengur er fyrir Þjóðminjasafnið að fá
þetta horn heim eftir aldalanga fjar-
veru en því verður komið fyrir meðal
annarra miðaldahorna á grunnsýn-
ingu Þjóðminjasafnsins,“ segir í til-
kynningu af þessu tilefni.
Fram kemur að alls hafi varðveist
um tæplega fjörutíu íslensk útskorin
drykkjarhorn frá miðöldum, en ein-
ungis átta þeirra séu varðveitt hér á
landi, öll á Þjóðminjasafninu.
Drykkjarhorn frá 15. öld til Íslands
Íslenska drykkjarhornið frá miðöld-
um, sem gengur undir heitinu Mar-
íuhornið, endurheimt frá Noregi.
Með elstu drykkjarhorn-
um sem varðveist hafa
EKKERT var flogið innanlands í
gær fyrr en í gærkvöldi er tvær
vélar flugu til Akureyrar og
miklar truflanir urðu á milli-
landaflugi vegna fárviðris á
Keflavíkurflugvelli í gærmorgun.
Þá var ferð Herjólfs frá Vest-
mannaeyjum til lands felld niður
og Hellisheiði var ófær í rúmlega
tvær klukkustundir.
Þegar veðrið var sem verst á
Keflavíkurflugvelli var vindhraði
um 30–35 m/s og blés stíft úr
vestri, að sögn Trausta Tóm-
assonar, deildarstjóra flugmála-
stjórnar á Keflavíkurflugvelli.
Vegna vindsins varð flugvél
sem kom frá Boston að bíða í um
þrjár klukkustundir úti á flug-
braut þar sem ekki var hægt að
leggja henni upp við flugstöðv-
arbygginguna. Um 150 farþegar
voru um borð. Samspil mikillar
ofankomu og sterks vinds varð til
þess að erfiðlega gekk að afísa
þær flugvélar sem áttu að fljúga
utan. Alls töfðust brottfarir á sex
vélum um morguninn, flestar
töfðust um 3–4 klukkustundir en
sumar lengur.
Ljósmynd/Jóhannes Kr. Kristjánsson
Mikið var að gera hjá flugvallarþjónustudeild slökkviliðsins á Keflavíkurflugvelli í gær.
Mikil röskun á samgöngum vegna veðurs
SAMKEPPNISSTOFNUN hefur í
bréfi til Passport kvikmynda fallist á
þau sjónarmið fyrirtækisins að út-
hlutanir Kvikmyndamiðstöðvar Ís-
lands (KMÍ) í formi ríkisstyrkja til
kvikmyndafyrirtækja heyri undir
samkeppnislög. Þetta kemur fram í
fréttatilkynningu frá Passport kvik-
myndum.
„Í andmælum KMÍ til Samkeppn-
isstofnunar frá 28. október sl. kemur
fram að KMÍ telur starfsemi sína
ekki falla undir samkeppnislög, og
að sérlög um kvikmyndagerð gangi
samkeppnislögum framar. Passport
kvikmyndir benda m.a. á í framhaldi
af því að samkeppnislög hafi strang-
ari málsmeðferðarreglu og haldi því
gildi sínu ef þau skarast.
Samkeppnisstofnun fjallar ekki
um eða tekur afstöðu til einstakra
úthlutana KMÍ til kvikmyndafyrir-
tækja, og telur að með breytingu á
reglugerð í desember sl. sé reglu-
verk KMÍ viðunandi. Samkeppnis-
stofnun sér því ekki ástæðu til að
íhlutast frekar í málinu,“ segir í til-
kynningunni.
Úthlutanir
KMÍ heyra
undir sam-
keppnislög