Morgunblaðið - 17.02.2005, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 17.02.2005, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2005 11 FRÉTTIR Útsölulok Enn meiri verðlækkun undirfataverslun Síðumúla 3 - Sími 553 7355 Opið virka daga frá kl. 11-18, laugardaga frá kl. 11-15. 19. febrúar Kringlan — Smáralind ÚRVAL AF FERMINGARFATNAÐI Hverafold 1-3 • Foldatorgið Grafarvogi • Sími 577 4949 Opnunartími mán.-fös. kl. 11-18 & lau. kl. 11-14 Mikið úrval af glæsilegum fatnaði frá París Samkvæmistoppar Pils og glæsilegar peysur Nýtt kortatímabil KOSTNAÐUR þátttakenda í sam- anburðarútboði Póst- og fjarskipta- stofnunar (PFS), vegna UHF-tíðna fyrir stafrænt sjónvarp, miðast við útlagðan kostnað stofnunarinnar af verkefninu, að sögn Hrafnkels V. Gíslasonar, forstjóra PFS. Hann taldi að ekki yrði um mjög háar fjár- hæðir að ræða, í mesta lagi nokkrar milljónir. Kostnaðurinn liggur ekki enn fyrir, því ekki er búið að bjóða tíðnirnar út né vinna úr tilboðum. Ef t.d. koma fram mjög flókin tilboð gæti þurft að leita til utanaðkom- andi aðila með úrvinnslu, sem myndi hleypa kostnaðinum upp. Hrafnkell benti á að meginatriði fyrirhugaðs útboðs á UHF-tíðnum væri krafan um dreifingu stafræna sjónvarpsefnisins. Tilgangur út- boðsins væri ekki að leita þeirra sem tilbúnir eru að greiða mest fyr- ir UHF-tíðnirnar fyrir stafræna sjónvarpið, heldur þeirra sem taldir verða ráða best við að uppfylla skil- yrði útboðsins. Þar er m.a. áskilið að útsendingar einnar rásar dreifikerf- is hvers leyfishafa nái að lágmarki til 40 sveitarfélaga innan eins árs frá útgáfu heimildar og til 98% heimila landsins innan tveggja ára. Auk þráðlausra sendinga frá sjón- varpssendi verður heimilt að dreifa stafræna sjónvarpsmerkinu á annan hátt, t.d. um Netið, ljósleiðara eða gervihnött. Auk þess að greiða fyrir tíðnirn- ar, samkvæmt kostnaði PFS við út- boðið, munu leyfishafar einnig þurfa að greiða ýmis gjöld á leyfistíman- um til PFS í samræmi við ákvæði laga um PFS, laga um fjarskipti og gjaldskrá PFS. Að sögn Hrafnkels verða þau gjöld sambærileg við þau sem greidd eru í dag af starfrækslu hliðrænna sjónvarpssenda. Gjald- skráin miðast við afl senda og hlaupa gjöldin á tugum þúsunda og upp í einhver hundruð þúsunda á ári fyrir mjög öfluga sjónvarpssenda. „Gjaldtaka okkar af ljósvakatíðnum, hvort sem það er fyrir GSM eða eitthvað annað, er aðeins heimil ef Alþingi hefur heimilað slíka gjald- töku. Þetta er í raun og veru skattur og einungis Alþingi getur lagt á skatta,“ sagði Hrafnkell. Hann minnti á að Alþingi hefði nýlega samþykkt lög um þriðju kynslóð far- síma. Þar er veitt heimild til að leggja 60 milljóna króna gjald á til- tekna úthlutun, samkvæmt nánari reglum. Hrafnkell sagði ekki heim- ild í lögum til að innheimta sam- bærilegt gjald fyrir sjónvarpstíðnir. PFS mætti einungis innheimta fyrir tíðnir sem næmi kostnaði stofnunar- innar við útboð. Hrafnkell sagði ólíkar aðferðir viðhafðar milli landa við gjaldtöku af ljósvakatíðnum. Þegar tíðnir fyrir þriðju kynslóð farsíma voru boðnar út í hinum ýmsu Evrópulöndum hafi þurft að greiða hátt gjald í sumum löndum, en í öðrum, t.d. Svíþjóð, hafi ekki verið greitt sérstaklega fyrir tíðnirnar heldur gerð krafa um útbreiðslu. Hann sagði stjórnvöld í hverju landi geta valið úr leiðum til að tryggja að almenningur fái sem mestan afrakstur af notkun þeirra auðlinda sem ljósvakatíðnirnar eru. „Sú leið sem kosin hefur verið í þessu tilviki er að setja útbreiðslu- kröfu á UHF-tíðnir fyrir stafrænt sjónvarp. Við höfum almenna heim- ild til að gera það og höfum haft samráð við samgönguráðuneytið um þessa nálgun,“ sagði Hrafnkell. Ekki settur verðmiði á UHF- tíðnir fyrir stafrænt sjónvarp  Meira á www.mbl.is/ítarefni UMHVERFISRÁÐ Reykjavíkur hafnar því í umsögn sinni til ráðherra að bónda á Kjalarnesi verði veitt ótímabundin undanþága frá reglu- gerð sem bannar dreifingu á búfjár- áburði utan tímabilsins frá 15. mars til 1. nóvember, og á frosna jörð. Bóndinn hafði dreift hænsnaskít á tún nýlega og var umhverfissviði Reykjavíkur gert aðvart. Starfs- menn umhverfissviðs stöðvuðu dreif- inguna og sótti bóndinn þá um und- anþágu frá reglugerðinni til umhverfisráðherra. Ráðherra er skylt að leita umsagnar Reykjavík- urborgar á umsókn bóndans og að mati ráðsins mæla sterk rök gegn því að veita undanþáguna. Í umsögn umhverfissviðs, sem umhverfisráð hefur samþykkt, er bent á að búfjáráburður sem dreift sé á frosna jörð nýtist lítið sem ekk- ert þar sem næringarefni komist ekki niður í jarðveginn og meirihlut- inn skolist burtu við leysingar. Enn- fremur sé hætta á aukinni lyktar- mengun þegar áburðurinn gengur ekki niður í svörðinn. Að lokum sé meiri hætta á dreifingu smitefnis liggi áburðurinn, í þessu tilviki hænsnaskítur, á frosinni jörð þar sem fuglar geti komist í hann. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í um- hverfisráði sátu hjá við afgreiðslu málsins og bentu í bókun sinni á að skarna hefði verið dreift á freðna jörð frá landnámsöld og það væri al- siða um allt land. Sunnanlands skipt- ist á frost og þíða svo áburðurinn lægi sjaldnast lengi á frosinni jörð. Umhverfisráð Reykjavíkur gefur um- sögn um umsókn bónda á Kjalarnesi Vilja ekki dreifingu búfjáráburðar á frosna jörð Fréttasíminn 904 1100
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.