Morgunblaðið - 17.02.2005, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 17.02.2005, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2005 55 DAGBÓK Félagsstarf Aflagrandi 40 | Myndlist kl. 13 víd- eóstund kl. 13.15 í matsalnum. jóga kl. 9 boccia kl. 10, opið er fyrir frjálsa spilamennsku alla daga. Árskógar 4 | Bað kl. 8–14, handavinna kl. 9–16.30, boccia kl. 9.30, helgistund kl. 10.30, leikfimi kl. 11, smíði/ útskurður kl.13–16.30, myndlist kl. 13.30. Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa- vinna, böðun, hárgreiðsla, leikfimi, myndlist, bókband, söngur, fótaað- gerð. Dalbraut 18–20 | Kl. 9–11 kaffi og dag- blöð, baðþjónusta og hárgreiðslu- stofan opin, kl. 10–14 handa- vinnustofan opin, kl. 11.15–12.15 matur, kl.1 4.30–15.30 kaffi. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids kl. 13. Félagsvist kl. 20. Aðalfundur Fé- lags eldri borgara í Reykjavík og ná- grenni, verður haldinn í Ásgarði, Glæsibæ, laugardaginn 19. febrúar kl. 13. Venjuleg aðalfundarstörf. Ath. að- eins þeir sem framvísa félagsskírtein- um hafa atkvæðisrétt. Félagar fjöl- mennið og takið með ykkur gesti. Stjórnin. Félag kennara á eftirlaunum | Bók- menntaklúbbur í KÍ-húsi kl. 14. Ekkó æfir í KHÍ kl. 17. Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Bridsdeild FEBK Gullsmára 13 spilar mánu- og fimmtudaga. Skráning kl. 12.45 á hádegi. Eldri borgarar vel- komnir. Þátttökugjald 200 kr. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Vatnsleikfimi kl. 9.10 í Mýrinni og inni– golf á sama stað kl. 11.30. Í Kirkjuhvoli spænska 400, kl. 12, karlaleikfimi og málun kl. 13 trélist kl. 13.30, spænska byrjendur kl. 18. Opið í Garðabergi frá kl. 12.30–16.30. Furugerði 1 | Kl. 9, aðstoð við böðun, handavinna, smíðar og útskurður, kl. 13, sagan, kl. 14, boccia. Á morgun, föstudag, verður messa kl. 14. Gjábakki, félagsstarf | Góugleði í Gjá- bakka. Dagskráin hefst kl. 14. Flosi Ei- ríksson oddviti minnihlutans segir gestum hvernig var að vera lítill drengur í Kópavogi. Dansarar frá Dansskóla Sigurðar Hákonarsonar dansa, Ólafur Hannibalsson ræðir um Lífið og tilveruna og Anna Klara og Sævar Kristinsson. Kaffihlaðborð. Hraunbær 105 | Kl. 9 almenn handa- vinna, bútasaumur, perlusaumur, kortagerð, keramik og nýtt t.d. dúka- saumur, dúkamálun, saumað í plast, hjúkrunarfræðingur á staðnum, kl. 10, boccia, kl. 11, leikfimi, kl. 12, hádeg- ismatur, kl. 14 félagsvist. kl. 15 kaffi. Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi frá kl. 9, pútt kl. 10, leikfimi í Bjarkarhúsinu kl. 11.20, glerbræðsla kl. 13, bingó kl. 13.30. Rúta fer frá Hjallabraut, Hraun- seli og Höfn kl. 19 í Borgarleikhúsið. Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa – bútasaumur kl. 9–13, hannyrðir kl. 13–16.30, félasgsvist kl. 13.30, kaffi og gott meðlæti, böðun virka daga fyrir hádegi. Fótaaðgerðir – hársnyrting. Korpúlfar Grafarvogi | Vatnsleikfimi í Grafarvogslaug kl. 9.30 á morgun, föstudag. Laugardalshópurinn í Þróttarheim- ilinu | Leikfimi fyrir eldri borgara í dag kl. 12.15. Norðurbrún 1, | Kl. 9–12 leir, kl. 9– 16.30 opin vinnustofa, kl. 10 ganga, kl. 13–16.30 leir. Sjálfsbjörg félag fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu | Skák í kvöld kl. 19.30. Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir, kl. 9.15–14 aðstoð v/ böðun, kl. 9.15–15.30 hannyrðir, kl. 9– 10 boccia, kl. 10.15–11.45 enska, kl. 10.15–11.45 spænska, kl. 11.45–12.45 hádegisverður, kl. 13–14 leikfimi, kl. 13– 16 glerbræðsla, kl. 13–16 kóræfing, kl. 14.30–15.45 kaffiveitingar, kl. 10.30 fyrirbænastund í umsjón séra Hjálm- ars Jónssonar dómkirkjuprests. Allir velkomnir. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.45, bókband, pennasaumur og hár- greiðsla kl. 9, morgunstund og fót- snyrting kl. 9.30, boccia kl. 10, gler- skurður og frjáls spil kl. 13. Félagsmiðstöðin er opin öllum aldurs- hópum. Þórðarsveigur 3 | Bingó kl. 13.30. Kirkjustarf Akureyrarkirkja | Kyrrðar- og fyr- irbænastund kl. 12. Léttur hádeg- isverður á eftir. Árbæjarkirkja | Starf með 10–12 ára börnum er kl. 14.30 og 7–9 ára börn- um er kl. 15.30. Söngur, sögur, leikir og ferðalög. Áskirkja | Samsöngur kl. 14 undir stjórn organista, kaffi og meðlæti. Verið velkomin. TTT-starfið, samvera kl. 17–18. TEN-SING, starfið, æfingar leik- og sönghópar kl. 17 og 20. Bústaðakirkja | Foreldramorgnar í Bústaðakirkju kl. 10–12. Þar koma for- eldrar saman með börn sín og ræða lífið og tilveruna. Þetta eru gefandi samverur fyrir þau sem eru heima og kærkomið tækifæri til þess að brjóta upp daginn með helgum hætti. www.kirkja.is. Digraneskirkja | Foreldramorgnar kl. 10 til 12. Umsjón Anna Arnardóttir. Leikfimi Í.A.K. kl. 11.15. Bænastund kl 12.10. www.digraneskirkja.is Fella- og Hólakirkja | Foreldramorgn- ar kl. 10–12. Allir foreldrar, afar eða ömmur sem eru heima með barn eða börn (ekki bara ungbörn) velkomin. Stelpustarf, 3.–5. bekkur, í kirkjunni alla fimmtudaga kl. 16.30–17.30. Garðasókn | Kyrrðar- og fyrirbæna- stund í Vídalínskirkju kl. 22. Prestar og djákni taka við bænarefnum. Boðið upp á kaffi í lok stundarinnar. Grafarvogskirkja | Foreldramorgnar kl. 10–12. Fræðandi og skemmtilegar samverustundir, ýmiss konar fyr- irlestrar. Alltaf heitt á könnunni, djús og brauð fyrir börnin. Kirkjukrakkar í Húsaskóla kl. 17.30–18.30 fyrir 7–9 ára. Kirkjukrakkar í Grafarvogskirkju kl. 17.30–18.30 fyrir 7–9 ára. „Á leið- inni heim“ er helgistund í Grafarvogs- kirkju alla virka daga föstunnar. Lesinn er einn Passíusálmur í hvert sinn. Í dag les Össur Skarphéðinsson. Hallgrímskirkja | Kyrrðarstund kl. 12 á hádegi. Orgelleikur, íhugun, bæn. Létt- ur málsverður í safnaðarheimili eftir stundina. Hjallakirkja | Opið hús í dag í Hjalla- kirkju kl. 12–14. Léttur hádegisverður og samverustund. Kirkjuprakkarar, 6–9 ára börn, hittast í Hjallakirkju á fimmtudögum kl. 16.30–17.30. Hveragerðiskirkja | Hjónanámskeið séra Þórhalls Heimissonar verður í Hveragerðiskirkju kl. 20. Námskeiðið er í boði Hveragerðissóknar og þátt- takendum að kostnaðarlausu. Þátt- taka tilkynnist til sóknarprests í síma 483 4255 eða 862 4253. Netfang: jon.ragnarsson@kirkjan.is. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Sam- vera eldri borgara kl. 15, hugvekja, syngjum saman og fáum okkur kaffi og með því. Allir velkomnir. „Eldurinn“ kl. 21, fyrir fólk á öllum aldri, vitnisburðir, lofgjörð og kröftug bæn. Allir vel- komnir. KFUM og KFUK | Ad KFUM á fimmtu- daginn 17. febrúar kl. 20 í Húsi KFUM og KFUK á Holtavegi 28. „Trú og stjórnmál“ Björn Bjarnason dóms- málaráðherra sér um efnið. Upp- hafsbæn: Hörður Geirlaugsson, hug- leiðing: sr. Bragi Friðriksson, einsöngur: Hörður Geirlaugsson. Langholtskirkja | Kl. 10–12 er samvera foreldra ungra barna í safnaðarheimili Langholtskirkju. Fræðsla, spjall, kaffi- sopi, söngstund. Verið velkomin. Um- sjón hefur Rut G. Magnúsdóttir. Laugarneskirkja | Kl. 12, Kyrrðarstund í hádegi. Kl. 14, samvera eldri borgara. Guðrún K. Þórsdóttir djákni fjallar um Alzheimersjúkdóminn. Eldri borgarar hvattir til að fjölmenna. Kl. 17.30 KMS (14–20 ára). Æfingar fara fram í Ás- kirkju og Félagshúsi KFUM & K við Holtaveg. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Morgunblaðið/Ómar Kl. 19.30  Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri setur fjórðu Vetrarhá- tíð í Reykjavík á Skólavörðuholti.  Ljósablóm á Skólavörðuholti – Götuljós breytast í gullfalleg og björt blóm.  Félagar í Myndhöggvarafélag- inu í Reykjavík sýna vídeóverk í glugga yfir Ráðhússtjörninni. Sýn- endur eru: Anna Hallin, Anna Eyj- ólfsdóttir, Birgir Andrésson, Borg- hildur Óskarsdóttir, Erling Klingenberg, Finnbogi Pétursson, Guðjón Ketilsson, Hafdís Helga- dóttir, Halldór Ásgeirsson, Harald- ur Jónsson, Helgi Hjaltalín Eyjólfs- son, Helgi Þórsson, Hlynur Helgason, Ósk Vilhjálmsdóttir, Pétur Örn Friðriksson og Rósa Sig- rún Jónsdóttir. Kl. 19.35  Ljósatónleikar. Upphafsatriði Vetrarhátíðar er að þessu sinni hannað af fjöllistahópnum Norðan Báli ásamt Herði Áskelssyni org- elleikara. Saman flytja þeir gjörn- ing ljósa og tóna sem leika yfir Hallgrímskirkju og Skólavörðu- holt. Kl. 19.50  Kyndlaganga frá Skólavörðu- holti að Ráðhúsi Reykjavíkur. Kl. 20  Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri býður Vesturfarasetr- ið á Hofsósi velkomið á Vetrarhátíð í Ráðhúsinu. Vesturfarasetrið var stofnað árið 1996 til að heiðra minningu íslensku vesturfaranna og efla fræðslu um sögu þeirra. Setrið stuðlar einnig að auknum samskiptum Íslendinga og fólks af íslenskum ættum í Vesturheimi. Fjölbreytt starfsemin fer fram í þremur reisulegum húsum í elsta hluta Hofsóss. Þar eru sýningar tengdar vesturferðum og landnámi Íslendinga í Norður-Ameríku. Á Vetrarhátíð er gestum boðið að skoða sýnishorn úr öllum sýning- um í Ráðhúsi Reykjavíkur. Að loknu ávarpi Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur borgarstjóra hefst vegleg dagskrá þar sem m.a. koma fram Peter John Buchnan, vestur- íslenskur tenór, Viðar Hreinsson sagnfræðingur, Anna Sigríður Helgadóttir og Aðalheiður Þor- steinsdóttir söngkonur.  Heitt og kalt. Úti er ísilagt Vetr- arhásæti Ottós en inni er para- dísargarður blómaskreytihópsins Nanusar. Ingólfsnaust, Aðalstræti 2.  Norðurljós og eldgos í Yzt, Laugavegi 40. Opnun ljósmynda- sýningar eftir Ragnar Th. Sigurðs- son, Sigurð Þórarinsson, Garðar Pálsson o.fl. Vignir Jóhannsson myndlistarmaður sýnir ljósa- skúlptúr. Ari Trausti Guðmunds- son segir frá Norðurljósum kl. 20.30 og 21.30.  Art Nurses kynna Dansinn á Vetrarhátíð. Sýnt í glugga Gallerís Fugls, Skólavörðustíg 10. Sýnt alla hátíðina.  Norræna félagið og Kalak, vina- félag Grænlands og Íslands, kynna grænlenska stemningu með trommudansara frá Kúlusúk á Óð- insgötu 7. Kl. 20.30  Komdu nú að kveðast á … Krist- ján Hreinsson stjórnar hagyrðinga- kvöldi á Nasa við Austurvöll. Fram koma Hákon Aðalsteinsson, Ómar Ragnarsson, Ólína Þorvarðardóttir o.fl. Þá mun Marteinn Örn Ósk- arsson kynna tengsl hiphop-tónlist- arstefnunnar og íslenskrar rímna- gerðar. Með honum verða tveir rímnagerðarmenn sem leyfa gest- um að heyra nútíma rímnagerð í anda Hiphop-menningarinnar.  Dansveisla í Iðnó. Tangó, maga- dans og margt fleira heitt og heillandi. Kennarar og nemendur Kramhússins taka nokkur spor. Sérstakur gestur kvöldsins er trommuleikari úr Sinai-eyðimörk- inni.  Fimmtudagsforleikur í Hinu húsinu. Rokkið dunar. Fíkn, We made God o.fl. troða upp.  Borgarbókasafn býður til bók- menntagöngu. Gengið verður um miðbæinn með viðkomu á nokkrum stöðum sem tengjast nýútkomnum bókum. Þema göngunnar að þessu sinni er ljós og myrkur, hiti og kuldi. Leiðsögumaður er Úlfhildur Dagsdóttir og lesari með henni Ingibjörg Hafliðadóttir. Auk þess munu þær Auður Ólafsdóttir og Gerður Kristný mæta og lesa úr sínum bókum á viðeigandi stöðum. Gangan tekur rúma klukkustund og er síðasti viðkomustaður veit- ingastaður. Gangan hefst við Borg- arbókasafn, Tryggvagötu 15. Kl. 21  Norðurljós við Tjörnina. Gömlu góðu lögin í Fríkirkjunni í flutningi Helenu Eyjólfsdóttur, Þorvalds Halldórssonar, Ragnars Bjarnason- ar og Önnu Sigríðar Helgadóttur ásamt hljómsveit Carls Möller. Fimmtudagurinn 17. febrúar Dagskrá Vetrarhátíðar NEC-bikarinn. Norður ♠-- ♥ÁKD4 ♦ÁD10 ♣Á96543 Í úrslitaleiknum um NEC-bikarinn kom upp sama sagnvandamálið á báð- um borðum eftir opnun vesturs á „multi“ tveimur tíglum. Suður er gjaf- ari og NS á hættu: Vestur Norður Austur Suður -- -- -- Pass 2 tíglar * Dobl 2 hjörtu * Pass 2 spaðar 3 lauf 3 spaðar 3 grönd Pass ? Opnun vesturs sýnir veik spil með sexlit í hjarta eða spaða og svar austurs á tveimur hjörtum er leitandi. Vestur sýnir spaðalit í næsta hring og norður meldar þrjú lauf til að láta í ljósi sterk spil. Austur er ánægður með spaðann og styður, en suður stingur upp á þremur gröndum eftir að hafa passað fyrst við opnunardoblinu. Og nú er það spurningin: Hvað á norður að gera? Það er aldrei auðveld ákvörðun að ana úr þremur gröndum út í óvissuna, en í þetta sinn er hníga öll rök í þá átt – spil norðurs beinlínis hrópa á tromp- samning: Norður ♠-- ♥ÁKD4 ♦ÁD10 ♣Á96543 Vestur Austur ♠KDG962 ♠10874 ♥872 ♥63 ♦63 ♦K98 ♣G8 ♣K1072 Suður ♠Á53 ♥G1095 ♦G7542 ♣D Rússinn Dubinin tók út í fjögur hjörtu og fékk þar tólf slagi – gaf að- eins einn á tígulkóng. Á hinu borðinu passaði suður þrjú grönd og suður fór óhjákvæmilega tvo niður eftir spaða- kónginn út og misheppnaða tígulsvín- ingu. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is DJASSHLJÓMSVEITIN Salienka leikur listir sínar á skemmtistaðnum Pravda í kvöld kl. 22, en sveitin leikur djassstandarda úr ýmsum áttum, allt frá New Orleans-djassi til Bebop-tónlistar. „Þetta er svona samsuða, þessi hópur kemur úr ólíkum áttum,“ segir Einar Melax, píanóleikari sveitarinnar. „Þar á meðal er Frakkinn Stephane Le Dro, sem er hér aðeins í tvær vikur, en hann spilar á klarinett. Þá er hér rússnesk kona, Elena Jegalina, sem leik- ur líka á klarinett og hefur starfað hér á Íslandi. Svo erum við tveir Íslendingar, ég sjálfur á píanó og Jóhann Baldursson sem leikur á bassa, og með okkur er sænski trommuleik- arinn Erik Qvick.“ Nafnið Salienka er komið frá Rússlandi og er heiti á þarlendri súpu. „Okkur fannst við hæfi að leika á staðnum Pravda, sem þýðir sannleikur,“ segir Einar. „Okkur langaði að koma saman við þetta tækifæri af því að Stephane er á landinu, en kjarni sveitarinnar hefur unnið dálítið saman áður, m.a. spiluðum við Elena með Stephane úti í Frakklandi síðasta sumar.“ Djassað á Pravda Ljósmynd/Gunnar Kristjánsson Tónleikarnir með Salienka hefjast á Pravda kl. 22 og er frítt inn. LISTAKONAN Steinlaug Sigurjónsdóttir opnar í dag kl. 14 sýningu á olíu- og vatns- litamyndum í Menningarsal Hrafnistu í Hafnarfirði. Steinlaug er fædd í Reykjavík árið1935. Hún hefur sótt nokkur námskeið í vatns- lita- og akrílmálun og tekið þátt í nokkrum samsýningum. Þetta er þriðja einkasýn- ing Steinlaugar, sem sýnir sem gestur frá félagsstarfi eldri borgara í Gerðubergi. Allar myndirnar á sýningunni, sem stend- ur til 15. mars, eru til sölu. Á opnuninni syngur Gerðubergskórinn og boðið verður upp á léttar veitingar. Olíu- og vatnslitamyndir í Menningarsal Hrafnistu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.