Morgunblaðið - 17.02.2005, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 17.02.2005, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2005 21 MINNSTAÐUR Grafarvogur | Íbúar í Grafar- vogi eru margir hverjir ósáttir við að endurvinnslustöð Sorpu við Bæjarflöt skuli hafa verið lokað um síðustu áramót, en þeir þurfa nú að fara í stöð Sorpu við Sævarhöfða til að losa sig við endurvinnanlegan úrgang. Málið var rætt á fundi um- hverfisráðs á dögunum, og lýsti ráðið yfir áhyggjum af þeim að- stæðum sem skapast hafa vegna lokunarinnar, og óánægju íbúa vegna málsins, og óskar ráðið eftir viðræðum við Sorpu um „framtíðarlausn þessa máls“. Fulltrúar minni- hluta Sjálfstæðisflokks í ráðinu vildu reyndar ganga skrefinu lengra, og vildu þeir leita leiða til að opna að nýju móttökustöðina við Bæjarflöt, en tillögu þeirra þar að lútandi var frestað á fundi ráðsins. Ögmundur Einarsson, fram- kvæmdastjóri Sorpu, segir að stjórn Sorpu hafi ekki fjallað um þessar áhyggjur umhverfisráðs, en stjórn- arfundur verður þann 28. febrúar nk. „Það liggur fyrir samþykkt frá stjórn Sorpu um vinnu að framtíðarsýn á fyrirkomulagi stöðvanna á svæðinu. Stöðvarnar eru ekki sérstaklega hverfisbundnar, heldur er litið á höf- uðborgarsvæðið sem eitt svæði og hægt að finna margar hliðstæður þar sem jafn margir eða fleiri búa eins og í Grafarvogi og engin stöð er.“ Það er ekki lengra fyrir íbúa í Graf- arvogi að fara í stöðina á Sævarhöfða heldur en fyrir íbúa í Fossvogi, segir Ögmundur. „Það er ekkert lengra, þetta eru vegalengdir sem eru um 4–5 kílómetrar í það lengsta.“ Engu að síður hefur talsverður fjöldi kvart- ana frá íbúum borist til Sorpu og Reykjavíkurborgar. Hann segir vissulega alla geta ver- ið sammála um að það sé ekki gott að skerða þjónustu, en með því að loka stöðinni við Bæjarflöt, auk þess að stytta afgreiðslutíma hjá þremur stærstu stöðvunum, megi spara um 40 milljónir króna á ári. Heildar- kostnaður við rekstur móttökustöðva á höfuðborgarsvæðinu var 320 millj- ónir króna á síðasta ári, en reiknað er með að hann verði um 280 milljónir króna á þessu ári. Öll sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu eiga fulltrúa í stjórn Sorpu, og segir Ögmundur alla stjórnarmenn hafa komið með kröfur um lægri kostnað Sorpu frá sínum sveitarfélögum, og við því verði að bregðast. Hann segir að nú taki við vinna við að stækka stöðina á Sævarhöfða til þess að taka við auknu magni frá Grafarvogsbúum. Kostnaður við stækkunina verður greiddur með sölu á lóð Sorpu við Bæjarflöt. Ekki er útilokað að aðrar stöðvar Sorpu verði lagðar niður, segir Ög- mundur, t.d. mætti hugsa sér að leggja tvær stöðvar niður og opna eina nýja í staðinn á betri stað. Engar ákvarðanir hafa þó verið teknar um slíkt, og erfitt að fá hentugt land til að nota undir stöðvarnar. Umhverfisráð og íbúar ósáttir við lokun endurvinnslustöðvar Sorpu Lokað Endurvinnslustöð Sorpu við Bæjar- flöt var lokað um síðustu áramót. Sparar 40 millj- ónir króna á ári Morgunblaðið/Þorkell Höfðahverfi | Gatan Axarhöfði á Ár- túnsholti í Reykjavík mun loksins komast inn í borgarskipulagið og verða malbikuð eins og aðrar götur, ef skipulagstillögur sem nú eru í kynningu verða samþykktar. Gatan hefur á undanförnum árum haft und- arlega stöðu í borgarkerfinu, og einn embættismaður sem Morgunblaðið ræddi við sagði að þetta sé í raun „gata sem ekki er til“. Jón Snæbjörnsson, rekur fyrir- tæki við Bíldshöfða, en eins og önnur hús við þá götu er innangengt bak- dyramegin, frá Axarhöfða. Jón segist langþreyttur á ástandi Axarhöfðans, hann sé í raun ekki annað en veg- slóði, og ekki ósvipað því að keyra Vestfirðina um 1960 að keyra eftir götunni. Hann segir talsvert mörg fyrirtæki hafa aðkomu frá Axar- höfða, þó þau séu í raun í húsum við Bíldshöfða. Axarhöfði á sér einkennilega sögu, enda má segja að eigendur húsa við Bíldshöfða hafi lagt götuna sjálfir án þess að hún hafi nokkurn tíma komið inn á skipulag, segir Þórarinn Þór- arinsson, arkitekt á skipulags- og byggingarsviði Reykjavíkurborgar. Fyrir fimm árum var farið að skoða skipulag Höfðahverfis, og þá hafi komið í ljós að ýmislegt hafi verið gert þar sem ekki sé á skipulagi, með samþykki borgaryfirvalda í mörgum tilvikum. Þá hafi verið ákveðið að endurskoða skipulagið, og nú sé verið að kynna tillögur að deiliskipulagi þar sem gert sé ráð fyrir þessari götu sem hingað til hefur eiginlega ekki verið til, og finnst ekki á neinu korti. Átti að vera einkavegur Þórarinn segir að borgin hafi nú tekið á sig að leggja þennan veg, en upphaflega hafi hugmyndin verið sú að þar sem eigendur húsanna hafi lagt vegin gæti hann verið einkaveg- ur, og því á þeirra forræði að gera á honum úrbætur. Um það hafi ekki náðst samkomulag. Þórarinn segir að ekki verði um frekari uppbyggingu húsnæðis við götuna að ræða, heldur verði hún hugsuð sem aðkoma fyrir baklóðir húsanna sem nú standa við Bíldshöfða. Eftir er að klára skipulagsvinnu, og hafa þá hagsmunaaðilar tækifæri til að senda inn athugasemdir. Ef allt gengur að óskum segir Þórarinn að framkvæmdir við götuna gætu hafist á þessu ári eða fyrrihluta næsta árs. Huldugata kemst loks á skipulagið Morgunblaðið/Brynjar Gauti Malarvegur í borg Axarhöfðinn er ekki ásjálegur og hefur því að aka eftir götunni verið jafnað við að aka um vegi á Vestfjörðum árið 1960. Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn Engjateigi 5, sími 581 2141 HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.