Morgunblaðið - 17.02.2005, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2005 27
DAGLEGT LÍF
Þurr húð þarf snyrtivörur sem gefa henni raka, milda
en ríkulega næringu og góða vörn. LL-línan frá
Börlind er sniðin að sérstökum þörfum þurrar húðar.
Vandlega valdar jurtir eru notaðar til að næra
húðina, veita henni raka og vernda m. a. gegn
útfjólubláum geislum, án þess að erta hana eða
valda óþægindum.
Ekta ferskvatnsperlur eru úr skeljum sem ræktaðar
eru í ferskvatni. Sjarmi þessara perla er ekki síst
örlítið ójöfn lögun þeirra.
KONUDAGSTILBOÐ
Þegar þú kaupir LL dagkrem, næturkrem og rakagel frá Börlind, færðu frítt í
kaupbæti perlufesti og eyrnalokka úr ferskvatnsperlum.
Tilboðið gildir einnig um aðrar vörur frá Börlind sé verslað fyrir sömu fjárhæð.
NÝ RANNSÓKN bendir til þess að
góð og regluleg tannhirða geti
dregið úr hættu á heilablóðfalli og
hjartaáföllum, eftir því sem rann-
sóknahópur við Columbia-
háskólann hefur komist að. Tann-
holdssjúkdómar geti leitt til æða-
kölkunar sem aftur geti verið
undanfari heilablóðfalla og hjarta-
áfalla. Frá þessum nýju uppgötv-
unum var greint í netmiðli BBC
fyrir skömmu þar sem Félag tann-
lækna í Bretlandi undirstrikaði
einnig mikilvægi góðrar tannheilsu.
Mældar voru bakteríur í munni
657 einstaklinga, sem hvorki höfðu
haft reynslu af einkennum heila-
blóðfalls né hjartaáfalla. Sömuleiðis
voru mældar hálsslagæðar, sem sjá
um að flytja blóð frá hjarta til heila
til að meta hvort þrengingar hefðu
átt sér stað í æðunum. Og í ljós
kom að tengsl reyndust á milli
þrenginga í slagæðum og bakteríu-
sýkinga í tannholdi, en aðeins
þeirra baktería, sem þekktar eru
fyrir að valda tannholdssjúkdóm-
um.
Rannsakendur töldu að skýring-
anna mætti m.a. leita í því að við-
komandi bakteríur ferðuðust með
blóði um líkamann og gætu leitt til
bólguviðbragða, sem stíflað gæti
slagæðar. Þeir benda á að áður hafi
verið bent á hugsanleg tengsl milli
ónógrar tannheilsu og lélegs æða-
kerfis, en að sögn yfirmanns rann-
sóknarinnar, Dr. Moise Desvarieux,
hefur ekki fyrr en nú tekist að færa
sönnur á svo bein tengsl milli tann-
heilsu og hjarta- og æðasjúkdóma.
Bent er á að tannholdssýkingar
sé bæði hægt að lækna og afstýra
með réttri umhirðu og því geti góð
tannhirða haft mikil áhrif í þeirri
viðleitni að sporna gegn hjarta- og
æðasjúkdómum. Varast beri að ein-
falda málið um of því aðrir áhættu-
þættir á borð við reykingar og lé-
legt mataræði hafi einnig mikið að
segja í þessu efni. Tannburstun
tvisvar á dag með flúortannkremi
væri hins vegar afar góð regla í átt
að betri heilsu.
Tannhirða til
varnar hjartanu
HEILSA
Morgunblaðið/Jim Smart
RÁÐHERRA neytendamála í Sví-
þjóð hefur hótað lagasetningu ef
auglýsendur taki sig ekki á og hætti
að beina spjótum sínum að yngstu
neytendunum. Ráðherrann Ann-
Christin Nykvist skrifaði nýverið
grein í Svenska Dagbladet þar sem
hún gagnrýnir auglýsendur og segir
óviðunandi að þeir notfæri sér sak-
laus börn til að fá foreldrana til að
kaupa ákveðnar vörur. Hún bendir á
skyndibitastaði sem lokki börn með
leikföngum og morgunkorns-
framleiðendur sem tengi vinsælar
teiknimyndapersónur við fram-
leiðslu sína. Nykvist heitir fram-
kvæmdastjórn Evrópusambandsins
stuðningi við að skerpa löggjöf um
þetta ef umbætur koma ekki innan
frá.
SVÍÞJÓÐ
Gagnrýnir
auglýsingar
fyrir börn
KENNSLU- og fræðslumiðstöðin
kennsla.is, sem listamennirnir Þor-
valdur Þorsteinsson og Helena
Jónsdóttir standa að, hefur opnað
vefinn, www.kennsla.is, þar sem
námskeið miðstöðvarinnar eru
kynnt og hægt er að skrá þátttöku.
Meðal þess sem boðið er upp á er
námskeið í skapandi skrifum, hag-
nýtum skrifum og forsendum list-
rænnar tjáningar. Auk þess eru í
boði námskeið, þar sem kynnt eru
fyrstu skrefin til aukinnar sjálfs-
þekkingar og boðið upp á þjálfun í
tjáningu, líkamsbeitingu og áhrifa-
ríkari samskiptum og kynntar leiðir
til meiri fullnægju í lífi og starfi.
MENNTUN
Námskeið
í skapandi
og hagnýtum
skrifum
Fréttir á SMS