Morgunblaðið - 17.02.2005, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 17.02.2005, Blaðsíða 44
44 FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Við skyndilegt frá- fall nágranna míns, Lofts í Steinsholti leit- ar margt á hugann og minningar frá gömlum og nýjum kynnum gerast ágengar. Fyrir mér eru þær ánægjulegar og ljúfar. Að eiga góða nágranna, sem eru þátttakendur og láta sig varða gengi þeirra sem nærri standa, er mikilvægara en marga grunar. Einkum á það við þegar eitthvað bjátar á. Þetta fengum við Hæl- ismenn að reyna af nágrönnum okkar í Steinsholti þegar íbúðar- húsið á Hæli brann í Þorrabyrjun árið 1959. Þá bjuggu í Steinsholti hjónin Eiríkur og Sigþrúður ásamt fjórum uppkomnum börnum sínum en einnig voru þar í heimili Sigríður dóttir þeirra sem var matráðskona við barnaskóla sveitarinnar og Þór- ir sonur hennar. Ég man ekki eftir að það hafi þótt þröngt í Steins- holtsbænum þó við bættist fjögurra manna fjölskylda og eitt er víst að mér þótti gaman. Í minningunni finnst mér að milli heimilisfólksins hafi ríkt gagnkvæm virðing og traust og verkaskipting var mjög skýr og þrátt fyrir að allir tækju hlutverk sitt alvarlega var þarna mikil glaðværð. Loftur átti ekki minnstan þátt í því. Þar fór maður sem fleira leyndist í en margur hélt við fyrstu kynni. Hann átti yfir að ráða mörgum þeim eiginleikum sem hvað eftirsóttastir eru í fari eins manns. Sá húmor sem hann bjó yfir var bestu gerðar, bæði léttur og án allrar græsku og eftirherma var hann frábær en fór vel með þann hæfileika sinn. Í fjölda ára átti Loftur vörubíl sem hann stundaði vinnu með utan heimilis. Vorið sem ég var í Steins- holti fékk ég oft að fara með Lofti á vörubílnum í vegavinnu og til fleiri verka. Fyrir krakka var það skemmtileg upplifun sem ekki gleymist og í vörubílnum held ég að ég hafi kynnst öllum bestu hliðum hans. T.d. sungum við mikið saman og ég held að Loftur hafi haft ágæta söngrödd. Oftast sungum við titrandi röddu „Sú rödd var svo fögur“. Það var skemmtilegt. Loftur var laghentur maður. Öll LOFTUR EIRÍKSSON ✝ Loftur Eiríkssonfæddist í Steins- holti í Gnúpverja- hreppi 16. septem- ber 1921. Hann lést 5. febrúar síðastlið- inn og var útför hans gerð frá Skálholts- kirkju 12. febrúar. smíðavinna lék í hönd- um hans hvort sem var á járn eða tré. Um tíma kenndi hann smíðar við Ásaskóla sem honum fórst vel úr hendi. Hann náði góðu sambandi við krakkana og tímarnir voru líflegir og fljótir að líða. Um margra ára skeið var Loftur ásamt fleiri Hreppa- mönnum, fylgdarmað- ur ferðafólks sem fór ríðandi um landið. E.t.v. voru þetta brautryðjendur um lengri skemmti- ferðir á hestum og því áríðandi að hafa með í för vana og fyrirhyggju- sama ferðamenn sem höfðu reynslu af umgengni við hesta og landið. Og nú hefur Loftur lagt í sína síðustu för. Það er vissa mín að sú för verði honum aðeins ánægjulegt ævintýri þar sem sá mikli reynslubrunnur sem hann hefur meðferðis verður honum besta vegarnestið. Um leið og ég og fjölskylda mín þökkum samfylgdina flytjum við börnum Lofts og öðrum aðstand- endum samúðarkveðjur. Sigurður Steinþórsson. Við andlát vinar míns Lofts í Steinsholti reikar hugurinn til þeirra sælu sumardaga sem ég eyddi á æskuárum mínum hjá for- eldrum hans og systkinum um mið- bik síðustu aldar. Loftur var þá á þrítugasta aldursári og bjó fé- lagsbúi með systkinum sínum. Hann var sá bræðranna sem að mestu sá um aðdrætti til búsins á vörubílnum, smíðaði allt úr járni og tré og járnaði hrossin, auk þess sem hann tók þátt í öllum venjuleg- um bústörfum. Aðaláhugamál hans frá unga aldri var hestamennskan, og varla leið sá sunnudagur á þess- um árum að Loftur legði ekki á gæðinga sína og færi útreiðatúr með vinum og kunningjum. Hann hafði sem drengur fengið folald að gjöf frá Bjarna föðurbróður sínum, Nasadótturina Jörp frá Steinsholti, viljuga og mjúkgenga gæðings- hryssu, og undan henni voru til í Steinsholti, Fjöður, harðviljug klár- hryssa sem Sigga átti, Skuggi, gæð- ingur Lofts, bæði undan Skugga frá Bjarnanesi, Blesi, heimaræktaður klárhestur sem varð aðal reiðhestur minn seinni árin í Steinsholti og Sokki, yndislegur og ljúfur gæð- ingur undan Svaða frá Kirkjubæ. Það má hafa til marks um gæði Jarpar gömlu í Steinsholti, að hálfþrítug var hún vanin við rakstr- arvél og rakaði ég saman hey með henni síðustu sumur mín í sveitinni. Umgömlu Jörpí Steinsholti eiga vel við hin fallegu orð sem Indriði G. Þorsteinsson ritaði um „Heimilis- hestinn“, þar segir meðal annars. „Hann bar heim heyið og gekk var- lega undir gömlum konum sem brugðu sér í orlof af bæ. Mæður reiddu ungbörn sín á honum til kirkju, og á honum var kistan flutt síðasta spölinn. Hann var látinn flytja ljósmóðurina, og læknirinn reið honum gjarnan heilar þing- mannaleiðir. Þannig var hann ætíð vitni að upphafi og endi hverrar kynslóðar, og sá hefur mikils misst, sem ekki hefur átt hann að félaga og vin.“ Þegar búið var að kenna þeim hrædda og kjarklitla Reykjavíkurstrák sem hér heldur á penna að sitja hest, en það þol- inmæðisverk unnu þau Loftur og Sigga systir hans, fór Loftur að leyfa mér að koma með sér í sunnu- dagsútreiðatúrana, fyrst styttri ferðir, en síðar á Sandlækjarkapp- reiðarnar og á Álfaskeiðsskemmt- unina, og á ég margar fallegar end- urminningar frá þessum dögum í hópi glaðra Gnúpverja, við útreiðar, sögur og söng, að ógleymdum eft- irhermunum, en Loftur var slíkur snillingur í þeirri þjóðaríþrótt Gnúpverja að vinir hans veltust um af hlátri þegar hann tók sig til. Eitt atvik frá þessum löngu liðnu dögum situr fast í huga mér. Ég fór þá sem oftar ríðandi með Lofti síðla sumars í glöðum hópi og var ferð- inni heitið út að Flúðum að synda 200 metrana í samnorrænu sund- keppninni. Á leiðinni heim riðum við sem leið lá hjá Hruna og Sól- heimum að Stóru-Laxá og sáum þá að búið var að heyja túnið á Hlíð- areyrum austan við ánna, og allt heyið í sæti á túninu. Kviknaði nú sú hugmynd hjá Lofti og mági hans Jóni í Geldingaholti að reyna gæð- inga sína þá Gulltopp og Skugga á skeiði þarna á Hlíðareyrum. Þegar yfir Laxá kom var þetta afráðið og samferðafólk þeirra riðum á undan upp í hvamminn vestan við Hlíð sem alltaf var áð í, fórum af baki og gengum dálítið upp í brekkuna til að sjá betur til kappreiðanna. Á meðan biðu Loftur og Jón á heim- fúsum og óþreyjufullum gæðingum sínum sem bruddu mélin og biðu eftir merki knapanna og hviss!, spretturinn var hafinn. Af stað flugu klárarnir; Gulltoppur, Nasa- sonur frá Geldingaholti, þarna á þrítugsaldri en alveg óbilaður, margverðlaunaður gæðingur hjá Hestamannafélaginu Smára og Skuggi frá Steinsholti, örviljugur systursonur Gulltopps, en með ólg- andi hornfirskt blóð í æðum og stundum laus á kostunum sakir fjörofsa. Það var ógleymanleg sjón að sjá riddarana sveigja gæðinga sína á flugaskeiði milli sátanna á Hliðareyrum þennan fagra sunnu- dag, „í ágúst að áliðnum slætti“, og saman komu þeir hnífjafnir í mark, aðbrekkufætinum fyrir neðan okk- ur ferðafélagana. Mátti vart á milli sjá hvorir voru æstari klárarnir eða mágarnir Loftur og Jón er þeir stigu af baki. Ég ætla ekki að full- yrða að met hafi verið slegin þenn- an dag, og voru þó hestarnir báðir gammvakrir, en öll umgjörðin um þessar einstæðu kappreiðar á Hlíð- areyrum, í faðmi fagurra Hreppa- fjalla stendur mér æ fyrir hug- skotssjónum sem fagurt málverk frá æskuárunum í Gnúpverja- hreppi. Á árunum í kringum 1960 réðst Loftur sem fylgdarmaður í hesta- ferðum með hópi fólks úr Reykja- vík og stundaði þessar ferðir um langt árabil. Árið 1963, þegar ég hafði nýlega keypt mína fyrstu hesta, bauð hann mér að koma með sem hestasveinn í forföllum félaga síns Sigurgeirs í Skáldabúðum. Við hrepptum hið versta veður, rign- ingar og snjókomu og norðanbál og frost, en þrátt fyrir erfiðleikana kviknaði sá áhugi sem síðan hefur enst mér til hestaferða um hálendi Íslands. Um fertugt festi Loftur ráð sitt og kvæntist sinni góðu konu, Björgu Sigurðardóttur, og á heimili þeirra og í gamla bænum í Steins- holti fengu strákarnir okkar að dvelja um langt árabil. Var þarna stofnað til vináttu barna okkar sem var okkur báðum dýrmætt. Nú sem ég rita þessar línur, rennur upp fyrir mér, að í fyrra voru liðin eitt hundrað ár frá því að afi minn og nafni kom fyrst sem snúningastrák- ur að Skálabúðum, en þá má segja að stofnað hafi verið til þeirrar vin- áttu sem enn ríkir svo sterk milli okkar og fólksins í Steinsholti. Að leiðarlokum þökkum við Guð- rún og fjölskylda okkar Lofti sam- fylgdina og vottum systrum hans, börnum og aðstandendum öllum okkar dýpstu samúð, og biðjum góðan Guð að blessa þau öll. Andreas Bergmann. Elsku Sigga mín, ekki hélt ég að ég væri að kveðja þig á síðasta sinn þegar ég flutti frá Þingeyri fyrir rúmu ári síðan, ég fór eins langt í burtu og hægt var, alla leið á Eskifjörð, hinum megin á land- ið, en hugurinn var oft hjá þér, elsku vinkona. Við áttum góðar stundir og skemmtilegar, það gekk nú stundum mikið á en svona er bara lífið. Ég naut þess að fara í göngutúr með þig í hjólastólnum í góðu veðri, þú hafðir gaman af að fara út og naust þess. Ég var búin að ákveða að koma vestur í sumar og heilsa uppá ykkur öll. En nú er ég búin að missa góða vinkonu, sem var mér svo góð, allar minningarnar fljúga um hugann, allt spjallið og skemmtilegu sögurnar sem þú sagðir mér frá þínu lífi, bæði góðar og slæmar. Við gátum hlegið mikið að þessu og slegið öllu upp í grín og glens. SIGRÍÐUR ÁSGERÐUR SÆMUNDSDÓTTIR ✝ Sigríður Ásgerð-ur Sæmundsdótt- ir fæddist á Ísafirði 2. nóvember 1932. Hún lést á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Ísafirði 1. janúar síð- astliðinn og fór útför hennar fram frá Þingeyrarkirkju 15. janúar. Þó þú hafir verið mikið lasin, þá gastu samt gert grín að öllu saman, elsku besta Sigga mín, nú eru bara góðar minningar um góða vinkonu sem ég geymi í huga mér, ég vona að þér líði sem allra best þar sem þú ert núna, þú áttir hvíld- ina svo sannarlega skil- ið eftir allt sem þú hef- ur gengið í gegnum. Við söknum þín og sendum börnunum þín, barnabörnum og tengdafólki þínu innilegar samúðar- kveðjur, Guð veri með ykkur. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Valdimar Briem.) Við kveðjum þig, elsku Sigga. Jóna Björg og Aðalsteinn. Elskulegur eiginmaður minn, JÓN VALDIMAR KRISTJÁNSSON frá Stöðvarfirði, til heimilis í Hraunbæ 103, Reykjavík, andaðist föstudaginn 11. febrúar síðastliðinn. Útförin fer fram frá Árbæjarkirkju föstudaginn 18. febrúar kl. 13. F.h. fjölskyldunnar, Borghildur Gísladóttir. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRDÍS GUÐMUNDSDÓTTIR, hjúkrunarheimilinu Eir, verður jarðsungin frá St. Jósefskirkju, Jófríðar- stöðum, Hafnarfirði, föstudaginn 18. febrúar kl. 15:00. Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð en þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á líknarfélög. Ingibjörg Guðjónsdóttir, Guðjón Róbert Ágústsson, Einar Guðjónsson, Helga Guðmundsdóttir, Þorbjörg Guðjónsdóttir, Gylfi Ernst Gíslason, barnabörn og barnabarnabörn. Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, EIRÍKUR JÓNSSON frá Berghyl, Álftarima 20, Selfossi, andaðist á Ljósheimum, Selfossi, þriðjudaginn 15. febrúar sl. Jarðarförin verður auglýst síðar. Guðrún Guðlaug Eiríksdóttir, Arnar Bjarnason, Svanlaug Eiríksdóttir, Hörður Hansson, Áslaug Eiríksdóttir, Eiríkur Kristófersson, Jón Guðmundur Eiríksson, Anna María Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabarn. Hjartans þakkir til allra, sem sýndu okkur hlý- hug og vináttu við andlát ODDRÚNAR JÖRGENSDÓTTUR, Norðurbrún 1, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks og lækna á K1, Landspítala Landakoti. Geir Þórðarson, Þórður Geirsson, Erna Valdimarsdóttir Gunnar Þór Geirsson, Anna Hafsteinsdóttir, Bjarni Geirsson, Þuríður Björnsdóttir, og barnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.