Morgunblaðið - 17.02.2005, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 17.02.2005, Blaðsíða 60
ALÞJÓÐLEG samtök hárgreiðslumeistara, Intercoiffure, hafa kynnt línu sína fyrir næsta sumar. Arnar Tómasson, listráðunautur Intercoiffure á Ís- landi, kann nánari skil á nýjustu hártískunni en hann er ennfremur hár- greiðslumeistari hjá Salon Reykjavík. „Mér finnst allar klippingarnar skemmtilegar og klæðilegar. Mjúkir litir og frískir eru ráðandi. Strípurnar eru mjólkurhvítar hjá stelpunum og hjá strákunum eru þetta capuccino-strípur. Litirnir eru jafnari og nátt- úrulegri,“ segir Arnar. Rauðhærðir þurfa ekki að örvænta heldur er flott að vera rauðhærður og er koparlitur sem Arnar kallar „sólrauðan“ áber- andi. Dömulínurnar heita ís, jörð, loft og eldur og er karlmaðurinn kenndur við fjölmenningu. Klippingarnar eru þannig að mögulegt er að nota þær á mismunandi vegu. „Það er hægt að nota sléttu- eða krullujárn til að gefa áferð. Svo eru mótunarvörur nauðsynlegar til að kalla fram klipp- inguna sjálfa.“ Ljóshærða stelpan á myndunum er klippt út frá hnakkanum, útskýrir Arnar, og er hún að vissu leyti með bæði stutt og sítt hár. „Það er meiri þyngd í hnakkanum en samt er mikið af styttum,“ segir hann og myndu einhverjir kalla þetta sítt að aftan. Galdurinn í dömuklippingunum er að hafa styttra og léttara í kringum augum en „þyngdin er látin detta þarna yfir“. Ekkert prjál Stelpuklippingarnar eru að styttast eins og þær gera oft á sumrin enda þægilegt að vera með styttra hár þegar heitara er í veðri. „Mér finnst þessar klippingar ferskar. Þær eru eðlilegar og það er ekkert of mikið prjál í þeim,“ segir Arnar. Strákarnir eru ekki með styttra hár heldur en stelpurnar en ekki dugir þó til að vera með „jafnsíða passíuklippingu“, eins og sést á fyrirsætu Intercoiff- ure. „Hann er með léttan hnakka og neðstu hárin eru lausari þó svo hann sé með þyngdina í toppnum og hliðunum. Það klæðir mjög fáa að vera með flata klippingu. Það þarf að klippa áferð í það svo það verði flott,“ segir hann og hvetur stráka með sítt hár til að koma líka í klippingu. Arnar segir að íslenskt hárgreiðslufólk fylgist vel með nýjustu straumum en á hans stofu er farið utan á fimm sýningar á ári. „Við fylgjumst vel með og erum mjög kröfuhörð,“ segir hann og staðfestir aðspurður að markið sé sett hátt á íslenskum hár- greiðslustofum. Mikil áhersla sé lögð á nám og faglega þjálfun. „Þetta er fjögurra ára nám hér en í Bandaríkjunum er til dæm- is hægt að fara á nokkurra vikna námskeið til að útskrifast.“ Sem listráðunautur er það hlutverk Arnars að kynna með- limum Intercoiffure nýju línuna. Hann verður af þessu tilefni ásamt Selmu og Jóhönnu úr Möggunum í Mjódd með verklega kennslu í Salon VEH í Húsi verslunarinnar á milli 9 og 12 mánudaginn 7. mars. Hártíska | Sumarlínan frá alþjóðasamtökunum Intercoiffure Klippingin breytist eftir því hvernig hún er mótuð. Settlegri greiðsla og hér er áhersl- an ekki á sítt að aftan. Krull- urnar fá að njóta sín. 60 FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ Kvikmyndir.is Ian Nathan/EMPIRE Sýnd kl. 8.30. V.G. DV. Langa trúlofunin - Un Long dimanche. Sýnd kl. 6. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14. Nýjasta snilldarverkið frá Óskarverðlaunahafanum Clint Eastwood. Eftirminnilegt og ógleymanlegt meistaraverk. Besta mynd hans til þessa. Hlaut tvenn Golden Globe verðlaun tilnefningar til óskarsverðlauna þ.á.m. Besta mynd, besti leikstjóri, besti leikari-Leonardo Dicaprio, bestu aukaleikarar- Cate Blanchett og Alan Alda. 11 LEONARDO DiCAPRIO H.L. Mbl. Ó.H.T. Rás 2 Kvikmyndir.is Sýnd kl. 6 og 9.10. KRINGLAN Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. B.i. 16 ára. Yfirnáttúrulegur spennutryllir af bestu gerð sem vakið hefur gríðarleg viðbrögð og slegið rækilega í gegn í USA og víðar. Varúð: Ykkur á eftir að bregða. B.i 16 ára SÝND Í LÚXUS VIP KL. 5.30, 8 OG 10.30. ÁLFABAKKI kl. 4, 5.30, 8 og 10.30. Kvikmyndir.is DV H.J. Mbl. Ein vinsælasta grínmynd allra tíma Þrjár vikur á toppnum í USA ÓÖH DV. Baldur Popptíví  Ó.H.T Rás 2  Kvikmyndir.is.  S.V. Mbl.  Kvikmyndir.is.  S.V. Mbl.   VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI KYLIE Minogue var í heið- urssessi á Tískuverðlaunaafhend- ingu Elle í London á þriðjudags- kvöldið en hún fékk afhent sérstök heiðursverðlaun. Kylie var klædd frá toppi til táar í Chanel við þetta tækifæri og var þakklát fyrir verðlaunin. Hún hefur verið að æfa fyrir næsta tónleikaferðalag að undanförnu og hefur því verið nóg að gera hjá henni. Annar Ástrali, leikkonan Cate Blanchett fékk líka mikla athygli þetta kvöld. Hún var bæði valin leikkona ársins og kona ársins af lesendum breska tímaritsins Elle. Af öðrum stællegum verðlauna- höfum má nefna að Daniel Craig var valinn leikari ársins, Jamelia tónlistarkona ársins, Helena Christensen tískutákn ársins, Matthew Williamson breskur hönnuður ársins og Phoebe Philo, hönnuður hjá Chloé var valin al- þjóðlegur hönnuður ársins. Tíska | Tískuverðlaun Elle afhent í London Ástralskur sigur AP Kylie Minogue fékk afhent sérstök heið- ursverðlaun á verðlaunahátíð Elle. AP Stællegustu leikarar ársins samkvæmt lesendum breska tímarits- ins Elle, Cate Blanchett og Daniel Craig. Það er flott að vera rauð- hærður. Herramað- urinn er með sítt hár en samt með klæðilega klippingu. www.intercoiffure-mondial.com ingarun@mbl.is Mjúkt og ferskt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.