Morgunblaðið - 17.02.2005, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 17.02.2005, Blaðsíða 32
32 FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Fjögur verkefni eru tilnefn nýsköpunarverðlauna forse Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands verða veitt í dag, en tilnefnd til verðlaunanna. Kristján Geir Pétursson og Óm við nemendurna sem unnu verkefnin. HVAÐ gerist ef rýma þarf m borgina í skyndingu á Menni arnótt? Björn B son, nemi aðarverk við Háskó lands, og ar Örn E son, nemi iðnaðarve fræði við versity of ington í S Bandarík skoðuðu v málið út f sjónarhor verkfræð Meginma verkefnis að gera u áætlun fy yggis- og ingarmál mannþrö miðbæ R víkur og að niðurstöðurnar g nýst við skipulagningu mann aða ýmiss konar og væru haf hliðsjónar við gerð allsherjar ingaráætlunar miðbæjarins. Verkefnavinna fólst í gerð líkans sem líkir eftir rýming- araðstæðum í mannmergð í m Reykjavíkur, auk viðtala við is- og björgunaraðila og gerð unar sem framkvæmd var m hátíðargesta í miðborginni 1 2004. Líkt eftir aðstæðum á flu eldasýningu á Menninga Að sögn Björns fengu þeir fé að láni sérhæfða hugbúnaðar frá bresku verkfræðifyrirtæ Mott McDonald, sem notuð h verið til að líkja eftir þegar b ingar eru rýmdar, og yfirfær allan miðbæinn. Forritið líkt ig eftir aðstæðum á flugeldas unni á Menningarnótt. „Við s fyrst og fremst hvar vegfare voru að yfirgefa líkanið gegn gönguleiðir sem voru sérstak skilgreindar.“ Í könnuninni s lögð var fyrir hátíðargesti 17 fyrra var fólk meðal annars s að því hvort það myndi nota isvagna við slík tækifæri til a ast á áfangastað ef það væri þá. Í ljós kom að mikill áhugi slíku, skv. könnuninni. „Við r um í verkefninu að búa sem b haginn þannig að sérhæfðir o fróðir aðilar gætu tekið við þ unnið áfram með það. Niðurstöður hermilíkansin leiddu ýmislegt fóðlegt í ljós vegar er ekki hægt að byggj komna áætlun á þeim upplýs einum saman,“ segir Björn, s segir að hægt yrði að hafa rý aráætlun aðgengilega á Neti í símaskránni. Leiðbeindandi Björns og G ars var Páll Jensson, prófess verkfræðideild HÍ. Skoðuðu rým ingu miðborg ar í hermilík Gunnar Örn Erlingsson Björn Björnsson MARKMIÐIÐ með verkefninu Not- andi spyr notanda – nýtt atvinnu- tækifæri geðsjúkra, var að veita geð- sjúkum tækifæri til að hafa áhrif á geðheilbrigð- isþjónustu og koma á gagn- virku sambandi milli notenda og þeirra sem veita hana. Á sama tíma var unnt að skapa atvinnu fyrir geðsjúka og veita nemum tækifæri á að prófa í verki að vinna eftir hug- myndafræði sjálfseflingar sem eykur mann- og félagsauð, að sögn Hörpu Ýrar Erlendsdóttur, en hún og Valdís Brá Þorsteins- dóttir, nemar á 4. ári í iðjuþjálfun við Háskólann á Akureyri, unnu verk- efnið í samstarfi við starfshópinn Hugarafl, samstarfshóp geðsjúkra og iðjuþjálfa. Viðtöl tekin við sjúklinga á þremur geðdeildum Leiðbeinendur verkefnisins voru Auður Axelsdóttir iðjuþjálfi og Elín Ebba Ásmundsdóttir, forstöðuiðju- þjálfi geðdeilda LSH og lektor við Háskólann á Akureyri. Að sögn Hörpu Ýrar er hugmyndin fengin frá Þrændalögum í Noregi. Hugarafl tók viðtöl við sjúklinga á þremur geð- deildum LSH þar sem leitast var við að kanna hvað væri gott við þjón- ustuna og hvað mætti betur fara. Harpa Ýr segir að fram hafi komið ábendingar sem fólk hafði ekki endi- lega veitt athygli en skiptu notendur miklu máli. Í bæklingi sem gefinn var út og er birtur í heild sinni á heima- síðu Hugarafls, www.hugarafl.is, komu fram ýmsar ábendingar, allt frá litlum atriðum til stærri, sem not- endur vildu sjá breytingar á. Könn- unin var unnin á þremur mánuðum sl. sumar en sem dæmi fengu Norð- menn eitt ár í undirbúning. Að sögn Hörpu Ýrar hefur verið unnið áfram með verkefnið. Sviðs- stjórar geðsviðs hafa tekið verkefn- inu opnum örmum og strax sett gæðaráð í að skoða skýrsluna og koma með tillögur að umbótum. Fulltrúar Hugarafls hafa tekið þátt í því ferli. Að sögn HörpuÝrar er mik- ilvægt að halda gæðaeftiliti af þess- um toga áfram því margföldunar- áhrifin séu augljós. Auk þess sem það skili sér í auknum gæðum geð- heilbrigðisþjónustunnar hafi það áhrif á bataferli einstaklinga sem taka þátt í verkefninu. Sem dæmi hafi nokkrir einstaklingar innan Hugarafls sem tóku þátt í könn- uninni síðasta sumar nú þegar snúið aftur út á vinnumarkaðinn eða í skóla. Aukin gæði geðheilbrigðis- þjónustunnar Valdís Brá Þorsteinsdóttir Harpa Ýr Erlendsdóttir EF allt brennisteinsvetni við jarð- hitavirkjanir á Íslandi væri beislað og unnið úr því eldsneyti með sér- stakri aðferð mætti vinna um 1.300 tonn af vetni auk 16 þúsund tonna af brennisteini á ári hverju. Slíkt vetn- ismagn nægði til að knýja 120 strætisvagna stöðugt. Þetta er niðurstaða í nýsköp- unarverkefni Steinars Yan Wang, 22 ára nemanda í efnaverkfræði við Konunglega tækniháskólann í Stokkhólmi í Svíþjóð. Verkefni Steinars nefnist Nýting afgass háhitasvæða. Vann hann að því sl. sumar við Raunvís- indastofnun Háskóla Íslands en leiðbeinendur hans voru prófess- orarnir Þorsteinn I. Sigfússon, og Bragi Árnason við Raunvís- indastofnun HÍ. Miklir möguleikar Í verkefninu fékkst Steinar við þá hugmynd að taka brennisteinsvetni út jarðhitasvæðum landsins og vinna úr því eldsneytið vetni auk brennisteins til iðnaðarnota. Hugmyndin að verkefninu kviknaði í samtali Steinars og Þor- steins Sigfússonar, sem sagði Steinari að áhugavert væri að skoða möguleika á framleiðslu vetnis á jarðhitasvæðum með nýt- ingu afgass úr borholum. Í fram- haldi af þessu einbeitti Steinar sér að því að kanna þessa möguleika og vann í um þrjá mánuði að verkefn- inu. Í verkefninu er svonefndri tveggja þátta aðferð lýst fræðilega og hún prófuð í tilraunastofu. Í þessari aðferð eru járnjónir not- aðar sem hleðsluferjur. Vetnið sem unnið er í tilraunum er notað til þess að knýja efnarafal og brenni- steinninn einangraður og skoðaður í þaula í rafeindasmásjá. Í ljós kem- ur að unnt er að framleiða vetni með aðeins 2⁄3 af þeirri orku sem hefðbundin rafgreining notar. Steinar segir að miklir mögu- leikar virðist vera á nýtingu afgass á háhitasvæðum en gera þurfi þó frekari rannsóknir. „Við Þorsteinn höfum rætt þann möguleika að vinna áfram að þessu verkefni í sumar og bæta aðferðirnar.“ Steinar var í tvö ár við nám í efnaverkfræði við raunvísindadeild Háskóla Íslands og hélt svo nám- inu áfram við Konunglega tækniháskólann í haust. ,,Ég vonast til að geta unnið á Ís- landi. Það er markmiðið. Það eru miklir möguleikar á Íslandi vegna uppbyggingar stóriðnaðar. Það þarf líka að huga að umhverfismál- unum, en það gera efnaverkfræð- ingar, og þetta verkefni snýst að hluta til um það.“ Vetnið dygði til að knýja 120 strætisvagna Steinar Yan Wang AÐ BREYTA RÉTT Í LOFTSLAGSMÁLUM Kyoto-bókunin við loftslagssáttmálaSameinuðu þjóðanna tók gildi ígær og varð hluti af alþjóðalögum. Bókunin, sem setur iðnríkjunum bindandi takmörk hvað varðar losun gróðurhúsa- lofttegunda, er liður í þeirri viðleitni ríkja heims að vinna gegn áhrifum hlýnunar loftslags, sem velflestir vísindamenn telja nú raunverulega hættu. Afleiðingar slíkr- ar hlýnunar gætu orðið mjög alvarlegar, ekki sízt hér á norðurslóðum. Það er því mikið hagsmunamál Íslands og annarra norðlægra ríkja að dökkar spár um hækk- un sjávar, bráðnun jökla, breytta haf- strauma og veðurfar gangi ekki eftir. Fram hefur komið að Íslendingar þurfi lítið að leggja á sig til að standa við skuld- bindingar sínar samkvæmt Kyoto-bókun- inni. Sigríður Anna Þórðardóttir um- hverfisráðherra segir hins vegar í grein í Morgunblaðinu í gær að stefna stjórn- valda sé að gera enn betur. En sigur í baráttunni gegn hættulegum loftslagsbreytingum er langt í frá undir Íslandi eða nokkru öðru einstöku ríki kominn. Ríki heims verða að taka höndum saman, enda þekkir mengunin engin landamæri. Þess vegna er það dapurlegt og um leið algerlega óviðunandi að ríkið með stærsta hagkerfi heims og það sem mengar mest, Bandaríkin, skuli ekki við- urkenna hin nýju alþjóðalög og gera mest lítið til að breyta háttum sínum í þá veru að takmarka losun gróðurhúsaloftteg- unda. Bandaríkin virðast meta hættuna af loftslagsbreytingum með öðrum hætti en flest önnur iðnríki. Þetta er raunar ekki í fyrsta sinn sem Bandaríkin skerast úr leik í baráttunni við mikla ógn – í upphafi. Árni Finnsson, for- maður Náttúruverndarsamtaka Íslands, vitnar í grein í Morgunblaðinu í gær til frægra orða Winstons Churchills, um að hægt sé að treysta á að Bandaríkin muni breyta rétt, eftir að hafa kannað alla aðra kosti til hlítar. Þessi orð voru sögð er Bandaríkin voru enn að bræða það með sér hvort þau ættu að blanda sér í stríðið gegn nazistum í Evrópu. Eftir að Bandaríkin tóku þá ákvörðun breyttist gangur stríðsins. Hið geysi- öfluga hagkerfi Bandaríkjanna sneri sér að stríðsrekstrinum og á fáum árum urðu í Bandaríkjunum tækniframfarir, t.d. í flugi og í nýtingu kjarnorkunnar, sem menn hefðu ella talið að tækju áratugi. Ef Bandaríkin ákveða að snúa sér að baráttunni gegn gróðurhúsaáhrifunum með öllu sínu afli og nýta frumkvöðlakraft sinn til að þróa nýja tækni og nýja orku- gjafa mun sú barátta snúast við. En Bandaríkin þurfa þá að meta það svo að það þjóni ekki hagsmunum þeirra og varð- veizlu hins bandaríska lífsmáta að sitja hjá. Það er hlutverk bandamanna stjórn- valda vestra, Íslands og annarra, að sann- færa Bandaríkjamenn – og þá verðum við að ganga á undan með góðu fordæmi. LAUNMORÐ Í LÍBANON Tugþúsundir manna fylgdu RafikHariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, til grafar í gær. Hariri var myrtur í sprengjutilræði á mánudag. Ekki er vitað hver stóð á bakvið tilræðið, en böndin berast að Sýrlendingum, sem hafa nú 14 þúsund hermenn í Líbanon og hafa haft þar herlið síðan 1976. „Sýrland burt,“ hrópuðu margir í líkfylgdinni. Bandaríkjamenn hafa ekki sakað Sýr- lendinga um það berum orðum að standa að baki ódæðinu, en Sýrland er enn á lista þeirra yfir ríki, sem leggja hryðjuverka- mönnum lið. Í fyrra var útflutningur á bandarískum vörum til Sýrlands fyrir ut- an lyf og mat bannaður, sýrlenskar flug- vélar mega hvorki fljúga til né frá Banda- ríkjunum og eignir tiltekinna Sýrlendinga hafa verið frystar. Bandaríkjamenn hafa undanfarið beitt Sýrlendinga þrýstingi á þremur forsendum. Þeir vilja sýrlenska herinn burt frá Líbanon og telja að Sýr- lendingar hafi stutt uppreisnarmenn í Írak og ofbeldi gegn Ísraelum. Banda- ríkjamenn kvöddu í fyrradag sendiherra sinn brott frá Sýrlandi. Morð á pólitískum leiðtogum í Líbanon voru algeng meðan á borgarastyrjöldinni í landinu stóð. Í einn og hálfan áratug hefur hins vegar ríkt friður í landinu. Hariri var forsætisráðherra frá 1992 til 1998 og aftur frá 2000 þar til hann sagði af sér í október í fyrra eftir að Sýrlendingar þrýstu á um að gerð yrði stjórnarskrárbreyting, sem framlengdi kjörtímabil Emiles Lahouds forseta um þrjú ár. Lahoud hefur ávallt verið hollur Sýrlendingum og deilur stað- ið milli hans og Hariris. Sýrlendingar líta svo á að áhrif í Líb- anon séu grundvallaratriði í að tryggja ör- yggi þeirra. Bashar al-Assad, forseti Sýr- lands, lýsti yfir því að Sýrlendingar ættu enga aðild að tilræðinu. Stuðningsmenn Sýrlendinga spyrja hvernig í ósköpunum þeir eigi að hagnast á verknaði, sem aug- ljóslega muni auka þrýstinginn um að þeir hverfi frá Líbanon. Íranar gengu meira að segja svo langt að segja að Ísraelar gætu hafa komið nálægt verknaðinum. Ítök Sýrlendinga í Líbanon hafa verið eitt af mörgum vandamálum landanna fyrir botni Miðjarðarhafs. Hariri átti drjúgan þátt í að efla sjálfstæði Líbanons og draga úr áhrifum Sýrlendinga þótt ekki hafi hann opinberlega verið í hópi andstæðinga þeirra. Nú horfir betur í samskiptum Ísraela og Palestínumanna en gert hefur um árabil. Annar lykill að því að koma á stöðugleika fyrir botni Mið- jarðarhafs er að losa Líbanon undan áhrifum Sýrlendinga og nú er rétt að beita þrýstingi til að koma því til leiðar. NÝ FORYSTA FLUGLEIÐA Ný og öflug forystusveit Flugleiða-samsteypunnar var kynnt í gær og mun á næstunni taka við störfum Sigurð- ar Helgasonar, sem verið hefur forstjóri Flugleiða í tvo áratugi. Ragnhildur Geirsdóttir, sem verið hef- ur framkvæmdastjóri hjá Icelandair, verður forstjóri Flugleiðasamsteypunn- ar. Stjarna hennar hefur risið hratt innan fyrirtækisins undanfarin ár og hún axlar nú mikla ábyrgð, aðeins 33 ára gömul. Með ráðningu Ragnhildar í forstjóra- starfið fjölgar um helming þeim konum, sem gegna forstjórastarfi hjá íslenzkum stórfyrirtækjum. Jón Karl Helgason, sem hefur verið ráðinn forstjóri dótturfélagsins Ice- landair, sem sér um millilandaflug Flug- leiðasamsteypunnar, hefur undanfarin ár stýrt Flugfélagi Íslands. Hann hefur sannað hæfileika sína í flugrekstri með því að snúa starfsemi, sem margir töldu að gæti ekki borið sig, í arðbæran rekst- ur. Flugleiðir gegna sérstöku hlutverki í íslenzku þjóðfélagi. Fyrirtækið starfræk- ir eina af lífæðum nútímasamfélags á Ís- landi. Þess vegna bera nýir stjórnendur Flugleiða mikla ábyrgð og þeim er óskað velfarnaðar í vandasömum störfum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.