Morgunblaðið - 17.02.2005, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2005 61
AKUREYRI
kl. 6.
Ísl tal.
ÁLFABAKKI
kl. 3.45 og 6.20.
Ísl tal
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.45 og 6. m. ísl. tali./ kl. 3.45. m. ensku tali.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.45, 6, 8.15 og 10.30.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8 og 10.30.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8.15.
KRINGLAN
Sýnd kl. 5.45.
Nýjasta snilldarverkið frá Óskarverðlaunahafanum
Clint Eastwood. Eftirminnilegt og ógleymanlegt
meistaraverk. Besta mynd hans til þessa.
Kvikmyndir.is
DV
KRINGLAN
Kl. 6. Ísl tal /
kl. 6 og 8. E. tal.
Yfirnáttúrulegur spennutryllir af bestu gerð sem
vakið hefur gríðarleg viðbrögð og slegið
rækilega í gegn í USA og víðar.
Varúð: Ykkur á eftir að bregða.
B.i 16 ára
AKUREYRI
Sýnd kl. 8 og 10..
ÁLFABAKKI
kl. 6, 8.15 og 10.30.
Disneyhetjurnar Bangsímon, Grísli, Tígri og
félagar lenda í stórkostlegu nýju ævintýri!
KRINGLAN
Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 14 ára.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10.15.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 10.15.
H.J. Mbl.
Hlaut tvenn Golden Globe verðlaun
Kvikmyndir.is.
S.V. Mbl.
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI
Líðan Michaels Jacksons er í jafnvægi eftirað hann var fluttur í hasti á spítala í
fyrradag. Söngvarinn er sagður hafa fallið í yf-
irlið þegar verið var að ferja
hann í réttarsalinn þar sem
til stóð að halda áfram vali á
kviðdómendum. Jackson
kvartaði sáran undan því að
vera andstuttur og finnast
hann vera að falla í yfirlið
áður en ákveðið var að fara
með hann á spítala.
Lögfræðingur hans boð-
aði forföll Jacksons með því að segja hann
„mjög, mjög veikan“, og dómari ákvað þá að
fresta réttarhöldum fram til næsta þriðjudags.
Talsmaður spítalans Marian Medical Center
staðfesti síðan að söngvarinn 46 ára gamli
þjáðist af „flensulegum sjúkdómi sem fylgdu
uppköst“. Honum var enn haldið á spítala í
gær og sagt að hann yrði ekki útskrifaður fyrr
en hann væri búinn að ná fullri heilsu.
Nicolas Cage á von á sínu öðru barni. Eig-inkona hans Alice á von á sér og er ráð
fyrir gert að fyrsta barn
þeirra hjóna saman muni
fæðast innan sex mánaða.
Cage á son frá fyrra hjóna-
bandi en hann lýsti nýverið
yfir að hann væri loksins bú-
inn að finna þá einu réttu
eftir að hafa verið giftur
tvisvar sinnum áður; fyrst
leikkonunni Patriciu
Arquette og síðan Lisu Marie Presley, dóttur
Elvis.
Uma Thurman ætlar sér að halda áfram aðleika á fullu þótt hún sé einstæð móðir
tveggja ungra barna. Leikkonan skildi við leik-
arann Ethan Hawke í fyrra
og segist síðan þá hafa
reynt að gera sitt besta til
að finna jafnvægi milli leik-
framans og uppeldisins á
börnum sínum Mayu, sem
er sex ára, og Roan, sem er
tveggja ára. „Það tekur
mjög á, en ég get ekki hætt.
Ég þarf bara að vinna hörð-
um höndum að því að gera allt í senn; vera eins
áberandi og ég get í bíóbransanum, finna eins
krefjandi verkefni og ég get og sinna börnum
mínum eins vel og ég get.“
Næsta mynd sem Thurman leikur í er end-
urgerð á sígildri gamanmynd og leikriti Mel
Brooks The Producer, þar sem hún mun fara
með hlutverk sem Nicole Kidman hafði áður
verið ráðin til að leika. Thurman segist hlakka
mjög til að leika í myndinni, aðallega vegna
þess að hún þarf ekki að vera útötuð í blóði,
líkt og í Kill Bill-myndunum. „Nú þarf ég bara
að dansa, sem er miklu ánægjulegra en að
slást.“
Fólk folk@mbl.is
TVÖ bresk dagblöð, The Sunday Tim-
es og The Sun, hafa greitt tónlistar-
manninum Yusuf Islam, sem áður var
þekktur sem Cat Stevens, miskabæt-
ur vegna greina þar sem Islam var
bendlaður við hryðjuverkastarfsemi.
Islam, sem tók íslamstrú og dró sig
að mestu úr sviðsljósinu, segir að
blöðin hafi heitið því að birta ekki um-
ræddar ásakanir á ný og fallist á að
greiða málskostað og „umtalsverðar
bætur“.
„Það virðist auðvelt þessa dagana
að koma fram með fáránlegar ásak-
anir á hendur múslímum og í mínu til-
felli sköðuðu þær mannúðarstarf mitt
og orðstír minn sem listamanns,“ seg-
ir Islam í yfirlýsingu.
Blöðin tvö staðfestu að þau myndu
greiða Islam bætur en neituðu að
upplýsa hvað þær væru háar. Tals-
maður Sunday Times segir, að blaðið
hafi ávallt neitað sök og verið ósam-
mála túlkun lögmanna Islam á um-
ræddri grein, en ákveðið að ljúka
málinu með þessu móti. Talsmaður
Sun sagði að yfirlýsing Islams væri
rétt en vildi ekki tjá sig frekar um
málið.
Það vakti mikla athygli í september
þegar flugvél, sem Islam ætlaði með
frá Lundúnum til Washington, var
látin lenda í Maine og síðan var Islam
meinað að stíga á land í Bandaríkj-
unum vegna gruns um að hann tengd-
ist hryðjuverkastarfsemi. Islam vísaði
þessu á bug og segir að bandarísk
stjórnvöld hafi enn ekki gefið sér
skýringar á málinu.
Bresku blöðin birtu umdeildu frétt-
irnar í október. Sunday Times birti í
kjölfarið leiðréttingu og sagðist ekki
hafa ætlað að gefa til kynna að Islam
styddi hryðjuverkastarfsemi. Sun
birti einnig leiðréttingu.
Islam segist ætla að nota bótaféð til
að hjálpa börnum sem misstu foreldra
sína í náttúruhamförunum í Asíu um
jólin.
Fólk | Bresk blöð greiða
Yusuf Islam bætur
Rangt að
bendla hann
við hryðjuverk
Reuters
Islam á flóðasvæðunum í Asíu þar
sem hann gaf fé úr styrktarsjóði sín-
um og aðstoðaði bágstödd börn.
ZÖE Salmon, kynnir þáttanna Blue Peter,
sem BBC er að taka upp hér á landi, veiddi
lax í gegnum vök í Elliðavatni í fyrradag.
Hún segist vera himinlifandi yfir fengnum.
„Þetta var ótrúleg lífsreynsla, því ég hef
aldrei farið að veiða áður; hvað þá á lax-
veiðar. Það var stórkostlegt að fyrsti fisk-
urinn minn skyldi vera lax, og í raun frekar
fyndið, þar sem ég heiti Salmon [enska orð-
ið yfir lax er „salmon“, innsk. blm.]. Ég
bjóst ekki við því að veiða nokkuð og við
vorum við það að gefast upp þegar ég fann
að skyndilega var togað í línuna,“ segir
Zöe.
Nýtt áhugamál
Zöe segist strax hafa fundið að fiskurinn
væri stór, af slíkum krafti togaði hann. „Ég
hélt að stöngin myndi brotna, þannig að ég
greip um línuna og togaði af öllum kröftum,
þar til laxinn kom upp um vökina í ísnum,“
segir hún og bætir við að hún hafi nú eign-
ast nýtt áhugamál. „Ætli ég snúi mér ekki
að laxveiðum þegar ég kem aftur til Bret-
lands,“ segir hún og hlær. Ákveðið var að
laxinn fengi að snúa aftur í vatnið, eftir
harða baráttu.
Hún vill ekki særa blaðamann og útiloka
vel ígrundaða kenningu hans, um að for-
feður hennar hafi stundað laxveiðar og
hlotið eftirnafn sitt af því. „Já, það má vel
vera. Reyndar hafa bróðir minn og faðir
stundað veiðar af nokkrum krafti og stund-
um kom ég með og horfði á, en þeir hafa
held ég aldrei náð að veiða lax. Ég get ekki
beðið eftir því að segja þeim frá því,“ segir
hún, „en ég ætla samt að halda þessu
leyndu og leyfa þeim að komast að því þeg-
ar þeir horfa á þáttinn í apríl.“
Zöe kom til landsins á föstudaginn og
segist hafa notið dvalar sinnar til hins ýtr-
asta. „Ég hef aldrei komið til Íslands og
þessi ferð hefur verið stórkostleg. Ég hef
fengið að gera svo margt hérna; spilað ís-
hokkí, veitt niðrum ís, farið upp á jökul, séð
norðurljósin, farið í Bláa lónið og séð Gull-
foss og Geysi,“ segir hún. „Ég hef séð Eiff-
elturninn og Louvre-safnið í París, Coloss-
eum í Róm og Frelsisstyttuna í New York,
en Gullfoss er uppáhaldsstaðurinn minn í
allri veröldinni. Þar var engin sála þegar
okkur bar að garði; bara ró og kyrrð og
stórkostleg náttúrufegurð,“ segir hún.
Zöe Salmon veiddi
nafna sinn í Elliðavatni
Zöe stolt með maríufiskinn.
ivarpall@mbl.is
SÖNGKONAN Emilíana Torrini hélt stutta
tónleika í einni af stærstu hljómplötuversl-
unum Parísar, Virgin Megastore við
Champs Elysées-breiðgötuna, í síðustu
viku.
Á tónleikunum söng Emilíana lög af ný-
útkominni plötu sinni Fisherman’s Woman
við gítarundirleik en platan hefur einmitt
fengið sérstaka kynningu í versluninni und-
anfarna daga. Fjölmenni var á tónleikunum
og tóku margir verslunargestir sér hlé frá
geisladiskagramsi um stund til að hlýða á
hljómþýða og angurværa tónlistina. Þrátt
fyrir að hóstakast hafi hrjáð söngkonuna
var ekki annað að heyra en að áheyrendur
kynnu vel að meta sönginn. Þegar hún
gleymdi textanum við lagið „Heartstopper“
– sem verður næsta smáskífulag hennar –
gerði einn þeirra sér lítið fyrir og rétti
henni textablað geisladisksins til þess að
hún gæti sungið lagið á enda. Var Emilíönu
að vonum fagnað með kröftugu lófataki að
tónleikunum loknum.
Tónlist | Fisherman’s
Woman kynnt í Frakklandi
Ljósmynd/Einar Örn Jónsson
Emilíana söng af innlifun í Virgin Megastore
á Champs Elysées-breiðgötunni.
Emilíana heillar
Parísarbúa