Morgunblaðið - 17.02.2005, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 17.02.2005, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Ímarkblaðið Sérblað um íslenska markaðs- daginn fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 25. febrúar. Blaðinu verður einnig dreift á Ímark deginum í Háskólabíói. Skipulegðu árangurinn, markvissari markaðssetning skilar betri árangri Auglýsingar tilnefndar til verðlauna Könnun IMG meðal markaðsstjóra auglýsingar 569 1111 Umsjón: Birna Anna Björnsdóttir Auglýsingar: Katrín Theódórsdóttir, sími: 568 1139 Panta þarf auglýsingar fyrir kl. 16 mánudaginn 21. febrúar. Meðal efnis í blaðinu sem verður skorið og heft: KYOTO-sáttmálinn tók gildi í gær en að honum stendur 141 ríki. Kveður hann á um aðgerðir til að minnka mengun og útblástur í því skyni að draga úr vaxandi gróðurhúsaáhrifum. Mesti mengunarvaldurinn, Bandaríkin, eru ekki aðilar að honum. Iðnríkin 34, sem hafa staðfest sáttmálann, eiga að vera búin að draga úr mengun um 5,2% fyrir 2012 og er þá miðað við mengunina eins og hún var í hverju þeirra 1990. Kenýski umhverfis- verndarsinninn Wangari Maathai, sem hlaut friðarverðlaun Nóbels á síðasta ári, sagði í gær, að dagurinn væri í senn endir langs samn- ingaferils og upphaf mikillar baráttu fyrir tilvist okkar mannanna og annarra tegunda hér á jörð. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði, að gróðurhúsaáhrifin væru „mesta vandamál þessarar aldar“ og Klaus Töp- fer, yfirmaður umhverfisáætlunar SÞ, sagði, að flest benti til, að hiti á jörðinni hækkaði hraðar en búist hefði verið við. Kvaðst hann vona, að það væri þó ekki rétt, því að annars væri hætta á, að ástandið yrði stjórnlaust með alvarlegum afleiðingum um allan heim. Mesta mengunin líklega í Kína 2020 Það var eitt af fyrstu embættisverkum George W. Bush Bandaríkjaforseta 2001 að hætta við- ræðum um Kyoto-sáttmálann og sagði hann ástæðuna vera, að hann yrði of dýr fyrir efna- hagslífið. Bandaríkin og Ástralía eru einu iðnrík- in, sem ekki eiga aðild að sáttmálanum, en frá þeim koma 30% útblástursins, sem veldur gróð- urhúsaástandi. Bush bendir einnig á máli sínu til stuðnings, að þróunarríki eins og Kína og Indland eru enn undanskilin Kyoto-sáttmálanum og margt bendir til, að 2020 verði Kína mesta mengunarríkið. Síð- ar á þessu ári hefst hins vegar önnur lota í Kyoto-viðræðunum og þá verða gerðar auknar kröfur til þróunarríkjanna. Rússar hafa staðfest Kyoto-sáttmálann en Andrei Íllaríonov, ráðgjafi rússnesku stjórnar- innar í efnahagsmálum, sagði í gær, að sáttmál- inn væri „vitleysa“, sem Rússar ættu að segja skilið við. „Aldrei áður hafa verið settar tak- markanir við efnahagslegum vexti í Rússlandi,“ sagði Íllaríonov og bætti við, að vegna sáttmál- ans væri hætta á, að þjóðarframleiðslan yrði 60% minni 2050 en hún var 2003. Kyoto-sáttmálinn genginn í gildi Fagnað sem fyrsta skrefi í baráttunni við eina mestu vá, sem steðjað hefur að lífríkinu Kyoto. AFP. Reuters ÞAU hjónin Murugupillai Jeyaraj- ah og Jenita, kona hans, réðu sér ekki fyrir fögnuði þegar dómstóll á Sri Lanka afhenti þeim í gær barnið þeirra eftir nærri átta vikna þref um ætterni þess og uppruna. „Barn 81“ eins og dreng- urinn var kallaður fannst lifandi undir miklu braki eftir flóðölduna um jólin og sagt var, að mörg hjón, sem söknuðu barna sinna, hefðu gert tilkall til hans. DNA- rannsókn tók hins vegar af allan vafa um hverjir eru hans réttu foreldrar. Hér knúsa þeir strák- inn, hann Abilass, og ætla sér örugglega að passa vel upp á hann í framtíðinni. Reuters Allt er gott sem endar vel AUKNAR líkur eru nú taldar vera á því að Ísraelar muni yfirgefa Gaza í samræmi við tillögur stjórnar Ariels Sharons forsætisráðherra. Þing Ísr- aels samþykkti í gær lög um að átta þúsund gyðingar, sem sest hafa að á Gaza, fái bætur þegar gyðinga- byggðir á svæðinu verða rýmdar á árinu. Greiddu 59 af 120 þingmönn- um atkvæði með frumvarpinu um bætur en 40 greiddu atkvæði á móti. Andstæðingar brottflutnings frá Gaza reyna nú eftir mætti að tefja fyrir áætlun Sharons með því að krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu um málið. Takist Sharon að fá fjárlög sam- þykkt í mars er talið að fátt geti hindrað áformin um brotthvarf frá Gaza. Ekki er þó víst að svo fari. Shas, einn af flokkum bókstafstrúar- manna, sagðist í gær ekki myndu samþykkja fjárlögin og standi hann við þau orð falla fjárlögin. Yrði þá efnt til nýrra kosninga og óvíst hvað þá yrði um Gaza-áætlunina. Gyðingar á Gaza fá bætur Jerúsalem. AP, AFP. BANDARÍSK þing- nefnd hefur sakað yf- irmann olíusöluáætlun- ar Sameinuðu þjóðanna í Írak, Benon Sevan, um að hafa stungið meira en einni milljón dollara í vasann í tengslum við áætlunina sem rekin var í Írak á sínum tíma en virðist nú hafa einkennst af spillingu. Fyrr í þessum mán- uði birtu Sameinuðu þjóðirnar bráðabirgða- skýrslu nefndar sem rannsakað hefur ásak- anir um spillingu í tengslum við ol- íusöluáætlunina. Þar kom fram að framganga Sevans hefði verið „sið- ferðislega ósæmileg“ og grafið „alvarlega undan trúverðug- leika Sameinuðu þjóðanna“. Var Sev- an sagður hafa þegið „miklar fjárhæðir“ en hann var þó ekki sakaður um mútu- þægni eða talinn hafa gerst brotlegur við lög. Djúpstæður vandi Í skýrslu sem und- irnefnd öldunga- deildar Bandaríkja- þings sendi frá sér á mánudag segir hins vegar að gögn í Írak bendi til að Sevan hafi hagn- ast um u.þ.b. 1,2 milljónir dollara, eða 74 milljónir ísl. kr., á fram- kvæmd áætlunarinnar. „Þessar niðurstöður sýna hversu djúpstæður vandinn við þessa áætlun var, mun meiri en áður hefur verið talið,“ sagði í yfirlýs- ingu sem Norm Coleman, þing- maður Repúblikanaflokksins, sendi frá sér í tengslum við birtingu skýrslunnar. Þingnefndin gerði opinber nokk- ur skjöl, er tengdust efni skýrsl- unnar, frá íraskri stjórnarskrif- stofu er virtist sýna að Sevan hefði þegið greiðslur á meðan hann var milliliður fyrir fyrirtækið African Middle East Petroleum, en það fyrirtæki er „vinur“ hans, Fakhry Abdelnoor, sagður hafa rekið. Sev- an hefur sjálfur borið af sér allar sakir í þessum málum. Segja Sevan hafa feng- ið 1,2 milljónir dollara Washington. AFP. Benon Sevan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.