Morgunblaðið - 17.02.2005, Side 13
Vioxx jókst sala á öðrum Coxib-lyfjum en síðan hefur dregið verulega úr henni
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2005 13
FRÉTTIR
REIKNA má með að langflestir
þeirra gigtarsjúklinga sem fóru á
önnur Coxib-lyf, eftir að Vioxx var
tekið af markaði þoli ekki eldri gigt-
arlyf eða þeim stafi beinlínis hætta
af að taka þau. Gildar ástæður séu
því fyrir því að hafa þá áfram á
Coxib-lyfjum en slík lyf eru dýrari
en eldri gigtarlyf. Þetta segir Jón
Atli Árnason gigtarlæknir en í
Morgunblaðinu í gær sagði Inga J.
Arnardóttir hjá Tryggingastofnun
(TR) að eftir að Vioxx var tekið af
markaði hefðu greiðslur TR færst
yfir í önnur Coxib-lyf en ekki eldri
gigtarlyf. Sagði hún lækna ekki
hafa verið nógu varkára hvað þetta
varðaði en þess má geta að Land-
læknisembættið hefur varað við
notkun annarra Coxib-lyfja.
„Hún er sennilega að horfa á
fjárhagslegu hliðina, en væntanlega
ekki að leggja læknisfræðilegt mat
á málið,“ segir Jón Atli um ummæli
Ingu.
„Það gætir þess misskilnings að
öll Coxib-lyf séu undir sömu sök
seld og Vioxxið,“ segir Jón Atli.
Hann bendir á að nýjar rann-
sóknir sem gerðar hafi verið á eldri
bólgueyðandi lyfjum sýni að þau
gætu haft svipaða áhættu í för með
sér og nýju lyfin. Þau geti t.d.
hækkað blóðþrýsing og haft áhrif á
hjarta- og æðakerfið.
Gömlu lyfin hættuleg sumum
„Ég held að það sé mjög eðlilegt
að læknar sem hafi verið með sjúk-
linga á Vioxx skipti yfir á annað
Coxib, því að öllum líkindum hafa
þessir sjúklingar verið á Vioxx
vegna þess að þeir þoldu ekki eldri
lyfin, voru á blóðþynningarlyfjum
eða með magasár og gátu því ekki
tekið eldri lyfin. Það gætir þess
misskilnings að læknar hafi sett
fólk á Vioxx fyrst og fremst út af
nýjungagirni og áhrifa frá lyfjafyr-
irtækjunum, en ekki af beinum klín-
ískum ástæðum.“
Af þessum sökum voru Vioxx og
sambærileg gigtarlyf hrein viðbót
við markaðinn, þ.e. sjúklingar sem
ekki höfðu þolað eldri gigtarlyf gátu
margir hverjir notað Coxib-lyfin
með góðum árangri. „Þegar þessi
lyf komu á markað var ég með stór-
an hóp sjúklinga sem ekki gátu ver-
ið á eldri lyfjunum. Þegar þessi
nýju lyf komu fór þetta fólk á þau
og þau urðu því hrein viðbót við
markaðinn.“
Jón Atli segir Coxib-lyfin nokkuð
sambærileg eldri bólgueyðandi lyfj-
um hvað varðar virkni en hafi minni
aukaverkanir.
„Þau hafa sömu
áhrif á ónæm-
iskerfið og eldri
lyf og eru því
álíka góð bólgu-
eyðandi lyf. Þau
eru álíka góð
verkjalyf og eldri
lyfin en vegna
þess að þau erta
ekki magann og valda ekki maga-
sárum gat fólk tekið þau í heldur
stærri skömmtum og þess vegna
hafa þau fyrir suma virkað betur.
Fólk gat allt í einu tekið nægilega
mikið af lyfi til þess að sársaukinn
hyrfi.“
Coxib-lyfin sem nú eru eftir á
markaði eru álíka góð verkjalyf og
Vioxxið. „Enn er deilt um áhrif
þeirra á frumuhimnur, æðaveggi og
svo framvegis,“ segir Jón Atli. „Það
hefur hins vegar ekkert komið fram
í rannsóknum á hinum Coxib-
lyfjunum sem styður þessa nei-
kvæðu umfjöllun sem þau fá nú í
fjölmiðlum.“
Engin lyf rannsökuð jafnmikið
Varað hefur þó verið við notkun
annarra Coxib-lyfja, t.d. af Land-
læknisembættinu. „Ég held að það
hafi verið svolítil fljótfærni að gera
það,“ segir Jón Atli. Fæstar rann-
sóknir á lyfinu Celebra hafi sýnt
aukna hættu á hjarta- og æða-
sjúkdómum og sumar minni
áhættu. Þó sýni ein rannsókn svip-
aða niðurstöðu og Vioxx-rann-
sóknin. Hin Coxib-lyfin tvö sem eru
á markaði hafi verið minna rann-
sökuð. Jón Atli bendir þó á að Cox-
ib-lyfin í heild hafi verið meira
rannsökuð áður en þau komu á
markað en nokkur önnur lyf. Rann-
sóknir hafi haldið áfram eftir að far-
ið var að nota þau. „Það er ekki
fyrr en núna, nokkrum árum
seinna, sem þessar rannsóknir gefa
til kynna að það gætu verið hópar
fólks sem ekki ættu að vera á lyfj-
unum. Þetta var einfaldlega ekki
vitað þegar lyfin komu á markað og
því ekki hægt að ásaka lækna eða
lyfjafyrirtæki fyrir að nota lyfin.“
Jón Atli segir það þó eðlilega
kröfu sjúklinga að lyf séu rann-
sökuð það mikið að alvarlegar auka-
verkanir komi ekki fram eftir að
lyfin eru markaðssett. „Þessi lyf
hafa verið rannsökuð jafnvel ef ekki
betur en eldri lyf. Þetta veltir
kannski upp þeim áhugaverða
punkti; hvað um eldri bólgueyðandi
lyf? Hvað um áhættu af þeim lyfj-
um sem ekki hafa verið athuguð
eins gaumgæfilega og Coxib-in?“
Nefndir á vegum amerísku lyfja-
stofnunarinnar, Food and Drug Ad-
ministration, hófu í gær opinn fund
um kosti og áhættur COX-2 lyfja og
annarra skyldra lyfja. Verður m.a.
að sögn Jóns Atla rætt um hvort
takmarka eigi ávísanir á önnur Cox-
ib-lyf. Er almenningi boðið að taka
þátt í fundinum. Hann stendur í
þrjá daga og lýkur á föstudag.
Margir þola ekki eldri gigtarlyf
Jón Atli Árnason
Jón Atli Árnason
gigtarlæknir
segir eðlilegt að
ávísa öðrum
Coxib-lyfjum í
stað Vioxx
MEÐ ÞVÍ að setja 27 milljónir
króna á ári í bólusetningarkostnað
má spara 22 milljónir annars stað-
ar í heilbrigðiskerfinu og í leiðinni
lengja líf mannfjöldans á Íslandi
um 50 ár á ári. Kostnaður á áunnið
lífár væri um 100 þúsund krónur.
Þetta sagði Þórólfur G. Matthías-
son, prófessor í viðskipta- og hag-
fræðideild Háskóla Íslands, á ráð-
stefnu SÍBS um lyf og líf í
Norræna húsinu á þriðjudag. Rifj-
aði hann þar upp niðurstöðu sem
hann í félagi við Guðmund Berg-
þórsson, Harald Briem og Þórólf
Guðnason komst að um þessi mál.
„Ég hygg að yfirgnæfandi hluti Ís-
lendinga væri tilbúinn til að greiða
hærri fjárhæð en það fyrir að
lengja líf sitt um eitt ár,“ sagði
Þórólfur í erindi sínu. „Hér fæst
því mikill hvellur
fyrir lítið fé.“
Þórólfur sagði
staðreynd að
lyfjakostnaður
er og hefur verið
tiltölulega lítill
hluti heildarheil-
brigðisútgjalda
hér á landi.
„Þessar stað-
reyndir ríma illa
við fréttir þess eðlis að lyfjakostn-
aður sé að sliga heilbrigðiskerfið.“
Í erindinu fjallaði Þórólfur m.a.
um samkeppni eða fákeppni á
lyfjamarkaði. Sagði hann Evrópu-
löndin nota svipaðar aðferðir og
hér væru við lýði, þ.e. að setja há-
marksverð á lyfseðilsskyld lyf og
miða greiðsluþátttöku almanna-
trygginga við ódýrasta lyf en leyfa
notandanaum að kaupa dýrari lyf
og greiða mismuninn. „Þessi að-
ferðafræði minnir óþægilega mikið
á verðlagseftirlit verðbólguár-
anna,“ sagði Þórólfur.
Vill aukið frelsi í
verðlagningu á lyfjum
Þórólfur sagði erfitt að benda á
skárri aðferðir en að samhliðainn-
flutningur lyfja væri hér heimill og
auðveldur frá löndum Evrópska
efnahagsvæðisins. Í stærri löndum
Evrópu getur samhliðainnflutning-
ur sjálfsagt ekki orðið mjög stór
hluti heildarsölu lyfja, að sögn
Þórólfs. Þessu sé háttað öðruvísi
hér vegna smæðar íslenska mark-
aðarins.
„Hver vegna ekki að nýta sér
smæð íslenska markaðarins neyt-
endum til hagsbóta svona til til-
breytingar?“ spurði Þórólfur í er-
indi sínu. „Hvers vegna ekki að
gefa verðlagningu á ákveðnum
lyfjum frjálsa og sjá hvað gerist?
Best er að sjálfsögðu að byrja með
lyf sem þegar eru í samhliðainn-
flutningi, en það ætti einnig að
gera tilraun með lyf þar sem sam-
hliðainnflutningur er mögulegur
en hefur ekki hafist. Ég er sann-
færður um að slík aðferðafræði, sé
hún vel útfærð, sé mun skilvirkari
en núgildandi fyrirkomulag.
Opinberar stofnanir eru lífs-
nauðsynlegar til að hafa eftirlit
með gæðum lyfja, en markaðurinn
er miklu betri verðgæslumaður en
opinberar stofnanir,“ sagði Þórólf-
ur.
Markaðurinn er góður verðgæslumaður
Þórólfur
Matthíasson
HEPPILEGAST væri að hið opin-
bera og veitingamenn tækju höndum
saman um að lækka áfengisverð á
veitingastöðum, að mati Ernu Hauks-
dóttur, framkvæmdastjóra Samtaka
ferðaþjónustunnarm (SF). Sam-
gönguráðuneytið lét nýlega gera
skýrslu þar sem m.a. var borið saman
útsöluverð áfengis hjá ÁTVR og í
veitingahúsum. Þar kemur fram að
hátt áfengisgjald og há álagning eigi
stærstan þátt í verðmyndun áfengis í
vínveitingahúsum hérlendis.
Erna kvaðst ekki vera búin að lesa
alla skýrsluna. Hún sagði að hjá SF
væri verið að skoða verðþróun áfengis
hér á landi síðastliðin ár.
Svipað verð
„Tilfinning okkar er sú að verðið
hafi ekki hækkað býsna lengi á meðan
laun og annar kostnaður hafa farið
verulega upp,“ sagði Erna. „Við erum
líka að bera okkur saman við ná-
grannalönd. Okkur sýnist verð á
áfengi ósköp svipað þar á veitinga-
húsum og hér, nema innkaupsverðið
þar er allt annað. Álagning bæði á
mat og áfengi á Íslandi er mun lægri
en í flestum nágrannalöndum okkar.“
Erna sagði samanburð einkum tek-
inn af Norðurlöndum, sem byggju við
svipaðar aðstæður að mörgu leyti,
nema hvað áfengisgjaldið væri marg-
falt lægra þar, að undanskildum Nor-
egi. Erna sagði ekki ósvipað útsölu-
verð á áfengi á veitingahúsum hér og
á Norðurlöndum, þrátt fyrir að áfeng-
isgjald og þar af leiðandi innkaups-
verð væri miklu lægra þar en hér.
Erna taldi að handhafar vínveit-
ingaleyfa væru ábyggilega tilbúnir að
lækka álagningu sína á áfengi ef ríkið
lækkaði áfengisgjaldið.
„Það er sérkennilegt í þessari
skýrslu að svo virðist sem skýrsluhöf-
undur telji að álagning veitingahúsa
sé föst krónutala og breytist ekki með
lægra áfengisgjaldi. Margir hafa þeg-
ar lækkað álagningu sína gríðarmikið
bæði á vín og bjór. Fyrir utan að hjá
öðrum hefur verðið ekki hækkað í
mörg ár. Fólk verður einnig að átta
sig á því að það er ekki einungis verið
að selja glas af víni, heldur einnig dýrt
umhverfi, þjónustu, tónlist og allt
mögulegt,“ sagði Erna.
Erna Hauksdóttir,
framkvæmdastjóri Sam-
taka ferðaþjónustunnar
Þurfum
að taka
höndum
saman