Morgunblaðið - 17.02.2005, Qupperneq 20
DÖNSK HÚSGAGNAHÖNNUN
Ef þú hefur áhuga á danskri húsgagnahönnun í hæsta gæðaflokki,
skoðaðu þá heimasíðu okkar á www.soeborg-moebler.dk og fáðu
nánari upplýsingar eða bæklinga og tilboð frá fyrirtæki okkar.
Næst þegar þú ert í Kaupmannahöfn, ertu velkomin/n að heimsækja
okkur í sýningarsal okkar (800 m2), sem er í aðeins 6 km fjarlægð
frá miðbænum.
A/S Søborg Møbelfabrik, Gladsaxevej 400, 2860 Søborg,
sími +45 39 69 42 22, www.soeborg-moebler.dk
Opnunartímar: mánudag-þriðjudag 8.30-16.30, föstudag 8.30-15
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Molar úr Djúpi | Súðavíkurhreppur hef-
ur hafið á ný útgáfu á fréttabréfi, Djúp-
molum. Áætlað er að það komi út fjórum
til fimm sinnum á ári og
að efni þess verði tengt
málefnum alls sveitarfé-
lagsins.
Allt frá árinu 1995 til
ársins 2000 var gefið út
fréttabréf í Súðavík sem
fjallaði að mestu um
flutning byggðarinnar
eftir flóðin 1995. End-
urvakta fréttabréfið er gefið út undir
nafninu Djúpmolar og vísar í fréttamola
úr Súðavík og úr Djúpi.
Meginefni fyrstu Djúpmola er tengt
málefnum Íbúaþingsins sem haldið var 13.
mars 2004 ásamt því að litið er yfir árið
2004 og það sem markverðast gerðist í
málefnum sveitarfélagsins. Djúpmolum
verður dreift inn á öll heimili og lögbýli í
Súðavíkurhreppi og einnig er hægt að
nálgast fréttabréfið á heimasíðu Súðavík-
urhrepps.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
365 kúamyndir | Landsvirkjun hefur
keypt 365 kúamyndir af Jóni Eiríkssyni,
bónda á Búrfelli í Húnaþingi vestra. Jón
málaði myndirnar árið 2003, eina mynd á
dag. Síðasta sumar hélt Jón sýningu á kúa-
myndunum í Blöndustöð við ágætar vin-
sældir og væntanlega verður sýningin
framlengd um eitt ár.
Þetta kemur fram á fréttavefnum
www.huni.is.
Þar segir ennfremur að í kaupsamningi
milli Landsvirkjunar og Jóns segi m.a. að
Landsvirkjun stefni að því að myndirnar
verði framvegis aðgengilegar Húnvetn-
ingum. Viðfangsefni Jóns á þessu ári eru
blóm.
Framkvæmdastjóri ráðinn | Guðrún
Júlía Jónsdóttir hefur verið ráðin fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suð-
austurlands á Höfn í Hornafirði. Hún hef-
ur starfað við stofnunina frá 1990 og sem
hjúkrunarforstjóri frá 1995.
Kemur þetta fram á vef Hornafjarð-
arbæjar, hornafjordur.is. Þar segir að
bæjarráð vilji á þessum tímamótum end-
urskoða skiptingu verkefna og ná fram
hagræðingu í rekstri stofnunarinnar.
HSSA hefur átt við rekstrarvanda að
stríða og verið framkvæmdastjóralaus um
tíma.
RótaríklúbburRangæinga efnirtil málþings um
ferðamál í Rangárþingi í
dag, fimmtudag, og hefst
kl. 14. Málþingið verður í
félagsheimilinu Hvoli á
Hvolsvelli.
Alþjóðlega Rótarý-
hreyfingin verður aldar-
gömul 23. febrúar næst-
komandi og til að minnast
þessara tímamóta veitir
klúbburinn Mosfelli sf. á
Hellu og forsvarsmönnum
þess viðurkenningu og
stendur fyrir þessu mál-
þingi, þeim til heiðurs.
Mosfell er talið eitt elsta
fyrirtækið í Rangár-
vallasýslu og hefur það
starfað óslitið frá því
snemma á sjöunda ára-
tugnum.
Nánari upplýsingar og
dagskrá er hægt að nálg-
ast á vefnum www.at-
vinnuferda.is.
Málþing
Grímsey| Björgunar-
sveitin Sæþór fékk til sín
góðan gest á dögunum,
Snorra Dónaldsson lækni.
Tilefnið var kaup björg-
unarsveitarinnar á sjálf-
virku hjartastuðtæki.
Boðið var upp á námskeið
þar sem Snorri læknir
kynnti og kenndi á tækið.
Þessi hjartastuðtæki
komu á markað fyrir
nokkrum árum og hafa
þegar sannað ágæti sitt.
Ef manneskja verður fyr-
ir hjartastoppi, les tækið
ástandið og gefur skipun
um að gefa viðkomandi
stuð eða ekki. Sérdeilis
góð mæting var á nám-
skeiðið sem sýndi mik-
ilvægi heimsóknarinnar.
Tilgangur tækisins er að
almenningur geti hugs-
anlega gert kraftaverk á
ögurstundu.
Morgunblaðið/Helga Mattína
Sjálfvirkt
hjartastuðtæki
Jón Ingvar Jónssonvar að leika sérmeð limruformið
og framdi nýjung,
sléttubanda limru sem
má lesa ofan frá eða
neðan frá eftir því
hvernig maður er sinn-
aður.
Ef til vill fer vel á því
að kalla hana Jónru:
Góður matur margan nærir,
þunga glæpi gunga kærir,
óður hundur
hræðist tundur,
sjóður ýmsum auðlegð færir.
Aftur á bak verður
limran svona:
Færir auðlegð ýmsum sjóður,
tundur hræðist hundur óður,
kærir gunga
glæpi þunga,
nærir margan matur góður.
Sigrún Haraldsdóttir
las Jónruna og orti til
Jóns Ingvars:
Nú hefurðu leitt í ljós
að leikni þín er mögnuð
Þú átt skilið skjall og hrós,
skáldalaun og fögnuð.
Jónra í heiminn
pebl@mbl.is
Akureyri | Ígulker, krabbar,
kuðungar og fleiri misjafnlega
kunnugleg sjávardýr vöktu
mikla athygli þeirra sem lögðu
leið sína á kynningardag Há-
skólans á Akureyri. Þessir
krakkar voru þar engin und-
antekning, bræðurnir Kristján
og Guðmundur Björnssynir og
Sævör Dagný Erlendsdóttur
hlustuðu á Hreiðar Valtýsson,
útibússtjóra Hafró á Akureyri,
segja frá lífinu í sjónum, sem
sýnt var í smækkaðri mynd í
þar til gerðu fiskkari.
Morgunblaðið/Kristján
Ígulker, krabbar
og kuðungar
Sjávardýrin
Suðureyri | Byggingarnefnd um íþrótta-
hús á Suðureyri hefur samþykkt að lengja
verktíma við byggingu íþróttahússins um
fimm vikur og á það nú að afhendast 28.
maí í stað þess að það átti að vera tilbúið í
apríl, í 16. viku ársins. Verktakinn óskaði
eftir lengri tíma til að klára verkið en fékk
ekki. Bæjarráð Ísafjarðarbæjar hefur
samþykkt tillögu byggingarnefndar. Á
fundi byggingarnefndarinnar, sem haldinn
var í síðustu viku, var lagt fram bréf frá
verktaka við bygginguna, Ágústi og Flosa
ehf., þar sem óskað var eftir breytingu á af-
hendingartíma hússins „vegna margskon-
ar ófyrirsjáanlegra tafa sem þeir hafa orðið
fyrir“ eins og segir í bókun nefndarinnar
og greint er frá á vef Bæjarins besta á Ísa-
firði. Í stað þess að skila verkinu í viku 16 á
þessu ári óskuðu verktakarnir eftir því að
skila verkinu í 26. viku. Á fundinum var
lögð fram greinargerð Gísla Gunnlaugs-
syni tæknifræðingi sem hefur eftirlit með
byggingu hússins. Þar leggur hann til að
skilatími verksins verði í 21. viku, þ.e. 28.
maí. Samþykkti nefndin að styðjast við til-
lögu Gísla. Á fundi bæjarráðs Ísafjarðar-
bæjar á mánudaginn var samþykkt að
leggja til við bæjarstjórn að tillaga bygg-
ingarnefndarinnar um verklok verði sam-
þykkt.
Lengri verk-
tími sam-
þykktur
Eyjafjarðarsveit | Brýnt er að gera úr-
bætur á vegum í Eyjafjarðarsveit. Full-
trúar sveitarfélagsins hafa hitt þingmenn
kjördæmisins þar sem helsta málið sem
til umfjöllunar var voru vegabætur í inn-
anverðu sveitarfélaginu.
Á fundinum var lögð fram ítarleg
skýrsla um ástand vega í Eyjafjarðarsveit
og tillögur sveitarstjórnar að fram-
kvæmdaáætlun til næstu 10 ára.
Í skýrslunni er m.a. bent á að í Eyja-
fjarðarsveit eru tengivegir, sem þarfnast
verulegrar eða mikillar endurnýjunar, yf-
ir 50 km að lengd og byggja þarf a.m.k.
þrjár brýr í staðinn fyrir eldri brýr. Elsta
brúin er byggð 1913 og hinar tvær 1933.
Umræddir tengivegir liggja um þéttbýla
sveit þar sem mjólkurframleiðsla er aðal-
atvinnugreinin og þungaflutningar þess
vegna snar þáttur í þeim atvinnurekstri.
Frá þessu er sagt á vef Eyjafjarðarsveit-
ar.
Brýnt að
bæta vegi
♦♦♦