Morgunblaðið - 17.02.2005, Side 28
Morgunblaðið/Jim Smart
BÓNUS
Gildir 17. – 20. feb. verð nú verð áður mælie. verð
Blandað Bónus hakk ............................ 499 629 499 kr. kg.
Ali svínkótilettur, ferskar ....................... 779 1.038 779 kr. kg
Móa kjúklingabitar, frosnir .................... 299 399 299 kr. kg
Vatn 2 ltr., Bónus ................................. 89 99 45 kr. ltr
Floridanasafi, Bónus ............................ 139 149 139 kr. ltr
Frosin ýsuflök með roði ......................... 299 359 299 kr. kg
Frosnir ýsubitar, roð/beinl. .................... 489 499 489 kr. kg
Frosnir ýsubitar, raspaðir, 800 g ............ 479 599 599 kr. kg
Bónus skúffukaka, 400 g...................... 159 nýtt 398 kr. kg
Ungnautaborgarar, Bónus, 10x115 g..... 999 nýtt 869 kr. kg
FJARÐARKAUP
Gildir 17. – 19. feb. verð nú verð áður mælie. verð
Nauta innralæri ................................... 1.698 2.198 1.698 kr. kg
FK reykt folaldakjöt .............................. 431 718 431 kr. kg
FK saltað folaldakjöt ............................ 421 718 421 kr. kg
FK jurtakryddað lambalæri.................... 863 1.438 863 kr. kg
Kjarnafæði, ofnsteik............................. 1.021 1.449 1.021 kr. kg
Ömmu pitsur, 400 g............................. 348 499 870 kr. kg
Farm frites franskar, 750 g.................... 98 262 131 kr. kg
Matfugl kjúklingalæri/leggir magnpakki . 399 599 399 kr. kg
Matfugl kjúklingavængir ....................... 199 299 199 kr. kg
Fersk jarðarber, 250 g .......................... 149 289 596 kr. kg
HAGKAUP
Gildir 17.–20. feb. verð nú verð áður mælie.verð
Lambaframpartur, SS. sagaður ............. 399 538 399 kr. kg
Helgarsteik, VSOP ................................ 1.263 1.579 1.263 kr. kg
Kjúklingalundir ferskar, Holta ................ 1.467 2.095 1.467 kr. kg
Kjúklingapylsur, Holta ........................... 559 799 559 kr. kg
Lambalæri, rauðvínslegið ...................... 998 1.249 998 kr. kg
Svínakótilettur m/beini......................... 799 1.295 799 kr. kg
Mr. Bagels onion, 5 stk., 850 g .............2 fyrir 1
KRÓNAN
Gildir til 16.–22. feb. m. birgðir endast verð nú verð áður mælie.verð
Ýsuflök, FS. fersk ................................. 499 769 499 kr. kg
Gourmet ofnsteik m/rauðvínsblæ.......... 995 1.579 995 kr. kg
Léttreyktur lambahryggur, KEA ............... 989 1.353 989 kr. kg
Grísahn. gráðaostafylltur, Krónu ............ 974 1.299 974 kr. kg
Epli, rauð ............................................ 79 138 79 kr. kg
Myllu samlokubrauð, stór/fín ................ 129 227 129 kr. kg
Appelsínu/eplasafi, Náttúra ................. 99 119 99 kr. ltr.
Maryland Choc. Chip rauður ................. 69 109 460 kr. kg
Kornflex, X-tra ...................................... 99 199 141 kr. kg
NETTÓ
Gildir 17.–20. feb. verð nú verð áður mælie.verð
Súpukjöt, Goða ................................... 279 399 279 kr. kg
Kjúklingavængir, Íslandsfugl ................. 150 299 150 kr. kg
Ýsubitar, roð og beinlausir, Fjörfisk ........ 399 499 399 kr. kg
Bayonneskinka, Borgarness .................. 738 1.230 738 kr. kg
Kalkúnanaggar, Ísfugls ......................... 896 1.280 896 kr. kg
Cadb. Roses Large 465 g+33% extra .... 399 999 599 kr. kg
Ostakaka bláberja, 8–12 manna, 800 g 799 899 1.001 kr. kg
Náttúra Basmati, hrísgrjón, 1 kg............ 89 139 89 kr. kg
Kaffi, rauður Rúbín, 500 g .................... 289 329 578 kr. kg
NÓATÚN
Gildir 17.–23. feb. m. birgðir endast verð nú verð áður mælie. verð
Kjúklingabringur, Móa .......................... 1.320 2.295 1.320 kr. kg
Ungnauta, Entrecode ........................... 2.174 2.898 2.174 kr. kg
Lambalundir........................................ 2.490 3.298 2.490 kr. kg
Rauðspretta ........................................ 499 699 499 kr. kg
Reyktur lax, bitar, Eðalfiskur .................. 1.398 2.668 1.398 kr. kg
Samlokubrauð, Nóatúns, gróft .............. 99 198 129 kr. kg
Snakk Lay’s, 4 teg................................ 199 269 995 kr. kg
Hversdagsís súkkulaði, Emmess ............ 200 399 100 kr. ltr.
Kaffi classic BKI ................................... 249 359 498 kr. kg
Eldhúsrúllur. 3 stk. ............................... 199 349 67 kr. stk.
SAMKAUP/ÚRVAL
Gildir 17.–20. feb. verð nú verð áður mælie. verð
Svínakótilettur ..................................... 779 1.298 779 kr. kg
Svínagúllas ......................................... 779 1.298 779 kr. kg
Svínasnitsel ........................................ 779 1.298 779 kr. kg
Svínahnakki m/ beini........................... 599 899 599 kr. kg
Svínahnakki, úrbeinaður....................... 799 1.398 799 kr. kg
Svínabógur, hringskorinn ...................... 389 599 389 kr. kg
Svínalundir.......................................... 1.493 1.990 1.493 kr. kg
Svínalæri ............................................ 399 598 399 kr. kg
Spar, Bæjarlind
Gildir til 22. feb. verð nú verð áður mælie. verð
Kjúklingur heill, fosin............................ 199 399 199 kr. kg
Grísakótilettur nýjar, úr kjötborði ............ 698 998 698 kr. kg
Grísakótilettur, léttreyktar...................... 698 998 698 kr. kg
Ís ársins 2005 1 ltr, Kjörís .................... 369 499 369 kr. ltr
Ískex vanillu 175g, Helwa ..................... 139 168 794 kr. kg
7-up, 2 ltr............................................ 109 197 55 kr. ltr
Appelsínusafi 100%, 1 ltr, Jon Juan....... 148 248 148 kr. ltr
Spergilkál, Spánn ................................ 259 379 259 kr. kg
ÞÍN VERSLUN
Gildir 17.–23. feb. verð nú verð áður mælie. verð
Kjúklingur, ferskur, Ísfugls ..................... 435 669 435 kr. kg
Lambalæri, rauðvínslegið ...................... 1.166 1.458 1.166 kr. kg
Hvítlauksbrauð Hatting, 2 stk. 350 g ..... 189 269 529 kr. kg
Franskar kartöflur, Farm Frites, 750 g ..... 169 267 219 kr. kg
Hrísgrjón Tilda Basmati, 500 g.............. 198 238 396 kr. kg
Tilda sósur, 6 teg., 350 g ...................... 269 315 753 kr. kg
Merrild kaffi 103, 500 g ....................... 329 369 658 kr. kg
Kjúklingur og svínakjöt
HELGARTILBOÐIN | Neytendur@mbl.is
28 FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Guðmundur Arnlaugssonheitir ungur, einhleypurVesturbæingur semstarfar sem sögukennari
við Menntaskólann við Hamrahlíð.
Hafandi búið í Vesturbænum frá
blautu barnsbeini, fyrst á Vest-
urgötu og nú við Ægisíðuna, er
Melabúðin að sjálfsögðu sú verslun
sem Guðmundur heldur einna mest
tryggð við. „En stundum geri ég
stærri innkaup í Bónus,“ segir
hann áður en við snörumst inn í
Melabúðina úr rigningunni. Við
skundum framhjá goskælinum og
sælgætishillunni, enda segist Guð-
mundur aðallega drekka pilsner og
bjór og láta „fríhöfnina um sælgæt-
ið“.
Við staðnæmumst því við frysti-
borðið, þar sem meðal annars er að
finna frosnar beyglur. Hann veltir
því skamma stund fyrir sér hvort
hann eigi að kippa pakka af beygl-
um með fræjum utan á með sér, en
man síðan að þær á hann til í fryst-
inum heima. Dálæti á beyglum er
nokkuð sem Guðmundur tileinkaði
sér þegar hann var búsettur í
Bandaríkjunum, þar sem hann
stundaði framhaldsnám í sagnfræði
við Minnesota-háskóla. Og með
hverju skyldi hann borða beygl-
urnar? „Ef ég er hversdagslegur,
borða ég þær einfaldlega með
smjöri og osti. En ef ég vil gera
virkilega góða beyglu, fæ ég mér
hana með rjómaosti með svörtum
pipar, smátt skornum rauðlauk, ögn
af kapers og niðurskornum reykt-
um laxi eða silungi. Með þessu fæ
ég mér síðan gott kaffi,“ segir Guð-
mundur. Við göngum því um versl-
unina og tínum í körfuna það sem
þarf til að búa til þessa sælkera-
beyglu.
Í kvöld á hins vegar að elda
pasta, sem skipar líka stóran sess á
matseðli Guðmundar, því hann bjó
um tíma í Bologna á Ítalíu og
stundaði þar nám. Pastað skal að
þessu sinni vera tagliatelle, en fyrir
valinu verður langoftast ýmist það
eða spaghetti, hið fyrrnefnda ef
ætlunin er að hafa það flott eins og
í kvöld. Fyrir utan pastað sjálft er
ólífuolían einna mikilvægust til
matargerðar af þessu tagi og í
körfuna fer því lítil flaska af Fil-
ippo Berio-ólífuolíu. Undir venju-
legum kringumstæðum segir Guð-
mundur þó olíuna vera eitt af því
sem venjulega er keypt inn í Bón-
us, þar sem hægt er að kaupa stóra
flösku á því sem næst saman verði
og sú litla kostar í Melabúðinni. En
olían verður að vera til staðar, sem
og hvítlaukur, þurrkaður chilipipar,
eggaldin og niðursoðnir tómatar.
Eggaldinið er fundið í grænmet-
isborðinu ásamt rucola-salatblöndu.
Að mati Guðmundar er grænmeti
heldur dýrara hérlendis en þar sem
hann var búsettur erlendis, ekki
síst salatið. „En mér finnst rucola-
salatið bara svo gott að ég kaupi
það þrátt fyrir verðið,“ segir hann.
Hvað niðursoðnu tómatana varð-
ar, segist Guðmundur helst vilja
hafa þá heila og ókryddaða vegna
verðsins, enda „óþarfa lúxus að
hafa þá saxaða“. Pastað er Barilla
og það er oftast þannig, ef það er
þá ekki ferskt. Aðspurður hvort
Barilla sé leiðandi vörumerki í
þurrkuðu pasta á Ítalíu segist hann
ekki viss. „Ég man eftir stórri aug-
lýsingu þess efnis úti í Bologna. En
annars er það ferska pastað sem
nýtur mestrar virðingar. Tegundin
skiptir í raun litlu máli,“ segir
hann.
Líkt og með beygluna, finnst
Guðmundi við hæfi að enda góða
máltíð eins og tagliatelle með egg-
aldini, „tagliatelle con sugo di mel-
anzane“ eins og það gæti kallast á
ítölsku, á góðum kaffibolla. Til þess
er valið Lavazza-kaffi, hið silfurlita
umfram hið gyllta, sem fer beint í
forláta espresso-könnuna sem fjár-
fest var í á Ítalíu, að máltíð lokinni.
HVAÐ ER Í MATINN? | Guðmundur Arnlaugsson
Ítalskt pasta og
bandarískar beyglur
Morgunblaðið/Golli
Pasta með eggaldini, „tagliatelle con sugo di melanzane“, verður í matinn
hjá Guðmundi Arnlaugssyni í kvöld.
ingamaria@mbl.is
Tagliatelle
með eggaldini
Ólífuolía, rauður chilipipar, heill
eða mulinn, salt, basil – helst
ferskt, hvítlaukur, eggaldin,
heilir tómatar í dós, tagliatelle,
parmeggiano-ostur
Eggaldinið er skorið í sneið-
ar og látið liggja í salti í nokkr-
ar mínútur til að ná úr því
mestu beiskjunni, að því loknu
er það skorið í ögn smærri og
meðfærilegri bita. Hvítlauk-
urinn er skorinn í þunnar
sneiðar.
Olía er hituð á pönnu (gott
er að hafa ríflegan skammt)
ásamt hvítlauknum og chili-
piparnum. Þegar olían er orð-
in heit er eggaldininu bætt út í
og steikt á miðlungshita þar til
það er orðið nokkuð mjúkt.
Að því búnu er tómötunum
bætt út í og þeir kramdir í
pönnunni. Hræra þarf vel í
blöndunni og leyfa henni að
malla þar til mesti safinn úr
tómötunum er gufaður upp.
Sósan er krydduð með basil og
salti eftir smekk.
Á meðan á þessu stendur
skal sjóða ríflegt magn af vatni
fyrir pastað, bæta við það salti
og skella svo pastanu út í og
sjóða , en ekki of lengi. Afar
mikilvægt er að hræra vel í
pastanu meðan á suðu stendur.
Að þessu loknu skal blanda
sósu og tagliatelle saman og
bera á borð. Gjarnan má bæta
parmeggiano-osti á disk hvers
og eins, enda sá ostur ávallt
góður.